Dagur - 19.12.1991, Qupperneq 7
Fimmtudagur 19. desember 1991 - DAGUR - B 7
allt smáiðnaður. Við heyrum það
víða að fólk heldur að hér sé verið
að föndra og drepa tímann. En það
er alls ekki. Við gerum ákveðnar
kröfur til fólksins og það verður að
standa sig. Eftir þjálfun og hæfni
eru þeir sem hér vinna fluttir til í
erfiðari verkefni og það má nefna
að tveir vinna hér hálfan daginn
og hálfan daginn á almennum
vinnumarkaði. Það eru fleiri hér
sem gætu farið út á almenna
vinnumarkaðinn og skilað góðum
afköstum," segir Magnús.
Priðji stærsti
vemdaði vinnu-
staður landsins
Fólkið í Iðjulundi framleiðir m.a. stormkerti. Að vonum er mest framleitt af þeim rétt fyrir jólin. Hér er Guðmundur Þorvaldsson að ganga frá málmdollunum
undir stormkertin.
handunnin. Þessi kerti eiga að
vera mun betri en önnur kerti,"
segir hann einnig.
Yfir sumarmánuðina eru tölu-
vert breyttar áherslur í starfsemi
Iðjulundar. Að hluta til er þá unnið
utanhúss og starfsmenn sjá um að
slá og hirða um 40 lóðir víðsvegar
um bæinn fyrir fyrirtæki og húsfé-
lög fjölbýlishúsa.
Kertagerðin erathyglisverðiðngrein. HérvinnaþeirSigmar Jónsson (tilvinstri)
og Gunnar Jóhannesson að því að dýfa kertaþráðunum ofan í bráðið vaxið.
Þetta þarf að gera aftur og aftur, þangað til að sverleiki kertanna er orðinn eins
og hann á að vera.
Mikil þörf fyrir
slíkan vinnustað
Starfsemi Iðjulundar er í mörgu
frábrugðin starfsemi samskonar
verndaðra vinnustaða á höfuð-
borgarsvæðinu. Syðra eru víða
unnin fjölbreytt verkefni fyrir
atvinnuvegina, en í Iðjulundi er lít-
ið um það. Nánast allt, sem þar er
framleitt, er eigin framleiðsla, ef
svo má segja. „Ég get nefnt sem
dæmi að á mörgum vernduðum
vinnustöðum á höfuðborgarsvæð-
inu er töluvert mikið um vinnu fyr-
ir útgáfufyrirtækin, t.d. pökkun
tímarita. Hér á Akureyri er hvers-
kyns útgáfa í lágmarki og því ekki
um þessi verkefni að ræða.
Magnús segir engan vafa á því
að mikil þörf sé fyrir slíka vernd-
aða vinnustaði. „Hér á Akureyri er
mun meiri þörf fyrir verndaða
vinnu, en við getum boðið upp á,
sérstaklega eftir að dró úr
starfseminni á Bjargi," segir hann
og bætir við. „Ég hugsa að fólk
geri sér almennt ekki grein fyrir
því að hér er alvöru vinna og
alvöru framleiðsla. Velta hér er
umtalsverð miðað við að þetta er
Iðjulundur er þriðji stærsti vernd-
aði vinnustaður landsins og sá
stærsti utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Aðeins Reykjalundur og Múla-
lundur eru stærri. í allt eru sextán
verndaðir vinnustaðir í landinu.
Að loknu þessu spjalli við Magn-
ús gengum við Golli ljósmyndari
út í drungalegan skammdegis-
morguninn. Þó svo að flestir kunni
að halda að fólkið í Iðjulundi sé þar
fyrst og fremst til að drepa
tímann, þá komumst við að allt
öðru. í Iðjulundi er unnið kappsam-
lega og vinnugleðin skín út úr
hverju andliti. óþh
Anna Ragnarsdóttir gaf sér rétt sem snöggvast tíma til að líta upp úr sauma-
skapnum. Hér er hún að falda sængurver, sem Iðjulundur selurjafnan úr sölu-
tjöldum í miðbæ Akureyrar fyrir jólin. Myndii: Gom
Við sendum okkar bestu
jók- og nýárskveðjur
til viðskiptavina okkar og landsmanna allra
Þökkum viðskiptin á árinu
Mjólkursamlag KEA
J