Dagur - 23.12.1991, Blaðsíða 7
Mánudagur 23. desember 1991 - DAGUR - 7
Brautskráning í Verkmeimtaskólanum
A þriðja tug nemcnda brautskráðust frá Verkmenntaskólanum á Akureyri sl. föstudag. Þessi útskrift skömmu fyrir
jól er árviss viðburður þó flestir brautskráist frá skólanum á vorin. Af þeim nemendum sem nú brautskráðust voru
flestir af tæknisviði skólans og þess má geta að sex nemendur útskrifuðust með þriðja stigs próf í vélstjórn. Mynd: Golli
Hvað er að gerast?
Akureyrarkirkja:
Jólatónleikar Passíu-
í dag kl. 16.00
VcríÖ velkomin.
HAGKAUP
Akureyri
kórsins 29. desember
Sunnudaginn 29. desember nk.
kl. 20.30 heldur Passíukórinn á
Akureyri jólatónleika í Akureyr-
arkirkju. Þar verða flutt tvö verk
frá barock-tímanum, annað er
eftir þýska tónskáldið Heinrich
Schútz (1585-1672) og hitt eftir
landa hans G.Ph. Telemann
(1681-1767).
Verkið eftir Heinrich Schútz
heitir „Jólaóratoría" og er
textinn, sem verður sunginn á
íslensku á tónleikunum, byggður
á jólaguðspjöllunum.
Síðara verkið á tónleikunum,
sem er eftir G.Ph. Telemann,
Skemmtistaðurinn 1929:
Loðin rotta á annan
og þriðja í jólum
Hljómsveitin Loðin rotta leikur
fyrir dansi á skemmtistaðnum
1929 á annan dag jóla og á þriðja
í jólum, föstudaginn 27. desem-
ber.
Hér er á ferðinni ein allra
vinsælasta hljómsveit landsins og
hefur hún notið mikilla vinsælda
hér norðan heiða. Laugardaginn
28. desember mætir fjöldi hljóm-
sveita til leiks í 1929 og skemmtir
í svokölluðu hringleikahúsi.
GaJíleó og Ingimar
Eydal í Sjallamim
Hljómsveitin Galíleó, með
trommarann góðkunna Rafn
Jónsson í broddi fylkingar, treð-
ur upp í Sjallanum annan í jólum
en þá verður dansað til kl. 2.
Föstudaginn 27. desember verð-
ur dansleikur til kl. 3 og enn sjá
liðsmenn Galíleó um að kitla
danstaugar Sjallagesta. Hljóm-
sveitin mun m.a. leika lög af
hljómplötu Rafns sem notið hef-
ur mikilla vinsælda undanfarnar
vikur.
Laugardaginn 28. desember
verður svo ekta Sjallastemmning
með hinni einu og sönnu hljóm-
sveit Ingimars Eydals. Ingimar
og félagar kunna tökin á gestum
Sjallans og hafa engu gleymt.
Rétt er að minna fólk á að
karaoketækið verður á sínum
stað í Kjallaranum yfir hátíðarn-
ar. Jólakaraoke! - er ekki margt
vitlausara?
Borgarbíó:
Áhugaverðar
myndir um jólin
Borgarbíó á Akureyri sýnir fjór-
ar áhugaverðar myndir á annan
og þriðja í jólum. Kl. 9.00 báða
dagana verða sýndar myndirnar;
Að leiðarlokum, með Juliu
Roberts, og Skjaldbökurnar II.
Kl. 11.00 á annan og þriðja í
jólum verða sýndar myndirnar;
Banvænir þankar, með Bruce
Willis og Svik og prettir, með
þeim Gene Wilder og Richard
Pryor.
nefnist „Ég vil lofa Drottin af
öllu hjarta“ og er samið við texta
111. Davíðssálms.
Á þessum tónleikum fær kór-
inn til liðs við sig eínsöngvarana
Ernu Guðmundsdóttur, sópran,
Þuríði Baldursdóttur, alt, Örn
Viðar Birgisson, tenór, Michael
Jón Clarke, baritón, Jón Helga
Þórarinsson, bassa, Sigmund Sig-
fússon, bassa, Steinþór Þráins-
son, bassa og Jón Geir Her-
mannsson, bassa.
Stjórnandi er Roar Kvam.
Óska viðskiptavinum mínum
glébilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þakka viðskiptin á árinu.
Haddýar-brauð
Svalbarðseyri
Lokað aðfangadag og jóladag
Opið 2 dag jóla frá ld. 12-24.00
30. desember lokað kl. 17.00
Lokað gamlársdag og nýársdag
Gleðilegjól
og farsælt komandi ár
^ÉK....greitinn.