Dagur - 26.01.1991, Blaðsíða 20
Það lá vel á matreiðslumeisturunum í matvöruverslun KEA í Hrísalundi í gær, enda þorri genginn i garð með til-
heyrandi þjóðlegum átveislum. Til vinstri er Júlíus Jónsson en Jón Vídalín til hægri. Mynd: Goiii
Loðdýrabændur:
Óvíst um skinnauppboð
í febrúar vegna ótta
kaupenda við hryðjuverk
Akureyri:
Landsveitingartf.
opna skemmti-
stað í febrúar
Hlutafélagið Landsveitingar
hyggst hefja rekstur skemmti-
staðar, að Hafnarstræti 100
á Akureyri, upp úr miðjum
febrúar, í húsnæði því sem
H-100 var starfrækt í áður.
Að sögn Sigurðar Ólasonar,
eins hiuthafans í Landsveiting-
um hf., hefur verið unnið að
lagfæringum á húsnæðinu að
undanförnu.
„Gagngerar breytingar á
húsakosti verða ekki gerðar
fyrst um sinn. Að opnun er
unnið hægt og rólega. Þannig
reisum við okkur ekki hurðar-
ás um öxl. Við stcfnum að
opnun á litlum og huggulegum
skemmtistað, sem verður í
takt við mannlífið á Akur-
eyri,“ sagði Sigurður.
Framkvæmdastjóri Lands-
veitinga hf. er Stefán Stefáns-
son, veitingamaður í Reykja-
vík. Enn hefur ekki verið valið
nafn á staðinn. ój
Kaupfélag Langnesinga:
Kristján Karl
hættir
Kristján Karl Kristjánsson,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Langncsinga á Þórshöfn,
lætur af störfum um mánaða-
mótin apríl-maí. Stjórn
kaupfélagsins hefur auglýst
kaupfélagsstjórastarfið laust
til umsóknar.
Sigtryggur Þorláksson á
Svalbarði, stjórnarformaður
kaupfélagsins, segir að Kristján
Karl hafi óskað eftir að láta af
störfum og sagt upp með 6
mánaða fyrirvara þann 1.
nóvember sl. „Kristján sagði
upp með það fyrir augum að
hætta í vor, í iok apríl-
mánaðar. Við erum að leita að
nýjum kaupfélagsstjóra,“ seg-
ir hann.
Ekki náðist samband við
Kristján Karl áður en blaðið
fór í prentun í gær. EHB
Helgarveðrið:
Miltogbjart
Landsmcnn þurfa ekki að
kvíða frosthörkum eða norð-
angarra um helgina því suð-
lægar áttir verða áfram ríkj-
andi. I dag verður suðvestan
strekkingur á Norðurlandi,
bjart veður og hiti í kringum
frostmark.
Veðurstofan spáir sunnan-
átt á sunnudaginn. Strekkings-
vindur gæti orðið á Norður-
landi og dálítil rigning vestan
til. Veður fer hlýnandi á ný.
Á mánudag er aftur gert ráð
fyrir vestlægari vindunt með
kólnandi veðri. SS
Ævarr Hjartarson, ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar, segir að skinnaupp-
boðshaldarar í Kaupmanna-
höfn setji spurningamerki við
hvort árlegt febrúaruppboð
verði haldið í ár. Hann segir að
vegna stríðsins við Persaflóa
óttist uppboðshaidarar að
kaupendur víðsvegar að úr
heiminum komi ekki á upp-
boðið af ótta við hryðjuverk á
flugvöllum. Verði ekkert upp-
boð í febrúar horfir það mjög
illa við hérlendum loðdýra-
bændum. Menn eygðu þá von
að skinnaverð kynni að þokast
upp á við eftir að það stóð í
stað og jafnvel lækkaði á upp-
boðinu í desember.
Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um afkomu hérlendrar loð-
dýraræktar á síðasta ári. Hún var
einkar slæm, sem helgaðist fyrst
og fremst af lækkandi skinna-
verði.
Loðdýraræktin má muna sinn
fífil fegri. Ef litið er til stöðu
greinarinnar í Eyjafirði kemur í
ljós að nú er loðdýrabúskapur
aðeins stundaður á sjö bæjum.
Þetta eru Ytra-Garðshorn í
Svarfaðardal, Þverá í Skíðadal,
Ytri-Bakki í Arnarneshreppi,
Fornhagi og Auðbrekka í Skriðu-
hreppi og Grávara og Hóll í
Grýtubakkahreppi. Þá eru loð-
dýr á tveim búum í Ólafsfirði, í
Burstabrekku og Kálfsá.
Hins vegar var loðdýrum farg-
að á sex býlum í Eyjafirði á síð-
asta ári, hjá Dalalæðu og á Skeiði
í Svarfaðardal, Hellu á Árskógs-
strönd, Möðruvöllum í Hörgár-
dal og Lómatjörn og Grýtubakka
í Grýtubakkahreppi. Þá var á
síðasta ári skorið niður á Hall-
gilsstöðum, í Hjarðarholti og
Hrísgerði í Fnjóskadal.
Ævarr segir að nú séu 3100
minkalæður og 790 refalæður í
Eyjafirði. Árið 1988, þegar flest
var, voru á milli 14 og 15 þúsund
minkar á svæðinu. Fækkunin er
því hátt í 80%. Samdrátturinn er
eitthvað minni í refnum.
Til síðustu áramóta voru loð-
dýr í Eyjafirði fóðruð með blaut-
fóðri frá Húsavík. Fimm bændur
Lögreglan í Olafsfirði hefur
kært tvo ökumenn fyrir of
hraðan akstur í Ólafsfjarðar-
göngunum og einum hefur ver-
ið gefin áminning. Fimmtíu
kflómetra hámarkshraði er í
jarðgöngunum, eins og ræki-
lega er merkt við jarðganga-
munnana.
Ökumönnum er bent á að hafa
hemil á bensínfætinum þegar
ekið er í gegnum göngin, enda
hefur Ólafsfjarðarlögreglan góð-
ar gætur á umferðarhraðanum.
Deildar meiningar eru um
kaupa nú þurrfóður frá ístess hf.,
en bændur í Fornhaga og Auð-
brekku fá enn fóður frá Húsavík.
Þá sér Þórður Guðmundsson í
Burstabrekku loðdýrum á tveim
býlum í Ólafsfirði fyrir fóðri.
Að sögn Ævarrs eru allar líkur
á því að þeir bændur í Eyjafirði,
sem ekki skáru niður á síðasta
ári, þrauki út þetta ár. Óvíst sé
hins vegar um framhaldið. óþh
æskilegan hámarkshraða á veg-
kaflanum frá jarðgangamunnan-
um Ólafsfjarðarmegin og niður í
Ólafsfjarðarbæ. Samkvæmt nú-
gildandi reglum er hámarkshraði
þar 80 km/klst. Lögreglumenn-
irnir í Ólafsfirði lögðu hins vegar
til á umferðarnefndarfundi
nýverið að hámarkshraðinn á
þessum kafla yrði lækkaður niður
í 70 km/klst., sem yrði sérstak-
lega merkt við jarðgangamunn-
ann Ólafsfjarðarmegin. Ekki er
komin endanleg niðurstaða í
þetta mál, og á meðan leyfist að
aka þarna á 80 km hraða. óþh
Nýr búvöru-
samningur
íyrir lok
febrúar?
- kapp lagt á
undirskrift nýs
samnings fyrir
ríkisstjórnaskipti
„Það er unnið á fullu við
undirbúning nýs búvörusamn-
ings og ennþá stefnt að því
að gera hann fyrir febrúarlok,“
sagði Hákon Sigurgrímsson,
framkvæmdastjóri Stéttar-
sambands bænda.
„Svokölluð sjömannanefnd
aðila vinnurriarkaðarins, sem
skipuð var í apríl í fyrra, hefur
fundað mikið að undanförnu og
leitað leiða til að lækka búvöru-
verð með aukinni hagræðingu. Ég
á von á því að það komi einhver
niðurstaða í þá vinnu um mán-
aðamótin. Ef það tekst, verður
farið á fullt í sjálfa samningsgerð-
ina,“ sagði Hákon.
Fyrir liggja grófar útlínur
búvörusamningsins. Aðaláhersla
verður lögð á að aðlaga fram-
leiðsluna að innanlandsmarkaði.
Það þýðir að mjólkurframleiðsl-
an verður á svipuðu róli og verið
hefur, en umtalsverður samdrátt-
ur verður í sauðfjárframleiðsl-
unni frá núgildandi búvörusamn-
ingi.
Gunnlaugur A. Júlíusson, að-
stoðarmaður landbúnaðarráð-
herra, sagði ekkert launungarmál
að áhersla væri lögð á að ljúka
samningsgerðinni fyrir ríkis-
stjórnarskipti í vor eða sumar.
Hann sagði ennfremur að núgild-
andi búvörusamningur rynni út í
lok næsta verðlagsárs, þ.e. í lok
ágúst 1992, og því þyrftu bændur,
einkanlega þó sauðfjárbændur,
að fá klárar línur um áframhald-
ið eigi síðar en í haust. óþh
hækka brautina og undir-
byggja hana betur en besta
lausnin er klæðing en slíkt er
ekki á áætlun næstu ára,“
sagði Rúnar Sigmundsson,
umdæmisstjóri Flugmála-
stjórnar á Norðurlandi,
aðspurður um aurbleytu á
flugbrautinni á Siglufirði sem
oft hamlar flugi þangað.
Rúnar sagði að brautin hefði
verið lengd fyrir nokkrum árum
og sá hluti brautarinnar sé í góðu
lagi enda standi hann lítið eitt
hærra en eldri hlutinn. Á þann
hluta safnist því frekar vatn og þá
veðst brautin upp.
Brautin á Siglufirði er ekki sú
eina á Norðurlandi sem til vand-
ræða er vegna aurbleytu. Alkunn
eru vandamál með flugbrautina á
Aðaldalsflugvelli vegna þessa en
aðrar malarbrautir eru til á
Norðurlandi sem ágætt ástand er
með á veturna og vorin, t.d. á
Sauðárkróki og Þórshöfn.
„Yfirleitt eru vorin alltaf verst
en það er rétt að nú er ekki besta
veðráttan fyrir þessar brautir,"
sagði Rúnar. JÓH
Aurbleyta á Sigluflarðarflugvelli hamlar oft flugi:
Framtíðarlausnar langt að bíða
„í svona tíðarfari er ekkert I braut á Siglufírði. Það eina
hægt að gera varðandi þessa sem hægt væri að gera er að
Ólafsfjarðargöngin:
Búið að kæra tvo
fyrir hraðakstur