Dagur - 05.04.1991, Side 5

Dagur - 05.04.1991, Side 5
Föstudagur 5. apríl 1991 - DAGUR - 5 Akureyrarhöfn: Franikvæmdir hafiiar samkvæmt deiliskipulagi við Torfimef og Strandgötu í vikunni hófust framkvæmdir á vegum Akureyrarhafnar samkvæmt deiliskipulagi við Torfunef og Strandgötu. í fyrstunni verður fyilt upp undir fyrirhugaða byggingu slysa- varnadeildanna á Akureyri, þar sem m.a. verður björgun- arstöð og félagsaðstaða. Upp- fyllingin verður um 80 m löng og 30 m breið til suðurs frá fjörunni við Strandgötu en syðst á þeirri uppfyllingu rís hús slysavarnadeildanna. Stefnt er að því að fram- kvæmdum við uppfyllinguna verði lokið seinni partinn í maí en óráðið er með áframhaldandi framkvæmdir á svæðinu. Guð- mundur Sigurbjörnsson hafnar- stjóri á Akureyri, sagðist þó von- ast til þess að áfram yrði unnið að uppbyggingu og fegrun svæðis- ins. Samkvæmt deiliskipulaginu er einnig gert ráð fyrir um 6.000 ferm. reit fyrir miðbæjarstarf- semi, þar sem m.a. er um 3.000 ferm. byggingareitur. Einnig er gert ráð fyrir smábátahöfn fyrir allt að 80 báta og farþega- og leguhöfn, sem felst f lengingu Torfunefsbryggjunnar, þannig að viðlega við hana verði allt að 280 m. Samkvæmt grófri kostnaðar- áætlun sem gerð var í haust, er gert ráð fyrir að framkvæmdirnar við Torfunef og Strandgötu kosti um 300 milljónir króna. Kostnað- urinn við uppfyllinguna undir slysavarnaskýlið og miðbæjar- starfsemina skrifast alfarið á reikning heimamanna. Til styrkhæfra framkvæmda telst endurbygging og lenging Torfunefsbryggju. Akureyrar- höfn hefur þegar gert áætlun um styrkhæfar nýframkvæmdir til næstu fjögurra ára og þar er ekki gert ráð fyrir framkvæmdum við Torfunefsbryggju. -KK Bautinn 20 ára: „Höfum þjónað vel á aðra milljón gesta“ - segir Stefán Gunnlaugsson, framkvæmdastj óri Veitingastaðurinn Bautinn á Akureyri verður 20 ára næst- komandi laugardag 6. aprfl. Stofnendur Bautans voru þeir Hallgrímur Arason, sem hefur verið yfirmatreiðslumeistari veitingastaðarins frá upphafi, Björn Arason, Stefán Gunn- laugsson, framkvæmdastjóri, Þórður Gunnarsson og Jónas Þórarinsson, sem nú er látinn. Núverandi eigendur eru Hall- grímur, Björn, Stefán og Sæv- ar Hallgrímsson. Auk þess að reka Bautann reka þeir félagar veitingastaðinn Smiðjuna og Bautabúrið, en þar fer fram alhliða kjötvinnsla. „Bautinn hefur verið afar vin- sæll veitingastaður allt frá upp- hafi. Við höfum þjónað vel á aðra milljón gesta frá því að stað- urinn var opnaður fyrir 20 árum. Frá upphafi höfum við leitast við að veita góða þjónustu og vanda til matargerðar. Á komandi árum munum við leitast við að auka enn á hróður fyrirtækisins. Þjón- ustusvæði Bautans er allt Norð- austurland, því við sendum frá okkur veislumat til einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka sé þess óskað. Þannig höfum við útbúið veisluborð fyrir Grímsey- inga jafnt sem íbúa Þórshafnar," sagði Stefán Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri. Um nk. helgi verður sérstakt afmælistilboð á Bautanum þar sem verð verður í algjöru lág- marki. Á föstudag og laugardag, frá kl. 14.30-17.30, verður afmælis- terta og snittur á borðum ásamt kaffi eða gosi á tilboðsverði. Sunnudaginn 7. apríl verður Bautinn lokaður frá kl. 15.00 vegna afmælisfagnaðar starfs- fólks, en um 50 manns vinna að framreiðslu-, matargerðar- og kjötvinnslustörfum hjá fyrirtækj- unum þremur sem fjórmenning- arnir reka. ój cV ' \ \ Framkvæmdir við deiliskipulag við Torfunef og Strandgötu hófust í vik- unni og í fyrstunni verður fyllt upp undir fyrirhugaða byggingu slysa- varnadeildanna á Akureyri. Mynd: Golli Lýsingaruppdráttur af samþykktu deiliskipulagi við Torfunef og Strandgötu. Eins og sést á þessari teikningu, á þetta svæði eftir að taka miklum breytingum á næstu árum. \ \ Aðaifundur Kaupfélags Eyfirðinga verður haldinn í Félagsborg á Gleráreyrum, laugar- daginn 6. apríl. Fundurinn hefst kl. 9:30 árdegis. Dagskrá: 1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfs- manna fundarins. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Skýrsla kaupfélagsstjóra. Reikningar félagsins. 4. Afgreiðsla á reikningum og tillögum félagsstjórnar. 5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs. 6. Erindi deilda. 7. Önnur mál. 8. Kosningar. Fulltrúar eru beðnir að athuga að KEA annast flutn- ing á fólki sem hér segir: ★ Frá Hótel KEA kl. 09:05 ★ Frá Félagsborg kl. 12:45 ★ Frá Hótel KEA kl. 14:15 ★ Frá Félagsborg að Hótel KEA þegar fundi lýkur. Stjóm Kaupfélags Eyfirðinga

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.