Dagur - 19.12.1991, Qupperneq 34

Dagur - 19.12.1991, Qupperneq 34
34 B - DAGUR - Fimmtudagur 19. desember 1991 Sendum viðskiptavinum og landsmönnum öllum okkar bestu jóla- og nýársóskir Þökkum uiðskiptin á liðnu ári. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS útibúið Akureyri og afgreiðslan verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð r . Oskum viðskiptavinum okkar glebilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin ÁSGEIR EINARSSON H.F. Engjateig 3 • Reykjavík • Sími 91-680611 Óskum viðskiptávinum okkar glébilegra jóla ogfarsæls komandi árs Þökkum viðskiptin. SÉRLEYFISBILAR AKUREYRAR Gránufélagsgötu 4 • Sími 23510 • Fax 27020 Sendum öllum viðskiptavinum bestu jóla- og nýársóskir Þökkum viðskiptin á árinu. Kranaleiga Benedikts Leóssonar Lögbergsgötu 5 • Akureyri • Símar 24879 & 985-23879 EHd eiga allir ficí frá viiinu tim jól og áramót Á jólunum sameinast margar fjölskyldur og eiga saman ánægjulega hátíðisdaga. Börn sem sækja skóla og vinnu í önnur sveitarfélög koma heim í foreldrahús, fjöl- margir sjómenn eru í landi yfir jól og ára- mót en aðrir þurfa að sinna vinnu þá jafnt og aðra daga. En þó flestir eigi frí yfir hátíð- isdagana og geti verið í faðmi fjölskyld- unnar, eru aðrir sem þurfa að sinna vinnu sinni jóladagana sem aðra daga. Má þar nefna fólk sem starfar á heilbrigðisstofn- unum, lögreglumenn og slökkviliðsmenn. Dagur heimsótti þá Ólaf Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjón á Akureyri og Gísla Kristin Lórenzson, slökkviliðsstjóra á Akureyri og forvitnaðist hjá þeim m.a. um hvernig starfi þeirra manna væri hátt- að um hátíðisdagana. í máli Ólafs kom fram að fyrir þá sem þurfa að vinna á þess- um hátíðisdögum, sé hálf ömurlegt að þurfa að klæða sig í vinnugallann og halda að heiman í þann mund sem jólin ganga í garð. Ekki bara fyrir þá sem þurfa að vinna, heldur líka fyrir börn þeirra og hafa þau oft miklar áhyggjur vegna þessa og finnst það skrýtið að ekki skuli allir geta verið saman á slíkum stundum. Gísli Krístinn Lórenzson slökkviliðsstjórí. Myndn: kk Gísll Eristinn Lórenzson, slökkviliðsstjóri á Aktrreyri: Sem betur fer er lítið um Á slökkvistöðinni á Akureyri starfa 14 manns en að auki er hægt að kalla til 26 menn til við- bótar víðs vegar að úr bænum ef mikið liggur við. Af þeim 14 fast- ráðnu skipta 12 menn með sér 12 tíma vöktum, annars vegar dag- vakt og hins vegar næturvakt og eru 3 menn á hverri vakt. Slökkvi- Mðsstjóri og starfsmaður eldvarna- eftirhtsins vinna að öllu jöfnu hefðbundna dagvinnu, nema ef t.d. um brunaútköll er að ræða. Auk þess eru allir sjúkraflutningar á Akureyri og í nágrenni í höndum slökkviliðs Akureyrar eins og flest- um er kunnugt. AUs eru farnar um 12-1300 sjúkraferðir á ári og nú í byrjun desember voru brunaút- köllin á árinu orðin 73 hjá Slökkvi- hði Akureyrar, sem er svipað og undanfarin ár. Slökkviliðið hefur yfir að ráða tveimur sjúkrabifreið- um og sex slökkvibílum, að með- töldum körfubílnum. Stöðin er nokkuð vel búin tækjum en brýn- ast er að fara að endurnýja bíla- kostinn að sögn Gísla Kristins Lórenzsonar, slökkviliðsstjóra. Hef séð þessa hátíðisdaga fara fyrir lítíð „Hér á stöðinni eru alltaf 3 menn á vakt, jafnt hátíðisdaga sem aðra daga. Eins og á öðrum vinnustöð- um reynum við að gera jólalegt hjá okkur, skreytum stöðina og setj- um upp jólatré. Þeir sem eru á vakt hverju sinni fá jólamatinn sendan að heiman, því okkar matsölustaður er lokaður yfir stór- hátíðisdagana, “ segir Gísli Kristinn. - En er mikið um að vera hjá slökkviliðsmönnum á jólunum? „Nei sem betur fer er ekki mikið um útköll þessa daga. Hins vegar hafa menn lent í því að vera trufl- aðir við jólahaldið heima hjá sér. Það kemur fyrir að sjúkrabíllinn er sendur út í sveit og þá eru kallaðir inn menn á meðan, til þess að hafa sama fjölda á stöðinni og ef að upp kemur eldur, er ekkert annað að gera en að kalla allt liðið út. Maður hefur séð þessa hátíðis- daga fara fyrir lítið hjá slökkviliðs- mönnum. Mér er minnistætt þegar kom upp eldur á aðfangadag fyrir nokkrum árum og þá voru menn að störfum frá kl. 19.00 á aðfanga- dagskvöld og til kl. 19.00 á jóla- dagskvöld. Ég gekk þá vaktir og þetta var einmitt í það skipti sem mín vakt átti að eiga frí yfir jólin en það frí fór fyrir lítið. Eins hefur það komið fyrir að við höfum farið í eld á gamlárskvöld og verið að fram á nýársdag en sem betur fer er það mjög sjaldgæft. Þetta er einmitt sá tími ársins sem eldhættan er hvað mest, fólk er með opinn eld og alls kyns jólaljós sem geta valdið skaða. - Og gamlárskvöld með allri sinn dýrð er hættulegt kvöld. Fólk er mikið á faraldsfæti þessa daga og oft við misjafnar aðstæður og því hafa komið útköll vegna umferðarslysa. En þetta fer mikið eftir færð á vegum og veðri. “ Fólk fari að öllu með gát - Hvaða varnaðarorð átt þú til handa bæjarbúum? „Það sem við viljum sjá er að hér á stöðinni sé ekkert að gera á þessum hátíðisdögum og allt fari vel fram. Á jólunum er fólk með alls kyns jólaskraut og jafnvel opinn eld og það getur reynst hættulegt ef ekki er farið með gát. Fólk þarf að muna eftir því að slökkva á kertum og jólaljósum en það er allt of algengt að við höfum fengið útkall um jólin vegna þess að fólk gleymir þessu atriði. Það er alveg skilyrði að vistarverur séu ekki yfirgefnar nema búið sé að slökkva á kertum og jólaljósum. Þó svo að jólaljós og slíkar vörur séu traustar, er það engu að síður góð- ur siður að slökkva á þeim þegar vistarverur eru yfirgefnar eða þeg- ar gengið er til náða. Það er nú einu sinni svo að þó að allt eigi að vera öruggt, getur það brugðist. - Og það er ömurlegt hlutskipti að þurfa að standa yfir brunarústum og ekki síst á jólunum. Nú um áramótin er mikilvægt að farið sé með flugelda og blys af mikilli gát, svo ekki hljótist slys af. Þær vörur sem verið er að selja í dag eru allar mjög traustar en það sem skiptir mestu máli er hvernig

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.