Dagur - 30.10.1990, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 30. október 1990 - DAGUR - 9
David Howells tryggði Tottenham sigur
- allt jafnt í Manchester - Liverpool sigrar á ný
Geoff Thomas, fyrirliði Crystal Palace, hefur skorað mikið af mörkum fyrir
lið sitt sem er taplaust í 1. deild.
Ensku liðunum tveim í Evrópu-
keppnunum gekk vel í vikunni,
en þá fóru fram fyrri leikirnir í
2. umferð. Bæði liðin voru á
heimavelli, Aston Villa sigraði
Inter Milan 2:0 með mörkum
frá Kent Nielsen og David Platt,
en Man. Utd. sigraði Wrex-
ham 3:0 og þar skoruðu þeir
Brian McCIair, Steve Bruce og
Gary Pallister. En um helgina
var leikið í deildakeppninni og
þar gekk á ýmsu.
David Howells kom mikið við sögu
! hjá Tottenham er liðið sigraði Nott-
ingham Forest um helgina.
Úrslit
1. deild
Arsenal-Sunderland 1:0
Aston Viila-Leeds Utd. 0:0
Crystal Palace-Wiinbledon 4:3
Liverpool-Chelsea 2:0
Luton-Everton 1:1
Man. City-Man. Utd. 3:3
Nottingham For.-Tottenhani 1:2
Q.P.R.-Norwich 1:3
Shefííeld Utd.-Coventry 0:1
Southampton-Derby 0:1
2. deild
Barnsley-Swindon 5:1
Brighton-Middlesbrough 2:4
Bristol Kovers-Portsmouth 1:2
Leicester-Ipswich 1:2
Millwall-Shefíield Wed. 4:2
Newcastle-W.B.A. 1:1
Oldham-Notts County 2:1
Plymouth-Hull City 4:1
Port Vale-Bristol City 3:2
Watford-Oxford 1:1
West Ham-Charlton 2:1
Wolves-Blackburn 2:3
Úrslit í vikunni.
Port Vale-W.B.A. 1:2
Barnsley-Shefíield Wed. 1:1
Oldham-Ipswich 2:0
Plymouth-Notts County 0:0
Watford-Portsmouth 0:1
Wolves-Middlesbrough 1:0
Brighton-Hull City 3:1
Bristol Rovers-Oxford 1:0
Leicester-Swindon 2:2
Millwall-Bristol City 1:2
Newcastle-Charlton 1:3
West Ham-Blackburn 1:0
Leikur Nottingham For. gegn
Tottenham var sýndur í beinni
útsendingu hjá Bjarna Fel. og
þarf því ekki mikillar umfjöllun-
ar við. Frábær leikur tveggja
góðra liða. Forest hafði betur í
fyrri hálfleik, en Tottenham í
þeim síðari og það dugði Totten-
ham til sigurs, en jafntefli hefðu
verið réttlát úrslit. Ekki voru þeir
Guðni Bergsson og Þorvaldur
Örlygsson meðal leikmanna lið-
anna að þessu sinni. Nigel
Clough náði forystu fyrir Forest á
16. mín. eftir sendingu Nigel
Jemsons og Roy Keane átti síðan
skot í slá hjá Tottenham. David
Howells hjá Tottenham stal síð-
an senunni í síðari hálfleik, jafn-
aði með góðu skoti á 68. mín. og
skoraði sigurmark Tottenham
með glæsilegum skalla á síðustu
mín. leiksins. Rétt áður hafði
hann varið á línu skot frá Gary
Crosby og getur Tottenham því
þakkað honum öðrum fremur sig-
urinn. Brian Clough fram-
kvæmdastjóri Forest hélt upp á
það á laugardag að 25 ár voru frá
því að hann gerðist framkvæmda-
stjóri á Englandi, en hann hefði
kosið betri úrslit í leiknum.
Liverpool var ekki lengi að
jafna sig eftir jafnteflið gegn
Norwich um síðustu helgi og er
nú aftur komið á sigurbraut. Lið-
ið lék heima gegn Chelsea og
sigraði 2:0. Ian Rush gaf liði sínu
óskastart í leiknum er hann skor-
aði strax á 3. mín. eftir undirbún-
ing Peter Beardsley og John
Barnes. Barnes var aftur á ferð-
inni á 17. mín. er hann lék sér að
varnarmönnum Chelsea áður en
hann vippaði boltanum yfir höf-
uðið á Steve Nicol sem skallaði í
netið. Ekki urði mörkin fleiri í
leiknum, en leikmenn Chelsea
léku sóknarleik og sköpuðu sér
góð færi í leiknum sem þeim
tókst þó ekki að nýta. Liverpool
hefði einnig getað bætt við mörk-
um í þessum opna og skemmti-
lega leik sem var mjög vel leikinn
af báðum liðum.
Manchester liðin City og Utd.
mættust í æsispennandi leik á
heimavelli City þar sem heima-
liðið hafði yfir 3:1 er 15 mín.
voru til leiksloka. City hafði
undirtökin í leiknum ef frá eru
taldar fyrstu og síðustu mín. síðari
hálfleiks. David White kom City
yfir með tveim mörkum um miðj-
an fyrri hálfleik og leikmenn
Utd. höfðu varla átt skot að
marki. En Mark Hughes náði að
laga stöðuna í 2:1 með fallegu
skallamarki eftir sendingu Denn-
is Irwin. En City hélt áfram að
sækja og White átti skalla í
þverslá. Colin Hendry kom City í
3:1 þegar 15 mín. voru til leiks-
loka, en Brian McClair lagaði
stöðuna strax í 3:2 eftir að hafa
náð boltanum af David Bright-
well. Það var síðan McClair sem
tryggði Utd. jafnteflið er hann
skallaði í mark City af stuttu færi
eftir að Steve Bruce hafði skallað
boltann til hans og City sat eftir
með sárt ennið og aðeins eitt stig.
Crystal Palace heldur sínu
striki og lagði nú lið Wimbledon
að velli í miklum markaleik. Lið
Palace er mjög líflegt og leikur
vel, en það var Paul McGee sem
náði forystu fyrir Wimbledon á 9.
mín. Geoff Thomas jafnaði fyrir
Palace með skalla 3 mín. síðar og
liðið með Andy Gray og Ian
Wright sífellt á ferðinni náði góð-
um tökum á leiknum. Bakvörð-
urinn John Humphrey og Gray
komu Palace síðan í 3:1 með
góðum mörkum, en síðan slakaði
liðið á og þrjú mörk á síðustu 9
mín. leiksins fengu áhorfendur til
að skjálfa af spennu. En mark frá
Mark Bright tryggði Palace sigur-
inn eftir að McGee hafði skorað
sitt annað mark og John Fashanu
hafði einnig skorað fyrir Wimble-
don sem seint gefst upp.
Everton hefur aldrei unnið
Luton á gervigrasvelli þeirra og á
því varð ekki breyting á laugar-
dag. Lars Elstrup náði forystu
fyrir Luton með góðum skalla
eftir sendingu Richard Harvey í
fyrri hálfleik og þeir David Preece
og Harvey hefðu getað bætt við
mörkum fyrir liðið, en Neville
Southall í marki Everton sá við
þeim. Everton lék betur í síðari
hálfleik og Tony Cottee og
Graeme Sharp voru ógnandi, en
það var Pat Nevin sem náði að
jafna fyrir Everton af stuttu færi
eftir að vörn Luton mistókst að
hreinsa frá marki. Bæði lið fengu
síðan færi á að skora sigurmark-
ið, Cottee átti skot í hliðarnetið
fyrir Everton og Iain Dowie fékk
tvö góð færi fyrir Luton, en jafn-
teflið staðreynd þrátt fyrir að
Luton með Steve Williams sem
besta mann teldi sig hafa unnið
fyrir öllum stigunum.
Norwich neyddist til þess í síð-
ustu viku að taka hinn 18 ára
gamla Lee Power í lið sitt vegna
meiðsla Robert Rosario og leik-
banns Robert Fleck, en það hef-
ur ekki skaðað liðið. Um síðustu
helgi tók hann þátt í að stöðva
sigurgöngu Liverpool og nú skor-
aði hann tvö mörk er Norwich
lVIick Harford skoraði sigurmark
Derby í óvæntum sigri gegn Sout-
hampton.
sigraði Q.P.R. 3:1 á útivelli.
Norwich hafði yfir 2:0 í hálfleik
með mörkum Power og David
Phillips, en Roy Wegerle lagaði
stöðuna fyrir Q.P.R. á 57. mín.
með marki úr vítaspyrnu, hans 9.
mark í haust. Heimamönnum
tókst hins vegar ekki að ná tök-
um á leiknum og Power gull-
tryggði sigur Norwich með sínu
öðru marki á 70. mín. Jan Stej-
skal markvörður Q.P.R. átti
slakan dag, en erfitt er að
skamma hann því hann skilur
varla orð í ensku.
Staða Sheffield Utd. er að
verða erfið, liðið hefur enn ekki
unnið leik og er nú eitt á botnin-
um. Ekki gat liðið kvartað undan
tapinu heima gegn Coventry sem
ekki hafði unnið leik á útivelli því
Coventry hefði hæglega geiað
gert út um leikinn í fyrri hálfleik.
David Speedie og Kevin Gallacher
misnotuðu tvö góð færi hvor í
fyrri hálfleik. Pað virtist um tíma
sem Sheffield ætlaði að færa sér
það í nyt og Brian Borrows
bjargaði á línu fyrir Coventry frá
Brian Marwood og Steve Ogriz-
ovic í marki Coventry varði mjög
vel frá Vinnie Jones og Brian
Deane. Peir vildu einnig fá víta-
spyrnu er Tony Agana féll í
teignum eftir samstuð við Trevor
Peake. En Coventry stóð af sér
storminn og skoraði sigurmarkið
á 79. mín. úr vítaspyrnu Borrows
eftir að Cyrille Regis hafði verið
felldur af Simon Tracey mark-
verði Sheffield.
Derby vann óvæntan sigur á
útivelli gegn Southampton, en sá
sigur var sanngjarn. Nigel Callag-
han í láni frá Aston Villa átti
góðan leik hjá Derby sem lék vel
í þessum leik. Mick Harford
skoraði sigurmarkið fyrir Derby
á 7. mín. og leikmenn Southamp-
ton náðu ekki að koma lagi á leik
sinn eftir það. Derby hefði hæg-
lega getað unnið stærri sigur, Tim
Flowers í marki Southampton
varði mjög vel frá Harford og
Russell Osman bjargaði á línu frá
Dean Saunders auk þess sem
Craig Ramage skaut í þverslá hjá
Southampton fyrir opnu marki.
Eina lffsmark Southampton kom
rétt fyrir hlé er Osman skaut í slá
af löngu færi og síðan var skalla
frá honum bjargað á línu. Sout-
hampton setti tvo Rússa inn á í
síðari hálfleik, þá Alex Cher-
ednik og Sergei Gotsmanov en
það dugði skammt.
Sunderland tapaði í ágætum
leik á útivelli gegn Arsenal þar
sem aðeins eitt mark var skorað,
kannski ekki undarlegt þó að
leikmenn Arsenal færu sér hægt
því þeir eru nú flestir kauplausir
eftir sektir félagsins gegn þeim
eftir slagsmálin við Man. Utd.
um síðustu helgi. Eina mark
leiksins kom úr vítaspyrnu í síð-
ari hálfleik, John Kay bakvörður
Sunderland felldi þá Anders
Limpar og Lee Dixon skoraði af
öryggi úr spyrnunni framhjá
Tony Norman markverði Sund-
erland sem átti stórleik. David
Seaman í marki Arsenal átti
einnig góðan dag og veitt ekki af
því Marco Gabbiadini miðherji
Sunderland fékk þrjú góð færi í
leiknum sem Seaman gerði vel að
verja.
Svo mikil aðsókn var að leik
Aston Villa gegn Leeds Utd. að
hann gat ekki hafist á tilsettum
tíma. Dómarinn beið meðan
mannfjöldinn kom sér fyrir, en
ekki fékk fólkið að sjá mörk því
leiknum lauk með markalausu
jafntefli. Úrslitin verða að teljast
hagstæð fyrir nýliða Leeds Utd.,
en Villa hefur örugglega ætlað
sér sigur eftir að hafa sigrað stór-
lið Inter Milan fyrr í vikunni.
2. deild
• Oldham er óstöðvandi í 2.
deild og hefur nú náð 4 stiga for-
skoti á West Ham, en bæði lið
unnu 2:1 um helgina.
• David Hirst kom Sheffield
Wed. í 2:0 gegn Millwall, en það
dugði ekki til og Millwall sigraði
4:2.
• Athygli vekur stórsigur Barns-
ley, 5:1 á Swindon ogtap Wolves
á heimavelli gegn Blackburn.
Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Liverpool 10 9-1-0 22: 6 28
Arsenal 10 7-3-0 18: 5 24
Tottenham 10 64-0 17: 4 22
Crystal Palace 10 5-5-0 17: 9 20
Manchester City 10 4-5-1 15:12 17
Manchester Utd. 10 4-2-4 13:14 14
Luton 10 4-2-4 11:15 14
Aston Villa 10 34-3 13:10 13
Leeds Utd. 10 34-3 13:1113
Nottingham For. 10 3-4-3 13:13 13
Q.P.R. 10 3-34 16:16 12
Coventry 10 3-2-5 11:13 11
Wimbledon 10 2-5-3 11:13 11
Southampton 10 3-2-5 13:17 11
Chclsea 10 2-44 13:18 10
Norwich 10 3-1-611:19 10
Sunderland 10 2-3-512:16 9
Everton 10 1-4-513:17 7
Derby 10 1-3-6 6:16 6
Sheflield Utd. 10 0-3-7 6:19 3
2. deild
Oldham 14 104-0 26:11 34
West Hain 14 8-6-0 24: 9 30
Shefíield Wed. 13 8-4-1 29:12 28
Millwall 13 74-2 25:14 25
Wolves 14 6-5-3 24:15 23
Barnsley 13 64-3 25:16 22
Middiesbrough 13 6-3-4 22:12 21
Ipswich 14 6-3-5 17:20 21
Notts County 13 6-2-5 19:16 20
Portsmouth 14 5-3-6 21:23 18
Brighton 13 5-3-5 21:26 18
Newcastle 13 4-54 13:13 17
Bristol City 12 5-2-5 17:20 17
Plymouth 14 3-7-4 15:17 16
Swindon 14 44-6 18:24 16
W.B.A. 13 3-64 14:16 15
Port Vale 14 4-3-7 21:25 15
Bristol Rovers 12 4-2-6 16:17 14
Blackburn 14 4-2-8 19:23 14
Leicestcr 14 4-1-9 18:33 13
Hull City 14 2-5-7 18:33 11
Oxford 13 24-7 16:24 10
Charlton 13 2-3-814:20 9
Watford 13 2-3-8 9:18 9