Dagur - 08.11.1990, Blaðsíða 3
fréffir
Fimmtudagur 8. nóvember 1990 - DAGUR - 3
Kjötneysla
Nýr samanburður á kjötneyslu 28 þjóða:
á hvera íslending nær ekki 60 kg yfir árið
- íslendingar í fimmta neðsta sæti í þessum samanburði
íslendingar eru langt undir
meðallagi þcgar bornar eru
saman nýjar tölur um kjöt-
neyslu 28 þjóöa. Að meðaltali
var kjötneysla á mann í þess-
um löndum um 75 kg á árinu
1989 en hver Islendingur ncytti
ekki nema 59 kg af kjöti á ári
og er þá miðað við síðastliðið
verðlagsár. Þessar tölur sýna
því að neyslan er ekki enn far-
in að aukast eftir mikinn
samdrátt, fyrst og fremst í
lambakjöti og alifuglakjöti.
Meðfylgjandi yfirlit yfir kjöt-
neyslu 27 þjóða birtist í Svíþjóð
fyrir skömmu. ísland var ekki
með í þessu yfirliti og því hefur
Dagur aflað sér samsvarandi
talna fyrir ísland en tekið skal
fram að þessar tölur gilda fyrir
síðasta verðlagsár og er miðað
við mannfjölda 1. desember
1989.
Bandaríkjamenn neyta þjóða
mest af kjöti, nær helmingi meira
en íslendingar. Kanadamenn
koma næstir með 99,3 kg á rnann
á ári og má segja að þessar tvær
þjóðir skeri sig nokkuð úr.
í yfirlitinu vantar upplýsingar
um Noreg en kjötneysla Svía er
minni en íslendinga og Finnar
eru jafnokar okkar í þessum
efnum. Danir eru hins vegar sér á
báti hvað Norðurlandaþjóðirnar
áhrærir en skýringin er fyrst og
fremst sú hve mikil neysla er á
svínakjöti þar í landi. Reyndar
neyta aðeins Austur-Þjóðverjar
meira svínakjöts af þeim þjóðum
sem hér eru bornar saman.
Veitingahúsið Uppinn þriggja ára:
Afmælishátíð í kvöld
- sérstakur Uppabjór sem hlotið hefur
nafnið Ráðhúsöl kynntur
Veitingahúsið Uppinn á Akur-
eyri heldur upp á þriggja ára
afmæli staöarins þessa dag-
ana. Afmælisdagurinn var sl.
mánudag en aðalhátíðarhöld-
in fara fram í kvöld. í tilefni
afmælisins hefur Þráinn Lárus-
son veitingamaður á Uppanum
látið brugga sérstakan bjór fyr-
ir staðinn, sem hlotið hefur
nafnið Ráðhúsöl.
Ráðhúsölið sem eingöngu
verður selt á Uppanum í framtíð-
inni, verður kynnt í kvöld. Ölið
er bruggað af Viking Brugg hf. á
Akureyri og mun hinn þýski
bruggari fyrirtækisins Alfred
Teufel bjóða gestum að bragða á
miðinum kl. 21.30-22.30.
Auk þess verður boðið upp á
ýmsar uppákomur í kvöld og má
í því sambandi nefna að hljóm-
sveitin Fjórir þrestir og ein lóa
leikur fyrir gesti bæði í kvöld og
um helgina.
Síðustu daga hefur Uppinn
fengið andlitslyftingu og er búið
að mála staðinn í hólf og gólf og
sitthvað fleira. Frá og með næsta
föstudegi verður selt inn á stað-
inn á föstudags- og laugardags-
kvöldunt, þegar boðið verður
upp á lifandi tónlist og mun
aðgangseyrir verða kr. 250,-
Að sögn Þráins er þetta gert til
þess að koma í veg fyrir eilíft ráp
á fólki að ástæðulausu. „Við vild-
um frekar að fólk borgaði sig inn
tvö kvöld í viku en að hækka
aldurstakmarkið úr 18 í 20 ár.
Þetta er svo lítill markaður að
hann þolir það ekki,“ sagði
Þráinn. -KK
Grímsey:
Þokkalegur afli
bátanna að undaniörnu
Þokkalegur afli hefur verið hjá
Grímseyjarbátum að undan-
förnu, eftir heldur dauft
sumar. Hjá Fiskverkun KEA
Skákfélag Akureyrar:
Tíu mínútna
mót í kvöld
Skákfélag Akureyrar heldur 10
mínútna mót í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, og hefst það kl.
20.00. Teflt verður í skákheim-
ilinu við Þingvallastræti.
Arnar Þorsteinsson sigraði í 15
mínútna móti októbermánaðar,
en hann hefur verið mjög sigur-
sæll að undanförnu og sigraði
t.a.m. í Haustmótinu og varð í 2.
sæti í Hausthraðskákmótinu. SS
var landað rúmum sjö tonnum
í gær og undanfarna daga hef-
ur hún tekið á móti á bilinu 5-7
tonnum.
Ellefu bátar leggja að jafnaði
upp hjá Fiskverkun KEA, en þar
eru nú sex starfsmenn.
Aðrir bátar senda afla sinn á
fiskmarkað Fiskmiðlunar Norð-
urlands á Dalvík, eða til fiskverk-
enda á Dalvík. Með tilkomu
Eyjafjarðarferjunnar Sæfara hef-
ur opnast sá inöguleiki að flytja
fiskinn í land. Bliki hf. á Dalvík
tekur á móti fiski úr þrém Gríms-
eyjarbátum og Fiskverkun
Jóhannesar og Hclga fær fisk úr
einum bát. Þá er smærri fiskur-
inn, sem Fiskverkun KEA tekur
á móti, sendur í land til frysting-
ar. Fyrir vikið fæst niun hærra
verð fyrir hráefnið, en ef það
væri saltað. óþh
Að einu leyti standa íslending-
ar þó öðrum framar í þessu efni.
Af þessum 28 þjóðum borðar
landinn mest kindakjöt þannig að
þrátt fyrir mikinn' samdrátt í
neyslu lambakjöts nær ísland að
halda efsta sætinu í þeirn flokki.
En á hinn bóginn borða aðeins
Japanar minna nautakjöt. JÓH
Nautakjöt Lambakjöt Svínakjöt Fuglakjöt Alls
Bandaríkin 45,1 0,7 30,4 38,5 114,7 kg
Kanada 38,3 - 34,0 27,0 99,3 kg
Danmörk 18,2 0,8 63,7 11.4 94,1 kg
Austur-Þýskaland 25,6 0.7 65,5 - 91,8 kg
Uruguay 63,6 24,8 - - 88,4 kg
Luxcmborg 23,1 1.8 46,3 17,1 88.3 ka
Vestur-Þýskaland 23,5 0.9 51,8 11,6 87,8 ki;
Tékkóslóvakía 26,8 0,4 58,6 - 85,8 kg
Spánn 12,2 6.1 45,0 22,4 85.7 kg
Frakkland 28,6 0,5 33,0 19,6 81.7 kg
Irland 22,7 7,1 34,0 17,9 81,7 kg
Argentína 68,0 2,5 - 9,9 80,4 ku
Nýja-Sjáland 35,9 30,2 13,9 - 80.0 kg
Pólland 17,6 0,7 43,7 15,2 77,2 kg
Ástralía 37,8 21,6 17,7 — 77,1 kg
Grikkland 25,6 13.7 21,4 15,7 76.4 kg
Ítalía 26,4 1,6 28,0 17,8 73,8 kg
Pólland 20,6 0.5 42,7 9.8 73,6 kg
Stóra-Bretland 21,3 6,7 26,0 19.1 73,1 kg
Sovétríkin 30,0 3,3 23,6 11,6 68,5 kg
Sviss 26,3 > > ' 42,2 - 68,5 kg
Portúgal 13,3 3,3 • 23,5 20,0 60,1 kg
Finnland 20,3 - 32,2 6,6 59,1 kg
ísland 11,4 31,8 10,5 5,4 59,1 kg
Svíþjóð 16,6 0,7 30,8 6,0 54,1 kg
Júgóslavía 12,0 2,7 34,6 - 49,3 kg
Japan 8,5 1,2 16,9 14,4 41,0 kg
Austurríki 22,1 12,3 34,4 kg
Litlar fréttir af loðnumiðum:
Þórshöfn og Raufarhöfn hafa
samtals fengið 10 þúsund tonn
loðnan lítur tunglið óhýru auga
Loönuverksmiðja Hraöfrysti-
stöðvar Þórshafnar hefur nú
fengið ríflega 8.000 tonn af
loðnu til bræðslu á haustver-
tíðinni og er verksmiðjan lang-
hæst yflr landið. Hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins á Raufar-
höfn eru komin rúm 2.000
tonn. Þetta eru ekki háar tölur
en veiðar hafa gengið treglega
og útlitið ekki mjög gott.
Síðastliðinn mánudag lönduðu
tveir bátar á Raufarhöfn, Hilmir
300 tonnum og Erling 660
tonnum. Þessi loðna hélt bræðsl-
unni gangandi fram á miðvikudag
en í gærkvöld var útlit fyrir stopp
og litlar fréttir af miðunum. Súl-
an og Hilmir voru komin með
150 tonn í gær eftir nóttina óg
svipaða sögu var að segja af öðr-
um bátum.
Síldarverksmiðjurnar á Rauf-
arhöfn fengu 3.800 tonn af loðnu
fyrir áramót í fyrra en þá fór ver-
tíðin seint af stað, eins og menn
muna, en komst heldur betur á
skrið eftir áramótin.
Gísli Óskarsson, skrifstofu-
stjóri Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar, sagði að þrír bátar hefðu
komið með loðnu sl. sunnudag
og loðnuverksmiðjan hefði getað
moðað úr þeint afla í vikunni. í
dag mun bræðslan væntanlega
stöðvast.
„Þetta hefur verið dauft núna.
Bátarnir fluttu sig aftur vestur og
eru við Kolbeinsey en þar er bara
eymd og volæði. Sjómennirnir
vilja kenna heiðríkjunni um,
loðnunni er illa við tunglsljósið
og heldur sig það djúpt að hún er
ekki veiðanleg,“ sagði Gísli. SS
Hvammstangi:
Vertshúsið selt
- nýi eigandinn bjartsýnn
Sparisjóður V.-Húnvetninga
seldi í gær Birnu Lárusdóttur
Hótel Vertshús á Hvamms-
tanga, sem sparisjóðurinn
keypti á nauðungaruppboði í
sumar. Birna keypti hótelið
með öllum innanstokksmunum
og reiknar með að opna það
um miðjan desember.
Þrír aðilar voru orðnir volgir
fyrir kaupunum núna síðustu vik-
ur að sögn Ingólfs Guðnasonar,
sparisjóðsstjóra, en Birnu var
selt hótelið í gærmorgun.
Birna Lárusdóttir er ættuð úr
Miðfirði, en hefur að undanförnu
verið búsett á Suðureyri við Súg-
andafjörð þar sem hún og sam-
býlismaður Itennar hafa rckið
sjoppu og grillskála.
„Við hugsum okkur nú bara að
reka þetta eins og önnur svipuð
hótel úti á landi. Hafa mat og
drykk og gistingu. Stefnan er að
reyna að opna um miðjan des-
ember, en áður en við hefjumst
handa á Hvammstanga verðum
við að ganga frá okkar málum á
Suðureyri. Annars líst mér bara
vel á þetta, enda þýðir ekkert
annað en vera bjartsýnn nú til
dags,“ sagði Birna í samtali við
Dag í gær. SBG
Leiðrétting
1 frétt í blaðinu sl. þriðjudag var
farið rangt með nafn eins kand-
idats í prófkjöri Alþýðuflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra. í
fréttinni var hann sagður heita
Pétur Ólason, en hið rétta er að
hann heitir Pálmi Ólason.
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.