Dagur - 29.11.1990, Page 15
I
Fimmtudagur 29. nóvember 1990 - DAGUR - 15
~k
íþróttir
Ársþing KSÍ um næstu helgi:
Tillaga frá ÍK um veru-
legar breytingar á 3. deild
Atli Brynjólfsson hreppti 1. sætið ásanit Aðalsteini Þorlákssyni.
Pepsi-tvímenningur í snóker:
Atli og Aðalsteinn unnu
Um síöustu helgi fór fram
svokallaður Pepsi-tvímenning-
ur í snóker á Billiardinum í
Kaupvangsstræti á Akureyri. 10
pör mættu til leiks og eftir
spennandi keppni stóöu Atli
Brynjólfsson og Aðalsteinn
Þorláksson uppi sem sigurveg-
arar.
Keppt var með útsláttarfyrir-
komulagi og féllu pörin út við
annan ósigur. Tveir og tveir voru
saman í liði og stuðuðu til skiptis.
Atli og Aðalsteinn kepptu til
úrslita við Sigurð Odd Sigurðsson
og Sigurjón Sveinsson og sigruðu
2:1 í spennandi leik. í þriðja sæti
urðu Birgir Torfason og Arnar
Pétursson.
Pepsi gaf öll verðlaun í mótið,
farandbikar fyrir fyrsta sæti og
bikara til eignar fyrir fyrstu þrjú
sætin. Og að sjálfsögðu var Pepsi
í aukaverðlaun.
m.a. Qölgun á liðum í 18
Á ársþingi KSÍ, sem lialdið
verður um helgina, verður
lögð fram tillaga frá Iþróttafé-
lagi Kópavogs um breytingar á
keppnisfyrirkomulagi í 3.
deild. Samkvæmt tillögunum
fjölgar liðum í deildinni í átján
og verður þeim skipt í tvo riðla
eftir landssvæðum. Leikin
verður einföld umferð en síðan
tekur við úrslitakeppni um sæti
í 2. dcild og jafnframt um fall í
4. deild.
Tillagan fjallar urn breytingar á
21. grein reglugerðar KSÍ um
knattspyrnumót. Samkvæmt
henni verður fyrst leikin einföld
umferð í hvorum riðli, átta leikir
á lið. Prjú efstu liö í hvorum riðli
leika að því loknu til úrslita um
tvö sæti í 2. deild, tvöfalda
umferð, heima og heiman, sam-
tals átján leiki á lið. Hin 12 liðin
leika áfram í sínum riðlum, 6 í
hvorum, tvöfalda umferð og tvö
neðstu liðin í hvorum riðli falla í
4. deild. Liðin taka með sér öll
stig úr fyrri umferð, bæði í efri og
neðri hluta deildarinnar, og
einnig markatölu.
Einnig breyting á
4. deildinni
í tillögunni er einnig kveðið á um
breytt fyrirkomulag á keppni í 4.
deild. Þar skal sem fyrr skipta lið-
unt í riðla eða viðhafa svæða-
keppni. Tvö efstu lið í hverjum
riðli fara í úrslitakeppni þar sem
Hugmyndir um sameiginlegt lið Leifturs og Dalvíkur:
Óánægja með viðbrögð KSÍ
Eins og greint var frá í blaðinu
fyrir nokkru sendu knatt-
spyrnudeildirnar á Dalvík og í
Olafsfirði bréf til Knattspyrnu-
sambands íslands til að kanna
möguleika á því að senda sam-
eiginleg lið í íslandsmót 2., 3.
og 4. flokks næsta sumar.
Stjórn KSÍ tók málið fyrir og
komst að þeirri niðurstöðu að
leikmaður í 2. flokki gæti ekki
leikið í sameiginlegu 2. flokks-
liði félaganna og jafnframt í
meistaraflokki annars félags-
ins. Hins vegar segir að það sé
skoðun stjórnarinnar að ger-
legt sé að senda sameiginleg iið
í 3., 4. og 5. flokki.
í bréfi frá KSÍ til félaganna
segir að samkvæmt áliti fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ geti einstak-
ur íþróttamaður ekki keppt nema
fyrir eitt félag í sömu grein á
almanaksárinu en búseta leik-
manns setji honum hins vegar
engar skorður um með hvaða
félagi hann leiki. Enn fremur seg-
ir að „stofnun nýs félags á svæð-
inu gæti haft þær afleiðingar að
liðið yrði að byrja keppni í 4.
deild. Einnig yrði ákveðið í
hvaða íþróttahéraði hið nýja
íþróttafélag yrði skráð.“
„Maður vissi að við værum
ekki í santa íþróttahéraði og því
væru ákveðnir meinbugir á
þessu. Hins vegar var maður að
vonast til þess að stjórn KSÍ
myndi veita undanþágu í eitt ár
til reynslu," sagði Björn Frið-
þjófsson hjá UMFS Dalvík.
Hann sagði að ekki væri ákveðið
hvað gert yrði í framhaldinu en
þó yrði reynt að kanna á ársþingi
KSI hvort vonlaust væri að fá
fram einhverjar tilslakanir.
Porsteinn Þorvaldsson hjá
Leiftri var einnig óánægður með
viðbrögð KSÍ. „Þeir vísa bara í
reglurnar en við vissum alveg
hvernig þær eru. Við vorum að
kanna möguleikana á að þessum
reglum yrði breytt þannig að
þetta yrði hægt en þaö var ekkert
farið út í það.“
Þorsteinn sagðist hafa áhuga á
að félögin sendu sameiginleg lið í
3., 4. og 5. flokki og það yrði
hugsanlega gert næsta sumar.
Það yrði síðan að ráðast hvort
þau gætu sent sitt liðið hvort í 2.
flokki.
P>ór-Tindastóll:
Verður á
sunnudagskvöld
Leikur Þórs og Tindastóls fer
ekki fram á föstudagskvöldið eins
og sagt var í blaðinu í gær. Þórs-
arar fengu leiknum ekki flýtt
vegna landsliðsæfingar sem verð-
ur á föstudagskvöldið en tveir
landsliðsmcnn eru í Tindastóls-
liðinu. Leikurinn verður því á
sunnudagskvöldið og hefst hann
kl. 20.
Þorvarður blakmaður ársins
Stjórn Blaksambands íslands
hefur vallð Þorvarð Sigfússon
blakmann ársins 1990. Þor-
varður leikur með íþróttafé-
lagi stúdcnta.
Þorvarður hóf að leika blak
með íþróttafélagi Menntaskólans
á Akureyri 1978 og lék með lið-
inu á menntaskólaárum sínum.
Hann lék einnig í eitt ár með
UMSE áður en hann fluttist til
Reykjavíkur. Þar leikur hann nú
með ÍS og hefur leikið rúmlega
200 deildarleiki fyrir félagið síð-
an 1982.
Með ÍS hcfur Þorvarður orðið
íslandsmeistari einu sinni, 1988,
bikarmeistari 4 sinnum, Reykja-
víkur- og 1. deildarmeistari 1989.
Þorvarður hefur leikið 22
landsleiki með landsliði íslands.
Hann hefur einnig leikið tvo
unglingalandsleiki og var í fyrsta
unglingalandsliði íslands.
Þorvarður er vel að þessurn
titli kominn. Hann hefur verið
leiðandi leikmaður með liði sínu
og hefur staðið sig með mikilli
prýði í landsliðinu.
liðum er skipt í tvo úrslitariðla.
Tvö efstu lið í hvorum riðli vinna
sér sæti í 3. deild en sigurlið úr-
slitariðlanna leika einn úrslitaleik
um Íslahdsmeistaratitilinn í 4.
deild.
Einungis flugfélögin græða
Magnús Harðarson. formaður
knattspyrnudeildar ÍK, segir að
gífurlegur ferðakostnaður fylgi
núverandi fyrirkomulagi og konti
það engum til góða nema flugfé-
lögunum. „Það er útilokað fyrir
knattspyrnufélög að eyða 1,5
milljónum í ferðalög og hafa litl-
ar sent engar tekjur á móti. Eins
og staðan er í dag er stysta ferðin
okkar í Borgarnes, hinar eru all-
ar norður eða austur í land. Það
er hreinlega ekki hægt að reka
deildina á slíkum forsendum, svo
einfalt er það,“ sagði Magnús.
Hann bætti því við að hann hefði
vissu fyrir því að ákveðin 4.
deildarfélög á höfuöborgarsvæö-
inu hefðu forðast að fara upp í 3.
deild vegna kostnaðarins sem
væri því samfara. „Það er auðvit-
að grafalvarlegt mál cf deilda-
fyrirkomulagið er farið að
skemma fyrir knattspyrnunni."
- En er ekki rétt að þið hafið á
sínum tíma staðið fyrir því að
deildinni var breytt í það horf
sem hún er í nú?
„Við studdum þá tillögu. Það
voru nokkur félög hér fyrir sunn-
an sem stóðu að henni en ég man
ekki hvort hún var lögð fram í
okkar nafni. Við óttuðumst
reyndar að þetta yrði kostnaðar-
samt en ekki eins og það er oröið
í dag," sagði Magnús Harðarson.
Dýrara norður en suður?
Það.eru hins vegar ekki allir jafn
hrifnir af þessari tillögu og er t.d.
vitað að Ólafsfirðingar eru henni
andvígir. Magnamenn hafa einnig
ákveðnar skoðanir á tillögunni.
„Mér líst ekkert á þetta enda sé
ég engan sparnað í þessu," sagði
Jón Ingólfsson hjá Magna á
Grenivík. Hann sagði að í núver-
andi fyrirkomulagi væru t'eröir til
Reykjavíkur, Borgarness og
Isafjarðar, auk einnar til Nes-
kaupstaðar. Með breytingunni
kæmu til þrjár ferðir suður ef lið-
ið kæmist í úrslitakeppnina og að
auki yrði Sindra frá Hornafirði
bætt inn í riðilinn þannig að ferð-
irnar austur á land yrðu tvær. Þá
taldi hann lítið unnið með því að
láta liöin, sem ekki kæmust í úr—
slitakeppnina, spila um fallið í 4.
deild.
„Það voru liö að sunnan sem
stóðu fyrir því aö deildinni var
breytt á þann veg sem hún er
núna. Síðan þegar liðum aö
norðan fjölgar þá kemur strax til-
laga að sunnan um að breyta
þessu aftur. Það virðist vera dýr-
ara að fara norður en suður,“
sagði Jón lngólfsson.
Þtö gerið beíri
matarkaup
iKEANETTO
Jólatilboð!
Kerti, dúkar, servíettur, konfekt, niður-
soðið grænmeti frá KJ, niðursoðnir
ávextir, bökunarvörur.
★
Tilboð vikunnar
lambamjaðmsteikur
406 kr. kg
Opið virka daga kl. 13-18.
Ath. laugardaginn 1. des. opið ki. 10-14.
KynnSst NETTÓ-'VGrði
KEANETTÓ