Dagur - 19.12.1991, Qupperneq 26
26 B - DAGUR - Fimmtudagur 19. desember 1991
kunningja sem hlustuðu með hon-
um á tónlistina. Klassíkin síaðist
smátt og smátt inn hjá honum, en
aðaláhuginn kviknaði þó ekki fyrr
en „long play" plöturnar komu til
skjalanna og Stefán kynntist konu
sinni sem hafði miklar mætur á
klassíkinni. Þá hófst söfnunin fyrst
fyrir alvöru og í dag á Stefán marg-
ar útgáfur af sumum frægustu
verkum tónlistasögunnar.
„Mikil ósköp! Ég á t.d. fjórar
heildarútgáfur af sinfóníum Beet-
hovens með helstu fílharmóníu-
sveitum heims. Eitt af því sem mér
finnst mjög gaman er að bera sam-
an verk með mismunandi flytjend-
um og stjórnendum, enda er oft
hægt að heyra ótrúlega mikill blæ-
brigðamun. “
Flytur iiiii sjálíur
Hljómplötumar sem fylla hillurnar
á Grænumýri eru keyptar víðsveg-
ar um heiminn. Stefán segist hafa
allar plöturnar sínar?
„Verst er hversu lítinn tíma ég
hef til að hlusta á þetta, en ég
reyni að bregða plötu á fóninn á
hverjum degi og hef dregið mikið
úr kaupunum af þeirri einföldu
ástæðu, að ég kemst ekki yfir að
hlusta á þetta allt. “
Hlustar á
dægurtónlist
Þrátt fyrir að vera þetta mikill unn-
andi klassíkarinnar hlustar Stefán
á ýmsa aðra tónlist. Að hans mati
hefur íslenskri dægurtónlist farið
mikið fram síðustu árin og hann
segir margt af því sem glymur í
útvarpinu á Rás tvö vera ágætt.
T.d. segist hann telja Geirmund
Valtýsson, vera frábæran laga-
smið.
„Ég hlusta á dægurtónlist mér
til ánægju. Sumt fellur mér þó ekki
í geð og er þar aðallega um að
Klassfkin liíir á Grænumýri:
,JJcssu fylgir hvíld og ánægja“
- segir plötusafnarinn Stefán Jónsson
Klassískir tónar liðast út úr B&W hátölurunum og fylla
herbergið angurværri ró. Sinfónískt hljómfallið gælir við
hljóðhimnurnar og hugur manns verður hreinn og tær.
Schubert, Beethoven, Mozart, Verdi, Bach og aðrir þeir
snillingar sem skilað hafa meistaraverkum til okkar kyn-
slóðar, birtast í vitundinni og virðast nær en ella þegar þú
sest inn í tónlistarríki Stefáns á Grænumýri. Hann er
fæddur og uppalinn Skagfirðingur sem ann klassískri
tónlist og á á fjórða þúsund hljómplatna. Er það eitt
stærsta safn klassískra platna í eigu einstaklings hér-
lendis. Dagur brá sér í heimsókn til Stefáns einn fagran
vetrardag og spjallaði við hann um klassíkina.
Hann er fæddur í Sólheimum í
Blönduhlíð, en hefur verið á
Grænumýri frá fjögurra aldri.
Áhuginn fyrir klassískri tónlist
kviknaði upp úr áhuga fyrir dæg-
urlögum á hans æskuárum, en
einnig hafði hann mjög gaman af
að syngja ættjarðarlögin.
„Fyrir tilstuðlan bróður míns,
sem var fjórum árum eldri en ég,
fór ég að hlusta á og veita athygli,
danslögunum í útvarpinu á laug-
ardags- og sunnudagskvöldum.
Síðan fékk ég grammófón í ferm-
ingargjöf og nokkrar plötur og það
var upphafið að söfnun minni.
Mest voru það kántrýplötur sem
ég eignaðist fyrstu árin, en á
haftatímabilinu, 1946-50 var þó
mjög erfitt að ná í hljómplötur.
Með kántrýinu eignaðist ég plötur
með Stefáni jslandi og Maríu
Markan og sérstaklega man ég
eftir að mér þótti gaman af að
hlusta á „í fjarlægð" eftir Stefán
Runólfsson í flutningi Stefáns."
Blæbrlgðaimmur
á útgáfiim
Stefán var mikið einn á báti á sín-
um æskuárum og það var ekki fyrr
en hann fór í skóla á Laugum í
Reykjadal, að hann eignaðist
REYMSHOSID
Furuvöllum 1
SIR hf.
sími 96-27788
SIEMENS
heimilistæki
HAFTÆKNI HF-
sími 96-27222
Þjónusta við siglinga-
og fiskileitartæki
STRAUMRAS s.f
sími 26988
Þjónusta með loft-
og háþrýstivörur
-trésmiðjan
sími 24000
Verktakar í byggingariðnaði
Við í Reynishúsinu þökkum viðskiptin
Gieðiieg jól, gott og farsælt komandi ár
byrjað að kaupa plötur frá Sport-
vöru- og hljóðfæraversluninni á
Akureyri og fékk þær gjarnan
sendar með póstinum. Einnig hef-
ur hann skipt mikið við Hljóðfæra-
hús Reykjavíkur, Grammið og
Fálkann. Frá Bandaríkjunum hefur
hann fengið plötur og upp á síð-
kastið hefur Stefán flutt sínar plöt-
ur og geisladiska inn sjálfur beint
frá Bretlandi. Aðspurður segir
hann plötukaup sín hafa dregist
mikið saman síðustu árin. Samt
finnst honum hljómplötuverð ekki
hafa hækkað neitt hlutfallslega
mikið miðað við aðrar vörur.
Hljómflutningstækin í stofunni á
Grænumýri eru ekki neitt slor. Svo
til nýr Quad 600 magnari sér um að
skila ljúfum tónunum frá Mission-
plötuspilaranum og Denon-geisla-
spilaranum út til B&W hátalar-
anna. Stefán segist alltaf hafa
reynt að eiga góðar græjur og hafi
fljótlega farið út í geisladiska eftir
að þeir komu á markaðinn.
Eldri útgáfiir
í uppáhaldi
Stefán lætur sér ekki nægja að
kaupa bara tónverkin heldur á
hann að auki töluvert af ritum um
klassíkina. Einnig er hann áskrif-
andi að ensku tímariti um klassíska
tónlist og fylgist vel með því sem
er að gerast í útgáfuheimi klass-
ískrar tónlistar. Sérstakt dálæti
hefur hann á eldri útgáfum ýmissa
verka.
„Það er eitt sem ég hef óskap-
lega mikið gaman af og það eru
eldri útgáfur, hinar svokölluðu
sögulegu útgáfur. Ég á orðið einar
þrjátíu plötur með slíkum útgáf-
um, en á þeim syngja gamlir söngv-
arar ýmis lög og elsta hljóðritun-
in er frá árinu 1898 á „Ave Mária"
eftir Schubert."
Hlustar á
hverjum degi
Stefán er ekki mikið gefinn fyrir þá
klassísku tónlist sem út hefur
komið hin síðari ár og segist vera
meira fyrir hina gömlu snillinga
eins og Beethoven, Schubert og
Brahms. Hann segist samt hafa
gaman af að hlusta á tónskáld eins
og Starvinsky og Mahler, en uppá-
haldstónskáld hans er Beethoven
og af hans verkum dáir Stefán
sjöttu og sjöundu sinfóníuna hvað
mest.
íslenskur einsöngur og kórsöng-
ur er meðal þess sem Stefán hlust-
ar á og þykir honum við eiga
marga afbragðsflytjendur. Þrátt
fyrir að vera Skagfirðingur í húð og
hár hefur hann samt aldrei verið í
kór og segist vera algjör neytandi.
En skyldi bóndanum ekki reynast
erfitt að finna tíma til að hlusta á
ræða eitthvað yfirdrifið eins og
sum tónlistarmyndbönd. Eldri
dægurlög hef ég alltaf gaman af að
hlusta á og þau vekja upp góðar
minningar hjá manni.“
Blíðviðri rnn hávetur
Á fyrstu árum ríkisútvarpsins á
Akureyri, veturinn '82-’83, sá Stefán
um þátt í útvarpinu um sígilda
tónlist. Annars hefur hann ekki
mikið verið að flíka safni sínu, en
segir að fyrir komi að hringt sé til
hans og hann spurður um eitthvað
varðandi klassíkina.
Uppáhaldshljóðfærið hans
Stefáns er harpa og uppáhaldstón-
verkið er Töfraflautan eftir
Mozart. Eitt af því sem Stefán tek-
ur hvað oftast niður úr hillu og set-
ur á fóninn eða í geislaspilarann,
er samt konsert fyrir píanó og
hörpu, en næst þar á eftir kemur
Töfraflautan.
„Mín uppáhaldsóperupersóna
er Papagenó í Töfraflautunni.
Hann er svo skemmtilega grobb-
inn og huglaus með afbrigðum.
Annars er virkilega gott að hlusta
á píanókonserta Mozarts og við
það kemst ég alltaf í betra skap.
Það er eins og maður fái á móti sér
blíðviðrisdag, jafnvel þó það sé
hávetur, ef maður setur á einn af
konsertunum. “
Mannbætandi tónlist
Vegna áhuga síns á klassískri
tónlist hefur Stefán ásamt konu
sinni farið á tónleika listahátíðar
undanfarin ár. M.a. fengu þau að
fylgjast með æfingu hjá Pavarotti
og kveður' Stefán það hafa verið
mjög draman. Aldrei hefur hann
farið erléndis á tónleika, en segist
alls ekki vera fráhverfur því að
bregða sér t.d. til Vínar og njóta
þar fagurra tónsmíða.
Hvort Stefán sest einhvern tím-
ann í sal hjá Vínarfílharmoníunni
mun tíminn leiða í ljós, en meðan
tónar Schuberts úr „Ofullgerðu
sinfóníunni" gæla við hlustir okkar
í stofunni á Grænumýri spyrjum
við hann að því hvað það sé sem
klassíkin hafi fram yfir aðra tónlist.
„Tónlistin, eins og hún leggur
sig er náttúrlega mál sem allir
skilja, óháð öllum landamærum og
hún ætti að mínu mati að vera
meira notuð til að tengja saman
þjóðir. Hvað varðar klassíska tón-
list þá er svo margt í henni. Þú
heyrir alltaf eitthvað nýtt og nýtt í
hvert skipti sem þú setur á plötu.
Mikil hvíld og ánægja fylgir einnig
því að hlusta á klassíska tónlist og
ég trúi ekki öðru en mörgum
myndi líða betur ef þeir tileinkuðu
sér það að setjast niður á hverjum
degi og hlusta á þessa tegund tón-
listar. Ég tel það mannbætandi að
hlusta á klassíska tónlist."