Dagur - 18.09.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 18. september 1990
íþróffir
Crystal Palace missti af toppsætinu
Margir af lcikniönnum 1.
deildar voru í eldlínunni í vik-
unni, en þá léku öll bresku
landslidin. Ekki voru nein
þreytumerki á þeim leikmönn-
um þegar tekið var til við
deildakeppnina á laugardaginn
og flestir leikirnir voru fjörugir
og skemmtilegir. Aðalleikur
helgarinnar, leikur Liverpool
gegn Manchester Utd., var þó
færður til sunnudags þar sem
honum var sjónvarpað beint.
En þá eru það leikir laugar-
dagsins.
Ekki vantaði áhugann fyrir leik
Leeds Utd. gegn Tottenham og
seinka varð leiknum um 15 mín.
meðan áhorfendur troðfylltu
leikvanginn. Leeds Utd. hafði
betur í fyrri hálfleiknum sem var
markalaus, en Lee Chapman var
mjög ógnandi í vítateig Totten-
ham og vann þar flest skallaein-
vígi án þess að koma boltanum í
markið. Paul Gascoigne fékk þó
dauðafæri fyrir Tottenham sem
hann klúðraði, en lítið bar á hon-
um í leiknum og hélt David Batty
honum vel niðri á miðjunni.
En á 11. mín. síðari hálfleiks
fóru hlutirnir af stað og David
Howells náði forystu fyrir Tott-
enham með góðu skoti eftir send-
ingu frá Nayim. Leikmenn Leeds
- sex mörk Q.P.R. gegn Luton - Anders Limpar sá um Chelsea
Man. Utd. engin hindrun fyrir Iiverpool
Svíinn Anders Liiupar átti stúrleik
fyrir Arsenal gegn Chelsea.
Man.U Stórliðin Liverpool og td Man-
chester Utd. mættust í aðalleik
helgarinnar á sunnudag. Fyrir-
Úrslit
1. deild
Arsenal-Chelsea 4:1
Coventry-Wimbledon 0:0
Crystal I’alace-Nottingham For. 2:2
Derby-Aslon Villa 0:2
Lecds Utd.-Tottenham 0:2
Manchester City-Norwich 2:1
Q.P.R.-Luton 6:1
Southampton-Sheffield Utd. 2:0
Sunderland-Everton 2:2
Liverpool-Manchester Utd. 4:0
2. deild
Blackburn-Barnsley 1:2
Brighton-Charlton 3:2
Bristol Rovers-Hull City 1:1
Millw all-lpsw ich 1:1
Notts County-Portsmouth 2:1
Oldham-Oxford 3:0
Plymouth-Leicester 2:0
Port Vale-Newcastle 0:1
Sheffield Wed.-Watford 2:0
Swindon-Middlesbrough 1:3
W.B.A.-Bristol City 2:1
West Ham-Wolves 1:1
Utd. hófu leikinn á miðjunni og
boltinn barst inn í teiginn til Imre
Varadi sem sneri Gary Mabbutt
af sér og sendi knöttinn í netið.
Lfnuvörðurinn gaf merki um að
markið væri gott og gilt, en dóm-
arinn var ekki á sama máli,
dæmdi markið af þar sem hann
taldi Varadi hafa hrint Mabbutt.
Leikmenn Tottenham geystust
fram í sóknina framhjá vonsvikn-
um Leedsurum, Pat Van den
Hauwe sendi fyrir markið og þar
kom Gary Lineker og afgreiddi
knöttinn í netið. Þar með var
leikurinn unninn hjá Tottenham,
en fróðlegt hefði verið að sjá
hvernig hann hefði þróast ef
jöfnunarmark Leeds Utd. hefði
veríð dæmt gilt.
Tottenham átti sigurinn fylli-
lega skilið,. liðið lék mjög vel í
síðari hálfleiknum og áttu varn-
armenn Leeds Utd. í hinu mesta
basli með þá Lineker og Paul
Stewart sem léku nijög vel í
framlínu Tottenham og er liðið
til alls líklegt í vetur.
O-P.R. tók Luton í gegn og
sigraði 6:1, með Roy Wegerle
sem liðið keypti einmitt frá
Luton sem besta mann. Hann
skoraði sjálfur tvö mörk, það
fyrsta og fjórða, átti þátt í tveim
öðrum og varnarmenn Luton
réðu ekkert við hann í leiknum.
Luton lék þó vel í fyrri hálfleikn-
um, en leikmenn liðsins voru
óheppnir uppi við markið, í síð-
ari hálfleiknum var hins vegar um
einstefnu að ræða. Andy Sinton,
Ray Wilkins, Mark Falco og Paul
Parker skoruðu fyrir Q.P.R. sitt
markið hver auk marka Wegerle.
Ceri Hughes skoraði eina mark
Luton í leiknum.
Anders Limpar, Svíinn snjalli,
átti stórleik fyrir Arsenal gegn
Chelsea og var maðurinn á bak
við góðan sigur liðsins. Fyrri
hálfleikur var markalaus, en í
síðari hálfleiknum fengu leik-
menn Chelsea að finna fyrir Sví-
anum. Hann skoraði fyrsta mark
Arsenal og síðan var hann felldur
innan vítateigs og Lee Dixon
skoraði úr vítaspyrnunni. Hann
lét þó ekki þar við sitja og átti
stóran þátt í mörkum þeirra Paul
Merson og David Rocastle sem
komu Arsenal í 4:0. Síðustu 5
mín. leiksins gerði Chelsea harða
hríð að marki Arsenal, Kevin
Wilson náði að skora en misnot-
að síðan vítaspyrnu og David
Seaman í marki Arsenal varði
þrívegis vel, allt á síðustu 5 mín.
leiksins og segja má að leikmenn
Chelsea hafi verið of seinir í
gang.
Crystal Palace hefði með sigri
gegn Nottingham For. komist í
efsta sæti 1. deildar, fram á
sunnudag að minnsta kosti, en
það tókst ekki og liðið mátti
þakka fyrir jafntefli í skemmti-
leguin leik. Palace hóf þó leikinn
vel og Ian Wright dansaði fram-
hjá fjórum varnarmönnum For-
est áður en hann lagði boltann
fyrir Richard Shaw sem skoraði
sitt fyrsta deildarmark eftir 1
mín. og 20 sek. leik. Garry
Thompson og Wright hcfðu get-
að bætt við mörkum fyrir Palace í
fyrri hálfleik og hefðu betur gert
það því að leikur Forest var allur
annar í síðari hálfleiknum. Des
Walker og Stuart Pearce sem
höfðu verið slakir í fyrri hálfleik,
tóku við sér og Pearce náði for-
ystu fyrir Forest með tveim
mörkum á jafn mörgum mín.,
fyrst með skoti gegnum vörnina
og það síðara með þrumuskoti úr
aukaspyrnu af löngu færi. Það
virtist ætla að duga til sigurs, en 5
mín. fyrir leikslok jafnaði fyrir-
liði Palace, Geoff Thomas, með
skalla og jafnteflið sanngjörn
úrslit.
Manchester City lék mjög vel í
fyrri hálfleik gegn Norwich og
náði forystu á 21. mín. Peter
Reid gaf fyrir markið á Adrian
Heath sem skaut í varnarmann
en Niall Quinn náði boltanum og
sendi hann í netið. 5 mín. síðar
bætti Mark Brennan öðru marki
við, en hann hafði komið inn á
sem varamaður fyrir Steve
Redmond. City missti tökin á
leiknum í síðari hálfleik og
Norwich náði að minnka muninn
á 78. mín. er Robert Fleck skor-
aði, en lengra komst Norwich
ekki og sigur Man. City í höfn.
Þótt merkilegt megi virðast
hafði Derby yfirburði yfir Aston
Villa í leik liðanna, en tapaði þó
2:0. Á 15. mín. náði Tony Daley
óvænt forystu fyrir Villa er hann
eldsnöggur náði skallabolta frá
Tony Cascarino og afgreiddi í
netið án þess að Peter Shilton
hefði möguleika á að verja.
Derby hélt áfram að sækja og
Dean Saunders átti þrumuskot í
þverslá Villa á 30. mín. og Nigel
Spink í marki Villa varði mjög
vel fjögur skot í fyrri hálfleikn-
um. Sama sagan var í síðari hálf-
leik þar sem Derby gerði allt
nema skora og leikmenn Villa
lágu í vörn. Þegar 15 mín. voru
til leiksloka kom síðan rothöggið
fyrir Derby er David Platt skaut
frá vítateigslínu í varnarmann og
boltinn fór yfir Shilton í markið.
En það eru mörkin sem gilda.
Leikur Sunderland og Everton
var spennandi, en lið Sunderland
mátti svo sannarlega þakka fyrir
jafnteflið. Sunderland náði þó
forystu á 9. mín. er Peter Daven-
port skoraði úr vítaspyrnu eftir
að brotið var á Marco Gabbia-
dini, en Graeme Sharp jafnaði á
27. mín. með marki úr auka-
spyrnu. Gabbiadini náði aftur
forystu fyrir Sunderland með
mjög góðu marki, en Mike New-
ell jafnaði fyrir Everton rétt fyrir
hlé. Everton átti síðari hálfleik-
inn og Newell, Mike Milligan og
Pat Nevin léku mjög vel. Sharp
og John Ebbrell fengu báðir góð
færi til að gera út um leikinn fyrir
Everton, en mistókst og liðið
varð að sætta sig við jafntefli.
Southampton sigraði Sheffield
Utd. 2:0 þar sem Matthew Le
Tissier skoraði eftir einleik í fyrri
hálfleik og Rodney Wallace bætti
öðru við í síðari hálfleik. Vinnie
Jones var fyrirliði Sheffield Utd.
í lciknum, en hann var keyptur
frá Leeds Utd. í vikunni fyrir
fram var búist við jöfnum leik
þessara risa, en annað kom þó
á daginn. Liverpool sigraði
4:0, stærsti sigur liðsins gegn
Utd. í 65 ár.
Leikmenn Liverpool höfóu
skorað þrjú mörk er flautað var
til leikhlés, en það segir ekki allt
um gang fyrri hálfleiksins. Lengi
vel var það lið Utd. sem sótti
stíft, en tókst ekki að skora. Neil
Webb átti skalla í þverslá og þeir
Mark Robins, Paul Ince og Gary
Pallister voru allir nærri að
skora. Les Sealey markvörður
Utd. hafði þá aðeins snert bolt-
ann einu sinni, en það var er
hann sótti knöttinn í netið eftir
að Peter Beardsley hafði skorað
fyrsta markið á 11. mín. En á síð-
ustu 10 mín. fyrri hálfleiks bætti
Beardsley öðru marki sínu við og
John Barnes slökkti endanlega
vonir Utd. með þriðja marki
Liverpool með skalla.
I síðari hálfleiknum voru yfir-
burðir Liverpool hins vegar miklir
þótt liðið bætti aðeins einu marki
við. Beardsley skoraði sitt þriðja
mark, en margir vildu þó meina
að hann hafi verið rangstæður.
Alex Ferguson verður nú að rífa
sína menn upp fyrir Evrópuleik
liðsins á miðvikudarinn. Liver-
pool hefur hins vegar tekið fjög-
urra stiga forskot í 1. deild og erf-
itt að sjá hvernig liðið verði
stöðvað eftir að hafa sigrað í
fimm fyrstu leikjum sínum.
Þ.L.A.
Peter Beardsley lcikur hér á Mike Phelan hjá LJtd. en Beardsley skoraði
þrjú af mörkum meistaranna.
700.000 pund og hugsar sínum
fyrri félögum örugglega þegjandi
þörfina, en liðin mætast um
næstu helgi.
Leikmenn Wimbledeon eru
ferskir nú í sláturtíðinni og sýna
allar sínar bestu hliðar. Liðið
náði markalausu jafntefli á úti-
velli gegn Coventry þrátt fyrir að
varnarmaðurinn John Scales væri
rekinn út af snemma í leiknum.
2. deild
• Oldham hefur forystu í 2.
deild, sigraði Oxford 3:0 og Ian
Marshall bætti enn marki á
markareikning sinn hjá Oldham.
• Sheffield Wed. er í öðru sæti
efti 2:0 sigur á Watford þar sem
þeir Nigel Pearson og Nigel
Worthington sáu um að skora
mörkin.
• Alex Rae náði forystu fyrir
Millwall gegn Ipswich, en Chris
Kiwomya náði að jafna.
• Alvin Martin náði forystu fyrir
West Ham gegn Wolves, en
Steve Bull sætti sig ekki við það
og jafnaði.
• Duncan Shearer kom Swindon
í 1:0 gegn Middlesbrough, en
Bernie Slaven með tvö mörk og
Robbie Mustoe sneru leiknum
Middlesbrough í hag.
• Pcter Swan jafnaði fyrir Hull
City eftir að David Mehew hafði
komið Bristol Rovers yfir.
• Mike Quinn skoraði sigur-
mark Newcastle gegn Port Vale.
• Gamla kempan Frank Staple-
ton skoraði fyrir Blackburn, en
það dugði skammt gegn tveim
mörkum Barnsley. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Liverpool 5 5-0-0 13: 3 15
Arsenal 5 3-2-0 10: 3 11
Tottcnham 5 3-2-0 8: 1 11
Crystal Palace 5 3-2-0 9: 4 11
Manchester City 53-1-1 7: 610
Manchester Utd. 63-1-2 7: 7 10
Q.P.R. 5 2-1-2 9: 6 7
Aston Villa 5 2-1-2 7: 6 7
Leeds Utd. 5 2-1-2 6: 5 7
Southainpton 5 2-1-2 6: 6 7
Luton 6 2-1-3 6:11 7
Nottingham For. 5 1-3-1 8: 8 6
Chclsea 5 2-0-3 7:10 6
Sunderland 5 1-2-2 8: 9 5
Coventry 5 1-2-2 6: 7 5
Wimbledon 5 1-2-2 3: 5 5
Norwich 5 1-0-4 4:11 3
Everton 5 0-2-3 6:10 2
Sheffield Utd. 5 0-2-3 3: 8 2
Derby 5 0-2-3 3: 9 2
2. deild
Oldham 5 5-0-0 12: 3 15
Sheffield Wed. 4 4-0-0 10: 1 12
Millwall 4 3-1-0 9: 4 10
Notts County 4 3-0-1 7: 4 9
Newcastle 4 3-0-1 5: 2 9
West Ham 5 2-3-0 5: 3 9
Middlesbrough 4 2-2-0 5: 2 8
Bristol City 4 2-1-1 7: 5 7
W.B.A. 4 2-1-1 7: 5 7
Ipswich 5 2-1-2 5: 6 7
Swindon 5 2-1-2 5: 6 7
Brighton 4 2-1-1 6: 5 6
Wolves 5 1-3-1 7: 7 6
Plymouth 5 1-3-1 5: 5 6
Port Vale 5 2-0-3 9:10 6
Barnslev 4 2-0-2 5: 7 6
Bristol Rovers 4 1-2-1 6: 6 5
Oxford 4 1-0-3 7:11 3
Blackburn 51-04 6:10 3
Leicester 51-0-4 4:10 3
Portsmouth 5 0-2-3 6:11 2
Hull City 5 0-2-3 5:11 2
Watford 4 0-14 2: 7 1
Charlton 4 0-0-4 4: 7 0