Dagur


Dagur - 05.04.1991, Qupperneq 15

Dagur - 05.04.1991, Qupperneq 15
Föstudagur 5. apríl 1991 - DAGUR - 15 íþróftir Fyrsti dagur skíðalandsmótsins: Miklir yflrburðir Kristins - Haukur byrjar á sigri - Guðrún missti forystuna Haukur Eiríksson skaut öllum ref fyrir rass á fyrsta degi skíðalandsmótsins og sigraði örugglega í 15 km göngu. Norðlendingar kræktu í tvenn gullverðlaun á fyrsta keppnis- degi Skíðamóts íslands á ísa- firði. Ólafsfirðingurinn Krist- inn Björnsson vann glæsilegan sigur í stórsvigi karla og Hauk- ur Eiríksson, Akureyri, sigraði Knattspyrnulið Leifturs frá Ólafsfirði kom nýlega úr æfíngaferð til Glasgow í Skot- landi. Leiftursmenn dvöldu ytra í eina viku og spiluðu þrjá æfíngaleiki gegn skoskum Iiðum, þ.ám. úrvalsdeildarlið- inu Kilmarnock. Ólafsfirðingar áttu ekki mikla Leiðrétting Nokkrar villur var að finna í grein um íslandsmót fatlaðra sem birtist á dögunum. t»ar var sagt að Stefán Thorarensen hefði unnið 3. deildina í boccia en hið rétta er að Tryggvi Gunnarsson, Akri, sigraði og Stefán varð þriðji. Þá vantaði inn í að Sigurrós Karlsdóttir varð í þriðja sæti í einstaklingskeppni í boccia, 3. deild, og Pálmi Jónsson og Stella Sigurgeirsdóttir urðu númer tvö og þrjú í opnum flokki í boccia. Um leið og beðist er velvirð- ingar á þessum mistökum er rétt að benda á að næsta stórmót fatl- aðra er Hængsmótið sem fram fer á Akureyri helgina 4. og 5. maí nk. örugglega í 15 km göngu karla. Mikil snjókoma setti svip sinn á fyrsta dag mótsins og þurfti að fresta keppni í stórsvigi fram eftir degi af þeim sökum. Kristinn Björnsson hafði mikla yfirburði í stórsviginu og sigur möguleika gegn sterku liði Kilm- arnock og töpuðu þeim leik 1:6. Þorlákur Árnason skoraði mark Leifturs. Þorsteinn Þorvaldsson, sem fór með liðinu út, sagði að Kilmarnock væri örugglega besta lið sem Leiftursmenn hefðu leik- ið gegn. Leiftursmenn spiluðu einnig gegn tveimur áhugamannaliðum, annað heitir, með íslenskum rit- hætti, Kúhú og vann Leiftur þann leik 4:2. Friðgeir Sigurðsson skoraði tvívegis og Aðalsteinn Aðalsteinsson og Þorlákur Árna- son skoruðu eitt mark hvor. Þriðji leikurinn var síðan gegn áhugamannaliðinu Petershill en það lið varð skoskur meistari áhugamanna í fyrra. Var þetta besti leikur Leifturs þrátt fyrir 1:3 ósigur. Gunnlaugur Sigur- sveinsson skoraði mark Ólafs- firðinga. Auk þess að leika knattspyrnu fóru Leiftursmenn að sjá lands- leik Skota og Búlgara og leik Celtic og Motherwell, sem lauk með 2:1 sigri Motherwell, og einnig var farið í skoðunarferð til Edinborgar. „Þetta var vel heppnuð ferð og menn komu ánægðir heim,“ sagði Þorsteinn Þorvaldsson. hans var öruggur. Pað sama var ekki uppi á tengingnum í kvenna- flokki. Guðrún H. Kristjánsdótt- ir frá Akureyri hafði besta tím- ann eftir fyrri ferð, 57.35, en Ásta kom skammt á eftir á 57.83. Ásta keyrði síðan mjög vel í seinni ferðinni og tryggði sér góð- an sigur. Haukur Eiríksson var sigursæll á Skíðamóti íslands í fyrra og byrjar á sigri nú. Lítið hefur sést til Hauks á íslandi í vetur, hann hefur dvalið í Svíþjóð og aðeins keppt á einu móti hér heima. Haukur hafði náð naumri forystu eftir 5 km, á 15.41, en Rögnvald- ur Ingþórsson kom næstur á 15.41. Haukur var enn fyrstur eftir 10 km á 32.21 en Sigurgeir Svavarsson hafði þá skotist fram fyrir Rögnvald, var á 33.05 en Rögnvaldur 34.12. Röðin breytt- ist svo ekki frekar og Haukur Hlíðarfjall: KA- og Þórs- mót um helgina Tvö skíöamót verða haldin í Hlíðarfjalli fyrir 13-16 ára um helgina. A laugardag fer fram KA-mót í stórsvigi fyrir 13-14 ára og 15-16 ára pilta og stúlkur. Á sunnudag fer síðan fram Pórsmót í svigi fyr- ir sömu flokka. Keppni hefst kl. 10 báða dagana. Aöalf'undiir Þórs í kvöld Aðalfundur íþróttafélagsins Þórs fer fram í Hamri í kvöld, föstudaginn 5. apríl, kl. 20. Á dagskrá eru venjuleg aðal- fundarstörf. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. íþróttir BLAK í kvöld leika kvenna- og karlalið KA gegn HK f Digranesi á Islandsmótinu. Kvennaleikurinn hefst kl. 20.15 en karlaleikur strax á eftir. 1 kvold mæt- ast einnig ÍS og Völsungur á íslands- mótinu kl. 18.30 í Hagaskóla. A laugardag leika Fram og KA í 1. deild karla í Hagaskólanum kl. 10. t’etta er síðasti leikur KA-manna á lslandsmótinu f ár og fá þeir afhent verðlaun l'yrir sigur á mótinu að leik Joknum. Víkingur og KA leika í 1. deild kvenna á sama stað kl. 11.15 og Brciðablik og Völsungur í Digranesi kl. 14. HANDKNAITLEIKUR Fram og KA leika ( fallkeppni 1. dcildar á sunnudagskvöldið. Leikur- inn fer fram i Laugardalshöll og hcfst kl. 20. Völsungur leikur tvo útileiki um helgina í úrslitakeppni 2. deildar. í kvöld mtetir liðið Breiðabliki í Digra- ncsi kl. 18 og á laugardag HK á sama stað kl. 18. BORÐTENNIS íslandsmót ungllnga íer frant í Garða- bie um helgina. SKÍDI Sktðamót fslands stcndur yfir á fsa- firði. Mótinu lykur á sunnudag. Á laugardag fer frant KA-ntót í stórsvigi fyrir 13-16 ára t Hlíðarfjalli. Á sunnudag fer fram t’órsmót ( svigi fyrir söntu flokka. Keppni hefst kl. 10 báða dagana. kom tæpri mínútu á undan Sig- urgeiri í markið. Úrslitin í gær urðu eftirfarandi: Stórsvig karlar 1. Kristinn Björnsson, Ó. 1:10.71 2. Valdimar Valdemarsson, A. 1:13.47 3. Vilhelm Þorsteinsson, A. 1:15.32 4. Haukur Arnórsson, R. 1:16.18 5. Arnór Gunnarsson, í. 1:17.56 Stórsvig konur 1. Ásta Halldórsdóttir, í. 1:14.68 2. Guðrún H. Kristjánsdóttir, A. 1:15.61 3. María Magnúsdóttir, A. 1:15.66 Knattspyrnudeild Tindastóls er búin að fínna annan útlending í stað Jamaíkamannsins sem flúði land vegna kulda. Sá er banda- rískur varnarmaður að nafni Georg Mazario og kemur hann hingað fyrir milligöngu banda- ríska þjálfarans hjá Tindastól. Ómar Bragi Stefánsson, for- maður knattspyrnudeildarTinda- stóls, sagði að Tindastólsmenn vissu engin deili á manninum en þjálfarinn þekkti hann og hefði mælt með honum. Mazario kem- ur til landsins um helgina en stoppar stutt, heldur út eftir helgi 2. Sigurgeir Svavarsson, Ó. 50.16 3. Rögnvaldur Ingþórsson, A. 51.31 4. Ólafur Björnsson, Ó. 53.51 Ganga 17-19 ára, 10 km F 1. Daníel Jakobsson, í. 32.29 2. Tryggvi Sigurðsson, Ó. 35.16 3. Kristján Ó. Ólafsson, A. 36.02 4. Gísli E. Árnason, í. 36.05 5. Árni Freyr Elíasson, í. 37.38 í dag verður keppt í 3x10 km boðgöngu karla með frjálsri aðferð og svigi karla og kvenna. Keppni í öðrum greinum verður síðan lokið á morgun. og kemur aftur f vor. Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Tindastóls frá í fyrra. Liðið fær tvo nýja leik- menn auk Bandaríkjamannanna, þá Þórð Gíslason úr Fylki og Sig- urjón Sigurðsson úr Hvöt, auk þess sem markvörðurinn Gísli Sigurðsson leikur með því á ný eftir ársdvöl hjá ÍA. I staðinn hafa sjö leikmenn horfið úr hópnum, þeir Sverrir Sverrisson, Ólafur Adólfsson, Guðbjartur Magnason, Ingvar Guðfinnsson, Stefán Arnarsson, Jónas Björns- son og Sigurfinnur Sigurjónsson. Framhalds- aðalfundur veröur haldinn fimmtudaginn 11. apríl og hefst kl. 20.30 í Galtalæk. Stjórnin. Auglýsing um sendingu kjörgagna vj5 kosningu vígslubiskups í Hólastifti 1991. Kjörgögn viö kosningu vígslubiskups í Hólastifti hafa veriö send þeim, sem kosningarrétt eiga, í ábyrgö- arpósti. Athygli er vakin á því, aö kjörgögn þurfa aö hafa borist kjörstjórn, dóms- og kirkjumálaráðuneyt- inu, Arnarhvoli, Reykjavík, fyrir kl. 17.00 miðviku- daginn 24. apríl nk. Reykjavík, 3. apríl 1991. Kjörstjórn. Þorlákur Árnason skoraði tvívegis fyrir Leiftur í Skotlandi. Knattspyrna: Lciítursmenn töpuðu fyrir Kilmarnock - en sigruðu „Kúhú“ örugglega Ganga 20 ára og eldri, 15 km F 1. Haukur Eiríksson, A. 49.20 Knattspyrna: Tindastóll fær annan Kana

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.