Dagur - 19.12.1991, Page 29
Fimmtudagur 19. desember 1991 - DAGUR - B 29
Drengir, sem notið hafa áhrifa kristniboðsins ásamt innfæddum leiðbeinanda.
var mestur vöxtur í starfsemi lútersku kirkj-
unnar í Eþíópíu af öllum kirkjudeildum sem
unnu að kristniboði eins og fram hefur kom-
ið í skýrslum um kristniboð í Afríku."
Helgi vitnar í Oskar Nydal, norskan
kristniboða og lektor, sem gert hefur vís-
indalega og árangursríka könnum á þessum
málum og komist að þeirri niðurstöðu að um
30% þess fólks sem tileinkar sér kristnar
hugmyndir geri það fyrst og fremst til að
losna úr viðjum þess illa. Aðrir hrífist af
kenningum kristninnar og vitnisburðum um
áhrif kristinnar trúar á líf manna. Helgi segir
að þótt ýmsar forneskjulegar hugmyndir
eigi mikinn þátt í að halda íbúum margra
Afríkuríkja niðri og tefji þannig fyrir öllum
framförum og framþróun þá eigi það stjórn-
málaástand, sem víða hafi skapast eftir að
nýlenduveldin slepptu tökum af fyrrum
nýlendum sínum, einnig þátt í hvað
umbreytingarnar til aukins frjálsræðis eigi
erfitt uppdráttar.
Frá Eþíópíu til Hríseyjar
og Árskógsstrandar
Eftir sjö ára starf að kristniboðsmálum í
Eþíópíu hélt Helgi aftur heim til íslands og
settist á skólabekk í Guðfræðideild Háskóla
íslands. Til að fullnuma sig í prestskapnum
eins og hann komst að orði. „Ég hafði í raun
starfað sem prestur allan tímann í Eþíópíu,
því starfið fólst bæði í prédikun orðs Guðs
og einnig í almennri safnaðaruppbyggingu
þannig að mér fannst tími til kominn að
verða mér úti um tilskilin starfsréttindi í
þessari atvinnugrein heima á íslandi."
Helgi starfaði að málefnum kirkjunnar
samhliða náminu í Guðfræðideildinni en eft-
ir útskrift þaðan tók hann prestvígslu og
gerðist sóknarprestur í Hrísey.
- En af hverju valdi maður, sem unnið
hafði að kristniboði á meðal Afríkubúa að
stunda preststörf á meðal Hríseyinga og
Árskógsstrendinga. Kaus hann ef til vill að
reyna sig við gjörólíkar aðstæður á kristni-
boðsvellinum.
Helgi kvaðst aldrei hafa hugsað almenn-
lega út í hvað hafi valdið því að hann fór til
Hríseyjar. „Ég var á ferð í Eyjafjafirði - í
heimsókn hjá kunningjum mínum og var í
þeirri ferð boðið út í Hrísey. Mér leist mjög
vel á mig í eynni og get eiginlega sagt að ég
hafi fallið fyrir staðnum. Mikil náttúrufegurð
er í eynni og fjallahringurinn er í hæfilegum
fjarska. Þetta varð eiginlega ást við fyrstu
sýn. Ég tók síðan við prestskap í Hríseyjar-
og Stæri-Árskógssóknum í september 1984.
Ég varð heldur ekki fyrir vonbrigðum með
fólkið í eynni og á ströndinni. Mér fannst
fólkið falla vel inn í það fallega umhverfi
sem það býr í.
Presturinn fljúgandi
- Var heimshornamaðurinn ekkert einangr-
aður - allt í einu búsettur á litilli eyju á miðj-
um Eyjafirði?
Helgi kvaðst aldrei hafa fundið til einangr-
unar í Hrísey. Þó gat komið fyrir ef ég
þurfti snögglega að fara upp á strönd og illa
stóð á í eynni að erfitt var að komast með
engum fyrirvara en ég held það hafi aldrei
háð mér á nokkurn hátt. Mér leið aldrei illa
þarna - mikið fremur þvert á móti og betur
og betur eftir því sem ég var lengur út í
eynni." Helgi hefur einnig tamið sér fjöl-
breyttari fararmáta en ferju og bifreið og má
vera að það hafi gert „einangrun" hans í
Hrísey léttbærari. |
Helgi er reyndur flugmaður og fljótlega
eftir að hann kom til starfa í eynni eignaðist
hann hlut í flugvél og notfærði sér hana tals-
vert til að komast á milli staða. Hann beitti
sér fyrir endurbótum á flugvellinum í Hrís-
ey. Kvaðst hafa viljað að hann væri í lagi.
Einnig átti hann þátt í að útbúinn var smá
flugvöllur á Árskógsströnd en sagði að erfitt
hefði verið að nota þann völl, meðal annars
vegna nálægrar raflínu sem valdið hefði því
að örðugt var að lenda á honum nema úr
einni átt.
Sakaa Hríseyinga og
Árskógsstrendinga
- Hvað fannst Hríseyingum um það hátta-
lag að presturinn ferðaðist um á einkaflug-
vél?
Helgi sagði að mönnum hafi sýnst sitt
hverjum um flugferðir sínar. Einhverjir hafi
gantast með það að hann kæmist nær Guði
á þann hátt. Helgi sagðist hafa verið búinn
að stunda flugið tölvert áður en hann kom
til Hríseyjar. „Þegar ég var í Eþíópíu not-
færði ég mér þennan ferðamáta nokkuð til
að komast á milli staða á skömmum tíma.
Flugið sparar oft mikinn tíma og vissulega
var oft mjög þægilegt að geta gripið til vél-
arinnar þegar ég var í Hrísey." Helgi kvaðst
sakna Hríseyinga og Árskógsstrendinga.
Hann sagðist hafa kynnst mörgu ágætis
fólki á þessum tveimur árum í Hrisey og
mjög gaman hefði verið að hitta fyrrverandi
sóknarbörn sín aftur þegar hann var á ferð í
Eyjafirði fyrr í vetur. „Ef ég á eftir að taka að
mér prestskap á íslandi á nýjan leik þá gæti
ég vel hugsað mér að starfa í Eyjafirði,"
sagði Helgi áður en við létum tali um sókn-
arbörn hins „fljúgandi sóknarprests" í Hrís-
ey lokið.
Römm er sú taug
Þrátt fyrir góða viðkynningu og vinsældir í
sóknunum í Hrísey og á Árskógsströnd kaus
Helgi Hróbjartsson að hverfa á braut. Halda
á nýjan leik út í hinn stóra heim og hefja
störf á meðal ólíkra þjóðflokka. Að þessu
sinni lá leiðin til Senegal á vesturströnd
Vestur-Afríku. Leiðin frá Eþíópíu í vestur til
Senegal er álíka löng og leiðin frá íslandi -
nánast beint í suður til Dackar. Helgi tók
fram vasabók með landakorti og dró línu á
milli þessara þriggja staða og myndar þrí-
hyrning. Afríka er stór og innan álfunnar
búa ólíkar þjóðir og þjóðarbrot, sem eiga sér
mismunandi sögu og hefðir. Senegalar eru
múslimar. Fyrir um þúsund árum bárust
kenningar Múhameðs spámanns vestur eft-
ir norðurströnd Afríku - um Alsír og Túnis
og þaðan suður á bóginn. Norðmenn hafa
einnig stundað kristniboð á meðal múslima
og nú var Helgi Hróbjartsson kallaður til
starfa á meðal þeirra er sótt hafa trúar-
ímynd sína í rit kóransins.
- En hvað kom til að þú fórst aftur til
Afríku?
„Tvisvar var búið að hafa samband við
mig frá norska kristniboðinu. Þeir þekktu til
starfa minna í Eþíópíu og álitu að ég gæti
orðið að liði við kristniboðið í Senegal vegna
þeirrar reynslu minnar. Ég hafi staðfastlega
neitað að fara en þegar ég var beðinn um
það í þriðja sinn lét ég undan. Ef til vill má
segja að römm sé sú taug er tengir mig við
kristniboðsstarfið. Ég sagði sóknarbörnum
mínum síðan frá þessari ákvörðun minni og
ég held að þau hafi skilið afstöðu mína. “
Að boða kristni á
meðal múslima
„Þegar ég kom til Senegal 1987 hafði norska
kristniboðið starfað þar í þrjú ár. Starfið var
enn í mikilli uppbyggingu og Norðmennirnir
hafa trúlega viljað nýta krafta mína af þeim
sökum því á meðan ég starfaði í Eþíópíu
vann ég mikið á meðal þeirra sem enga
vitneskju höfðu hlotið um kristindóminn -
var í fremstu víglínu eins og stundum er
sagt. Vestur-Afríka er nánast nýr kristni-
boðsakur. Norræn kristniboð hafa verið þar
að störfum í um 20 ár að því ég best veit en
kristniboðið í austurhluta álfunnar á sér
hálfrar annarrar aldar sögu að baki. Ástæð-
ur þess hversu kristniboðar fóru seint til
Vestur-Afríku eru vafalítið þær að flestir
íbúar þar eru múslimar og enn fer aðeins um
2% af öllu kristniboði í heiminum fram á
meðal íslamskra þjóðflokka. Senegal er um
200 þúsund ferkílómetra land og íbúarnir
eru um sjö milljónir. Þeir eru fyrst og fremst
akuryrkjumenn og á meðal þeirra viðgengst
ein mesta lýðræðishefð í Vestur-Afriku. Ég
býst við að okkur þætti ekki mikið koma til
þessa lýðræðis, en starfsemi stjórnmála-
fokka er þó leyfð og kosningar eru haldnar,
sem virðast enn fjarlægur viðburður í mörg-
um Afríkuríkjum. Almennir stjórnmálafund-
ir eru haldnir og stjórnarflokkurinn telur sig
til lýðræðislegra jafnaðarmannaflokka.
Engu að síður er forseti landsins mikið í
sviðsljósinu og virðist halda í alla stjórnar-
tauma.“
Vardveisla mcnningar -
viðurkenning stjórnvalda
Helgi segir að Senegal sé ekki fátækt land í
Viðtal:
Pórður Ingimarsson
afrískum skilningi - fremur verði að telja
það með þeim betur stöddu. „Aðal fram-
leiðsla landsins eru jarðhnetur og mun jarð-
hnetuframleiðsla Senegala vera ein sú
mesta í heiminum. Senegal var frönsk
nýlenda fram um 1960 og fram að þeim tíma
var kristniboðum ekki leyft að starfa í land-
inu utan að Frakkar, sem þar voru búsettir,
byggðu kirkjur og stóðu fyrir kaþólsku safn-
aðarlífi. Frönsku klerkarnir ráku einnig skóla
og notuðu franska tungu í skólastarfinu.
Eftir að landið fékk sjálfstæði buðu Senegal-
ar kristniboða mótmælenda velkomna.
Við höfum aftur á móti notað þá aðferð að
stofna lestrarskóla þar sem börnum inn-
fæddra er kennt að lesa á sínu eigin móður-
máli. Ég hef haft mikla gleði af því starfi og
það höfðar einnig til mín sem kennara og
uppeldisfræðings. Við höfum búið til
kennslubækur og höfum menn í fullu starfi í
því sambandi - menn sem sitja og skrifa
kennslubækur í lestri á tungu innfæddra.
Þetta starf okkar hefur vakið athygh og
meðal annars orðið tO þess að ráðherra úr
ríkisstjórn landsins kom í heimsókn til
okkar. Við höfum safnað saman sögum og
ævintýrum - bókmenntahefð sem lifað hef-
ur öld fram af öld á meðal fólksins en vegna
skorts á ritmáli aldrei orðið föst á blaði fyrr.
Stjórnvöld hafa veitt þessu athygli og telja
að styðja verði við bakið á þessari menning-
arviðleitni. “ Helgi bendir á að mannfræðing-
ar hafi gjarnan haldið því fram að kristniboð
á meðal frumstæðra þjóða eyðileggði menn-
ingu þeirra þar sem gjörólíkum hugmyndum
væri haldið að fólki. Þessu sé öfugt farið.
Með því að auka grunnþekkingu innfæddra
- eins og að kenna þeim að lesa á sínu eigin
móðurmáli opnist möguleikar þeirra til að
tileinka sér eigin menningu frá nýju sjónar-
horni og varðveita hana mun betur en áður
var. Helgi segir að Senegalar hafi notað alls
um 60 tungumál auk þess sem hið opinbera
stjórnarfarsmál sé franska er festist í sessi á
nýlendutímanum. Nú hafi sex tungur af
þessum sextíu verið valdar sem aðalmál í
landinu auk frönskunnar og geri það þjóð-
inni mun auðveldara með að útbreiða
almenna lestrarkunnáttu.
Hjálpa ekki þeim sem eru
af öðrum ættflokkum -
þekkja ekki
miskunnsama samveijann
Og nú bregður Helgi sér úr hlutverki upp-
eldisfræðingsins og kennarans í hlutverk
kristniboðans og prestsins. „Þegar við sem
flytjum öðrum trú vinnum okkar verk þá
trúum við því að við séum að færa fólki þá
mikilvægustu gjöf sem nokkur maður getur
þegið. Allt það góða i okkar samfélagi er
kristinni trú að þakka - alþýðumenntunin,
heilbrigðisþjónustan, miskunnsemin og
réttlætið. Helgi segir að í kristniboðsstarfinu
noti hann oft söguna úr Biblíunni um misk-
unnsama samverjann. Segi söguna og spyrji
hina innfæddu síðan að því hvað þeir myndu
gera ef maður úr öðrum ættflokki lægi slas-
aður þar sem þeir færu um. í fyrstu segðu
flestir að þeir myndu láta hann eiga sig -
láta hann deyja af því hann er ekki einn af
þeim. Þannig sé skilningur margra þeirra er
ekki hafi kynnst kristnu hugarfari. Siðan átti
menn sig á þeim boðskap og þeim sam-
félagsskilningi er sagan hafi að geyma.
Hlutverk miskunnsama samverjans í
kristniboði á meðal framandi þjóða geta ver-
ið lokaorð Helga Hróbjartssonar um það
efni. Þau sýna betur en margt annað þann
mismun sem er á hugsunarhætti Vestur-
landabúa er byggja á kristnu siðgæði og
þeirra er hræðst hafa mátt drauga og djöfla
eða trúað á boðskap Múhameðs spámanns.
- En hefur Helgi hugsað sér að eyða
starfsævi sinni við að útbreiða hina kristnu
hugsun - kristnu trú á meðal afrískra borg-
ara og kenna þeim meðal annars að virða
náunga sinn án tillits til blóðbanda og ætt-
flokkasamskipta.
Hann kveðst ætla að ljúka verkefni sínu í
Senegal en að því loknu hafa hug á að koma
heim til íslands og starfa á vegum íslensku
þjóðkirkjunnar. Ef til vill að taka að sér
prestsembætti á nýjan leik og þá komi
Eyjafjörðurinn vel til greina.