Dagur - 30.10.1990, Blaðsíða 15

Dagur - 30.10.1990, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 30. október 1990 - DAGUR - 15 Aftnælishóf Laxárfélagsins Pað var mikið um dýrðir í Ýdöl- um í Aðaldal síðastliðið föstu- dagskvöld þegar Laxárfélagið efndi til afmælisfagnaðar í tilefni af 50 ára afmæli félagsins, elsta laxveiðifélagi landsins. Tæplega 200 manns mættu til veislunnar, bæði félagar úr Reykjavík, Akur- eyri og á Húsavík og auk þess bændur við Laxá en þeir voru sérstaklega boðnir. Félaginu voru færðar margar gjafir á þessum tímamótum en félagið heiðraði auk þess þetta tækifæri eftirtalda fyrir starf þeirra að ræktunarmál- um og sameiginlegum hagsmun- um félagsins og bænda: Jón Fornason í Haga, Sigurð B. Jónsson á Jarlstöðum, Einar Jónsson í Hjarðarhaga, Kristján Benediktsson á Hólmavaði, Björn Jónsson á Laxamýri, Hólmgrím Kjartansson á Hrauni, Pétur Fornason í Haga, Gunn- stein Sæþórsson í Presthvammi, Vigfús Jónsson á Laxamýri, Há- kon Gunnarsson í Árbót og Dag Jóhannesson í Haga. Hér má sjá nnkkra af Akureyringunum í afmælishófinu en fremstir eru þeir Gunnar Sólnes lögfræðingur og Olafur Stefánssnn í Sjóvá-Almennum. Veiðisögur frá liðnu sumri liafa líklegast verið umtalsefni þessara heiður- manna, þeirra Bjarna Reykjalíns, Sigurðar Ringsteds og Bcnedikts Olafs- sonar en hann stýrði afmælishófinu. Myndir: Golli Lax úr „drottningu íslenskra áa“, eins og margir nefna Laxá í Aðaldal, var uppistaðan í glæsi- legu hlaðborði Valmundar Árna- sonar matreiðslumanns á Akur- eyri en margir gestanna höfðu á orði að þar væri hver og einn rétt- ur listaverk út af fyrir sig. Tengsl manna í þessum félags- skap, sem stundum er sagður sá íhaldssamasti á landinu, eru mikil og er sem ein stór fjölskylda sé á ferð. Niðurlagsorð Orra Vigfús- sonar er hann vitnaði til gamallar vísu um ána segja líka mikið um viðhorf félagsmanna til hennar: Hér við Laxár hörpuslátt harmi er létt að gleyma, ég hef firmst mér aldrei átt armars staðar heima. JÓH í hátíðarræðu Orra Vigfússon- ar, formanns félagsins, var hon- um tíðrætt um það góða samstarf sem félagið hafi átt við bændur á bökkum árinnar allt frá upphafi. Undir þetta tók Vigfús Jónsson, bóndi á Laxamýri í ávarpi sínu og sagði hann vart hægt að hugsa sér betri afmælisósk til félagsins en þá að samstarfið megi í framtíð- inni verða jafn gott sem hingað til. Þessir heiðurmenn hafa að líkindum oft hist áður. Frá vinstri: Kristján Bene- diktsson bóndi á Hólmavaði, Sæmundur Stefánsson einn frumkvöðlanna í ‘laginu og Gísli Konráðsson fyrrverandi framkvæmdastjóri á Akureyri. „Var árátta á manni að fara í Laxá í AðaldaT - segir Sæmundur Stefánsson, einn stofnenda Laxárfélagsins „Já, það var orðin árátta hjá manni að fara til veiða í Laxá í Aðaldal á hverju sumri. Hér veiddi ég í um 40 ár og það var alltaf jafn mikil spenna að komast í þessa túra,“ sagði Sæmundur Stefánsson, einn þeirra manna sem stóð að samningum við bændur í Aðaldal árið 1940 um að hætt yrði neta- og gildruveiði í ánni og réttindi leigð stangveiði- mönnum. Þeir bræður Sæmundur, Krist- inn og Pétur Stefánssynir ásamt Páli Melsteð fóru fremstir í flokki stangveiðimanna og voru meðal þeirra fyrstu sem hófu veiðarnar sumarið 1941. Sæmundur fagnaði á laugardaginn 50 ára afmæli Laxárfélagsins ásamt félögum sínum. Hann segist ekki geta sagt til um hve marga laxa hann hafi dregið úr ánni en sá stærsti var Sæmundur Stefánsson einn þeirra sem lagði grunninn að stofnun Lax- árfélagsins ávarpar afmælisgesti. 37,5 pund. „En ég missti örugglega þá stærstu," segir Sæmundur og hlær. „Það var alltaf veitt bæði á flugu og spún. Henni hefur nú fleygt fram tækninni við flugu- veiðarnar á þessum tíma en samt voru hér áður fyrr mjög færir fluguveiðimenn við ána. Eg man sérstaklega eftir Benedikt á Hólmavaði því oft var ég búinn að standa aftan við hann og reyna að læra þessa einstöku tækni hans með fluguna. Það var unun að fylgjast með honum en þetta hafði hann lært af Englending- um. Annars er það skrýtið með þessa fluguveiðimenn nú til dags að þeir nota svo litlar flugur að það er ekki nema von að margir fiskar missist. Þeir segja að það þýði ekkert að bjóða laxinum í ánni nú til dags þessar stóru flug- ur sem við notuðum. Ég held nú samt að fiskurinn hafi ekkert breyst frá þessum tíma. Þessir stóru eru þarna enn eins og þá,“ segir Sæmundur. JÓH Flosi Jónsson, gullsiniöur Akureyri færði félaginu þcnnan farandgrip aö gjöf, en gripinn skal veita þeim sem ár hvert veiðir stærsta laxinn úr Laxá í Aðaldal. Margrét Kristinsdóttir á Akureyri veiddi þann stærsta í sumar og tekur hér við gripnum. Þetta er laxarotari af stærri og fínui gerðinni sem fyllt hafði veriö á koníaki af bestu gerð og skal sá er gripnum skilar ætíð hafa koníak á rotaranum þegar hann skilar honuni til næsta manns. Laxárfélagiö heiðraði nokkra bændur úr Aðaldal fyrir störf þeirra að rækt- unarmálum og sameiginlegum hagsmunamálum félagsins og bænda. Hér má sjá hópinn með viðurkenningar sínar. Bændur við Laxá færðu félaginu þetta málverk að gjöf í tilefni afmælisins. Hér tekur Orri Vigfússon við málverkinu úr höndum þeirra Hilmars Her- móðssonar í Árnesi og Vigfúsar Jónssonar á Laxamýri. Vinningstölur iaugardaginn 27. okt. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGF' 'Ar:A 1. 5af 5 0 5.837.853.- o 2 311.095.- 3. 4af 5 161 6.666.- 4. 3af5 6.073 412.- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 10.035.345.- UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.