Dagur - 27.02.1992, Síða 1
75. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 27. febrúar 1992
40. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Hrísexiarhreppur:
íbúðir aldraðra stærsta
verkefiiið í ár
Drög að fjárhagsáætlun Hrís-
eyjarhrepps voru kynnt á fundi
hreppsnefndar í vikunni. Jónas
Vigfússon, sveitarstjóri, segir
aö hvað framkvæmdaliðinn
Sjúkrahús
Skagfirðinga:
Fær 40 prósent
tilbaka
Endanlcgar tölur um niður-
skurð á fjárlögum til Sjúkra-
húss Skagfírðinga eru 9 millj-
ónir króna samkvæmt því sem
Birgir Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri sjúkrahússins,
segir. Sjúkrahúsið fær sam-
kvæmt því um 40% upp í þær
15 milljónir sem settar voru
fram í niðurskurðarfrumvarpi
ríkisstjórnarinnar.
„Við fáum tæpar 6 milljónir til
baka til reksturs sjúkrahússins,
samkvæmt bréfi ráðuneytisins,
en um 500 þús. til reksturs heilsu-
gæslu,“ segir Birgir, en niður-
skurður á heilsugæslu átti að vera
1,5 milljónir samkvæmt frum-
varpinu.
Birgir segist vera ánægður með
að fá þó þetta háar fjárhæðir til
baka, en segir að samt sem áður
verði erfitt að ná því sem á
vantar. Hann segir að þeim
sparnaðaraðgerðum, sem þegar
eru hafnar á sjúkrahúsinu, verði
haldið áfram, en ekki muni koma
til uppsagna vegna þessa.
Um þau skilaboð frá heilbrigð-
isráðuneytinu að ekki sé um
tímabundinn sparnað að ræða,
vildi Birgir lítið segja annað en
að það þýddi að sníða þyrfti
rekstur sjúkrahússins til fram-
búðar eftir þessum fjárveiting-
um. SBG
varði í ár verði bygging þjón-
ustuíbúða aldraðra megin við-
fangsefnið.
Bygging fimm íbúða fyrir aldr-
aða var hafin á síðasta ári í Hrís-
ey og segir Jónas að henni verði
haldið áfram í ár.
„Síðan á að reyna að ljúka við
að helluleggja þær götur sem eftir
voru, ljúka við breikkun íþrótta-
vallarins og ljúka lagfæringum á
skólalóðinni. Til viðbótar er við-
hald á hitaveitu og frágangur á
borholu fyrir kalt vatn. Þetta er
það sem menn vilja gera en
eitthvað kann að verða skorið
niður af listanum," sagði Jónas.
JÓH
Ásdísarfarþegarnir komu til Akureyrar í hádeginu í gær með gömlum Fokker eftir flugævintýri morgunsins.
Ásdís nauðlenti á Keflavíkurflugvelli í gær:
Nefhjólið fór ekki niður í
aðflugi á Akureyrarflugvelli
- ekki fyrsta bilunin í nýju Fokker vélinni
Mynd: Golli
Laust fyrir kl. 10 í gærmorgun
nauðlenti Ásdís, hin nýja
Fokker vél Flugleiða, á Kefla-
víkurflugvelli. Mikill viðbún-
aður var á vellinum en lending-
in tókst vel og allir sem um
borð voru, 43 farþegar og
fjögurra manna áhöfn, sluppu
ómeiddir.
Dagur fékk veður af því að
ekki væri allt með felldu þegar
Ásdís kom inn til lendingar á
Akureyri um kl. 9 í gærmorgun.
Vélin kom sunnan úr Eyjafirði og
fór norður yfir bæinn, tók sveig
og hóf aðflug fyrir ofan Sval-
barðseyri. Sjónvarvottur sagði að
vélinni hefði verið flogið lágt að
Sauðárkrókur:
Óljóst starfssvið at-
vmnumálanefiidar
- formaður nefndarinnar sagði af sér
Á bæjarstjórnarfundi á Sauð-
árkróki sl. þriðjudag var Pétur
Valdimarsson tilnefndur sem
aðalmaður í atvinnumálanefnd
í stað Friðriks Jónssonar sem
sagði af sér nefndarstörfum
fyrir skömmu. Að sögn Frið-
riks sagði hann af sér for-
mennsku og setu í nefndinni,
vegna óljóss starfssviðs
hennar.
„Hlutverk nefndarinnar er
mjög óljóst í mínum augum og af
þeim sökum hafði ég ekki áhuga
á að starfa í henni lengur,“ sagði
Friðrik um afsögn sína.
Dagur hafði samband við
Björn Sigurbjörnsson, formann
bæjarráðs, og tók hann undir það
að starfssvið nefndarinnar væri
fremur óskilgreint. Hann sagði að
engu að síður hefði nefndin unn-
ið ýmislegt í gegnum árin, þrátt
fyrir að hún væ'ri álitin þung í vöf-
um vegna fjölda nefndarmanna
sem eru sjö talsins.
„Málið er að núna er verið að
endurskoða samþykktir bæjarins
og m.a. samþykktir varðandi
atvinnumálanefndina. Við tökum
fyrir allar nefndir og ráð á vegum
bæjarins, stokkum upp í þeim,
fækkum í þeim sumum hverjum
og gerum starf þeirra á vissan
hátt markvissara. T.d. er verið að
athuga hvort beintengja eigi hin-
ar stærri nefndir eins og atvinnu-
málanefndina við bæjarstjórn
með því að skilyrt sé að einn
nefndarmanna sitji í bæjarráði
eða bæjarstjórn," sagði Björn um
málið. SBG
flugbrautinni og nefhjólið hefði
greinilega ekki verið niðri og yfir
brautinni hefði hún skyndilega
hækkað flugið og ekki komið aft-
ur inn til lendingar.
Haft var samband við Akur-
eyrarflugvöll og starfsmaður
Flugleiða þar staðfesti að vegna
bilunar í hjólabúnaði hefði vélin
ekki getað lent og var henni snú-
ið við. Starfsmaðurinn sagði jafn-
framt að tíðar bilanir í nýju
Fokker vélinni hefðu raskað
áætlun að undanförnu því Flug-
leiðir væru með fáar vélar í gangi
og lítið mætti út af bera. Önnur
ný Fokker vél er væntanleg frá
Hollandi fljótlega.
Margrét Hauksdóttir hjá Flug-
leiðum sagði í samtali við Dag í
gærmorgun að vélinni yrði nauð-
lent í Keflavík því ljós sýndu að
nefhjólið færi ekki niður. Eins og
áður segir tókst nauðlendingin
vel. Vélin lenti á vænghjólunum
og flugstjóranum tókst að halda
beinni stefnu og þegar vélin
Flugleiðir leigðu
Metroirm af FN
Vegna óhappsins með nýju
Fokker-50 vélina tóku Flug-
leiðir í gær á leigu Metro-flug-
vél Flugfélags Norðurlands og
var henni flogið síðdegis í gær
frá Reykjavík til Patreksfjarð-
ar og Þingeyrar.
í dag er áætlað að fljúga
Metroinum á vegum Flugleiða til
Vestmannaeyja og Patreksfjarð-
ar.
Anfinn Heinesen hjá Flugfé-
lagi Norðurlands segir að flug
Metrosins á vegum Flugleiða
raski ekki áætlun Flugfélags
Norðurlands í dag á nokkurn
hátt. óþh
stöðvaðist seig hún niður á nefið
og skemmdist lítið.
Aðspurð um tíðar bilanir í
Ásdísi sagði Margrét að vélin
hefði reynst vel en þarna væru
einhverjir byrjunarörðugleikar á
ferð og það tæki tíma að kynnast
nýjum vélum.
Þess má geta að flugstjóri frá
Fokker verksmiðjunum mun
hafa verið með í umræddri
flugferð.
Eftir hádegi í gær fóru flug-
virkjar í það að grennslast fyrir
um orsakir bilunarinnar og lag-
færa það sem farið hafði úrskeið-
is. SS
Ásdísarfarþegar með F-27 til Akureyrar:
Allt eðlilegt þar til
n
vélin skail á nefið
- segir Sigtryggur Benediktsson
um nauðlendinguna
Farþegarnir 43 sem voru í
Ásdísi fóru eftir nauðlending-
una á Keflavíkurflugvelli með
Fokker F-27 til Akureyrar og
komu þangað í hádeginu í gær.
Þeir voru hinir sprækustu og
við náðum tali af Sigtryggi
Benediktssyni, tæknifræðingi
hjá Hafnamálastofnun í
Reykjavík, og báðum hann að
lýsa þessari sögulegu flugferð.
„Það var tekið á loft í Reykja-
vík í éljagangi og allt var eins og
best verður á kosið. Flugfreyjan
sagði okkur hvað hún væri ánægð
með að vera í þessari vél í fyrsta
sinn og farþegarnir voru ánægðir
líka. Síðan var okkur tilkynnt að
það væru vandræði með nefhjólið
og það yrði flogið lágt yfir flug-
brautina og þeir í flugturninum
myndu skoða hvort hjólið væri
niðri. Menn gerðu allt eins ráð
fyrir að ljósið væri bilað vegna
ísingar eða bleytu, en svo reynd-
ist ekki vera,“ sagði Sigtryggur.
„Þá var tekin ákvörðun um að
lenda í Keflavík og það var bara
venjuleg neyðarlending. Þetta
gekk eins og okkur hafði verið
tilkynnt og ég varð ekki var við
mikinn ótta meðal farþega.
Lendingin tókst vel og allt eðli-
legt þangað til vélin skall niður á
nefið. Þá var mikill hávaði og læti
en hún var nærri því stoppuð
þegar hún datt niður. Ég sat
fremst og aðstoðaði farþega við
að komast út enda ýmsu vanur í
þessum efnum. Flugleiðir stóðu
sig mjög vel og gáfu okkur kaffi
og koníak," sagði Sigtryggur
hinn brattasti.
Hann sagðist hafa flogið mikið
og lent í ýmsu. Þetta var önnur
ferð hans með hinni nýju Fokker-
50 vél Flugleiða. Á miðvikudag-
inn fyrir viku fór hann með
Ásdísi til ísafjarðar og voru skil-
yrði slæm til lendingar en flug-
stjóranum tókst að lenda vélinni í
þriðju tilraun, þannig að Sig-
tryggur geymir margar sögulegar
flugferðir í minningabók sinni.
SS