Dagur - 26.01.1991, Blaðsíða 3
fréttir
Laugardagur 26. janúar 1991 - DAGUR - 3
Athyglisverðar hugmyndir Trausta Valssonar í nýútkominni skýrslu:
Æskilegur byggðaás frá Reykjanesi til NA-lands
„Byggðaþróuninni verður að
beina inn á jarðhitasvæði
landsins, en þau fylgja eins og
kunnugt er aðallega eldvirknins-
svæði þess, sem er sprungu-
belti sem liggur á línu frá
Reykjanesi til NA-lands. Þetta
belti er æskilegur Byggðaás
framtíðarinnar,“ svo segir í
skýrslu um hálendisvegi eftir
Trausta Valsson Ph. D. og
könnun á því hvort valkostur
fínnist á lúkningu vegar norður
Sprengisand sem Vegagerð og
Landsvirkjun gætu sameinast
um að leggja.
Skýrslan lá frammi á ráðstefnu
um hálendisvegi sem haldin var á
Hótel Reynihlíð um síðustu helgi.
í henni segir að þó verð á olíu sé
lágt nú um skeið niegi ekki
gieyma því að líklegt sé að ný
Bergsteinn Karlsson, formaður Skjálfanda, afhenti Jóni Kjartanssyni, for-
manni Garðars, 200 þús. kr. peningagjöf.
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi:
Björgunarsveitin
fékk flugeldapeningana
Hin árlega flugeldasala Kiwan-
isklúbbsins Skjálfanda á Húsa-
vík gekk nokkuð vel að þessu
sinni. Nokkrir félagar úr
kúbbnum heimsóttu Björgun-
arsveitina Garðar sem þeir
gáfu 200 þúsund kr., ágóða
flugeldasölunnar, í síðustu
viku.
Það var Bergsteinn Karlsson,
formaður Skjálfanda sem afhenti
formanni Garðars, Jóni Kjartans-
syni gjöfina. Bað Jón Bergstein
að færa öðrum félögum Skjálf-
anda bestu þakkir fyrir þessa
höfðinglegu gjöf sem kæmi sér
mjög vel. „Ég á von á að það létt-
ist brúnin á félögum okkar þegar
þeir frétta af þessari gjöf. Það er
alltaf mjög erfitt að reka slíka
sveit á áhuganum einum og svona
stuðningur er mjög kærkominn.
Það er að mörgu að hyggja og
margt sem vantar og við höfum
verið svolítið staðnaðir undanfar-
in ár, einmitt vegna fjárhags-
örðugleika. Þá á ég við að við
höfum átt erfitt með að endur-
nýja og bæta þann búnað sem við
þurfum til að geta brugðist við
þegar við erum kallaðir til,“ sagði
Jón. IM
Bændaferð til Belgíu og Frakklands í mars:
Mið-Evrópu- og Ameríku-
ferðir frrirhugaðar í sumar
Ákveðið hefur verið að efna til
bændaferðar til Belgíu og
Frakklands í mars næstkom-
andi. Ferðin verður með svip-
uðu sniði og ferðir er voru
farnar á síðastliðnum vetri og
þóttu takast frábærlega vel. Þá
er gert ráð fyrir stórri bænda-
för til Þýskalands og Austur-
ríkis í sumar auk ferðar til
norðurríkja Bandaríkjanna og
austurstrandar Kanada.
Vetrarferðin hefst með flugi til
Amsterdam 18. ntars og farið
þaðan til borgarinnar Ostende
þar sem gist verður í fjórar
nætur. Meðan á dvölinni þar
stendur verða daglega farnar
ferðir yfir til Frakklands. Frá
Ostende verður farið til Gent,
gist þar á hótel Arcade og farið í
skoðunarferðir meðal annars til
Brugge og Brussel.
Áætlað er að tveir 50 manna
hópar fari til Þýskalands og Aust-
urríkis í júní. Annar hópurinn
fer til Vínarborgar en hinn til
Frankfurt. Ráðgert er að hóparn-
ir ferðist síðan um Bæjaraland og
Austurríki auk þess sem fyrir-
huguð er dagsferð til Búdapest,
höfuðborgar Ungverjalands. Þá
eiga hóparnir að hittast í St.
Englmar í Bæjaralandi og verða
samferða heim.
Að þessu sinni er ekki gert ráð
fyrir leiguflugi til Winnipeg í
Kanada eins og undanfarin ár en
þess í stað áætlað að fljúga til
New York síðast í júlí og ferðast
síðan um Minnisota til Cavalier í
Norður-Dakota þar sem tekið
verður þátt í hátíðahöldum sem
fram fara í byrjun ágúst. Síðan er
fyrirhugað að fljúga til Seattle og
halda þaðan til Wancouver og
fleiri staða í Kanada. Heimferð
er síðan áætluð frá Seattle í gegn-
unt Now York að þriggja vikna
ferð lokinni. ÞI
orku- og olíukreppa muni koma
innan 10-20 ára og því verði að
beina byggðaþróuninni á jarð-
hitasvæðin.
„Öflugasta tæki til að stjórna
þróun æskilegasta byggða-
mynsturs er að leggja vegakerfi
samkvæmt þessu mynstri, þvf þar
sem vegir koma dafnar byggð.
Það er í framhaldi þessarar hug-
myndar sem undirritaður lagði til
að meginakvegur liggi yfir hálend-
ið eftir NA-línunni allt að Fjórð-
ungsöldu, en síðar skuli hann
kvíslast í þrjá sprota sem stefna
niður í byggðir á Norðurlandi.
Enn síðar mundi hann einnig
greinast í framtíðarsprota til
Austurlands, því þó þar sé ekki
tmikinn jarðhita að fá, er nauð-
synlegt að byggðakjarninn á
Áustfjörðum sé líka í góðum
tengslum við aðrar byggðir
landsins," segir í skýrslunni, en
hún var samin fyrir rúmum
tveimur árum.
í skýrslunni segir að hvað
sjálfa gerð Sprengisandsvegar
varði sé skynsamlegt að byrja á
því að leggja fyrst upphækkaðan
veg af sumarvegsgerð niður í
byggð norðanlands, og láta síðan
reynsluna af honum skera úr um
það hvernig og hvort hann yrði
seinna endurbættur til að geta
orðið góður vetrarvegur. Ef af
lagningu góðs vegar á að verða
með þeirri aðferð að Landsvirkj-
un og Vegagerð sameinist um
gerð vegarins, þarf slíkur vegur
að verða orðinn að raunveruleika
áður en Landsvirkjun hefur lagn-
ingu línunnar norður. IM
DAGUR
Akurevri
0 96-24222
Norðlcnskt dagblao
Nýbygging Olíufélagsins á Sauðárkróki: Iramkvæmdir hafiiar
Þann 18. þessa inánaöar fékk Olíufélagið hf. úthlutaö lóð viö Ártorg á Sauðárkróki og eru framkvænidirnar hafnar við nýtt húsnæði félagsins. Skipta þarf um jarðveg lóðar- innar að einhvcrju leyti en nú er unnið við að grafa og keyra möl í grunninn. Reiknað er með aö svipaður rekstur verði í nýja húsnæðinu og í því gamla, scm nú er starfrækt skammt norðan við nýju lóðina. Stefnt er að því að fram- kvæmdum við þjónustuhúsnæði Olíufélagsins hf. Ijúki á næsta ári en hversu hratt framkvæmd- ir ganga á næstunni er mikið komið undir vcðri. Lóðin sem Olíufélagið hf. fékk úthlutað er 4575 fermetrar aö grunnfleti. Teikningar af nýja húsnæðinu eru ekki enn þá komnar af teikniborðinu en telja má öruggt aö nýja húsið verði að minnsta kosti 300 fcr- metrar. kg
SKINN OG
LEÐURJAKKAR
VETTLINGAR, HÚFUR, SKÓR
SÉRSAUMUM
EFTIR MÁLI
INGÓLFUR ÓLAFSSON
KRINGLUMÝRI 11 600 AKUREYRI
S. 96 22558
Nýtt á
söluskrá
Kleifargerði:
Einbýlishús á einni hæð + bíl-
skúr, samt. um 202 fm.
Borgarsíða:
Einbýlishús i smíðum m/bílskúr.
Samt. um 148 fm. Afhending um
1.-15. apríl.
Norðurbrekka:
Sérhæð m/bílskúr, samt. um 158
fm. Skipti á 3ja-4ra herb. raðhúsi
eða íbúð á jarðhæð á Brekkunni.
Borgarhlíð:
2ja herb. ibúð á efstu hæð um
60 fm. Góð íbúð.
Smárahlíð:
3ja herb. endaíbúð á annarri
hæö, um 77 fm. Góð íbúð.
Bogasíða:
Einbýlishús í smíðum, hæð og
ris um 126 fm + bílskúrsgrunnur.
Skipti á blokkaríbúð möguleg.
Borgarsíða:
Verið er að hefja byggingu 18
íbúða fjölbýlishúsi, 2ja-4ra herb.
íbúðir. Hagstætt verð.
FASTEIGNASALA
Hafnarstræti 108
Símar 11444-26441
KOTASÆLA
fitulítil og freistandi
Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni:
Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d.
kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni
á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika.
KOTASÆLA - fitulítil og freistandi