Dagur - 09.11.1991, Síða 7
Laugardagur 9. nóvember 1991 - DAGUR - 7
EFST í HUGA Skúli Björn Gunnarsson
Afbrotamenn á m,\
götum úti
Dómskerfi okkar íslendinga er mér
ofarlega í sinni þessa dagana. Ég
efast hreinlega um að þriðja heimsríki
hafi eins slæleg og hæggeng dóms-
kerfi og er hér á Fróni. Afbrotamenn
sitja hér ekki í fangelsum heldur valsa
um meðal fjöldans, því þó þú fremjir
glæp þarftu ekki að hafa áhyggjur af
langri dvöl innan fangelsisveggja.
Sölumenn dauðans (eiturlyfjasalar),
nauðgarar, morðingjar, fjárglæfra-
menn. Skiptir ekki máli hvert afbrotið
er, allir ganga lausir. Er þetta kannski
það frelsi sem allir tala um að við
íslendingar búum við? Ég held varla,
minnsta kosti er það í mínum huga
ekki alls kostar „rétt“ frelsi, ef svo er.
Burtséð frá því hvort afbrotamenn
sitja um skemmri eða lengri tíma inn-
an múranna, þá er ekki hægt annað
en hugsa til þess með gremju hversu
hægt okkar dómskerfi vinnur. Þú brýt-
ur lög sem varða við hegningarlög og
ert tekinn í yfirheyrslur og játar verkn-
aðinn. Hvort sem gerðir þínar voru
góðar eða slæmar, þá þarf að dæma
í málinu og áður en dæmt er þarf allt
heila kerfið að snerta á því. Árið líður
og þá loksins hefjast vitnaleiðslur og
réttarhöld og ef málinu er áfrýjað get-
ur liðið annað ár þar til endanleg
niðurstaða fæst. Hversu mikið getur
ein persóna breyst á einu til tveimur
árum? Ansi mikið, ekki satt. Hún get-
ur þroskast andlega sem líkamlega.
Hún getur stofnað fjölskyldu og þjófur
getur farið að vinna heiðarlega vinnu.
Hugsum okkur að endanlegur dómur
liggi fyrir í hinu gleymda máli tveimur
árum eftir afbrotið og persónan sé þá
rifin burt úr því góða lífsmynstri sem
hún hefur búið sér til. Hvað þá? Hún
getur þurft að fara í fangelsi og þó
ekki þurfi að sitja lengi inni getur sú
vist nægt til að kveikja á gamla
glæpaeðlinu sem búið var að grafa.
Auðvitað þarf ekki að vera að af-
brotamennirnir skáni nokkuð á þeim
tíma er líður frá afbroti og til dómsnið-
urstöðu. Hins vegar er ekki betra að
hugsa til þess, því þá geta þeir framið
fjölda afbrota á meðan málið er í kerf-
inu.
Ég held að við íslendingar ættum
að reyna að taka okkur saman í and-
litinu hvað varðar dómskerfið. Þó það
sé ekki hið eina vandamál í okkar
kerfismálum er grundvallaratriði að
menn þurfi að gjalda fyrir gerðir sínar
og það ekki mörgum mánuðum eftir
verknaðinn.
Ftéttlátari refsingar, betri fangelsi,
og fljótvirkara dómskerfi. Það getur
e.t.v. stöðvað þá óheillavænlegu
þróun sem virðist vera í afbrotamál-
um hérlendis, að minnsta kosti frekar
en núgildandi kerfi.
Fjölmiðlar
Þröstur Haraldsson
Risann í Aöalstræti
Tímaritiö Frjáls verslun birti fyrir skömmu lista
yfir stærstu fyrirtækin á fslandi. Þau eru sundur-
liöuö eftir landshlutum og atvinnugreinum og er
þar margt forvitnilegt aö sjá. Til dæmis vissi ég
aö KEA væri stærsta fyrirtækið í Norðurlands-
kjördæmi eystra, en ekki aö þaö velti fjórum
sinnum meiru en þaö næststærsta, ÚtgerÖarfé-
lag Akureyringa.
En því er ég að nefna þetta á þessum vett-
vangi aö einn listinn í Frjálsri verslun nær til fyrir-
tækja sem starfa aö fjölmiölun og bókagerö. Þar
eru dagblööin, tímaritin, útvarps- og sjónvarps-
stöövarnar, bókaforlögin og allar prentsmiöjurn-
ar, líka þær sem aldrei hafa prentaö bók, td.
Plastos.
Dagur kemst þarna á blað, samkvæmt þess-
um iista er Dagur þrettánda stærsta fyrirtæki
landsins á sviöi útgáfu og prentunar og skjótum
við aftur fyrir okkur ýmsum þekktum og rótgrón-
um fyrirtækjum á því sviði, svo sem l'safold,
Eddu, POB og Þjóöviljanum. Aö vísu er erfltt um
samanburö því tölur um veltu liggja ekki fyrir
nema ( fáum tilvikum. Röðin í Frjálsri verslun
ræðst af starfsmannafjölda og þar erum viö í
þrettánda sæti með 43 starfsmenn.
Viö erum hins vegar ekki hálfdrættingar á viö
risana í þessum bransa. Þar ber Morgunblaðið
höfuö og heröar yfir önnur fyrirtæki. Starfsmenn
blaösins, bæði á ritstjórn, skrifstofum og prent-
smiöju, voru 271 talsíns á árinu sem leiö og fyrir-
tækiö velti 1.654 milljónum króna, uþb. tíföld
velta Dags og Dagsprents. Velta Morgunblaös-
ins er um hálfum milljaröi meiri en þeirra fyrir-
tækja sem næsta koma á listanum, sem eru
Prentsmiðjan Oddi og Stöö 2. Og DV er róttur
hálfdrættingur á viö Moggann, bæöi hvaö snertir
starfsmannafjölda og veltu.
f Ijósi þessara talna fer ekki hjá því aö tilraun-
ir þær sem nú eru gerðar til þess aö stofna nýtt
dagblað í Reykjavík fái á sig nokkuö annan blæ
en þær hafa haft í huga manns. Meöal þeirra
sem aö þeim standa eru tvö af þremur stærstu
fyrirtækjum landsins á sviöi fjölmiðlunar, Oddi
og Stöö 2, og yfirlýst markmiö tilraunarinnar er
aö búa til blaö sem fært yröi um aö veita risan-
um viö Aöalstræti veröuga samkeppni á morg-
unblaðsmarkaðnum. Með þeim eru svo Tíminn,
Þjóöviljinn og auglýsingastofan Hvíta húsiö en
hún lýtur forystu manna sem veriö hafa virkir á
vinstri kantinum.
Úr þessu gæti oröiö hin forvitnilegasta blanda
og, ef vel tekst til, veröugur keppinautur Morg-
unblaösins. Það er nefnilega alveg rétt sem oft
er sagt aö Mogginn heföi gott af samkeppni.
Blaðiö hefur of lengi haft þá stööu aö vera iang-
stærsta blaö landsins og slík staöa spillir rétt
eins og valdið.
Þessi mál voru til umræöu á Rás eitt í Ríkis-
útvarpinu í fyrrakvöld og þar var ma. greint frá
atburðum í bandarískum blaöaheimi til saman-
buröar viö þann íslenska. Þótt óiíku sé saman
aö jafna gæti tilkoma nýja blaösins haft sömu
áhrif og greint var frá í þættinum. Þar var fjallað
um sviptingar á fjölmiðlum í tveim fylkjum og
niðurstaðan á báöum stööum var sú aö lesend-
ur græddu mest. Þeir fengu betri blöö og meiri
þjónustu.
Þetta veröur vonandi raunin hér. Eftir aö halla
tók undan fæti fyrir litlu blööunum þremur í
Reykjavík hefur Mogginn ekki þurft aö vanda sig
neitt, forskot hans á markaönum hefur vaxiö
eins og af sjálfu sér. Vissulega hefur blaöiö aö
mörgu leyti batnað, en samt er eins og alltaf
vanti eitthvaö upp á aö hægt sé aö kalla Morg-
unblaðið gott blaö. Þaö spannar vítt svið (frótt-
um en þaö er afar fátítt aö merkar afhjúpanir
eöa virkilega vönduö rannsóknarblaöamennska
sjáist þar á slöunum. Og þótt blaðinu sé núna
skipt upp í ótal blaöhluta sem höföa eiga til
áhugahópa eru þessir hlutar mjög misgóöir.
Stundum er beinKnis kastað til þeirra höndun-
um. Helgarblaöiö hefur td. aldrei náö fluginu.
En þegar komiö veröur upp nýtt og öflugt
morgunblað viö hiiöina á Mogga er hætt viö aö
þeir f Aöalstrætinu verði aö bretta upp ermarnar
ef þeir ætla sér aö halda sínum hlut. Vonandi
tekst hinni óvenjulegu blöndu athafnamanna og
félagshyggjuforkólfa ætlunarverk sitt.
Til sölu hjá Vatnsveitu Akureyrar
Toyota Hiace
sendiferðabíll árgerð ’82.
Frekari upplýsingar gefnar í síma 96-22105.
Vatnsveitustjóri.
Ný þjónusta!
Sendibílastöðin sf. vekur athygli
á nýrri þjónustu.
Höfum lyftubíla, skutlubíla og
allar stærðir og gerðir bíla þar á milli.
Sendibílastöðin sf., Akureyri,
Tryggvabraut 1, símar 22133 og 22134.
HiTex leikjatölva
á aðeins kr. 6.900,-
Leikir frá kr. 1.390,-
Fjölbreytt úrval nýrra leikja.
Leikina má nota í aðrar gerðir
tölva með millistykki á kr. 1.390,-
Leikfangamarkaðurinn París
Hafnarstræti 96, sími 27744.
Póstsendum hvert á land sem er.
VEITINGA
Sími
26690
U S I Ð
Glerár-
götu 20
Gildir laugardagskvöld og
sunnudagskvöld
Veislueldhús
Greifans
Menu
Reyktur lax m/piparrótarsósu og melónu.
Grísamedalfur m/möndlusósu, salati
og pönnusteiktum karföflum.
Ferskir ávextir bœttir m/portvfni.
Kr. 1.790,-
★
Frí heimsendingarþjónusta ó pizzum
föstudags- og laugardagskvöld til kl. 04.30.
•fWVW