Dagur - 19.12.1991, Blaðsíða 8
8 B - DAGUR - Fimmtudagur 19. desember 1991
Jólaföndur
- íyrir krakka á ölluiii aldri
Umsjón: Jóna Axflörð
Halló krakkar! Nú eru að koma
jól og þá langar alla krakka til
þess að föndra. Kannski jóla-
gjafir handa mömmu og pabba,
eða bara handa einhverjum
öðrum. Svo er líka hægt að
skreyta heimilið með föndrinu.
Við skulum byrja á því að
taka tvær vattkúlur og búa til úr
þeim jólamús og jólasvein. Þau
gætu t.d. verið borðskraut.
Músin
Kauþið tvær vattkúlur í hvorn
hiut (fjórar alls), misstórar og
málið eina stóra brúna og aðra
hörundslita og með brúnum lit
eins og á myndinni, (músin).
Límið þær saman.
Síðan klippið þið eyru og
málið brún og límið hörundslitt
filt innan í að framan.
Svo búið þið til fætur úr
pappa og svörtu filti, og skott og
límið á. Teiknið síðan augu og
munn. Þræðið blómavír fyrir
veiðihár (gott að stinga í með
stoppunál áður) og límið. Klipp-
ið svo rauðan filttrefil og vefjið
um hálsinn á músinni. Þá er
músin tilbúin. Þið getið líka búið
til fleiri og notað þær fyrir
borðskraut.
Jólasveinninn
Nú byrjið þið á jólasveininum.
Þá málið þið stóru kúluna
rauða og hina andlitslita og lím-
ið þær saman á sama hátt og
músina.
Klippið hárið og skeggið og
límið á hausinn, síðan húfuna
og ermarnar með höndunum úr
andlitslitu filti. Fæturnir eru
gerðir á sama hátt og á mús-
inni. Teiknið svo andlitið og lín-
urnar á fötunum, málið nefið og
kinnarnar með rauðum lit og
límið eina tölu úr hvítu filti á
treyjuna.
Þá er jólasveinninn tilbúinn.
Súkkulaðikaka með bananakremi og skieytingu.
Kakan
Og krakkar, nú verðið þið að
baka svolítið, kannske með
kaffinu og safanum á föndur-
kvöldinu eða á jólakaffiborðið.
Hér kemur jólaskraut á kök-
una.
Brjótið saman rautt karton,
eins og á skýringarmyndinni og
klippið út eftir sniðinu á jóla-
stelpunum. Límið saman í
hring.
Gerið síðan eins við hvítt
karton en notið núna sniðið af
jólasveinunum og límið þá lika
saman í hring, hafið þá svolítið
lengri. Þið getið skreytt þau
með blúndum eða filti ef þið
viljið. Nú er skrautið tilbúið.
Hér kemur uppskrift af kök-
unni:
Súkkulaðikaka
31/2 bolli hveiti
21/2 bolli sykur
2 tsk. natron
3/4 mtsk. kakó
1 glas súrmjólk
2 egg
1 bolli mjólk
1 sl. mtsk. óhr. skyr
1 mtsk. kartöflumjöl
1 bolli heitt vatn
65 gr. brætt smjörlíki
Allt sett í skál, síðast brædda
smjörlíkið og allt hrært vel
saman. Skiptið deiginu í tvo
hluta og setjið í tvo smurða
kökuforma. Bakið við tæpar 200
hundruð gráður í 20 til 25 mín.
Bananakrem
175 gr. smjörlíki
150 gr. flórsykur
3 bananar, stappaðir
Allt hrært saman, sett á milli
botnanna og ofan á kökuna.
Stráið flórsykri eða kókosmjöli
yfir kökuna og skreytið með
jólakrakkakeðjunum.
Verði ykkur að góðu.
Jóna Axfjörð.
Snjókarlinn, músin og jólasveinninn í fullum litum.
Snjókarlinn
Þessi snjókarl er afar auðveldur
og ágætt verkefni fyrir minnstu
börnin. í hann þarf bara svart filt
í fætur og tvær misstórar vatt-
kúlur. Límið saman og klippið
svart filt í augu og tölur, appel-
sínugult í nef og sem er rúllað
saman og límið svo allt saman
á. Hatturinn fæst tilbúinn í fönd-
urvöruverslunum og er að sjálf-
sögðu auðveldt að líma á hann
síðast.
Svo klippið þið fallegan trefil
úr filti og hnýtið á snjókarlinn og
þá er hann tilbúinn.
Góða skemmtun.
4MVS —DÓJajveí rw
35NJÓMRL
Sniðin sem til þarf.