Dagur - 08.11.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 8. nóvember 1990
Urvalsdeildin í körfuknattleik:
- mörðu sigur á Snæfelli, 93:85
Það var enginn meistarabragur
á leik Tindastólsliðsins þegar
það fékk hið baráttuglaða lið
Snæfells í heimsókn sl. þriðju-
dagskvöld. Stólarnir byrjuðu
reyndar vel en síðan náðu gest-
irnir forystunni og héldu henni
allt þar til 10 mínútur voru eftir
en undir lokin tókst Tindastól
að knýja fram sigur og lokatöl-
ur urðu 93:85.
Tindastóll fór vel af stað en
þegar fyrri hálfleikur var rúmlega
hálfnaður náðu Snæfellingar for-
ystunni með gífurlegri baráttu.
Spil Tindastóisliðsins var heldur
ekkert til að hrópa húrra yfir og
hvað eftir annað missti það bolt-
ann eftir ónákvæmar sendingar.
Staðan í hléi var 48:43 fyrir Snæ-
HERRA-
KVÖLD
i-yrsta herrakvöld íþróttafélagsins Þórs
verður haldið í Hamri laugardaginn
10. nóvember nk. og hefst með
borðhaldi kl. 19.00.
Dagskrá kvöldsins verður bæði fjölbreytt
og skemmtileg.
Hin eina sanna Rósa Ingólfsdóttir flytur minni
karla og Berglind Jónasdóttir syngur við
undirleik Níelsar Ragnarssonar.
Miðasala fer fram í Hamri í kvöld frá kl. 19-22.
íþróttafélagið Þór.
Tesco-Tesco-Tesco
Ðleyjur 3 stærðir
Swiss style morgunkorn
Cornflakes
Hunangskornflakes
Sjampó
Hárnæring
WC-steinar
llmkubbar
Niðursuðuvörur
Dýrafóður
Kattasandur
Gæðavara á góðu verði
Gerið samanburð á verði og gæðum.
Að versla í Plús, það borgar sig!
Opið mánud.-föstud. 10.30-18.30
Laugard. 10.00-14.00
MARKAÐUR
FJÖLNISGÖTU 4b
fell og var það nokkuð
sanngjarnt.
Stólarnir börðust við að klóra í
bakkann þegar seinni hálfleikur
hófst en Snæfellingar svöruðu
jafnharðan fyrir sig. Ólánið elti
Tindastól og margsinnis skoppaði
boltinn á hringnum en valt svo
útaf. Þrjú stig skildu liðin að allt
þar til á 10. mínútu hálfleiksins.
Þá náðu Stólarnir að komast yfir
í fyrsta sinn frá í fyrri hálfleik og
virtust þeir hressast eitthvað við
það. Snæfellingar náðu þó að
halda í við Tindastól og komast
einu sinni yfir til viðbótar en
heimamenn sigu fram úr í lokin.
Hreinn Þorkelsson, þjálfari og
leikmaður Snæfells, fór af leik-
velli með fimm villur þegar tvær
mínútur voru eftir og á þeirri síð-
ustu fylgdu Ríkharður Hrafn-
kelsson og Gennadí Peregeud í
kjölfarið. Úrslitin urðu eins og
fyrr segir 93:85 og átti Ivan Jonas
stóran þátt í sigrinum með því að
skora 27 stig í seinni hálfleik.
Þess ber að geta að Pétur
Guðmundsson og Valur Ingi-
mundarson léku ekki allan leik-
inn fyrir Tindastól vegna veik-
inda og Karl Jónsson var einnig
slappur vegna flensu.
Ivan Jonas var besti maður
Tindastólsliðsins en hjá Snæfelli
voru það Hreinn Þorkelsson, sem
skoraði margar þriggja stiga
körfur, og gamla kempan Rík-
harður Hrafnkelsson.
Stig Tindastóls: Ivan Jonas 41, Pétur
Guðmundsson 17, Einar Einarsson 13,
Sverrir Sverrisson 10, Haraldur Leifsson
8, Pétur V. Sigurðsson 4.
Stig Snæfells: Ríkharður Hrafnkelsson
23, Hreinn Þorkelsson 19, Gennadí
Peregeud 16, Bárður Eyþórsson 16,
Brynjar Harðarson 10, Sæþór Þorbergs-
son 1.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Víg-
lundur Sverrisson. Þeir komust stór-
skaðalaust frá leiknum þótt þeir hafi
dottið niður á köflum. SBG
Körfiiknattleikur
B-riðill
Tindastóll
ÍBK
Grindavík
Valur
Þór
8 7-1 817:723 14
7 6-1 723:627 12
7 3-4 572:585 6
8 3-5 682:706 6
7 2-5 649:660 4
Pétur Vopni Sigurðsson og félagar hans í úrvalsdeildarliði Tindastóls þurftu
að hafa fyrir því að leggja nýliða Snæfells að velli á Sauðárkróki. Mýnd: sbc
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Þór-ÍR í kvöld
Þrír leikir fara fram í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
kvöld. Þór mætir ÍR í íþrótta-
höllinni á Akureyri, Haukar
Grindvíkinf jtn í Hafnarfirði
og Keflvíkir gar Njarðvíking-
um í Kefla v k.
Gengi Þórsara hefur verið
nokkuð brösótt upp á síðkastið
og um síðustu helgi tapaði liðið
fyrir Haukum í Hafnarfirði. Það
situr nú í neðsta sæti B-riðils með
4 stig og verður að rífa sig upp ef
það ætlar sér að eiga ínöguleika á
sæti í úrslitakeppninni. Það er
alls ekki óhug^andi því liðið get-
ur meira en það hefur sýnt að
undanförnu. ÍR-ingar sitja á
botni A-riðils, hafa tapað öllum
sínum leikjum, þannig að Þórsar-
ar verða að teljast sigurstrangleg-
ir í kvöld. Leikurinn hefst kl.
19.30.
Handknattleiksdeild KA og Sæborg hf., sem rekur Matvörumarkaðinn og Plúsmarkaðinn, hafa gert með sér aug-
lýsingasamning. KA-menn munu því leika með merki Matvörumarkaðarins á brjóstinu og Plúsmarkaðarins á erm-
inni en á bakinu verður Bragakaffið sem fyrr. Myndin er tekin við undirritun samningsins, f.v. Einar Jóhannsson,
formaður handknattleiksdeildar KA, Pétur Bjarnason, fyrirliði KA í einni af nýju skyrtunum, og Gísli Rúnar
Jónsson, fulltrúi Sæborgar. Mynd. Golu
Stólarnir í basli