Dagur - 27.02.1992, Blaðsíða 16
Akureyri, fímmtudagur 27. febrúar 1992
Fjárhagsáætlun Skútustaðahrepps
fyrir 1992 lögð fram í dag:
Bygging grunnskólans
stærsta verkefiiið
Hadegistilboð alla daga
Súpa og salatbar ásamt okkar nýbökuöu brauðum fylgja öllum aðalréttum og pizzum
Fri heirasendingarþjónusta allan daginn
Alvöru veitingahús
VEITINGAHUSIÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
Fjárhagsáætlun Skútustaða-
hrepps fyrir 1992 verður lögð
fram á fundi hreppsnefndar í
dag. Langstærsta verkefni
hreppsins í ár er áframhald-
andi bygging grunnskólans í
Akureyri:
Innbrot í Sjöfn
Brotist var inn í efnaverk-
smiðjuna Sjöfn á Akureyri
aðfaranótt miðvikudagsins.
Reynt var að opna peninga-
skáp en ekki er talið að neinu
hafi verið stolið.
í>eir sem brutust inn í efna-
verksmiðjuna Sjöfn í fyrrinótt
höfðu lítið upp úr krafsinu.
Reyndu þeir að opna peninga-
skáp en tókst ekki og virðast hafa
yfirgefið staðinn án þess að taka
neitt með sér þegar peningar
náðust ekki úr skápnum. Að
sögn lögreglu munu einhverjar
skemmdir hafa verið unnar við
innbrotið en síðdegis í gær var
ekki búið að komast að því hverj-
ir voru þarna að verki. ÞI
Reykjahlíð, en tilboð í það
verk verða opnuð 9. mars nk.
Fjárhagsáætlun er samdráttar-
áætlun og tekur mið af erfiðleik-
um í atvinnulífi í sveitarfélaginu.
Eitt af stærri fyrirtækjum þar,
Léttsteypan hf., hefur sem kunn-
ugt er átt við mikla erfiðleika að
etja. Tekjur Skútustaðahrepps
eru áætlaðar í ár 65 milljónir
króna, þar af um 25 milljónir
króna af útsvörum, og lækka þær
í krónutölu milli ára, sem segir
sína sögu.
Skútustaðahreppur bauð á
dögunum út þrjú verk við áfram-
haldandi uppbyggingu grunn-
skólans í Reykjahlíð. Um er að
ræða einangrun þaka, samtals um
1000 fermetrar, ílögn í gólf um
1040 fermetrar og uppsteypa
tveggja stiga. Sigurður Rúnar
segir að þessar framkvæmdir séu
langstærsta verkefni hreppsins á
þessu ári og verði 18 milljónum
króna varið til þeirra.
Framkvæmdum við grunnskól-
ann verður fram haldið á næsta
ári og segir Sigurður Rúnar vonir
standa til að hægt verði taka hann
í notkun haustið 1993. óþh
Framkvæmdir Listagilsmanna við gömlu Smjörlíkisgerðina og Flóru hafa gengið vel og er ásýnd húsanna óðum að
breytast. Mynd: Golli
Listagil:
„Raunsæi hefiir setið í fyrirrúmf
- segir Páll Tómasson, arkitekt
„Við erum komnir vel yfír
helming framkvæmda og
kostnaðaráætlun stenst upp á
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.:
Sfld úr Þórshamri í edikpækfl
Þórshamar GK landaði í gær
300 tonnum af síld á Þórshöfn.
Síldarvertíð lýkur um næstu
mánaðamót og hafa þegar
mörg skip hætt veiðum, enda
afli verið frekar tregur að
undanförnu. Loðna berst líka í
töluverðu magni til Þórshafnar
þessa dagana. Súlan EA land-
aði 760 tonnum í fyrrinótt og
von var á Guðmundi VE með
um 900 tonn í gærkvöld.
Eyjafjarðarferjur:
Gunnar Arason geri til-
lögur um rekstrarform
Útgerð Eyjafjarðarferjunnar
Sæfara, þ.e. Hríseyjarhrepp-
ur, á inni hjá fjármálaráðu-
neytinu um 7 milljónir af þeim
18,5 milljónum sem aukafjár-
veiting fékkst fyrir síðastliðið
haust. Ráðuneytið setur það
sem skilyrði fyrir greiðslu pen-
inganna að úttekt fari fram á
rekstri skipsins og hefur sam-
gönguráðherra nú falið Gunn-
ari Arasyni, skipstjóra á Akur-
eyri, að gera tillögur um
hvernig rekstri flóabáta verði
best fyrir komið í Eyjafirði.
Aukafjárveitingin sem sam-
þykkt var í haust er stofnstyrkur
til Hríseyjarhrepps til að greiða
af lánum vegna kaupa á ferjunni.
Þá fékk hreppurinn á sama tíma
9,1 milljóna rekstrarstyrk vegna
Sæfara og 8,3 milljóna rekstrar-
styrk vegna ferjunnar Sævars.
Sem fyrr segir vill fjármála-
ráðuneytið fá úttekt á rekstri
Sæfara áður en milljónirnar sjö
verða greiddar út. Rekstur skips-
ins hefur verið erfiður og hafa
ýmsar leiðir komið upp til að
styrkja rekstur bess.
Halldór Blöndal, samgöngu-
ráðherra, fól Gunnari Arasyni
jafnframt að athuga hvort til
greina komi að kaupa skip í stað
Sæfara sem henti til ferðaþjón-
ustu. JÓH
Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf., sagði í gær að
þrátt fyrir lélegan botnfiskafla að
undanförnu hafi síldin og loðnan
gert það að verkum að hægt væri
að halda uppi nægri atvinnu.
Jóhann segir að síldin úr Þórs-
hamri GK sé flökuð og síðan sett
í saltpækil og að lokum í edik-
pækil. Þessa gerð síldar vantar til
þess að hafa upp í gerða samn-
inga.
I fyrrinótt landaði Súlan EA
760 tonnum af loðnu til bræðslu
og í gærkvöld var von á Guð-
mundi VE með 900 tonn. Hrað-
frystistöð Þórshafnar hefur tekið
á móti um 15 þúsund tonnum af
loðnu það sem af er vetrarvertíð.
Jóhann sagðist eiga von á að
loðnufrysting hæfist eftir um það
bil viku. óþh
punkt og prik. Allir verkþættir
eru framreiknaðir til verkloka
sem gerir okkur allt auðveld-
ara. Byggingaráætlún var vel
unnin strax í upphafi og við
gerðum ráð fyrir óvæntum
atvikum. Raunsæi hefur setið í
fyrirrúmi. Fyrstu menn flytja
inn á vordögum,“ segir Páll
Tómasson, arkitekt og einn
þeirra sem stendur að breyt-
ingum á húsum í Listagili.
Umrædd húsalengja var áður
aðsetur Smjörlíkisgerðar KEA
við Kaupvangsstræti. Nýju eig-
endumir eru: Gísli Kristinsson
og Páll Tómasson, arkitektar,
Baldur Ellertsson, listmálari,
Guðmundur Oddur, Iistmálari og
grafískur hönnuður, Svavar
Gunnarsson og Ari Svavarsson,
sem ætla að reka listagallerí í
húsinu, Hlynur Hallsson, skáld
og myndlistarmaður, Gísli Bogi
Jóhannesson, sem ætlar að reka
kaffihús í Listagili, og Akureyr-
arbær. Páll Tómasson segir að
eignarhluti Akureyrarbæjar í
húsinu verði trúlega rekstrarein-
ing heildarinnar þ.e. húsanna á
norðurkanti Kaupvangsstrætis og
um framkvæmdir þeirra félaga
sagði Páll: „Búið er að einangra
hús að utan og múrhúðað verður
í vor. Nýtt þak var sett á húsið og
það einangrað. Allir gluggar eru
nýir og við ljúkum við að glerja á
næstu dögum. Allt lagnakerfi
þurfti að vinna frá grunni og því
verki er að ljúka. Já, þetta er
spennandi verkefni. Við væntum
þess að ná farsæliega í höfn og að
menning fái að dafna í Listagili."
ój
Hrísey:
Bókasafiiið opnað á ný
- hefur fengið inni í grunnskólanum
Bókasafnið í Hrísey verður
opnað á ný við hátíðlega
athöfn laugardaginn 29.
febrúar nk. kl. 14.00. Safnið
hefur verið lokað síðan 1984
og bækurnar geymdar í
kössum.
Bókasafnið hefur fengið inni í
grunnskólanum, í herbergi inn af
skólabókasafninu. Hulda Hrönn
M. Helgadóttir, formaður menn-
ingarmálanefndar Hríseyjar,
sagði í samtali við Dag, að nefnd-
armenn hefðu unnið að því í um
tvö ár að opna safnið á ný.
„Pað hefur verið lögð mikil
vinna í þetta verk og á laugardag-
inn verður loks hægt að opna
safnið formlega á ný. Bækurnar
hafa verið skráðar upp á nýtt en
safnið á rúmlega 3000 bókatitla.
Keyptar hafa verið nýjar hillur og
þá hefur safnið eignast tölvu,“
sagði Hulda ennfremur.
Við opnunina á laugardag,
verður einsöngur og kórsöngur,
lesið upp úr bókum og saga safns-
ins rakin, svo eitthvað sé nefnt.
-KK
Tónlistarskóli Evjafiarðar:
Sprenging í aðsókn-
inni um áramótin
- alls 217 nemendur í skólanum
sem er stærstur á Norðurlandi
Nemendur í Tónlistarskóla
Eyjafjaröar eru nú á þriðja
hundraö talsins en segja má
að sprenging hafi orðið í
aðsókn að skólanum nú um
áramótin því síðustu annir
hefur fjöldi nemenda verið
um 160. Alls eru nú 217
nemendur í skólanum, sem
jafnframt er orðinn annar
stærsti tónlistarskóli á
Norðurlandi.
Skólinn er starfræktur í sjö
sveitarfélögum, þ.e. Grýtu-
bakkahreppi, Svalbarðsstrand-
arhreppi, Eyjafjarðarsveit,
Arnarneshreppi, Glæsibæjar-
hreppi, Öxnadalshreppi og
Skriðuhreppi, og er kennt í
samtals sjö skólum.
Að sögn Atla Guðlaugsson-
ar, skóiastjóra, miðuðust áætl-
anir um nemendafjölda í upp-
hafi við að þeir yrðu 80-90 og
var þá tekið mið af hliðstæðum
skólum á landinu. Þetta er
fjórða starfsár skólans og eru
átta kennarar nú starfandi við
hann.
Atli segir að þessi aukni
áhugi sé á öllu svæðinu og hann
komi vfðar fram en hjá börnun-
um því um 30 fullorðnir sækja
nám. Aðspurður segist hann
ekki reikna með að þessu fjölg-
un sé tímabundin heldur muni
nemendafjöldinn áfram verða á
þriðja hundrað.
„Þetta er ábyggilega heims-
met því þetta er um 10% af
íbúunum í þessum sveitarfélög-
um,“ sagði Atli. JÓH