Dagur - 30.10.1990, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 30. október 1990 - DAGUR - 11
hér & þor
Höfundur Söngva Satans:
Innan Qögurra veggja
um ókomin ár
Allt frá því að rithöfundurinn
Salman Rushdie gaf út bókina
Sálmar Satans hefur hann lifað
við reiði Múhameðstrúarmanna,
sem telja að með bókinni hafi
Rushdie framið guðlast og mis-
þyrmt ýmsu í trúarbrögðum
þeirra. Khomeni fyrrum erki-
klerkur í íran gekk lengst í heift
sinni enda var hann einn af hörð-
ustu ofsatrúarmönnum í heimi.
Hann lét þau boð út ganga að
Rushdie væri réttdræpur hvar
sem til hans næðist. Fjöldi
múslima, einkum íranir voru til-
búnir að hlýða kalli Khemenis og
framfylgja skipun hans. Af þeim
sökum hefur Salman Rushdie
orðið að fara huldu höfði allt frá
því að bók hans var gefin út.
Nú þegar Bretland og íran
hafa ákveðið að taka upp stjórn-
málaleg tengsl mætti ætla að
Rushdie gæti komið óáreittur úr
fylgsni sínu. Khomeni erkiklerk-
ur er genginn á vit feðra sinna og
„hófsamari“ menn teknir við
stjórnartaumunum í Iran. Allir
múslimar eru þó ekki sammála
um fyrirgefningu til handa rit-
höfundinum sem vanhelgaði trú-
arsetningar þeirra. Malise
Ruthven, sem búsettur er í
London sagði að dauðadómurinn
yfir Salman Rushdie væri óaft-
urkallanlegur. Þótt stjórnvöld í
Teheran afturkölluðu dauða-
dóminn opinberlega myndi það
ekki hindra marga einstaka
múslima frá því að ganga frá
Rushdie dauðum kæmust þeir í
færi við hann. Ástæður þess segir
hann meðal annars vera þær að
andstaða við Rushdie eigi upp-
haflega rætur til múslima í Suður-
Asíu og á Bretlandseyjum en
ekki í Teheran. „Það eru þúsund-
ir milljóna múslima í heiminum
en það þarf aðeins einn til að
myrða Rushdie,“ sagði Malise
Ruthven. Líkur eru því til að
Salman Rushdie verði að fara
huldu höfði og dveljast innan
ijögurra veggja um ókomin ár.
Salman Rushdic hcfur farið huldu höfði síðan bók hans, Söngvar Satans, var
gefin út.
Díana prinsessa:
205 miUjónir í föt
Hvaða upphæðum verður eftir-
sóttasta ljósmyndaagn veraldar
að eyða í föt? Þessari spurningu
var varpað fram í tímaritinu
Newsweek nýlega. Par segir að í
nýlegri nærmynd af Díönu prins-
essu komi fram að hún hafi eytt
1,9 milljónum sterlingspunda eða
205 milljónum íslenskra króna til
fatakaupa síðan hún trúlofaðist
Karli Bretaprins árið 1981.
Árlegur kostnaður vegna fata-
kaupa prinessunnar er áætlaður
211.216. sterlingspund eða tæpar
23 milljónir króna. Diana hefur
samkvæmt þessum upplýsingum
meðal annars fest kaup á 95
kvöldkjólum, 176 kjólum, 178
jakkasettum, 54 yfirhöfnum, 141
hatti og slæðum, 71 blússu, 29
pilsum, 25 buxum, 29 jökkum,
350 pörum af skóm og 200 hand-
töskum. Samanlagt á hún að hafa
eytt 22.950 pundum til kaupa á
undirfatnaði og 34.000 pund fóru
í náttfatnað prinsessunnar.
Gamla kaupfélagsverslunin á Hauganesi við Eyja-
fjörð hefur fengið annað yfirbragð. Þrjár konur,
SofTía Ragnarsdóttir, Soffía Jónsdóttir og Björk
Brjánsdóttir, tóku húsnæði vcrslunarinnar á leigu
frá og með 1. október sl. og reka þar nú matvöru-
verslun. Á boðstólum eru allar algengustu matvör-
ur, brauð og mjólkurvörur. í versluninni er kaffi-
horn þar sem viðskiptavinir geta sest niður og
drukkið kaffí og bitið í brauð. Að sögn Soffíu Jóns-
dóttur hafa viðtökur viðskiptavina verið með mikl-
um ágætum og eru þær stöllur bjartsýnar á verslun-
arreksturinn. Myndin var tekin á dögunum þegar
Dagur átti leið um Hauganes. Á innfelldu myndinni
er Soffía Jónsdóttir að afgreiða viðskiptavin.
Mynd: óþh
Húsbyggendur og
verktakar
Þeir húsbyggendur og verktakar sem ætla að fá
tengda heimæð í haust þurfa að skila umsókn þar
um fyrir 5. nóvember 1990.
Heimæðar verða ekki lagðar ef jörð er frosin nema
gegn greiðslu aukakostnaðar.
Hitaveita Akureyrar,
Póstur og Sími Akureyri,
Rafveita Akureyrar,
Vatnsveita Akureyrar.
(|j|| Aðalfundur
Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna á Akureyri verður
haldinn að Hafnarstræti 90, fimmtudaginn 1.
nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstöf.
2. Önnur mál.
Fulltrúaráðsfólk er hvatt til að mæta á fundinn.
Stjórnin.
Pottablóm
Blómapottar - áburður - mold og
margt fleira til blómaræktunar.
Akureyri
og 24830
Tannaskautar kr. 2.870.-
Hockeyskautar kr. 3.490.-
Pekkir og kylfur
Sportvörudeild