Dagur - 21.12.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 21.12.1990, Blaðsíða 11
Föstudagur 21. desember 1990 - DAGUR - 11 Ferðalög um jól og áramót Flug: Flugleiðir: Flogið verður samkvæmt áætlun fram yfir hádegi á aðfanga- dag og verður síðasta ferð frá Akureyri til Reykjavíkur kl. 14.20. Ekk- ert er flogið á jóladag en á 2. jóladag verður flug eins og á sunnudegi. Sami háttur verður hafður á um áramót, flugi hætt kl. 14.20 á gamlárs- dag, ekkert flogið á nýársdag en flug samkvæmt áætlun 2. janúar. Flugfélag Norðurlands: Á aðfangadag verður flogið til allra viðkomu- staða félagsins samkvæmt áætlun, að frátöldum Isafirði og Egilsstöð- um, auk þess sem flug á leiðinni Reykjavík-Ólafsfjörður-Reykjavík fellur niður. Ekkert verður flogið á jóladag en á 2. jóladag verður aftur flogið samkvæmt áætlun. Sami háttur verður hafður á um áramót, sömu flug falla niður á gamlársdag, ekkert flogið á nýársdag en flug fellur í hversdagsskorður 2. janúar. Bæði flugfélögin bæta við aukaferðum eftir þörfum til að anna auknu álagi um hátíðarnar. Ferðir sérleyfishafa: Akureyri-Dalvík-Ólafsfjörður: Frá Ólafsfirði kl. 8.30 á aðfangadag og til baka kl. 12.30. Engar ferðir jóladag og 2. í jólum en 27. og 28. des- ember verða ferðir á sama tíma og sömuleiðis á gamlársdag og 2. janú- ar. Engar ferðir 29. og 30. desember og nýársdag. 3. janúar tekur venjuleg áætlun við. Akureyri-Reykjavík: Ekið alla daga nema aðfangadag, jóladag, gaml- ársdag og nýársdag. Tvær ferðir á Þorláksmessu. Akurcyri-Húsavík: Engar ferðir á Þorláksmessu, aðfangadag, jóladag og 2. í jólum. Ekið frá Húsavík kl. 8 árdegis 27. og 28. desember og 2. janúar og til baka sömu daga kl. 16. Engar ferðir 29., 30., gamlársdag og nýársdag. Akureyri-Mývatnssveit: Síðasta ferð fyrir jól í dag, föstudag, kl. 8 úr Mývatnssveit og til baka kl. 20. Föstudaginn 28. desember verður ekið frá Akureyri kl. 14 og til baka kl. 17 og 2. janúar verður ekið úr Mývatnssveit kl. 8 árdegis. Eftir það tekur venjuleg áætlun við. Ferjur: Hríseyjarferjan: Á aðfangadag verður farið frá Árskógssandi kl. 9, 13 og 16 og frá Hrísey 30 mínútum síðar. Á jóladag verður farið frá Árskógssandi kl. 13,16 og 18 og úr eynni hálftíma síðar. Á gamlársdag verður farið frá Árskógssandi kl. 9, 13 og 16 og til baka hálftíma síðar og á nýársdag verður farið frá Árskógssandi kl. 13,16 og 18 og til baka 30 mínútum síðar. Aðra daga verður siglt samkvæmt áætlun. Eyjafjarðarferjan: Farið verður frá Akureyri kl. 8.30 27. desember og 3. janúar. Afgreiðslutími hótela, veitingahúsa og skemmtistaða um hátíðaraar Akureyri: Hótel KEA verður lokað frá hádegi á aðfangadag og allan jóladag, sömuleiðis frá hádegi á gamlársdag og allan nýársdag. Hótel Norðurland verður lokað frá hádegi á Þorláksmessu fram til 2. janúar. Hótel Stefanía verður lokað frá Þorláksmessu til 2. janúar. Bautinn verður lokaður frá hádegi á aðfangadag og jóladag, sömuleiðis frá hádegi á gamlársdag og nýársdag. Opið aðra daga kl. 9-22. Crown Chicken verður lokað aðfangadag, jóladag, 2. í jólum, gamlárs- dag og nýársdag. Fiðlarinn verður lokaður á Þorláksmessu, aðfangadag, jóladag, 2. í jól- um og gamlársdag, opnað kl. 18 á nýársdag. Greifinn verður lokaður á aðfangadag, jóladag, 2. í jólum, gamlársdag og nýársdag. Hlóðir verða lokaðar frá hádegi á laugardag fram til 2. janúar. Hótel Stefanía, veitingasalur verður lokaður yfir hátíðarnar að frátöld- um 2. í jólum. Lind verður opin aðfangadag til kl. 14, lokuð jóladag og 2. í jólum, opin gamlársdag til kl. 14, lokuð nýársdag. Sjallinn býður upp á ball á 2. í jólum og áramótadansleik frá kl. 24-04 á nýársnótt. Einnig verða dansleikir að vanda um helgina milli hátíða. Smiðjan verður lokuð aðfangadag, jóladag, 2. í jólum, gamlársdag og nýársdag. Súlnaberg verður opið eins og verslanirnar í bænum nema hvað opið verður til kl. 13 á aðfangadag, lokað báða jóladagana, opið til hádegis á gamlársdag og lokað á nýársdag. Uppinn verður opinn til kl. 01 á Þorláksmessu, lokaður á aðfangadag og jóladag, opinn frá kl. 18-02 á 2. í jólum. Á nýársnótt verður opið frá kl. 24-04 en lokað á nýársdag. Sauðárkrókur: Hótel Mælifell verður opið til kl. 13. á aðfangadag, lokað á jóladag en opnað kl. 18 á 2. í jólum. Á gamlársdag verður opið til kl. 14 en á mið- nætti hefst áramótagleði sem stendur til kl. 04. Lokað á nýársdag. Siglufjörður: Hótel Höfn verður lokað á aðfangadag og jóladag en á miðnætti aðfaranótt 2. í jólum hefst dansleikur sem stendur til kl. 04, að öðru leyti verður lokað á 2. í jólum. Lokað verður á gamlársdag en á mið- nætti hefst áramótadansleikur og stendur til kl. 04. Lokað á nýársdag. Ólafsfjörður: Hótel Ólafsfjörður verður lokað frá hádegi aðfangadags til kl. 22 á 2. í jólum þegar barinn á Horninu verður opnaður. A gamlársdag verður lokað á hádegi og einnig lokað allan nýársdag. Áramótadansleikurinn verður í félagsheimilinu. Dalvík: Sæluhúsið verður opið til kl. 03 á Þorláksntessu, lokað aðfangadag, jóladag og 2. í jólum. Áramótadansleikur verður á nýársnótt frá kl. 24- 04 en á nýársdag verður lokað. Húsavík: Bakkinn verður lokaður á aðfangadag og jóladag en opnaður kl. 18 á 2. í jólum. Lokað verður á gamlársdag og nýársdag. Hótel Húsavík verður lokað frá kl. 13 á aðfangadag til kl. 23 á 2. í jól- um en þá hefst dansleikur. Á gamlársdag verður lokað kl. 13 en kl. 00.30 hefst dansleikur sem stendur til kl. 04. Lokað verður á nýársdag. ••• Mjolkursamlag KEA Akurevn Simi 96-21400 J Til jolanna! Sanitas-jólaöl 2 1/2 lítri............258.- kr. Sanitas-jólaöl 5 lítrar...............468.- kr. Pepsí 2 lítrar........................158.- kr. Svínakambur úrbeinaður reyktur......1.176.- kr. Bayonneskinka.......................1.120.- kr. Hangilœri úrbeinað.................. 1.237.- kr. Frampartur úrbeinaður.................927.- kr. Londonlamb........................... 768.- kr. Svínahamborgarhryggur með beini... 1.351.- kr. Opið laugardag frá kl. 10.00-23.00. Verslið hagstætt Krórtún tr verÖmikil hjá okkur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.