Dagur - 19.12.1991, Side 31
Fimmtudagur 19. desember 1991 - DAGUR - B 31
1 heimsókn í Myndlistarskólanum:
„Májólasveiiuiiim vera kona?“
sveinsins. „Þetta er tónlistarjóla-
sveinn," segir sú litla og hefur
miklar áhyggjur af aukalínum og
mislukkuðu auga. „Get ég fengið
nýtt blað. Ég gleymdi að setja
nefið á jólasveininn minn," og
kennarinn kemur til hjálpar og
jólasveinninn neflausi fær nef
sem yfirjólasveini einum sæmir.
Teikningar strákanna eru
groddalegar og jólasveinarnir
hafa yfirbragð hreystinnar. Hér
er Hjalti Úrsus á blaði. Jóla-
sveinninn er sem fjall og kafrjóð-
ur í kinnum. „Ekki af kulda," seg-
ir listamaðurinn, „heldur vegna
þess að pokinn er 300 kíló “. ój
Á veggjum hanga teikningar af jólasveinum og jólakött-
um af ýmsum gerðum. Einn er með kartöflunef, sítt og
hrokkið skegg. Annar er vesæll og mjór, nær skegglaus.
Ég er staddur í tíma í Myndlistarskólanum á Akureyri hjá
Rósu Kristínu Júlíusdóttur, myndlistarkennara. Ellefu
börn sitja í hálfhring yfir nær auðum blöðum, enda er
kennslustundin rétt hafin. Verkefni dagsins er að teikna
jólasvein. Jólin eru á næsta leiti.
Sum barnanna eiga erfitt með
að nálgast verkefnið. Þau róta í
pastellitunum í leit að heppileg-
um lit. Ein lítil kallar á kennarann
og spyr: „Má jólasveinninn vera
kona?" Sú litla fær nokkra
fræðslu um jólasveinana og for-
eldra þeirra, Grýlu og Leppalúða,
og er komin á strikið fyrr en varir.
„Hausinn á að vera stór, skeggið
mikið og tennurnar eins og í
pabba," segir sú litla og mundar
litinn.
Strákur úti í horni er brúna-
þungur. Hann er að velta fyrir sér
hvort jólasveinninn á að vera
amerískur í rauðum fötum með
hvítt skegg eða jólasveinn í
vaðmálsfötum samkvæmt ís-
lenskri hefð. Sá íslenski verður
fyrir valinu og strákur teiknar
nissann upp með öruggri hendi.
Jólasveinninn á næsta blaði
minnir á teiknimyndaveru úr
sjónvarpinu. Nef sem augu eru
útstæð og skeggið er mikilúð-
legt. Greinilegt er að sjónvarpið
hefur áhrif hér sem víðar. Jóla-
sveinarnir hjá stelpunum eru
nettir og fínlegir. Sumir eru
komnir með augnskugga og falleg
Bambaaugu. Á einni teikning-
unni svífa nótur um höfuð jóla-