Dagur - 19.12.1991, Qupperneq 6

Dagur - 19.12.1991, Qupperneq 6
6 B - DAGUR - Fimmtudagur 19. desember 1991 Slippstöðin hf. Akureyri sendir starfsfólki sínu og viðskiptavinum bestu óskir um glébirtk jól og farsæld á komandi ári. slippstödin. Glébileg jól ogfarsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. M Landsbanki Mk íslands JHHjM Banki allra landsmanna Ú tgerba rfélag Akureyringa hf. óskar öllum viðskiptavinum sínum og starfsfólki gleðilegra jóla og góðs árs Oskum viðskiptavinum og starfsfólki okkar glebilegra jóla og farsældar á komandi ári. K. Jónsson og Co. hf. Niðursuðuverksmiðja Akureyri Heimsókn í Iðjulund, vemdaðan vinnustað, á Akureyri: „Hér er alvömvi Leið okkar lá fyrst inn í „mjólkur- síudeildina". Iðjulundur sér bróð- urparti mjólkurframleiðenda í landinu fyrir mjólkursíum fyrir rörmjaltakerfi. „Þetta er eini stað- urinn á landinu þar sem mjólk- ursíur eru framleiddar og ég geri ráð fyrir að við séum með um 95% af markaðnum. Við höfum fram- leitt síurnar í nokkur ár og í dag eru þær okkar stærsta og besta verkefni," útskýrir Magnús. Sauma sængurver fyrir jólin Innaf „mjólkursíudeildinni" kom- um við í „saumahornið" og þar var verið að falda sængurver. Sængur- verin eru einungis framleidd fyrir jólahátíðina, en auk þeirra eru viskustykki og handklæði fram- leidd árið um kring. Við héldum áfram skoðunarferð um Iðjulund og stöldruðum næst við þar sem verið var að pakka gólfklútum og borðtuslcum. Hand- an við þilið var unnið að því að ganga frá vinnuvettlingabúntum. Leiðbeinandi þar sagði okkur að stærstur hluti vinnuvettlinga- framleiðslunnar væri fyrir markað utan Akureyrar. í svokölluðu dagvistarherbergi var unnið að því að pakka þvotta- klemmum. Að sögn Magnúsar hef- ur fólkið í Iðjulundi einnig pakkað plastmúrtöppum. Gainla kertagerðar- hefdin í heiðri höfð Fagnaði tíu ára afrnæli á þessu ári Iðjulundur er svokallaður verndað- ur vinnustaður og heyrir undir Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra, sem rekur hann í umboði félagsmálaráðu- neytisins. Iðjulundur var stofn- settur árið 1981 og fagnaði því tíu ára afmæli í september sl. Þar eru á bilinu 40 til 50 manns við störf á degi hverjum auk 9 leiðbeinenda, þar af 6-8 við vinnuvettlingagerð, og óhætt er að segja að ekki sé slegið slöku við. Elsti starfsmaður- inn er á sjötugsaldri, en sá yngsti um tvítugt. Þegar Dagur leit við í Iðjulundi fyrir skömmu var þar heldur betur nóg að gera, enda „jólavertíðin" í fullum gangi. Blaðamaður gekk milli herbergja hússins í fylgd for- stöðumanns Iðjulundar, Magnús- ar Jónssonar, og meira en nóg var að gera á öllum „vígstöðvum". Ekki fór á milli mála að fólkið hafði gaman að því sem það var að gera. Með um 95% af ,,mjólkursíu- markaðnum“ Margeii Vernharðsson pakkar klútum. Hér er Nanna Haraldsdóttir að sauma mjólkursíur. Einn af föstum liðum í tilveru Akureyringa í jólamánuðin- um mörg undanfarin ár er sölutjald frá Iðjulundi í mið- bænum. Þar eru seldir ýmsir hlutir sem starfsmenn Iðju- lundar framleiða. Nefna má jóladúka, margskonar kerti, sængurverasett og margt fleira. Þetta er vönduð vara, sem rennur jafnan út eins og heitar lummur. En þarna er einungis boðið upp á brot af margþættri framleiðslu fólksins í Iðjulundi. Valdimar Sigurðsson er hér að þræða kveikinn á kertakrón urnar. Óskum viðskiptavinum okkar glébilegra jóla og farsældar á komanai ári Sigurður Hannesson byggingameistari Dóra Magnúsdóttir vinnur hér að því að snyrta mjólkursíur, en Iðjulundur sér langflestum mjólkuríramleiðendum í landinu fyrir mjólkursíum. Þá lá leiðin að lokum í „kertadeild- ina“. Að vonum er mikið að gera þar á bæ síðustu vikurnar fyrir jólin. Stormkertin eru drjúgur hluti framleiðslunnar, en mest áhersla er þó lögð á gömlu góðu „venju- legu kertin“. Kertaframleiðslan í Iðjulundi byggist á gömlu handverki, en í því felst að kveiknum er dýpt ofan í vaxið og hann hleður smám sam- an utan á sig. Magnús segir að þetta handverk hafi aldrei verið til á íslandi. „Þetta var þekkt út um allan heim, en ekki hér á íslandi, því við stukkum beint úr tólgar- kertunum í verksmiðjukertin," segir Magnús. „Þessi kerti eru svolítið hrufótt og það er nákvæm- lega það sem er þeirra aðalsmerki. Það á nefnilega að sjást að þau eru

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.