Dagur - 09.11.1991, Qupperneq 15
Laugardagur 9. nóvember 1991 - DAGUR - 15
Tómstundir
Árni Magnússon í dyragættinni að fjárhúsunum í Breiðholti.
Fjárbúskapur í þéttbýli:
„T ómstundastarf sem
geftir lífsfyllingu“
- segir Árni Magnússon, lögregluvarðstjóri
Fólk ver tómstundum á ýmsan
hátt. Einn safnar frímerkjum
og annar stundar skokk sér til
andlegrar sem líkamlegrar
uppbyggingar. Færri eru þeir
sem stunda fjárbúskap sem
tómstundagaman. Á Akureyri
eru þeir nokkrir sem halda
kindur, en þeim fækkar ár frá
ári. Á árum áður var það
helsta gaman okkar krakkanna
að heimsækja karlana í fjár-
húsin og raunar höfðu þeir
nokkur not af okkur strákun-
um þegar þurfti að hlaupa fyrir
skjátu eða bera eitthvað til. Ég
er í fjárhúsinu hjá Árna
Magnússyni, lögregluvarð-
stjóra á Akureyri, í þeim til-
gangi að fanga efni fyrir tóm-
stundasíðuna.
„Skepnuhald getur verið
mönnum mikils virði og þá sér-
staklega þeim sem komnir eru á
efri ár. Ég get sagt frá eldri
manni, sem var ekkjumaður.
Hann var með fjárhús í næsta
nágrenni við mig og 20 til 30
kindur. Túnblettur var við húsin
sem hann heyjaði og hann sló oft-
ast með orfi og Ijá. Þessi gamli
maður sinnti skepnum og hey-
skap svo vel að aðdáun vakti.
Eitt sumar voru þurrkar stop-
ulir og gekk illa með heyskap.
Tjáði hann mér, er nokkuð var
liðið á sumar, að hann sæi ekki
fram á að hann kæmist í frí, því
heyskapurinn hefði allan
forgang. „Nú verður ekkert af
heimsóknum til vina í henni
Reykjavík,“ sagði sá gamli.
Já, gamli maðurinn var ögn
veikur fyrir víni. Eitt vorið í byrj-
un sauðburðar kom hann heim til
mín og sagði, að nú væri ekki
gott í efni, hann þyrfti að fara á
sjúkrahús þar sem áfengið væri
búið að ná yfirhöndinni. Nú væri
erindið að biðja mig, að annast
um kindurnar meðan á sjúkra-
húsdvölinni stæði. Hann sagðist
vita, að ég ætti ekki gott með að
gera honum þetta viðvik vegna
atvinnu minnar, því sauðburður
væri að hefjast. Eg ók karlinum
heim og lofaði að gera mitt besta.
Ég gaf kvöld- og morgungjöf,
en þegar ég kom í húsin síðdegis
þá var sá gamli kominn í húsin og
sagðist hafa hætt við sjúkrahús-
dvölina, hann skyldi sigra Bakkus
án aðstoðar. Endalok fjár-
búskapar þessa heiðursmanns
urðu á þann veg að bærinn þurfti
á landsvæði hans að halda og
fjárhúsin voru rifin. Eftir það sást
hann lítið á ferli.
Já, fjárbúskapur er mitt tóm-
stundagaman. I dag er búskapur-
inn aðeins svipur hjá sjón sé litið
til fyrri ára. Nú eru kindurnar
fáar og engar tekjur af þessu
bjástri. Ég hóf fjarbúskap á
Akureyri árið 1962 og flest var ég
með um 1980, þ.e. 58 fullorðnar
ær. Okkur fækkar fjáreigendum
á Akureyri. Mér telst til að við
séum 25-30 fyrir utan þá er búa á
lögbýlum, en þau eru fimm. Við
þessir sem ekki sitjum lögbýlin
höfum ekki fullvirðisrétt, honum
sleppti í haust. Pví leyfist okkur
aðeins að vera með fátt sem mið-
ast við kjötneyslu fjölskyldunnar.
Nú þegar kindurnar eru orðnar
þetta fáar er mun erfiðara að
stunda kynbætur, en ég hef alla
tíð haft mikinn áhuga á slíku
starfi. Ég hef lagt mig eftir að ná
fram hreinhvítum lit, en nágrann-
arnir vilja helst gráar, mórauðar
eða flekkóttar kindur. Frjósemi
þess stofns sem ég er með er
mikil. Eina á átti ég sem hafði
gefið 31 lamb er hún var felld 11
vetra. Hún var í miklu uppáhaldi
og var grafin hér norðan við fjár-
húsvegginn.
Það verður að segjast sem er
að búfjárhald á Akureyri verður
alltaf erfiðara og erfiðara. Stöð-
ugt er þrengt að okkur og við
þessir karlar erum nær réttlausir í
kerfinu. Þetta er slæmt og ergir
margan. Fjárbúskapur í þéttbýli
á fullan rétt innan vissra marka
sem tómstundastarf og gefur
mörgum lífsfyllingu,“ sagði Árni
Magnússon, lögregluvarðstjóri.
ój
Sú grámórauða ásamt „börnunuin“ fjórum.
Styrktarfélag
vangefinna
heldur almennan félagsfund þriöjudaginn 12. októ-
ber kl. 20.30 aö löjulundi.
Undirbúningur vegna jólabasars.
★ Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
0Dale Carnegie
námskeiðið®
er að hefjast á Akureyri.
Fyrsti fundur og kynningarfundur verður í
Mánasal Sjallanum mánudaginn 11. nóv. kl.
19.30.
Allir velkomnir.
Námskeiðið þjálfar þig í því, að verða áhrifa-
meiri ræðumaður.
Betri í mannlegum samskiptum.
Öruggari og byggir upp meira sjálfstraust.
Losna við áhyggjur og draga úr kvíða.
Verða hæfari í daglegu lífi.
Upplýsingar í síma 91-812411.
Stjórnunarskólinn.
Nýkomið!
Sending af kuldasamfestingum á börn
og fullorðna á (hreint) frábæru verði.
Barnagallar frá
st. 8-16,
verð aðeins kr. 6.400
Fullorðinsgallar frá
st. S-XL,
verð aðeins kr. 7.500
Ath! Aðeins þessi eina
sending fyrir jól
Opið laugardaga kl. 9-12.
IIIEYFJÖRÐ
gf Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275
Þökkum hlýnug og kveðjur við útför,
SIGURGEIRS E. ÁGÚSTSSONAR,
Lyngholti 16, Akureyri.
Auður Eyþórsdóttir,
Þórir Sigurgeirsson, Ósk Geirsdóttir,
Rakel Sigurgeirsdóttir,
Sturla Sigurgeirsson,
Konráð Sigurgeirsson
og barnabörn.