Dagur - 21.12.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 21.12.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 21. desember 1990 Innilegar þakkir og óskir um gleðileg jól og gott nýtt ár, færum við öllum þeim sem hafa styrkt okkur, hjálpað og sýnt okkur hlýhug í erfiðleikum okkar. Sigtryggur Sigtryggsson °g Alda Guðmundsdóttir. BRIDGE íslandsbankamót Mótið verður haldið sunnudaginn 30. desember og hefst kl. 10.00 f.h. Spilað verður í Alþýðuhúsinu við Skipagötu, 4. hæð. Spilaður verður tvímenningur með Mitchell-fyrir- komulagi og spilað um silfurstig. Þá er keppt um farandbikar auk bikara í 1., 2. og 3. sætið, sem íslandsbanki gefur. Auk þess verður fjöldi aukavinninga. Ókeypis kaffi meðan spilað er. Keppnisgjald er kr. 2.000.- á par. Skráning á staðnum. Allir velkomnir. ÍSLANSBANKI BRIDGEFÉLAG AKUREYRAR. Fluguhnýtinga- menn Stórkostlegt úrval af fluguhnýtingar- efni var að koma: Tól, tæki, fjaðrir, skott, hamir og önglar í miklu úrvali. Fluguhnytingar: sportið í sportinu KARRIM0R útivistarfatnaður frá Skátabúðinni. lii EYKTORÐ S SP. Hjalteyrargötu 4 • Sími 25222 [gT Hugsað heim Noregi 30. nóv. 1990. Á liðnum mánuðum höfum við hjónin dvalið hjá frændum okkar, Norðmönum, í góðu yfir- læti. Þar höfum við átt þess kost að fá að kynnast mörgu áhuga- verðu og vera með í uppbyggi- legu kirkjustarfi, auk þeirra sér- stöku verkefna sem við höfum verið að vinna að. En við slíkar aðstæður reikar hugurinn líka heim og eins og ósjálfrátt sér maður sinn eiginn akur í nýju ljósi og ýmsar hugmyndir vakna sem gaman er að velta eilítið fyrir sér. Sterk safnaðarvitund og fjöldi starfsmanna Hér vekur þó fyrst athygli sterka safnaðarkennd eða safnaðarvit- und og hve almennt það viðhorf virðist vera að sjálfsagt sé að rækja samfélagið í sóknarkirkj- unni og leita þangað með alla kirkjulega þjónustu. Ýmislegt er líka gert til að efla tengsl ein- staklinganna og heimilanna við kirkjuna, og t.d er fólk, sem er nýflutt í sóknina, heimsótt og boðið sérstaklega velkomið í söfnuðinn. Á hverjum stað eru einnig leik- ir starfsmanna í föstum störfum, - sem leiðtogar, djáknar (diakon- issur) eða fræðarar, - og eru þeir í skipulagðri þjónustu við heimil- in ásamt prestunum. Pá hefur tölvutæknin víðast hvar verið tekin í notkun, a.m.k. í stærri söfnuðum, en með því móti er unnt að hafa betri yfirsýn yfir söfnuðinn og hafa alla starfsemi markvissari en ella. Og þá má ennfremur nefna að sólahrings- vaktir eru skipulagðar á flestum stöðum. Sóknarpresturinn hefur eins- konar verkstjórn með höndum og safnaðarheimilið er miðstöð starfsins. En ineð öllu þessu hjálparfólki geta prestarnir líka helgað sig boðunarstarfinu og sálusorguninni, sem er þeirra sérsvið og þeir hafa sérstaklega verið menntaðir til. Rík áhersla er þá jafnframt lögð á þjónustuna en ekki einstaklinginn sem innir þjónustuna af hendi, og þetta sér-íslenska fyrirbæri sem ég hefi stundum leyft mér að kalla „prestavitund“ (og sem við þekkjum betur heima en safnað- arvitund) sýnist mér nær óþekkt hér. Stuðningur sveitarfélaganna Þá vekur sérstaka athygli að sum- ir starfsmenn safnaðanna eru ráðnir beint af sveitarfélögunum og launaðir af þeim. Einkum á það við um þá starfsmenn sem eiga að sinna hinum félagslegu störfum, barna- og unglingastarfi og öldrunarstarfi eða er ætlað að stýra ýmis konar klúbbstarfsemi eða veita hjálp eða hjástoð í heimahúsum. Hér sjá forstöðu- menn sveitarfélaganna hag í því að hafa náið samstarf við þjóðkirkjusöfnuðina í stað þess að byggja upp sjálfstætt félags- starf við hlið safnaðarstarfsins. En hér er líka þannig búið að starfsmönnum kirkjunnar í laun- um að þeir geta helgað sig starf- inu óskiptir og kjör þeirra eru allt önnur en við þekkjum heima í samanburði við aðrar stéttir. Þá er og algengt að tala um „starfs- kirkjur," einkum í nýjum hverfum, en þá er átt við þessar miðstöðvar sem sóknir og sveit- arfélög hafa byggt upp sameigin- lega. Par eru kirkja, safnaðar- heimili, dagvistarstofnanir fyrir yngri sem eldri og heilsugæsla og jafnvel fleiri opinberar stofnanir, nátengdar og stundum undir sama þaki. Djáknaþjónusta Með þessa reynslu í huga kemur margt upp í hugann sem betur mætti fara heima. Ég held þó að eitt brýnasta verkefni okkar hljóti að vera að ráða djákna (eða safnaðarsystur) til starfa og það fleiri en einn. Ég tel að sú stefna hafi ekki verið rétt á ís- landi að einblína ætíð á að fjölga prestum þegar auka hefur átt þjónustu kirkjunnar, hafa þá svo eina í starfi og ætla þeim jafn fjölþættan verkahring eins og raunin hefur verið. Það er miklu nær að ráða sérmenntað fólk til starfa, a.m.k. í stóru söfnuðun- um, (menntað t.d. sem hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, félagsráðgjafa, fóstrur eða kennara), fólk sem ynni síðan að skipulögðu líknar- og trúfræðslu- starfi. Sérstökum fræðslunám- skeiðum fyrir slíka starfsmenn, vegna hinnar kirkjulegu þjón- ustu, ætti þjóðkirkjan hæglega að geta komið á fót t.d í Skálholti og Löngumýri. Á nýafstöðnu Kirkjuþingi var mikið um þetta rætt og samdóma álit að nauðsyn- legt væri að efla félags- og líknar- þjónustu innan kirkjunnar. Félagsbundið s^naðarstarf, (bræðralög, kvenfélög, æskulýðs- félög) á eflaust ennþá einhvern tíma framundan. Þó er félags- bundið barna- og æskulýðsstarf víða á undanhaldi í þjóðfélaginu miðað við það sem áður var og þeirri þróun verður kirkjan líka að kunna að mæta. Nú er sterk áhersla lögð á að styrkja heimilin og fjölskylduna sem einingu, og vilji kirkjan taka þátt í því starfi, verður hún að mennta og ráða fólk til þeirra starfa. Pá verður forvitnilegt að fylgj- ast með því hvernig fjölskyldu- guðsþjónustunum verður tekið, sem við stefnum að síðar á vetr- inum. Par er hugmyndin sú að sameina sunnudagaskólann og safnaðarguðsþjónustuna að hluta til og í þeirri von að fjölskyldan öll finni þá eitthvað við sitt hæfi með kirkjugöngunni. Nýir tímar - nýir starfshættir Akureyrarsókn er nú orðin ein fjölmennasta sóknin á íslandi og töluvert fyrir ofan þau mörk sem eiga skv. lögum að vera hámark í óskiptum sóknum á íslandi. Út af fyrir sig fylgja fjölmenninu ýmsir kostir og því getum við t.d. þakk- að að við eigum nú sérstaklega vel búna kirkju og nýtt safnaðar- heimili sem gefur mikla mögu- leika í starfi. En fjölmenninu fylgir líka sú hætta að hið pers- Séra Þórhallur Höskuldsson. ónulega samband prestanna við sóknarbörnin verði minna en ella og einstaklingar „hverfi" í fjöld- ann ef svo má segja. Jafnframt vilja hin almennu safnaðarstörf oft lenda á fárra herðum og með alltof miklu starfsálagi en fjöld- inn verður óvirkur og kirkju- starfið mörgum jafnvel framandi eða ópersónulegt . Þetta er sá vandi sem mér sýn- ist að við blasi nú, þegar svo góð starfsaðstaða hefur verið sköpuð. Hvernig á að fylgja ytri uppbygg- ingu eftir með innra starfi? Og sú spurning hlýtur að vera áleitin, hvernig við getum styrkt innvið- ina, styrkt tengsl hinna mörgu við kirkjuna og fengið æ fleiri til að taka þátt í lifandi trúarstarfi. Sú fjölgun starfsmanna sem ég hef rætt um hér að framan myndi leysa brýnasta vandann. En það er líka unnt að varpa þeirri spurningu fram hvort ekki eigi að skipta Akureyrarsókn eins og t.d. var gert í Éella- og Hólahverfi í Breiðholti og mynda minni einingar þar sem fleiri yrðu kvaddir til starfa og ábyrgðar? Þá yrði að tryggja að náið og gott samstarf yrði á milli sóknanna, t.d. um afnot af kirkjunni og um ráðningu og verkaskiptingu starfsmanna. En aðrar leiðir eru líka hugs- anlegar? Kemur ekki til greina að skipta sókninni í starfssvæði eftir hverfum? Þá myndum við t.d. kalla sérstaklega til þeirra sem búa á Oddeyrinni einn sunnudag í mánuði og í þeirri von að mán- aðarleg kirkjuganga gæti orðið að fastri venju sem flestra. Starfs- hópur yrði kvaddur til eða nefnd sem héldi utan um guðsþjónust- una og barnastarfið þann sunnu- dag, sæi um auglýsingar og messukaffi og yrði eins konar tengiliður kirkjunnar við svæðið, jafnframt því sem sjúklingar eða einstæðingar í þeim bæjarhluta myndu síður gleymast. Ég hef á tilfinningunni að engin vöntun yrði á vinnufúsum höndum og virkum starfskröftum ef þetta yrði reynt. E.t.v. er líka liægt að hugsa sér að setja á fót starfshópa eða Skemmtisögur úr skólanum Gamansögur af nemendum og lærimeisturum á öllum skólastig- um hafa löngum notið vinsælda hér á landi. í fyrra kom út bókin „Skólaskop“ sem hafði að geyma fjölmargar slíkar sögur og hlaut hún ágætar viðtökur. Nú er komin út bókin „Meira skólaskop“, þar sem þráðurinn er tekinn upp að nýju. Höfundar bókarinnar, eða safnarar, eru Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Sigurjónsson. Hér á eftir birtum við nokkrar sögur úr „Meira skólaskop", valdar af handahófi. f vistfræðiprófi í Menntaskólan- um á Egilsstöðum var m.a. spurt: „Hvað er framvindaV Eitt svarið var dálítið kostu- legt: „Framvinda er framstykki á handsnúinni þvottavél.“ Móðir nokkur fylgdi tvíbura- dætrum sínum í Vogaskólann fyrsta skóladag þeirra. Er hún kom á skólalóðina, heyrði hún einn drenginn segja: „Nei, nei, sjáiði strákar. Þarna er sama stelpan tvisvar." Á karlaklósetti í framhaldsskóla í Reykjavík stendureftirfarandi: „Dagar íslenskukunátunar eru talnir." Úr náttúrufræðiprófi á Akureyri: „Hver er undirstaða alls dýra- lífs í sjó?“ Svar eins nemandans var: „Botninn." Úr ritgerð um hafið: „Fiskurinn er langfjölmenn- asta dýrið í sjónum." Nemandi í einum af grunn- skólunum í Breiðholti snaraði eftirfarandi dönskum texta yfir á íslensku á snilldarlegan hátt: Danski textinn var: „Hann blev röd í hovedet og var lige ved at græde.“ Þýðingin var: „Hann fékk rör í höfuðið og varð að liggja þar tii það greri.“ Sami nemandi þýddi setning- arhlutann ....sejl og blæst“... þannig: ...„sæll og blessaður." Úr ritgerð um ísland: „Ef Atlantshaf væri á megin- landi Evrópu væri hér lítið um fiskveiðar." Drengur í Skagafirði var eitt sinn spurður að því í dýrafræði- tíma hvar kameldýr væri aðal- lega aö finna. Hann svaraði: „Það hlýtur að vera í Reykja- vík eins og allt annað.“ Á félagsfræðiprófi í mennta- skóla voru nemendur beðnir um að útskýra hugtakið „kjör- gengi“. Ein útskýringin var: „Kjörgengi er það nefnt þegar fólki er ekið á kjörstað en síðan látið ganga heim.“ Úr söguprófi í 6. bekk í Hafnar- firði: „Hvenær dó Jón Arason biskup?“ Svar eins nemanda: „Þegar hann var hálshöggv- inn.“ Ábyggilega er hér alveg hár- rétt svar á ferðinni en við höll- umst nú frekar að því að kenn- arinn hafi verið að spyrja um árið sem Jón dó. Úr söguprófi í 6. bekk: „Af hverju var Skúli fógeti nefndur faðir Reykjavíkur? Svar ólesins nemanda var: „Af því hann átti svo mörg börn.“ Spurning á prófi í kristnum fræðum: „Um hvað fjölluðu boðorðin tíu?“ Eitt svaranna var: „Um eitthvað sem ekki mátti gera í fornöld en er nú leyfi- legt.“ Úr söguprófi í 4. bekk: „Hvaða kosti höfðu Þingvellir sem þingstaður til forna?“ Svar eitt var: „Það var svo gott að muna nafnið." nefndir til að sinna afmörkuðum verkefnum í nafni kirkjunnar, námskeiðum eða þjónustu við ákveðna aldurshópa. Skylt er okkur t.d. að reyna að ná til og styðja þá mörgu sem dvelja í skólum innan sóknarinnar og/eða á vistheimilum og sjúkrastofnun- um og margir fjarri fjölskyldum sínum, þar hef ég ekki síst í huga sálusorgun eða hinn persónulega stuðning. Allt slíkt starf myndi svo mætast hjá prestum og sókn- arnefnd og öðru starfsliði safnað- arins og vera innt af hendi í sam- starfi við þá aðila. En hvaða leiðir sem við förum er þó eitt víst „Safnaðarlífinu“ á að haga eins og „samboðið er fagnaðarerindinu,“ eins og segir í Filippibréfi. Og „musteri Guðs eru hjörtun sem trúa,“ sagði Ein- ar Benediktsson. Slík orð minna á út frá hvaða forsendum verður að ganga fyrst og fremst. Hin reglubundna trúariðkun Margt fleira kemur upp í hugann, þótt ég láti hér staðar numið, enda tilgangurinn eingöngu sá að vekja til umhugsunar um hvernig við getum sem best staðið að safnaðarstarfinu. En samhliða breyttu skipulagi og starfsháttum skulum við gera okkur ljóst að enginn söfnuður stendur undir nafni og ekkert kirkjustarf blómgast, sem ekki rækir „náð- armeðulin" fyrst og fremst og sækir þangað næringu sína. Aldrei verður því of rík áhersla lögð á bænastarfið og biblíulestr- ana og seint má gleymast að mikilvægasti trúboðsakurinn er heimalandið sjálft. Við kirkjunn- ar menn þurfum að fara með boðskapinn út til fólksins í bók- staflegri merkingu, um leið og við hvikum þó aldrei frá mikil- vægi sunnudagsguðsþjónustunn- ar og hinnar reglubundnu trúar- iðkunar. Okkur hættir sennilega til of mikillar íhaldssemi og við- kvæmni gagnvart nýjum leiðum og erum sjálfsagt aldrei nógu vakandi fyrir breyttum tíðaranda og nýjum viðhorfum. En nú er komið nóg að sinni! Aðventan er framundan með allri sinni eftirvæntingu og undir- búningi. Notum þann tíma til að búa okkur undir komu frelsarans á jólum, en hugleiðum um leið hvað við getum betur gert til að efla trúarstarfið og samfélagið við hann. „Hvetjum og uppörvum hvert annað“ til þeirra hluta, eins og postulinn skrifar. Guð gefur ávöxtinn og „akrarnir eru þegar hvítir til uppskeru.“ Með bestu kveðjum. Þórhallur Höskuldsson. Höfundur er sóknarprestur í Akureyrar- sókn. Erindi þetta var upprunalega skrifað til hirtingar í Safnaðarblaði Akureyr- arkirkju, en barst ekki í tæka tíð áður en blaðið fór í prentun. Bréfið var rit- að er sr. Þórhallur var í námsleyfi í Noregi, en hann er nú kominn til starfa á ný, eins og kunnugt er. Föstudagur 21. desember 1990 - DAGUR - 9 Norðlendingar • Norðlendingar! Bókin // „Sólris IjóÖ og sögur eftir Bjarna Marinó frá Siglufirði er komin í bókaverslanir. Útgefandi. HerrabúÖin auglýsir: Vel klæddur í fötum frá ™A?DT Vandaður fatnaður í fjölbreyttu úrvali Nýjar sendingar daglega fram að jólum. Klæðskeraþjónusta Verslið hjá fagmanni Opið í hádeginu alla daga. Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendl), sími 26708. Vertu stilltur allan sólarhringinn... Frostnjisír FM98.7 ★ Góð tónlist ★ Getraunir ★ Viðtöl rmrým FM98.7 -útvarpið þitt í jólaskapi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.