Dagur - 21.12.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 21. desember 1990
bœkur
ustu. Bíldudalskóngurinn er saga
manns, sem vann það einstæða
afrek að byggja upp frá grunni
öflugt sjávarpláss. Hann kom
þangað ungur að árum og fjár-
vana; að einu íbúðarhúsi á staðn-
um og einni jagt í nausti, en eng-
um íbúa. Þegar hann fór frá
staðnum voru húsin orðin 50,
íbúarnir 300 og skúturnar 20.
Saga Péturs J. Thorsteinssonar
er hetjusaga manns, sem þoldi
mikil áföll og marga þunga raun á
athafnaferlinum og þó enn meiri
í einkalífinu."
leysuströnd og Vogum og Kópa-
vogi. Einnig segir hann frt
kennslu sinni í Ballerup í Dan-
mörku.
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur sent
frá sér bókina Kennari á faralds-
fæti, þáttasafn Auðuns Braga
Sveinssonar.
í bókinni segir Auðunn Bragi
frá 35 ára kennarastarfi sínu í öll-
um hlutum Iandsins. Hann grein-
ir af hreinskilni frá miklum fjölda
fólks sem hann kynntist á þessum
tíma, bæði til lofs og lasts.
í bókinni segir Aðunn Bragi
Sveinsson segir frá kennslu sinni
og skólastjórn á eftirtöldum
stöðum: „Akranesi, Hellissandi,
Fróði hf. hefur gefið út bókina
Stangaveiðin 1990 eftir Guðmund
Guðjónsson og Gunnar Bender.
Höfundarnir eru báðir vel þekkt-
ir meðal stangaveiðimanna fyrir
skrif sín um stangaveiði, en þeir
skrifa veiðifréttir fyrir Morgun-
blaðið og DV og hafa að auki
báðir skrifað bækur unr stanga-
veiði.
í Stangaveiðinni 1990 er að
finna yfirlit yfir aflabrögð í ein-
stökum veiðiám og samanburður
við fyrri ár. Fréttaannáll greinir
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur sent
frá sér bókina Bíldudalskóngur-
inn - athafnasaga Péturs J. Thor-
steinssonar.
í kynningu frá útgefanda segir
m.a.: „Pétur J. Thorsteinsson var
mesti athafnamaður í sjávar-
útvegi á sínum tfma, ásamt Thor
Kennari á
faraldsfæti
vík, Fljótum, Ólafsfirði, Borgar-
firði eystri, Breiðdalsvík,
Skarðshlíð undir Eyjafjöllum,
Þykkvabæ, Skálholti, Vatns-
Jensen. Petta er saga frumherja í
atvinnulífi þjóðarinnar á síðustu
áratugum nítjándu aldar og
fyrstu áratugum þeirrar tuttug-
Stangaveiðin
1990
VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULINA: 991000
frá því helsta sem var að gerast
og auðvitað fylgja nokkrar góðar
veiðisögur frá sumrinu með.
Fjölmargar Ijósinyndir eru í
bókinni.
Byggðaleifar
í Hrafakelsdal og
á Brúardölum
- brot úr byggða-
sögu íslands
Út er komið ritið Byggðaleifar í
Hrafnkelsdal og á Brúarlöndum,
eftir Sveinbjörn Rafnsson.
í þessu riti er gerð tilraun til að
samhæfa árangur fornleifafræði-
legra rannsókna og sagnfræði-
legra. Höfundur glímir við þær
ritheimildir sem varpað geta ljósi
á byggðasögu Hrafnkelsdals og
gerir grein fyrir forleifafundum á
þessu svæði. Þá er lýst athugun-
um á fornum byggðaleifum í
Hrafnkelsdal, á Efra-Jökuldal og
Brúardölum, bæði með loftljós-
myndum og könnun á staðnum.
Reynt er að tímasetja byggða-
leifarnar, einkum með gjóskulög-
um. í lokakafla eru dregnar
niðurstöður af því efni sem lagt
er fram og leitast við að setja þær
í víðara sögulegt samhengi.
í viðbæti er fjallað um stað-
fræði og Hrafnkels sögu. í bók-
inni eru nær 100 uppdrættir og
ljósmyndir, sumir þeirra í lit.
Með skráningu rústanna er lagt
fram nýtt heimildaefni til
íslenskrar byggðasögu. Bókin er
110 blaðsíður í stóru broti. Hið
íslenska fornleifafélag gefur bók-
ina út en Hið íslenska bók-
menntafélag annast dreifingu
hennar. Félagsmenn þessara
félaga geta fengið bókina á lægra
verði.
Byggðaleifar í Hrafnkelsdal og
á Brúarlöndum kostar kr. 2.250
en félagsverð er kr. 1.800,-
Sumar á
Sólheimum
Bók eftir höfund sem ekki
hefur áður kvatt sér hljóðs,
Ágústu Ágústsdóttir, söng-
konu og prestsfrú að Holti
í Önundarfirði.
f bókinni lýsir höfundur
viðburðaríku sumri krakk-
anna í dalnum, sem er á
mörkum sveitar og þorps
við vestfirskan fjörð.
Hugnæm og sérlega
skemmtileg bók fyrir alla
aldurshópa.
Bókina prýðir fjöldi teikn-
inga eftir Sigrúnu Sætran.
Verð aðeins kr. 1.780.
BBókaútgáfan
HILDUR