Dagur - 30.10.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, þriðjudagur 30. október 1990 208. tölublað
Tveimur mönnum bjargað úr sjávarháska:
Trilla sökk við Látra-
strönd í Evjafírði
niður,“ sagði Bjarni Ármanns-
son frá Hrísey.
Að sögn Bjarna fengu þeir
björgunarsveitarmenn ranga
staðarákvörðun og héldu að trill-
an hefði strandað við austur-
strönd Hríseyjar. Björgunar-
mennirnir sáu siglingaljós austur
á sundinu upp undir Látraströnd-
inni og þangað var því stefnt. Er
að var komið reyndist báturinn
þar í nauðum.
„Mennirnir voru búnir að yfir-
gefa trilluna og komnir í gúmmí-
björgunarbátinn. Pá hafði hrakið
frá trillunni. Höfðu ekki þorað
að binda sig fasta við hana.
Óhappið varð 600 til 800 metrum
frá ströndinni. Menn telja ólík-
legt að trillan hafi lent á skeri.
Líklegra er talið að hún hafi rek-
ist á rekaviðardrumb. Björgunar-
menn tóku skipbrotsmennina um
borð til sín og bundu björgunar-
bátinn þeirra við trilluna. Mér
barst tilkynning um að möguleiki
væri á björgun trillunnar og sendi
því Hríseyjarferjuna til hjálpar.
Er að var komið var trillan farin
niður ásamt gúmmíbjörgunarbát-
inum. Trillan var skráð fjögur
tonn og var í eigu Snorra Sigfús-
sonar frá Akureyri. Snorri var
nýbúinn að kaupa bátinn og var á
heimleið. Bróðir hans var með í
för, Friðrik Sigfússon, þegar
óhappið varð. Suðaustan strekk-
ingur var á sundinu og gekk á
með hryðjum. Allt fór vel, þar
sem mönnunum var bjargað,“
sagði Bjarni Ármannsson. ój
Veðurspáin næstu daga:
„Veðurhorfiiraar
era daprar“
- segir Bragi Jónsson
„Já, veðurhorfurnar eru
daprar. Bölvaður skífur,“
sagði Bragi .lónsson, veður-
fræðingur á Veðurstofu ís-
lands, er hann var spurðnr
um veðrið næstu daga.
„Spáin fyrir þriðjudaginn er
norðaustan hvassviðri með
kalsarigningu og slyddu til
íjalla. Á miðvikudag verður
áfram norðlæg átt með kalda
og éljagangi, en á föstudag
verður komið logn, léttskýjað
og frost,“ sagði Bragi. ój
Verkmenntaskólinn:
C-álman aflient
C-álma Verkmenntaskólans
á Akureyri var afhent og
tekin í notkun við hátíðlega
athöfn sl. föstudag.
Haukur Jónsson, aðtoðar-
skólameistari, veitti C-álm-
unni móttöku að viðstöddum
fjölmörgum gestum, bæjarfull-
trúum á Akureyri, skólanefnd-
armönnum og framkvæntda-
aðilurn. Nánar verður greint
frá afhendingu C-álmu og
stöðu framkvæmda við VMA í
Degi síðar í vikunni. EHB
Kári Arnórsson var með lófa-
taki endurkjörinn formaður
Landssambands hestamanna-
félaga á 41. ársþingi félagsins
sem fram fór, með meiri frið-
semd en margir bjuggust við, í
Félagsheimili Húsavíkur sl.
föstudag og laugardag.
Kári setti þingið á föstudags-
morgun og lýsti yfir sérstakri
ánægju sinni með að koma til
þings á Húsavík, þar sem hann
hefði átt sín fyrstu spor. Kári
heiðraði síðan Gunnar Bjarna-
son, hrossaræktarráðunaut með
gullmerki félagsins, en Gunnar er
einnig uppalinn á Húsavík. Einar
Njálsson, bæjarstjóri ávarpaði
þingið og afhenti Gunnari blóm-
vönd og eintak af Sögu Húsavík-
ur.
Um 120 fulltrúar sátu þingið
auk nokkurs fjölda gesta. F>ing-
forsetar voru Arngrímur Geirs-
son og Halldór Gunnarsson. Á
föstudag var flutt skýrsla
stjórnar, Steingrímur J. Sigfús-
son, landbúnaðarráðherra flutti
erindi um hrossarækt sem bú-
grein. Milliþinganefndir skiluðu
áliti um skipulagsmál LH og
fyrirkomulag stórmóta, tillögur
voru lagðar fram og nefndir tóku
til starfa.
Á laugardagsmorgun héldu
nefndarstörf áfram, en síðan skil-
uðu nefndir áliti og fram fóru
umræður og afgreiðsla mála. Pó
allir væru ekki alltaf sammála
voru mál afgreidd með meiri frið-
semd en margir hafa líklega
reiknað með fyrir þingið. En
fjölda mála var vísað til nánari
umfjöllunar stjórnar, milliþinga-
nefnda eða félaga.
Mikil spenna skapaðist þó á
þinginu eftir að Ingimar Sveins-
son lagði fram tillögu kynbóta-
nefndar. Reynir Hjartarson frá
Akureyri sagði að kynbótanefnd
hefði staðið á miklu þverhnípi
kvöldið áður og hefðu menn ver-
ið komnir méö tærnar fram af
brúninni er þeir settust niður með
það eitt að sjónarmiði að finna
lausn á ósamkomulaginu. Menn
hefðu verið að berja hver á öðrum
í stað þess að finna lausn á mál-
um, nú þyrftu menn að standa
saman og koma viti í umræðuna.
Andrés Kristinsson lagði fram
breytingartillögu og Þorkell
Bjarnason sagði að þar með hefði
hann kastað stríðshanska. Kári
Arnórs sagði illt í efni ef ekki
væri hægt að vinna að málum án
Akveðið er að breyta bílaverk-
stæði og trésmiðju Kaupfélags
Langnesinga á Þórshöfn í
hlutafélög. Að stofnun hluta-
félaganna standa kaupfélagið
og væntanlega einstaklingar og
fyrirtæki. Hlutafélögin taka
formlega við rekstrinum um
áramót.
Að sögn Kristjáns Karls Krist-
jánssonar er þetta gert til þess að
ná skarpari skilum í rekstri ein-
stakra deilda kaupfélagsins.
Rekstrinum sem slíkum verður
þó ekki breytt. Miðað er við að
hlutafélögin taki við rekstri bíla-
verkstæðisins og trésmiðjunnar
um áramót, en fram að áramót-
um leigi kaupfélagið reksturinn
af hlutafélögunum. „Það er ekki
aðalmálið í þessu að koma með
þess að óttast klofning á eftir
hverju málínu á fætur öðru. Skúli
Kristjánsson varaformaður sagð-
ist standa og falla með tillögu
Andrésar. Þorkell lagði til að til-
lögu Andrésar yrði vísað frá og
annað gætu menn ekki sætt sig
við. Reynir sagði það mikla
ógæfu ef þetta væri leiðin sem
ætti að fara og bað menn að
hengja sig ekki í orðaleiki og orð-
hengilshátt. Þingforseti tilkynnti
einnar mínútu hlé og síðan var
ákeðið að gera kaffihlé og ríkti
þá rafmögnuð spenna í salnum er
maður gekk undir manns hönd til
aukið fjármagn inn í reksturinn.
Með þessu selur kaupfélagið
hlutafélögunum eignir og þar
með nær kaupfélagið inn pening^
um, sem verður varið til að
greiða niður skuldir.“
Kristján Karl segir ekki alveg
frágengið hversu stóran hlut
Kaupfélag Langnesinga komi til
með að eiga í hinum nýju hluta-
félögum, en að minnsta kosti
verði það meirihluti. „Það er gert
ráð fyrir að þetta verði dótturfyr-
irtæki og kaupfélaginu ber sið-
ferðisleg skylda til að fylgjast vel
með að þetta gangi vel upp,“
sagði Kristján Karl.
Auk þessara breytinga á rekstri
bílaverkstæðis og trésmiðju er
ýmislegt annað á döfinni hjá
Kaupfélagi Langnesinga. Fram
að ná sáttum um tillöguna.
„Hvernig sem þetta fer þá lifa
gæðingarnir," sagði Gunnar
Bjarnason hinn rólegasti, við
blaðamann Dags á þessari raf-
mögnuðu stundu. Að loknu hléi
dró Andrés tillögu sína til baka
og þingheimur samþykkti tillögu
kynbótanefndar í einu hljóði.
Þingheimur lýsti síðan yfir fullu
trausti við fulltrúana með lófa-
taki, samkvæmt beiðni frá Kára.
Að kosningum loknunt var
þinginu slitið en um kvöldið var
haldin árshátíð sem um 300
manns sóttu. IM
hefur komið að kaupfélagið vinn-
ur að því að koma á fót bakaríi í
gömlu mjólkurstöðinni, sem ýtt
verður úr vör innan tíðar.
Þegar fyrir liggur að bílaverk-
stæði og trésmiðju verður breytt í
hlutafélög er Kaupfélag Langnes-
inga eingöngu með á sinni könnu
verslunarrekstur og skipa-, bíla-
og olíuafgreiðslu. Sem kunnugt
er seldi kaupfélagið hlut sinn í
Útgerðarfélagi Norður-Þingey-
inga í vor, þegar útgerð og fisk-
vinnsla á Þórshöfn voru stokkuð
upp.
Rekstur Kaupfélags Langnes-
inga gekk erfiðlega í fyrra, en þá
varð umtalsvert tap á rekstrinum.
Kristján Karl segir fyrirsjáanlegt
að mun betur gangi í ár og vonir
séu til þess að reksturinn verði
réttu megin við núllið. óþh
Kaupfélag Langnesinga:
Ákveðið að breyta trésmiðju
og bflaverkstæði í hlutafélög
- kaupfélagið mun eiga meirihluta í hlutafélögunum
Mynd: IM
Trilla sökk á Eyjafirði úti af
Látraströnd sl. sunnudagsmorg-
un. Tveir voru um borð og var
bjargað af mönnum úr Hrísey.
„Ég fékk tilkynningu um
óhappið kl. 6.00 á sunnudags-
morguninn og skellti mér strax
niður í slysavarnaskýli. Mitt
fyrsta verk var að kalla mína
menn út. Þeir lögðu í hann
tæplega hálfri stundu eftir að
kalliö barst og fundu mennina
tvo um klukkan 7.00 í gúmmí-
björgunarbáti, 600-800 metr-
um úti af Látraströndinni. Allt
vannst hratt og vel og mönnun-
um var bjargað, en trillan fór
Fulltrúar á hinu fjölmenna ársþingi LH á Húsavík.
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Ársþing Landssambands hestamannafélaga á Húsavík:
Tillaga kynbótaneMar samþykkt í einu
hljóði eftir raflnagnaða spennu í fundarhléi
- „hvernig sem þetta fer þá lifa gæðingarnir,“ sagði Gunnar Bjarnason