Dagur - 30.10.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 30. október 1990 - DAGUR - 7
Pétur Guðmundsson skoraði mest Tindastólsmanna þótt hann spilaði aðeins
fyrri hálfleikinn. Mynd: sbg
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Kennslustund á Króknum
- Tindastóll vann IR 124:86
Það má með sanni segja að
umtalsverður styrkleikamunur
hafi verið á liðum Tindastóls
og IR í leik þeirra í úrvals-
deildinni á Sauöárkróki sl.
sunnudagskvöld. Stólarnir
sigruðu 124:86 án þess að vera
með sitt sterkasta lið inni á all-
an tímann.
Liðsmenn Tindastóls byrjuðu
ekki sannfærandi frekar en í
flestum fyrri leikjum sínum í
haust. Það var ekki fyrr en á 5.
mín. fyrri hálfleiks sem þeim
tókst að komast yfir 12:10. Eftir
það jókst forystan jafnt og þétt
og Pétur Guðmundsson sýndi
hvað í honum bjó með því að
gera 28 stig áður en hann fór á
bekkinn um þremur mín. fyrir
leikhlé. Douglas Shouse var svip-
aður hjá ÍR-ingum og hafði gert
21 stig þegar fyrri hálfleikur var
á enda, en þá stóðu leikar 64:47
fyrir heimamenn.
Seinni hálfleikur var líkur
þeim fyrri, forysta Stólanna jókst
og t.a.m. var staðan á 5. mín.
hálfleiksins 76:55 og tveimur
mínútum seinna 87:55. Svo virtist
vera sem Shouse væri eini
leikmaður ÍR-inga sem gæti skor-
að og hafði í lokin gert 41 stig, en
annað var upp á teningnum hjá
Tindastól. Pétur Guðmundsson
kom ekkert meira inn á í leikn-
um. Þess í stað tóku nafni hans
Sigurðsson og Ivan Jonas til við
að gera stigin fyrir Stólana og
þegar leiknum lauk hafði öllum
leikmönnum þeirra, nema Stef-
áni Hreinssyni, tekist að skora og
staðan orðin 124:86.
Bestu leikmenn Tindastóls
voru: Pétur Guðmundsson með-
an hann var inn á, Ivan Jonas,
Haraldur Leifsson, Pétur V. Sig-
urðsson og Valur Ingimundarson
sem átti fjölda stoðsendinga.
Bestur hjá ÍR var Douglas
Shouse og Hilmar Gunnarsson
sýndi einnig ágætan leik.
Stig Tindastóls: Pctur Guðmundsson
28, Ivan Jonas 27, Pétur V. Sigurðsson
26, Haraldur Leifsson 20, Einar Einars-
son 10, Valur Ingimundarson 6, Karl
Jónsson 3, Svcrrir Sverrisson 2, Kristinn
Baldvinsson 2.
Stig ÍR: Douglas Shouse 41, Hilmar
Gunnarsson 12, Jóhanncs Svcinsson 9,
Björn Leósson 8, Björn Bollason 6,
Broddi Sigurðsson 4, Márus Arnarson 4,
Andri Kristinsson 2.
Dómarar voru: Jón Otti Ólafsson og
Kristinn Óskarsson og höfðu þeir ágæt
tök á leiknum þegar á heildina cr litið.
SBG
Körfuknattleikur
B-riðill
Þór-KR 75:76
UMFG-UMFN 60:91
Haukar-Valur 67:82
ÍBK-Snæfell 122:83
UMFT-ÍR 124:86
Tindastóll 5 5-0 519:443 10
ÍBK 5 4-1 532:458 8
Valur 5 2-3 440:459 4
Þór 5 1-4 472:473 2
Grindavík 5 1-4 398:465 2
Knattspyrna:
Aðalsteinn Aðalsteinsson
þjálfar Leiftursmenn
- Jón S. Helgason í Val
Aðalsteinn Aðalsteinsson
þjálfar knattspyrnulið Leifturs
í 3. deildinni næsta sumar.
Aðalsteinn var fyrirliði Vík-
ings í sumar en þangað fór
hann frá Húsavík þar sem
hann lék með Völsungi. Olafs-
firðingurinn Friðgeir Sigurðs-
son mun verða Aðalsteini til
aðstoðar.
Þorsteinn Þorvaldsson hjá
Leiftri sagði að eins og staðan
væri í dag hefðu báðir aðilar
áhuga á tveggja ára samstarfi en
samningurinn yrði þó ekki bind-
andi sem slíkur. Aðalsteinn verð-
ur í Reykjavík fram til vors og
stjórnar æfingum þar en 5-6 leik-
menn liðsins verða í Reykjavík í
vetur.
„Það er ekki vitað annað en að
allir heimamennirnir í liðinu
verði áfram en það er gert ráð
fyrir að aðkomumönnunum
fækki eitthvað. Það hefur verið
tekin sú stefna að byggja þetta
meira upp á heimamönnum,"
sagði Þorsteinn. Jón S. Helgason
hefur þegar skipt yfir í Val en
Þorsteinn sagði að ekkert væri
ljóst með mannabreytingar að
öðru leyti.
Knattspyrna:
6 dómarar tilnefiidir
á milMkjalista
- Bragi Bergmann þeirra á meðal
Á fundi stjórnar KSÍ á laugar-
dag var ákveðið hverjir verða
tilnefndir fyrir íslands hönd
sem milliríkjadómarar á næsta
ári. Sex dómarar eru á listan-
um, þar af einn frá Norður-
landi, Bragi V. Bergmann sem
dæmir fyrir Ungmennafélagið
Árroðann í Öngulsstaðahreppi.
Þrír af fjórum núverandi milli-
ríkjadómurum eru á þessum
lista, þeir Eyjólfur Ólafsson,
Víkingi, Óli P. Ólsen, Þrótti, og
Sveinn Sveinsson, Fram. Sá
fjórði, Guðmundur Haraldsson,
KR, hyggst draga sig í hlé. Auk
Braga koma því tveir nýir inn,
Guðmundur Stefán Maríasson,
Leikni, og Gylfi Orrason, Fram.
Þessi nöfn verða send til alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA,
sem sér um að útnefna milli-
ríkjadómara. Ekki er sjálfgefið
að FIFA staðfesti þennan lista
því ísland hefur nú í nokkur ár
átt fjóra milliríkjadómara og er
því hér um aukningu að ræða.
Minna má á að í fyrra voru þeir
Lragi og Ólafur Lárusson til-
nefndir af hálfu KSÍ en listinn
kom óbreytiúr með nöfnum þeirra
fjögurra sem fyrir voru.
Þess má geta að íslenskt dóm-
aratríó er á leið til írlands að
dæma leik írlands og Skotlands í
Evrópukeppni U-21 árs sem fram
fer 6. nóvember. Dómari verður
Eyjólfur Ólafsson og línuverðir
þeir Bragi Bergmann og Egill
Már Markússon.
Guðmundi Benediktssyni gengur vel í Belgíu:
vill semja strax
Ekeren
Guðmundi Benediktssyni, hin-
um unga og efnilega knatt-
spyrnumanni úr Þór, hefur
gengið vel í Belgíu þar sem
hann hefur dvalist hjá 1. deild-
arliðinu Ekeren að undan-
förnu. Forráðamenn félagsins
eru mjög spenntir fyrir Guð-
mundi og hafa mikinn áhuga á
að semja við hann sem fyrst.
Þá hafa Stuttgart og Everton
haft augastað á honum og nú
nýverið bárust fyrirspurnir frá
Tottenham og skoska liðinu
Kilmarnock.
Guðmundur lék með unglinga-
liði félagsins, 16-18 ára, í 4:2 sigri
þess gegn Antwerpen um síðustu
helgi. Hann skoraði eitt marka
Ekeren og fiskaði auk þess víta-
spyrnu. Forráðamenn Ekeren
sögðu Guðmundi eftir leikinn að
hann gæti fengið samning strax ef
hann vildi.
„Ég skrifa ekki undir neitt
strax enda liggur mér ekkert á.
Það er allt í lagi að heyra hvað
þeir segja en ég reikna með að ég
fari fyrst til Stuttgart áður en ég
geri nokkuð hér,“ sagði Guð-
rnundur en honum hefur verið
boðið að æfa með Stuttgart í
næsta mánuði.
Guðmundur spilar um næstu
helgi leik með varaliði Ekeren
sem hefur gengið afar illa það
sem af er keppnistímabilinu.
Þessa helgi verður frí í belgísku
L deildinni og munu fimm leik-
menn úr aðalliðinu spila þennan
leik með varaliðinu.
Hácken náði ekki úrvalsdeildarsætinu:
„Maður skilur hreinlega
ekki hvað gerðist“
- segir Gunnar Gíslason eftir 1:4 ósigur
Gunnar Gíslason og félagar í
Hácken misstu af úrvalsdeild-
arsæti í sænsku knattspyrn-
unni þegar þeir töpuðu 1:4
fyrir GIF Sundsvall í seinni
úrslitalcik liðanna um helg-
ina. Hácken vann fyrri leik-
inn 4:2 og virtist á leiðinni
upp því liðið hafði yfir 1:0 í
leikhléi í leiknum um helgina.
„Þetta var alger „skandall“
og maður skilur hrcinlega
ekki hvað gerðist,“ sagði
Gunnar Gíslason í samtali við
Dag.
Gunnar spilaði fyrir rúmri
viku sinn fyrsta leik eftir að hafa
verið frá st'ðan í byrjun sept-
ember vegna meiðsla. Þá skor-
aði hann mark í fyrri úrslita-
leiknum og gekk vel um helg-
ina. „Mér gekk vel og fékk
ágæta dóma í blöðunum hér.
Það er bara alveg grátlegt
hvernig þetta fór. Viö voru
betri í þrcntur hálfleikjum af
fjórunt en svo hrundi allt. Þetta
voru alveg hrikaleg mörk sem
við fenguni á okkur,“ sagði
Gunnar.
Keppnistímabilinu er nú lok-
ið og Gunnar sagði að hlutun-
um yrði tekið með ró fram í
janúar en þá yrði sett í fullan
gang á ný. Hann á eftir eitt ár af
samningi sínum við Hacken og
reiknar með að flytja heim að
þeim tíma liönum. „Ef maður
flytur heim þá flytur maður til
Akureyrar. Og þá kemur ekki
nema eitt lið til greina - KA,“
sagði Gunnar Gíslason.