Dagur - 05.04.1991, Side 16

Dagur - 05.04.1991, Side 16
1®®» Akureyri, föstudagur 5. apríl 1991 Munið afmælistilboðin um helgina á Bautanum Leikhústilboð í Smiðju. Sankti-Bernhardshundur að Ásláksstöðum: „Erum alsæl og þakklát fyrir þessa gjöf4 - segja Maren Árnason og Frosti sonur hennar Maren Árnason, húsfreyja að Ásláksstöðum í Glæsibæjar- hreppi, var stödd á Akureyr- arflugvelli í gær ásamt syni sínum Frosta til að taka á móti nýjum ijölskyldumeðlim, sem er tveggja mánaða Sankti-Bernhardshvolpur. Að sögn Marenar þá er þessi hvolpur gjöf frá 80 stúlkum í Evrópu sem hún aðstoðaði þeg- ar þær komu til íslands í atvinnuleit. „Langþráður draumur hefur ræst, því eftir að ég flutti til íslands, fyrir 15 árum, þá hefur mig dreymt um að eignast hund sem þennan. Þegar ég bjó í Þýskalandi, þá ræktaði ég þetta hundakyn, en fékk aldrei inn- flutningsleyfi fyrir hund sem þessum þrátt fyrir ótal umsókn- ir til yfirdýralæknis. Sem betur fer þá er nú hafin ræktun á Sankti-Bernhardshundum á ís- landi og hvolpurinn er úr þeirri ræktun. Við erum alsæl og drengurinn hefur fengið félaga sem á eftir að reynast honum vel svo vel þekki ég til Sankti- Bernhardshunda. Einnig erum við mjög þakklát stúlkunum 80, vinkonum mínum, fyrir þessa gjöf sem er í tilefni fimmtugs- afmælis okkar hjóna og eins höldum við uppá hundrað ára afmæli hússins sem við búum í,“ sagði Maren á Ásláksstöðum. ój Frosti, Maren og hvolpurinn Plútó. Mynd: Golli Fiskiðjusamlag Húsavíkur: Erfltt að tengja fiskverðið launum í landi - segir Tryggvi Finnsson - Erindi starfsfólks tekið fyrir eftir helgi I gærdag voru Tryggva Finns- syni, framkvæmdastjóra Fisk- iðjusamlags Húsavíkur, af- hentir undirskriftalistar þeir frá starfsfólki fyrirtækisins sem greint var frá í frétt í Degi í gær, þar sem farið er fram á kauphækkun í kjölfar samn- inga um hækkað heimalöndun- arálag til handa áhöfninni á Kolbeinsey ÞH. „Málið er það að þessar vikur Rækjuvinnslan Dögun: Veiði á úthafsrækju byijar vel - veiðiheimildir fyrir um 490 tonnum Hafnar eru úthafsrækjuveiðar hjá Rækjuvinnslunni Dögun á Sauðárkróki. Rækjuveiðiskip- ið Röst hefur farið eina til- raunaveiðiferð og aflaðist vel. Fjórir bátar eru við veiðar á innfjarðarrækju og hafa þeir veitt vel undanfarna daga. Röstin fékk um 18 tonn af góðri rækju í sinni fyrstu veiði- ferð fyrir skömmu. Rækjan var góð og virtist vera nóg af henni Alþingiskosningarnar: Framboðsfresturiim reirnur út í dag Yfír 40 manns höfðu í gær kos- ið utan kjörfundar til Alþingis hjá bæjarfógetaembættinu á Akureyri en utankjörfundar- atkvæðagreiðsla hófst víðs vegar um landið fyrir hálfum mánuði. Framboðsfrestur rennur þó ekki út fyrr en á hádegi í dag en eftir það er reiknað með að fullur kraftur komist á utankjörstaðakosn- inguna. „Þeir sem helst kjósa utan kjörstaða eru sjómenn, námsfólk og fólk sem verður á ferðalagi á kjördag. Yfirleitt fer mestur kraftur í utankjörstaðakosning- una 10 dögum fyrir kosningar og menn eru að kjósa utan kjörstaða allt fram á kjördag," sagði Ásgeir Pétur Ásgeirsson, fulltrúi hjá bæjarfógetaembættinu á Akur- eyri, þar sem þessi atkvæða- greiðsla fer fram. Reiknað má með að um 1000 manns kjósi utan kjörfundar hjá fógetaembættinu á Akureyri. Eins og áður segir rennur framboðsfrestur út í dag og þá skýrist hvaða flokkar bjóða fram og hvort allir uppfylla sett skil- yrði í kosningalögum. Á Norðurlandi eystra hafa sjö listar þegar litið dagsins Ijós, þ.e. listar Alþýðubandalags, Álþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks, Kvennalista, Þjóðarflokks, Samtaka jafnréttis og félagshyggju og Framsóknar- flokks en boðað hefur verið að Frjálslyndir muni bjóða fram í þessu kjördæmi sem öðrum. Það framboð mun þá koma fram fyrir hádegi í dag. JOH að sögn sjómanna en Röstin hef- ur verið á línuveiðum frá því í febrúar. Dögun á um 490 tonna kvóta af úthafsrækju og ekki er frágengið hvort og hvaða aðrir bátar verða við úthafsrækjveið- arnar. Um 40 tonn eru eftir af veiði- heimildum þeirra báta sem eru við veiðar á innfjarðarrækju og er búist við að þeim veiðum ljúki um miðjan mánuðinn. Röstin er lögð af stað í sína aðra veiðiferð og að sögn framkvæmdastjóra Dögunar eru menn nokkuð bjart- sýnir á að nægt hráefni fáist ef veður verður hagstætt til veiða. kg höfum við ekki bara verið að semja um það að hækka fiskverð- ið til þeirra sem hafa verið að veiða bolfisk heldur höfum við líka lækkað verðið á rækjunni, vegna markaðsaðstæðna. Þeir sjómenn sem eru að veiða rækju eru á mun lægra kaupi en þeir voru á fyrir ári síðan. Væntan- lega erum við á leið í umhverfi þar sem menn verða að sætta sig við það að hlutirnir bara hækka ekki heldur verði líka að lækka. Þess vegna verður mjög erfitt að tengja þessi verð launum í landi, t.d. hef ég ekki farið fram á það að laun starfsfólks í rækjuvinnsl- unni lækki í takt við hráefn- isverðið. Þetta fiskverð sem verið er að greiða í dag er miðað við mark- aðsverðið í augnablikinu, og ef markaðsverðið lækkar þá er eng- inn annar valkostur en að lækka fiskverðið," sagði Tryggvi, aðspurður um viðbrögð vegna kauphækkunarbeiðnar starfs- fólksins. Tryggvi sagði að erindi starfs- fólksins yrði tekið fyrir á næsta stjórnarfundi FH, en áætlað er að halda stórnarfund fljótlega, ein- hvern daginn eftir'helgina. IM Glerárprestakall: Sóknarprestur verðurkjörinná sunnudagskvöld Á sunnudagskvöld fæst úr því skorið hver verður næsti sókn- arprestur í Glerárprestakalli á Akureyri. Kjörmenn munu ganga til kosninga kl. 20.30 á sunnudagskvöld og er um þrjá umsækjendur að velja, sr. Flosa Magnússon, prófast í Bíldudal, sr. Gunnlaug Garð- arsson, safnaðarprests í Garða- bæ og sr. Svayar A. Jónsson, sóknarprest í Ólafsfírði. Kosningarétt hafa átján kjörmenn, níu aðalmenn í sókn- arnefnd og níu varamenn. Að sögn Inga Þórs Jóhanns- sonar, formanns sóknarnefndar, kveðá kosningareglur svo á um að réttkjörinn prestur verði að lágmarki að fá 50% atkvæða. Fái enginn þeirra þremenninga til- skilinn fjölda atkvæða í fyrstu umferð er kosið aftur á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fá. í kvöld verður síðasta kynning- armessa umsækjenda í Glerár- kirkju þegar sr. Svavar A. Jónsson, predikar. í gærkvöld var kynningarmessa sr. Gunn- laugs Garðarssonar og í fyrra- kvöld messaði sr. Flosi Magnús- óþh son. Akureyri: Fjórir árekstrar ígær Óvenju mikið var um árekstra í umferðinni á Akureyri í gær því alls urðu fjórir árekstrar í bænum. í einu tilviki skullu fjórir bílar saman og var þar um mikið eignatjón að ræða. I einu tilviki var maður fluttur á slysadeild. í gærmorgun var árekstur á mótum Mýrarvegar og Skógar- lundar þar sem saman keyrðu tveir bflar. Um hádegisbil varð síðan árekstur tveggja bíla á mót- um Borgarbrautar og Kiðagils en um kl. 14 varð árekstur fjögurra bíla á mótum Eyrarvegar og Ránargötu. Bílarnir skemmdust mikið og varð að flytja einn þeirra á brott með kranabíl. Fjórði áreksturinn varð síð- degis á Þórunnarstræti en einn maður var fluttur á slysadeild eft- ir hann. JÓH Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki: Fjármálaráðherra undirritar í dag - samning um byggingu bóknámshúss I dag munu fjármálaráðherra og menntamálaráðherra undir- rita samning við Héraðsnefnd Skagfírðinga um byggingu bóknámshúss fyrir Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Útboðsgögn fyrir verkið eru frágengin og verður verkið því boðið út á næstu dögum. Undirritun samningsins er stór stund fyrir ráðamenn í skólamál- um á Norðurlandi vestra. Öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra eiga aðild að Fjölbrautaskólan- um á Sauðárkróki og munu þau greiða 40% af kostnaði bygging- arinnar á móti ríkíssjóði. Bóknámshúsið verður steypt upp að miklu leyti í sumar en alls verður húsið um 2400 fermetrar og kemur það til með að leysa af hólmi það leiguhúsnæði og hús- næði sem notað er til kennslu en er ætlað fyrir verknám. Fyrstu hlutar hússins verða teknir í notkun 1994 og fullbúið verður húsið 1995. Undirritunin mun fara fram í verknámshúsi skólans kl. 16.00 í dag. kg

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.