Dagur - 05.04.1991, Blaðsíða 4

Dagur - 05.04.1991, Blaðsíða 4
fl ~ RfJOAC! — l'SPt' (rsrs« nmBhntaíi^ 4 - DAGUR - Föstudagur 5. apríl 1991 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1100 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 100 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 725 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), KÁRI GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON, LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Fiskverðsdeilan í Exjafirði leyst Deila sjómanna og stjórnar Útgerðarfélags Akur- eyringa er nú leyst. Eftir langan og strangan fund í fyrradag lögðu framkvæmdastjórar ÚA fram tilboð sem sjómenn tóku ekki ólíklega. í því er gert ráð fyr- ir að greiða fast verð fyrir þann fisk sem togarar Útgerðarfélagsins færa að landi og gildi þetta fasta verð um 85 af hundraði aflans. Þau 15% sem eftir standa verði síðan greidd í samræmi við markaðs- verð hverju sinni. Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa hefur sam- þykkt samninginn fyrir sitt leyti og fundur sjó- manna samþykkti hann einnig í gær með miklum meirihluta atkvæða. Þótt vissulega sé ástæða til að fagna þessari niðurstöðu, er ekki með öllu ljóst hvaða áhrif hún kemur til með að hafa í för með sér. í fyrsta lagi veit í raun enginn hversu mikið laun sjómanna Útgerðarfélags Akureyringa koma til með að hækka við þessa breytingu, þar sem hluti launanna er beintengdur markaðsverði á hverjum tíma, eins og fyrr segir. Sá hluti launanna getur sveiflast verulega til eftir markaðsverði hverju sinni. í öðru lagi má búast við að þessi samningur sé upphafið að endalokum hins opinbera fiskverðs, þ.e. þess verðs, sem Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur gefið út og lengi var leiðandi við ákvörðun fiskverðs og þar með skiptaverðs til sjómanna. í þriðja lagi er óljóst hvaða áhrif þessi samningur mun hafa á afkomu fiskvinnslu Útgerðarfélagsins, og fer það auðvitað fyrst og fremst eftir því hversu fiskverðshækkunin reynist mikil. Síðast en ekki síst má búast við því að samning- urinn hafi keðjuverkandi áhrif í sjávarútveginum, hvað varðar laun annarra en sjómannanna sjálfra. Kveikjan að deilu sjómanna Útgerðarfélags Akur- eyringa og forráðamanna fyrirtækisins var sú, að sjómennirnir töldu sig fá lægra verð hjá ÚA fyrir afl- ann en greitt væri á fiskmörkuðum hér á landi og erlendis. Þessi afstaða sjómannanna er í senn skiljanleg og eðlileg. Hins vegar má búast við að fiskvinnslufólk í landi komi í kjölfarið og krefjist leiðréttingu sinna launa. Talsmenn landverkafólks í fiskvinnslu hafa til dæmis þegar bent á að það beri mun minna úr býtum fyrir sína vinnu en sjómenn á frystitogurunum. Ljóst er að fiskvinnslufyrirtækin hafa mjög takmarkað bolmagn til að taka á sig auknar byrðar, án þess að til komi hækkun afurða- verðsins. Ef framhald verður á keðjuverkuninni gæti því svo farið að grípa þyrfti til gengisfellingar eða annarra ráðstafana til að rétta hag fiskvinnsl- unnar. En þrátt fyrir það sem hér að ofan er sagt, má þó fullyrða að deiluaðilar hafi fundið einu færu leiðina til að höggva á þann hnút sem málið var komið í, og um skeið virtist með öllu óleysanlegur. Nú er ekkert því til fyrirstöðu að togarar Útgerðarfélags Akur- eyringa haldi til veiða að nýju og það er fagnaðar- efni. BB. Skemmtanaskattiir - unglingaskattur Einn er sá skattur í íslenskri skattalöggjöf er nefnist skemmtana- skattur. Honum var komið á á árinu 1970 þegar viðreisnar- stjórnin sáluga var hér við völd. Hugsunin hefur eflaust verið sú, að skattleggja skemmtanafíknina og má færa ýmis rök fyrir því að það sé ekki vitlausara en hvað annað. 20 ára gömul lög Síðan þetta gerðist eru liðin meira en 20 ár. Lögunum um skemmtanaskatt hefur ekkert verið breytt á þeim tíma og þau eru mjög langt frá því að vera í takt við nútímann og hinar umfangsmiklu skattbreytingar sem hafa átt sér stað. Samkvæmt laganna hljóðan skal ekki innheimta skatt af verði aðgöngumiða á skemmtanir sem haldnar eru í sveitarfélögum sem hafa færri en 1500 íbúa nema um sé að ræða iðkun knattborðs- íþróttar (billiard) en skal þá greiða af hverju knattborði kr. 300 fyrir hvern mánuð. Þá skal greiða 8 krónur í skemmtana- skatt og 2 krónur í Menningar- sjóð fyrir hvern mann er aðgang fær að veitinga- eða samkomu- húsi án þess að skemmtanaskatt- ur sé greiddur. Ég hirði ekki um að vitna frek- ar í lögin en vil koma á framfæri upplýsingum sem komu fram á þingi í vetur frá menntamálaráð- herra sem svar við fyrirspurn minni um skemmtanaskatt. 82 milljónir í skemmtana- skatt árið 1990 Heildargreiðslur skemmtana- skatts á árinu 1990 á landinu voru Valgerður Sverrisdóttir. „.. .kvikmyndahús greiða megnið af skattinum, eða 61 millj- ón á móti 11 milljónum frá veitingahúsum. Það er vegna þess sem ég hef leyft mér að kalla þennan skatt unglinga- skatt...“ tæpar 82 milljónir króna en þar af voru endurgreiddar tæpar 15 milljónir til tveggja kvikmynda- húsa í Reykjavík, þ.e. Laugarás- bíós og Háskólabíós þar sem ágóða af starfsemi þeirra telst varið til menningar- og mannúð- armála. ...þar af greiddu kvikmyndahús og gestir 61 milljón! í svari ráðherrans kemur fram það sem fyrirspyrjandi var reynd- ar að fiska eftir, þ.e. að kvik- myndahús greiða megnið • af skattinum, eða 61 milljón á móti 11 milljónum frá veitingahúsum. Það er vegna þess sem ég hef leyft mér að kalla þennan skatt unglingaskatt og mun beita mér fyrir því að hann verði aflagður eða að honum verði a.m.k. gjör- breytt. Ástæðulaust að skatt- leggja bíóferðir unglinga Unglingavandamál eru því miður til staðar í okkar landi. Válegir atburðir á höfuðborgarsvæðinu á síðustu vikum segja okkur meira en mörg orð um ástandið í þeim efnum. Ríki og sveitarfélög verða í sameiningu að grípa til aðgerða til þess að takast á við þau átakanlegu vandamál sem snúa að þessu fólki, sem er hluti af okkar þjóðfélagi. Hitt er líka mikilvægt og ástæða til að hafa í hávegum. Flest ungmenni eru til fyrirmyndar, frjálsleg í fasi og víðsýnni en við vorum sem fyllt- um þennan aldurshóp fyrir nokkrum áratugum. Það er algjörlega ástæðulaust að skatt- leggja þau sérstaklega fyrir það að fara í bíó. Valgerður Sverrisdóttir. Höfundur er alþingismaður og skipar 2. sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi eystra í komandi kosningum. Krókaveiðar gefnar frjálsar og sala sóknarmarka hafm: ,;Byggðaráðuneyti og Veiðifélag Islands opnuð á Akureyri í dag“ Akureyri, 1. jan. 1993. í dag tók til starfa Veiðifélag íslands, sem verður fyrsta verkefni hins nýja Byggðaráðuneytis, sem hefur aðsetur hér á Akureyri. Veiðifé- lagið var, eins og Byggðaráðu- neytið, stofnsett með lögum, sem samþykkt voru á Alþingi nú fyrir jól. Veiðifélag Islands er í eðli sínu byggt upp eins og öll önnur veiði- félög á landinu en því er ætlað að ávaxta og nýta fiskistofnana í sjónum umhverfis landið. Rétt eins og þau veiðifélög sem stofn- uð eru af eigendum veiðiréttar í ám og vötnum og annast sölu stangveiðidaga, þá er þessu nýja veiðifélagi, sem er félag allra íslenskra ríkisborgara, falið að selja eigendum fiskiskipa sóknar- daga á miðum umhverfis landið. Sá háttur verður hafður á söl- unni, að sóknardagar eru boðnir út og fer gjaldið eftir grunngjaldi annars vegar, en stærð skipa og búnaði hins vegar. Sú undan- tekning er frá þessari reglu, að allir þeir félagar í Veiðifélagi íslands, sem hafa um þriggja ára bil eða lengur haft það að aðal- atvinnu að sækja sjó, fá ótak- mörkuð réttindi til krókaveiða, þó með þeim takmörkunum sem Hafrannsóknarstofnun kann að setja tímabundið, enda annast Bjarni Sigtryggsson. náttúruöflin allar aðrar eðlilegar- takmarkanir á sóknargetu krók- veiðibáta. Byggðahlutverk Þegar Alþingi samþykkti lög um Veiðifélag íslands, þá lá að baki sú hugsun löggjafans, að félaginu verði ætlaður sá tilgangur að afla tekna til að treysta byggð í land- inu. Allar hreinar tekjur veiðifé- lagsins fara því til verkefna sem miðast við að styrkja og viðhalda svonefndum innviðum byggðar- innar, það er að segja samgöng- um og þjónustukerfi við íbúana. Þar með er tryggt að afrakstur þessarar sameiginlegu auðlindar nýtist að fullu landsmönnum öll- um og byggð í landinu öllu. Þessa dagana er unnið að opn- un Byggðaráðuneytisins hér á Akureyri, en Sjávarútvegsráðu- neytið í Keflavík, Samgöngu- ráðuneytið á Egilsstöðum og Dómsmálaráðuneytið í Búðardal verða opnuð næstu daga. Trygging gegn ásókn EB Það er engin tilviljun að Veiðifé- lag íslands tekur til starfa sama dag og Evrópubandalagið gerist ein markaðsheild. Með því að gera fiskimiðin við landið að einkaeign sérstaks félags, er tryggður réttur þess til að ráð- stafa veiðileyfum án íhlutunar alríkisstjórnar EB í Brussel, þótt ísland kunni að ganga í banda- lagið í náinni framtíð. Fiskimiðin eru því gerð að lögformlegri einkaeign, rétt eins og kolanám- ur eða landsvæði. Skemmst er að minnast þess er Landsvirkjun hf. keypti allan rétt til nýtingar háhitasvæða á landinu nú skömmu fyrir áramót.“ Bjarni Sigtryggsson. Höfundur er markaðsfulltrúi í Reykja- vík.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.