Dagur - 21.12.1990, Blaðsíða 1
Akureyri:
Smygl fannst í Öskju
Sérstök rannsóknasveit toll-
gæslunnar, öðru nafni „svarta
gengið“, fann ríflega eitt og
hálft tonn af smygluðu kjöti
við leit í strandferðaskipinu
Öskju á Akureyri. Nokkrir
skipverjar viðurkenndu að
eiga kjötið.
Brynjólfur Karlsson, yfirmað-
ur rannsóknadeildar tollgæslunn-
ar, segir að „svarta gengið" hafi
verið sent til Akureyrar til leitar í
Öskju, sem var að koma frá Fær-
eyjum. Kjötið, sem var fryst,
fannst í tveimur gámum. Mest
var af kjúklingakjöti, hátt í tonn,
en að sögn Brynjólfs kostar kassi
með tólf kjúklingum átján hundr-
uð krónur íslenskar í Færeyjum,
en um átta þúsund krónur á ís-
landi. Þá var nokkurt magn af
svínakjöti o.fl. í gámunum, allt
upprunnið í Danmörku.
Askja var kyrrsett á Akureyri
að beiðni tollyfirvalda, þar til
komið væri á hreint hverjir ættu
smyglgóssið. Kjötinu verður öllu
eytt á öskuhaugum undir lögreglu-
eftirliti. Rannsóknarlögreglan á
Akureyri yfirheyrði skipverjana í
gær, en mál þeirra verður síðan
sent til saksóknara. EHB
Frestun á uppboðinu í Sana:
Sáttir við úrskurð fógeta
— segir lögfræðingur Landsbanka íslands
„Nei, við erum ekkert ósáttir
við þennan úrskurð bæjar-
fógetans á Akureyri. Ég tel að
þarna hafi honum borið skylda
til að úrskurða svona og til
þess erum við með Hæstarétt
að hann fái að fjalla um svona
mál,“ sagði Gunnar Sólnes,
lögfræðingur Landsbanka
Islands, um frestun á nauðung-
aruppboði á eignum Sana hf. á
meðan áfrýjunarmál gengur í
Hæstarétti.
Gunnar sagði að eftir að áfrýj-
unarstefna lögfræðings Sana hf.
kom fram hafi verið nokkuð ljóst
að til endanlegs uppboðs kæmi
ekki nú. Hann sagði í raun hægt
að vísa hvaða máli sem er til
Hæstaréttar til úrskurðar og því
sé ekki hægt að gagnrýna frestun
uppboðsins á þeim forsendum að
rök fyrir áfrýjun séu haldlítil. Par
komi Hæstiréttur til skjalanna og
skeri úr en á meðan bíði frekara
uppboð.
Gunnar segir algengt að upp-
boðsmálum sé á þennan hátt vik-
ið til Hæstaréttar og þannig var
þremur nauðungaruppboðsmál-
um á Akureyri nýverið áfrýjað til
réttarins. Ástæður fyrir áfrýjun
munu þó aðrar í þessum tilfellum
en í uppboðsmáli Sana hf.
Sjá nánar um þetta mál á bls.
7. JÓH
Yngri nemendur í Glerárskóla voru með jólaball í gærmorgun. Boðið var
upp á tónlistaratriði og leikþátt þar sem börnin brugðu sér í hlutverk gömlu
jólasveinanna, eins og sjá má á mvndinni. Mynd: Goiii
50þúsundbréf
á einum degi
„Staðreyndin er sú að fólk er
seinna á ferðinni með jólapóst-
inn nú þegar hann er borinn út
jafnt og þétt. Áður dreifðist
jólaannríkið á lengri tíma og
við söfnuðum jólapóstinum
upp og bárum hann út fáum
dögum fyrir jól,“ sagði Gísli
Eyland, stöðvarstjóri Pósts og
síma á Akureyri.
Að sögn Gísla er annríkið
hvað mest síðustu dagana fyrir
jól, sem eðlilegt er. „Margt hefur
breyst í áranna rás. Samgöngur
eru alltáf að batna og við sendum
frá okkur póst oft á dag. Síðast-
liðinn þriðjudag voru rúmlega
50.000 bréf póstlögð á Póststof-
unni á Akureyri, sem er það
mesta sem Póststofan hefur tekið
á móti á einum degi. Hér áður
fyrr var algengt að við tækjum á
móti 16-20 þúsund bréfum dag-
lega, en þetta hefur breyst sem
svo margt annað,“ sagði Gísli
Eyland. ój
Verslanir opnar 10 tímum lengur en í annríkinu í fyrra:
„Akureyringar versla mun meira
með peningum en Reykvíkingar“
- segir Páll Ársælsson, nýr verslunarstjóri í fatadeild Amaro
Annríkið er mikið. Veðurfar hliðholIur,“ sagði Ragnar
og færð á vegum hefur þar Sverrisson, kaupmaður í
Herradeild JMJ og formaður
Kaupmannafélags Akureyrar.
mikið að segja. í verslunina til
mín kemur fólk frá Vopnafirði
og Siglufirði og raunar af öllu
Norðurlandi. Verslanir á
Akureyri þjóna öllu Norður-
landi jafnt sem heimamönn-
um. Við höfðum opið til kl.
22st)0 í gær og einnig í dag. Á
laugardaginn verður opið til
23.00 og verslunarmenn búast
við miklu annríki. Enda-
sprctturinn er eftir og vonandi
verður veðurguðinn okkur
Að sögn Ragnars er verslunin
heldur meiri en á sama tíma í
fyrra, enda fært um allar jarðir.
„í fyrra var ófært á öllum fjall-
vegum og jafnvel hér á Akureyri
einnig. Fimmtíu prósent af vérsl-
uninni fara fram síðustu þrjá daga-
ana þannig að ef veður helst þá
verð ég ánægður. Greiðslukort
eru áberandi nú sem fyrr, en þó
er ekki aukning þar á,“ sagði
Ragnar Sverrisson.
Mikið annríki hefur einnig ver-
ið í matvöruversluninni. Að sögn
Guðjóns Ármannssonar, versl-
unarstjóra í KEA Hrfsalundi,
hefur fólk keypt inn mjög svip-
að og í fyrra. „Næstu tveir dagar
verða afgerandi. Hér verður opið
fram á kvöld eins og í öðrum
verslunum á Akureyri. Hápunkt-
ur verslunar verður á föstudag og
laugardag, enda verða þá allir
hættir að vinna nema verslunar-
menn. í ár eru verslanir opnar 10
tímum lengur en í annríkinu í
fyrra og það hefur mikil áhrif.
Notkun greiðslukorta er mikil,
heldur meiri en í fyrra og áber-
andi er að fólk leitar eftir besta
vöruverðinu," sagði Guðjón
Ármannsson.
Gott hljóð
syni, nýjum
var
Dags-listi yfir söluhæstu bækur og hljómplötur:
Síðan skein sól komin á toppinn
Bóksalan eykst jafnt og þétt
og það sama má segja um
plötur og geisladiska. Mjög
mikið var að gera í þeim
verslunum sem selja bækur
og hljómplötur þegar Dagur
leitaði eftir sölutölum þar í
gær og greinilegt að þarna
eru vinsælar jólagjafir á ferð-
inni.
Bókalistinn er tekinn saman
samkvæmt upplýsingum frá
Bókabúð Jónasar, Bókvali,
Eddu og Möppudýrinu á Akur-
eyri og Bókabúð Brynjars á
Sauðárkróki og Bókaverslun
Pórarins Stefánssonar á Húsa-
vík.
Plötulistinn byggir á sölu-
og æviminningar Björns á Löngumýri
hæstu plötum í Hljómdeild
KEA, Hljómveri, Tónabúðinni
og Radíóvinnustofunni á Akur-
eyri og Hljómdeild Skagfirð-
ingabúðar á Sauðárkróki og
Bókaverslun Þórarins Stefáns-
sonar á Húsavík.
Ef við lítum fyrst á bókalist-
ann þá eru sömu bækurnar í
tveimur efstu sætunum og voru
í síðustu viku. Saga Akureyrar
skýst upp í 3. sæti úr því 9. og
íslensk samtíð og Lífsstríðið
eru nýjar á lista. En röðin lítur
þannig út:
1. Eg hef lifað mér til gamans/
Gylfi Gröndal
2. Tár, bros og takkaskór/
Porgrímur Þráinsson
3. Saga Akureyrar/Jón
Hjaltason
Bubbi/Silja Aðalsteinsdótt-
ír
5.
6.
7.
8.
Neistar frá sörnu sól/Svan-
hildur Konráðsdóttir
Kristján/Garðar Sverrisson
Þá hló þingheimur/Árni
Johnscn og Sigmund
íslensk samtíð/Vilhelm G.
Kristinsson
9. Lífsstríðið/Eiríkur Jónsson
10. Næturverðirnir/Alastair
MacNeill
Helstu breytingar á hljóm-
plötulistanum eru þær að
hljómsveitin Síðan skein sól er
komin á toppinn í stað Sléttu-
úlfanna. Björk Guðmundsdótt-
ir og tríó Guðmundar Ingólfs-
sonar komast nú inn á listann
með Gling gló og Todmobile og
Rúnar Þór sækja í sig veðrið.
En lítum þá á topp tíu:
1. Síðan skein sól/Halló, ég
elska þig
2. Sléttuúlfarnir/Líf og fjör í
Fagradal
3. Bubbi Morthens/Sögur af
landi
4. Todmobile/Todmobile
5. Ný dönsk/Regnbogaland
6. Björk Guðmundsdóttir/
Gling gló
7. Edda Heiðrún Backman/
Barnaborg
8. Rúnar Þór/Frostaugun
9. Laddi/Of feit fyrir mig
10. Rokklingarnir/Áf lífiogsál
SS/ój
Páli Arsæls-
verslunarstjóra í
fatadeild Amaro. „Verslunin hjá
okkur í Amaro gengur mjög vel.
Aukning verslunar í fatadeild er
70% sé miðað við sama tíma í
fyrra. Við höfum unnið að endur-
skipulagningu á fatadeildinni,
sem er að skila sér. Eftir áramót
verður unnið að breytingum á
öðrum deildum vöruhússins. Ég
var áður verslunarstjóri í verslun
í Kringlunni í Reykjavík og mín
vissa er að greiðslukortaviðskipti
á Akureyri eru mun minni hluti
viðskiptanna en fyrir sunnan. Á
Akureyri verslar fólk með pen-
ingum,“ sagði Páll Ársælsson. ój