Dagur - 29.11.1990, Síða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 29. nóvember 1990
Framsóknarfólk
á Húsavík
Framvegis verður skrifstofa flokksins í Garðari, Garðars-
braut 5, opin á laugardagsmorgnum milli kl. 11.00-12.00.
Heitt á könnunni.
Lítum inn og ræðum málin.
Framsóknarfélag Húsavíkur.
Tesco Tesco Tesco
Tesco vörur í úrvali
Alltaf eitthvað nýtt!!!
Nýjar TESCO vörur. T.d.
franskar kartöflur
pizza
frosið grænmeti
Jólasteikur í úrvali
Bayoneskinka
Hamborgarhryggur
Kambur
Kalkún
Hangikjöt
og fl. og fl.
Vikutilboð: Kindabjúgu 395 kr. kg
Opið kl. 10 til 16 laugard. 1. des.
Opið mánud.-föstud. 10.30-18.30
fSystraminning:
María Vilhjálmsdóttir
Fædd 14. janúar 1898 - Dáin 18. janúar 1988
Kristjana Vilhjálmsdóttir
Fædd 25. maí 1903 - Dáin 5. nóvember 1990
Mig langar að minnast í nokkrum
orðum tveggja systra, sem nú eru
nýlega látnar, þeirra Kristjönu og
Maríu Vilhjálmsdætra frá Neðri-
Dálksstöðum á Svalbarðsströnd.
María féll frá árið 1988 níræð að
aldri en Kristjana nú í haust,
skömntu áður en þetta er skrifað,
87 ára að aldri.
Þessar konur eru mér minnis-
stæðar og kærar í minningunni.
Allt frá því að ég var krakki
heima á Vatnsleysu í Fnjóskadal
man ég eftir þeim þegar þær
komu gangandi austur yfir
Vaðlaheiðina, fóru Þórustaða-
skarð, eflaust hafa þær hlaupið
austur af heiðarbrúninni svo létt-
fættar voru þær þá og létu sér fátt
fyrir brjósti brenna. Að Vatns-
leysu komu þær af heiðinni og
enn man ég vel hvað þeim fylgdi
mikil gleði og gamansemi og var
okkur heima mikil tilbreyting í
fábreytni daganna. Hlátur þeirra
og gamansemi fyllti bæinn og
höfðu þær frá mörgu að segja
okkur. Síðan fóru þær á fleiri bæi
í dalnum að finna vini og vensla-
fólk. Ég hef ekki gleymt þessum
fyrstu kynnum af þeim systrum.
Kristjana Vilhjálmsdóttir var
þá húsfreyja á Neðri-Dálksstöð-
um, kona Halldórs Albertssonar
bónda þar. Þau eignuðust fjögur
börn: Björn, Huldu, Kristjönu
Ingibjörgu og Elínu. Þau misstu
Björn ungan að aldri og síðar
Kristjönu Ingibjörgu á besta
aldri, hún var þá tekin við búi af
foreldrum sínum ásamt manni
sínum Inga Þór Ingimarssyni, og
þeirra börn orðin fimm. Löng var
sambúð þeirra Kristjönu og Hall-
dórs orðin því þau hefðu átt sex-
tíu og fimm ára hjúskaparafmæli
fyrsta desember næst komandi
hefðu bæði lifað.
María Vilhjálmsdóttir átti alla
búskapartíð systur sinnar og
mágs sitt heimili á Dáiksstöðum
og vann því heimili vel og er þau
hjón hættu búskap var María
áfram hjá yngri hjónunum í
nokkur ár. Hún annaðist börn og
bú með þeim af alúð eftir því sem
heilsan leyfði og þótti henni vænt
um allt og alla. En svo kom
áfallið, Kristjana kona Inga Þórs
fórst í bílslysi. Þetta hörmulega
slys varð öllu Dálksstaðafólk-
inu erfið raun. Stundum kemur
maður í manns stað og ekki löngu
seinna kemur ágæt kona til Inga
og sér um heimilshald með
honum, hún heitir Sigurlaug Jón-
asdóttir.
Ég hef fyrir satt að börnum og
unglingum sem dvöldu á Dálks-
stöðum á sumrin þótti gott að
vera þar, því vel var um alla
hugsað og þar áttu þær systur
Kristjana og María stóran hlut að
máli. Oft hef ég komið að Dálks-
stöðum og enn í dag ríkir þar
sami andi og áður, sá góði andi er
ég kynntist þar fyrst. Þessa minn-
ist ég nú og vil þakka af heilum
hug.
Hjónin Kristjana og Halldór
og einnig María bjuggu á dvalar-
heimilinu Skjaldarvík nokkur
undanfarin ár. Nú er Halldór þar
einn síðan hans góða kona dó.
Við hjónin sendum honum inni-
legar samúðarkveðjur.
María dvaldi sín allra síðustu
ár á Sjúkrahúsinu á Akureyri
sökum vanheilsu sinnar. Þangað
heimsótti ég hana oft og einnig
kom ég oft í Skjaldarvík til þeirra
hjónanna. Vel var um þau hugs-
að af þeirra nánustu vandamönn-
um og vinum.
Mér var það sérlega minnisstætt
er ég heimsótti Maríu á sjúkra-
húsið, hélt mig nú vera að heim-
sækja hana sjúka og einstæða, að
þá gat hún gjört að gamni sínu
og verið glöð, svo mér fannst ég
alltaf hafa eitthvað að sækja til
hennar ekki síður.
Systurnar María og Kristjana
höfðu í sínu lífi kynnst bæði gleði
og sorg, en fóru héðan sáttar við
guð og menn, um framhaldsh'fið
var hjá þeim enginn efi.
Blessuð sé minning þeirra.
Öllum þeirra nánustu ættingj-
um og vinum sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Margrét H. Lúthersdóttir.
TÍSKUSÝNING
I ÞROTTAVORUVERSLUN
Næstkomandi laugardag kl. 14.00
verður haldin tískusýning í verslun-
inni á því nýjasta í skíðafatnaði og
öðrum íþróttavörum frá Nike, Rukanor
og öðrum framleiðendum.
ALLIR VELKOMNIR - Piparkökur
handa þeim sem eru komnir í jóla-
skap.
Eftir kenjum
kokksins
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur
sent frá sér matreiðslubókina
Eftir kenjum kokksins, en hún
hefur að geyma fjölbreytt safn
uppskrifta úr eldhúsi Rúnars
Marvinssonar sem víðfrægur er
fyrir matargerð sína, fyrst á
Hótel Búðum um árabil og nú á
veitingahúsinu Við Tjörnina í
Reykjavík.
Bókin skiptist í eftirtalda
kafla: Súpur; Forréttir; Fiskrétt-
ir; Villibráð og fuglar; Eftirréttir.
Einnig er að finna í bókinni
ábendingar um matseðla og vín-
tegundir við hæfi. Litmyndir eru
af öllum réttum í bókinni.
í kynningu FORLAGSINS
segir m.a.: „Enginn matreiðslu-
meistari hefur enn ógnað ríki
Rúnars Marvinssonar. í þessari
bók er lögð megináhersla á þá
stórkostlegu sjávarrétti sem bor-
ið hafa hróður hans víða. Lykill-
inn að gæðunum felst í viðhorfi
Rúnars Marvinssonar til matar-
gerðar. í augum hans er hún list-
grein - sérhver réttur er sjálfstætt
listaverk, og galdurinn er auð-
lærðari en menn grunar," segir
að lokum í kynningu útgáfunnar.