Dagur


Dagur - 05.04.1991, Qupperneq 1

Dagur - 05.04.1991, Qupperneq 1
74. árgangur Akureyri, föstudagur 5. april 1991 64. tölublað Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar er ánægður með samning sjómanna og ÚA: Sainningurirm markar tímamót í sögu Verðlagsráðs - ég tel að báðir aðilar geti vel við þessa niðurstöðu unað, segir Gunnar Ragnars „Það er í rauninni ekki hægt að leggja mat á hversu mikla launahækkun sjómenn fá út úr þessum samningi. Hins vegar get ég sagt það að samningur- inn markar tímamót í sögu Verðlagsráðs. Þetta er fyrsta skrefíð í átt til frjálsrar verð- myndunar á öllu landinu,“ sagði Konráð Alfreðsson, for- maður Sjómannafélags Eyja- fjarðar, að afloknum fundi sjómanna á ísfísktogurum Utgerðarfélags Akureyringa hf., þar sem samþykkt var með miklum meirihluta að ganga að tilboði félagsins frá því í fyrra- kvöld. Tveir af ísfísktogurum ÚA, Harðbakur og Sólbakur, létu þegar úr höfn í gærkvöld og fleiri munu fara á miðin í dag. Samningur Útgerðarfélags Akureyringa hf. og sjómanna á ísfisktogurum félagsins felur í sér gjörbreytt Iaunakerfi sjómanna. Heimalöndunarálagið svokallaða heyrir sögunni til og í stað þess er tekin upp markaðstenging 15 prósenta aflans, og er tekið mið af fiskverði á Faxamarkaði, Fisk- markaði Suðurnesja og Fisk- markaði Hafnarfjarðar í viku hverri. Fyrir 85% aflans er greitt eftir- farandi fast verð: Þorskur 58 krónur kílóið, ufsi 35 kr., karfi 800 g og yfir 37 kr., karfi 800 g og undir 27 kr., grálúða 53 kr. og ýsa 75 krónur. Samningurinn gildir frá gær- deginum út kvótaárið, til 1. sept- ember. Gert er ráð fyrir að sjómenn og forsvarsmenn ÚA geri í samein- ingu könnun á sem flestum þátt- um fiskverðsmáia, s.s. þróun á innlendum og erlendum mörkuð- um og verðum sem í gildi eru víða um land. Könnuninni, sem ætlað er að varpa ljósi á stöðu ÚA í samanburði við önnur fisk- vinnslufyrirtæki, skal vera lokið 1. júní nk. ef kostur er. Gunnar Ragnars, framkvæmda- stjóri ÚA, sagðist telja að samn- ingurinn væri eftir atvikum við- unandi. „Þegar öllu er á botninn hvolft tel ég að hafi verið full ástæða til að breyta þessu kerfi, hætta með heimalöndunarálagið og taka upp fast verð. Það þýðir ekkert annað en að horfast í augu við að fiskmarkaðarnir eru stað- reynd. Hins vegar verður fram- tíðin að leiða í ljós hvort síðar komi alvöru fiskmarkaður á þetta svæði. Ég er sjálfur ekki trúaður á það. Eg sé ekki ástæðu til að breyta því rekstrarmunstri sem Harðbakur EA-303 var fyrstur skipa Utgerðarfélags Akurcyringa til að halda til veiða eftir að samkomulag hafði tekist í deilu sjómanna og félagsins um fiskverð í gær. Harðbakur fór kl. 18 í gær og Sólbakur kl. 21. Innfellda mynd- in er tekin á fundi sjómanna þar sem samkomulagið við ÚA var staðfest. Myndir: Goiii við höfum verið með, það hefur reynst vel. Ég fagna því að það er sam- komulag með okkur um að gerð verði úttekt á því hvernig ÚA stendur í samanburði við aðra á ýmsum sviðum þessara mála. í gegnum tíðina hafa þær raddir heyrst að þetta væri lakara hjá okkur en öðrum, en ég tel að með þessari könnun eigi annað eftir að koma í ljós,“ sagði Gunnar. Áður kom fram hjá forsvars- mönnum ÚA að félagið gæti ekki boðið meira en 41% heimalönd- unarálag. Þýðir nýgerður samn- ingur að ÚÁ teygi sig lengra en sem svarar þessari prósentutölu? „Það er erfitt að bera þessi launakerfi saman vegna þess að markaðsverðið ræður þarna miklu. En mér sýnist að þetta sé í heildina mjög líkt því sem var áður og ég tel að báðir aðilar geti vel við þessa niðurstöðu unað,“ sagði Gunnar. Hann sagðist telja að hægt væri að túlka þennan samning svo að fiskverð ákveðið af Verðlagsráði sjávarútvegsins væri hér með úr sögunni. Konráð Alfreðsson sagði að þetta væri markandi samningur. „Það er stórsigur fyrir sjómenn að hafa náð fram þeirri hugar- farsbreytingu hjá útgerðarmönn- um að frjáls verðmyndun er það sem koma skal. Þetta er fyrsta skrefið og við erum bara rétt að komast í gættina," sagði Konráð. óþh Útgerðarfélag Dalvíkinga: Sauiið við áhö&i Björgúlfs EA - samningurinn við áhöfn Björgvins verður endurskoðaður Útgerðarfélag Dalvíkinga hf. og sjómenn á Björgúlfí EA hafa gert samkomulag hlið- stætt því sem gert var hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Áhöfn Björgvins EA er þó áfram á fyrri samningi, sem miðast við 41 prósent heima- löndunarálag. Valdimar Bragason, fram- kvæmdastjóri Ú.D., segir að áhöfn Björgúlfs hafi samið nákvæmlega eins og gert var hjá Ú.A., en Björgúlfur lét úr höfn laust fyrir hádegi í gær. 15 prósent af algengustu fisktegundum verða markaðstengd, en fast verð sett á hinn hluta aflans. Miðað er við að fiskurinn sé í kössum. Hætt er að nota heimalöndun- arálag. Áhöfn Björgvins EA var búin að semja um 41 prósent heima- löndunarálag, eins og kunnugt er, en það samkomulag verður endurskoðað þegar skipið kemur næst til hafnar á Dalvík. Valdimar var spurður álits á samkomulaginu við Björgúlfs- menn, og sagði hann aðalatriðið vera að skipið væri farið á veiðar á ný. „Samningar eru auðvitað alltaf matsatriði, en ég held að þetta sé mjög vel viðunandi fyrir alla aðila, bæði útgerðina og sjómenn," segir hann. EHB Margir sveitarstjórnarmenn reiðir vegna skiptingar 100 milljóna til sveitarfélaga: Þingmennimir verða að mæta með sólgleraugu segir Júlíus Már Þórarinsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn Úthlutun fjárveitinganefndar Alþingis tii sveitarfélaga sem harðast urðu úti vegna loðnu- brests og búa við erfítt atviunuástand mælist misjafn- Iega fyrir hjá forsvarsmönn- um þeirra sveitarféiaga á Norðurlandi þar sem eru loðnubræðslur. í upphafí stóð til að þessum fjármunum yrði einungis varið tii þess að bæta sveitarfélögum loðnu- missinn, en á síðustu dögum þingsins var opnað fyrir að þeir gætu einnig runnið til sveitarfélaga sem búa við erfitt atvinnuástand. Við út- hlutun 16 milljóna til Blöndu- óss, sem er hæsta fjárhæðin til eins sveitarfélags, er vísað til þess viðbótarákvæðis. Pétur A. Pétursson, forseti bæjarstjórnar Blönduóss, sagð- ist vera mjög ánægður með þessa niðurstöðu. „Það er rétt að hafa í huga að þessir pening- ar voru ekki bara eymamerktir þeim stöðum þar sem eru loðnubræðslur,“ sagði Pétur. „Þessi fjárveiting er staðfesting á því að við erurn komnir inn á kortið og einnig að þeir aðilar sem hafa hér verið í útgerð og vinnslu megi stunda hana frá Blönduósi. Menn mega ekki gleyma því að virkjun Blöndu lýkur í haust og hér hefur verið geysilegur samdráttur í land- búnaði og fyrirsjáanlegt að hann verður áfrarn," sagði Pétur. Raufarhafnarhreppur fékk einungis 2 milljónir í sinn hlut. Júlíus Már Þórarinsson, sveitar- stjóri, sagðist vera orðlaus yfir þessari úthlutun. Stjórnvöldum hefði verið vel kunnugt um brýna þörf á að bæta úr erfiðri innsiglingu f höfnina á staðnum. „Þetta er eins og þegar krökk- um er gefinn ís til þess að fá þau til að hætta að rella. Ég veit ekki hvernig þingmenn ætla að horfa framan í fólk hér á fundi á sunnudaginn kemur, verandi búnir að gera svona í bólið sitt. Ég get ekki séð að þeir geti horft framan í fólkið án þess að vera með sólgleraugu," sagði Júlíus. Reinhard Reynisson, sveitar- stjóri á Þórshöfn, var einnig vonsvikinn yfir 6 milljóna hlut Þórshafnarhrcpps. „Við vorum að vonast til þess að fá 12-15 milljónir. Við héldum að þessir fjármunir ættu að vera til þess að taka loðnubrestsskellinn af þeim stöðum sem urðu fyrir honum, en ekki til þess að redda erfiðum málum í kjör- dæmum eins og úthlutun 16 milljóna til Blönduóss ber vitni um,“ sagði Reinhard. Siglufjarðarbær varð eins og kunnugt er fyrir miklu tekjutapi vegna loðnubrests. Af 100 millj- ónum koma 12 milljónir í hlut Siglufjarðar. Björn Valdimars- son, bæjarstjóri, vildi lítið tjá sig um úthlutun fjárveitinga- nefndar. Hann sagði að þessum peningum yrði varið til þess að reka niður stálþil í höfninni, en í það verk verður ráðist í sumar. Sigríður Stefánsdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, sagð- ist undrast þessa niðurstöðu. Hún sagðist telja að Akureyri hlyti að uppfylla bæði þau skil- yrði sem sett hefðu verið fyrir úthlutun þessarar fjárhæðar; fjárhagslegt tjón vegna loðnu- brests og erfitt atvinnuástand. „Þetta er með ólíkindum. í raun og veru hefur pólitlsk ýtni ákveðinna þingmanna ráðið meiru heldur en mat á stöðu sveitarfélaganna,“ sagði Sigríð- ur. óþh

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.