Dagur - 08.11.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 08.11.1990, Blaðsíða 1
Akureyri: Málefni Kjarnalundar, heilsu- hælis Náttúrlækningafélags Akureyrar, voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar Akureyrar á þriðjudag. Atvinnumála- nefnd hefur lagt til að bærinn veiti lán til byggingarinnar, sem verði endurgreitt í formi styrks á næstu fimmtán árum. Lánsupphæðin nemur 30 til 40 milljónum króna, samkvæmt LÍÚ og FFSÍ: Sairniinga- ftrndur síð- degis í dag Skipstjóra- og stýrimannafé- lagið Bylgjan og Útvegs- mannafélag Vestfjarða hafa gert með sér samning um framlengingu á síðast gildandi kjarasamningi aðila dags. 15. janúar 1987 sbr. samning dags, 20. júní 1989 með breytingum. Samningurinn var undir- skrifaður 6. nóvember og öðlast gildi við staðfestingu samnings- aðila. Gildistími samningsins er til 31. ágúst 1991. Samningsaðilar skuldbinda sig til að hafa tekið afstöðu til samningsins eigi síðar en þriðjudaginn 13. nóvember nk. í gærdag gerði LÍÚ samninga- mönnum FFSÍ tilboð á sömu nót- um og samþykkt var á ísafirði. I framhaldi af því var gert fundar- hlé, en samningsaðilar ákváðu síðan að fresta frekari fundum til kl. 16 í dag og ætla sjómenn að yfirfara tilboðið fyrir þann fund. ój Leitað til 6 aðila um hlutaflárframlög í súkkulaðiverksmiðjuna Lindu: Iðja íhugar að leggja fram hlutafé - samþykkt fyrir 30 milljóna króna hlutaíjáraukningu í fyrirtækinu „Þessi möguleiki er í umræðu þó að ákvörðun hafi ekki verið tekin en við höfum lýst okkur tilbúin til að koma þarna inn sem lið í björgun fyrirtækis- ins,“ segir Kristín Hjálmars- dóttir, formaður Iðju - félags verksmiðjufólks á Akureyri, um mögulegt hlutafjárframlag í fjárhagslegri endurskipulagn- ingu súkkulaðiverksmiðjunn- ar Lindu á Akureyri. Verði af þessu framlagi leggja Iðja og Lífeyrissjóður Iðju að líkind- um fram um 4 milljónir í hluta- fé í fyrirtækið. Þá mun Akur- eyrarbær tilbúinn til að leggja fram 4 milljónir í fyrirtækið, fáist hlutafjárframlag einnig frá öðrum aðilum. Gangi þetta eftir er þetta í fyrsta skipti sem Iðja leggur fram hlutafé í fyrirtæki en Kristín segir að litið sé þannig á að félagið framselji sinn hluta þegar fyrir- tækið hafi rétt úr kútnum. Hún segir að með þessu styrki félagið fyrirtæki sem hluti félagsmanna starfi í og auki atvinnuöryggi þessa fólks. Um 20 félagsmenn í Iðju starfa hjá Lindu en starfs- mönnum hefur fækkað nokkuð frá því sem var þegar bést lét í rekstrinum. Sigurður Arnórsson, fram- kvæmdastjóri Lindu, segir að ákveðið hafi verið að auka hluta- fé fyrirtækisins um 30 milljónir. Ákveðið hafi verið leita til 6 aðila um hlutafjárframlög, bæði á Akureyri og utan bæjarins. í dag munu þessi mál skýrast mikið en þá svara nokkrir þessara aðila beiðnum fyrirtækisins. Núverandi eigendur súkkulaði- verksmiðjunnar Lindu eru erf- ingjar Eyþórs Tómassonar. Sam- þykktum fyrirtækins hefur verið breytt og um leið var samþykkt að auka hlutaféð um allt að 30 milljónir. Fáist þetta fé verður fyrirtækið endurskipulagt jafn- framt því sem ný stjórn myndast í fyrirtækinu. JÓH Mynd: Golli bókun atvinnumálanefndar frá 30. október. Endurgreiðsla láns- ins færi þannig fram, að Akureyr- arbær veitti Náttúrulækningafé- laginu byggingarstyrk árlega næstu 15 ár, og með honum verði lánið endurgreitt. Bæjarráð lagði lil að afgreiðslu máls þessa yrði frestað. Halldór Jónsson, bæjarstjóri, sagði m.a. á bæjarstjórnarfundinum aö sér fyndist rökrétt að reyna að útvega þær 100 milljónir króna sem þyrfti til að ljúka Kjarna- lundi, í stað þess að fá hluta fjár- ins nú, en með því væri aðeins verið að fresta vandanum til næstu ára. Áður hefur komið fram að all- mörg störf skapast við Kjarna- lund, þegar starfsemi hefst þar. Náttúrulækningafélag Akureyrar á húsið skuldlaust, en bygging þess hófst árið 1978. EHB Stórframkvæmdir í smækkaðri mynd. 100 milljónir þarf til Kjamalundar Málmiðnaðarmenn á Akureyri vilja breyta 67 ára lögum: Erlend fiskiskip fái við- gerðarþjónustu í Almennur félagsfundur í Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri hefur skorað á bæjarstjórn Akureyrar og þingmenn Norðurlandskjör- dæmis eystra að taka.höndum saman um sá erlendi fiski- skipaíloti, sem er að veiðum utan 200 mílnanna hér við Iand, geti óhindrað sótt þjón- ustu inn til Akureyrar. Samkvæmt 67 ára gömlum lög- um er erlendum fiskiskipum óheimilt að koma til hafnar hér á landi til viðgerða nema í neyð, og þá aðeins í skamman tíma. Hákon Hákonarson, formaður félags málmiðnaðarmanna Akur- eyri, segir að hér sé um mikilvægt hagsmunamál að ræða fyrir félagsmennina á svæðinu. „Við sjáum fram á þrönga stöðu í atvinnumálum, þótt atvinnuleysi sé sem betur fer ekki mikið í augnablikinu, er það þó til staðar. Vinnuframboð er frekar takmarkað hér, og við viljum leita allra leiða til að treysta og auka streymi verkefna til bæjar- ins. Við vitum að erlendi fiski- skipaflotinn sem er að veiðum við landið þarf á ákveðinni þjón- ustu að halda. Við teljum að full ástæða sé til að kanna það skipulega hvort ekki sé hægt að nálgast þau við- skipti sem þarna eru í boði. Löngu úrelt sjónarmið frá árinu 1923 mega ekki hindra þetta, og ég tel að engu breyti um ásókn erlendra skipa á íslensk mið þótt við bjóðum þeim þá þjónustu sem nauðsynleg er. íslendingar geta ekki komið í veg fyrir veiðar erlendra skipa utan landhelginn- ar með lögum eins og þessum. Við eigum að sækjast eftir þess- bænum um viðskiptum eins og öðrum viðskiptum sem hægt er að beina til landsins," sagði Hákon. Á félagsfundinn, sem var hald- inn á miðvikudag í síðustu viku, mætti Örn Friðriksson, formaöur landssambands málm- og skipa- smiða, og ræddi um kjara- og skipulagsmál MSÍ. Einnig mætti Nicolai Jónasson, starfsmaður fræðsluráðs málmiðnaðarins, og fjallaði um eftirmenntun í málm- iðnaði. Mikið hefur verið unnið að endurmenntunarmálum málmiðnaðarmanna á Akureyri, og á annan tug námskeiða hafa- verið haldin undanfarin þrjú ár. Hafa þau verið vel sótt og vel heppnuð. Þóra Hjaltadóttir, for- maður Alþýðusambands Norður- lands, kom einnig á fundinn og ræddi hugmyndir um fyrirhugað- an sameiginlegan lífeyrissjóð fyr- ir alla aðildarfélaga ÁSÍ á Norð- urlandi. EHB Akureyri: Sprengjkúla gerð óvirk Sprengikúla frá stríösárunuin fannst við Mööruvelli í Hörg- árdal í fyrradag og reyndist hún vera virk. Kúlan var flutt til Akureyrar og sprengd þar í gær. Aö sögn Árna Magnússonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Akureyri, fannst sprengikúlan í malarhlassi sem tekiö var við Möðruvelli. Strax þótti líklegt að sprengjan væri virk og því var hún llutt til Akureyrar. Sprengju- sérfræðingar komu norður í gærmorgun og skoðuðu sprengj- una og staðfestu aö hún væri virk. Því næst var farið með hana á öruggan stað þar sem hún var sprengd. Árni segir að talið sé líklegt að þessi sprengikúla sé úr fall- byssu. JÓH Góð sala hjá Skafta SK Skafti SK 3 seldi vel í Brem- erhaven í gærmorgun. Heild- arverðmæti aflans var 16,6 milljónir króna. Meðalverðið var það hæsta sem fengist hefur á fiski upp úr skipi síð- an í júní, rúmar 116 krónur kílóið. Aflinn, sem var rúm 143 tonn, var að stærstum hluta karfi. Einar Svansson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar, sagðist telja að svona gott verð hefði ekki fengist upp úr skipi síðan Ögri sigldi í júnt. Meðal- verðið daginn á undan var 92 krónur, en fiskurinn úr Skafta var það góður að það náðist upp í 116 krónur á kílóið. Að sögn Einars er fiskiríið samt heldur dauft hjá togurun- um. Sjórinn er og heitur og fisk- urinn heldur sig á grunnslóð. SBG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.