Dagur - 27.02.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 27. febrúar 1992
ÓlafsQörður:
Bæjarmála-
punktar
Fréttir
Flugmálaáætlun til umræðu á Alþingi í gær:
Yfir 40 miHjónum veitt á næstu tveimur
árum vegna hönnunar flugstöðvar á Akureyri
Þingsályktunartillaga um flug-
málaáætlun árin 1992 til 1995
var til fyrri umræðu á Alþingi í
gær. Hvað varðar yfirstand-
andi ár er áætlunin í samræmi
við fjáriög ársins. Á árinu 1992
fær Akureyrarflugvöllur hæstu
fjárveitinguna af flugvöllum á
Norðurlandi, samtals 22 millj-
ónir króna. Þar af eiga 2 millj-
ónir að fara í hönnun flug-
stöðvar, 6 milljónir til kaupa á
radíóvita og 14 milljónir til
kaupa á snjóblásara.
Akureyrarflugvöllur fær sam-
kvæmt áætluninni samtals 43
milljónir árin 1993 og 1994 til
hönnunar flugstöðvar og árið
1995 er gert ráð fyrir 19,8 millj-
óna fjárveitingu til kaupa á
aðflugshallasendi.
Til Sauðárkróksflugvallar
verður veitt 2 milljónum í ár
vegna tækjageymslu, og 4,2 millj-
ónum á næsta ári til endurbóta á
radíóvita. Árið 1994 fær flug-
völlurinn samtals 12,2 milljónir
vegna kaupa á slökkvibúnaði og
búnaði til framleiðslu á vararaf-
magni. Ekki er í flugmálaáætlun
gert ráð fyrir fjárveitingu til flug-
vallarins árið 1995.
Húsavíkurflugvöllur fær ekki
fjárveitingu til framkvæmda í ár
en á næsta ári verður veitt 12,6
milljónum til hans vegna kaupa á
aðflugshallasendi. Árið 1994 er
síðan á áætlun að setja upp flug-
brautarljós við lengingu flug-
brautarinnar en fjárveiting er
ekki í áætluninni fyrir 1995.
Á gildistíma flugmálaáætlunar-
innar, eins og hún lítur nú út,
verður veitt samtals 20,4 milljón-
um til framkvæmda á Grímseyj-
arflugvelli. Vegna lengingar
verður veitt 3 milljónum í ár og
árið 1993 verður veitt 3,3 milljón-
um vegna kaupa á radíóvita. Sjö
milljónum verði síðan veitt til
byggingar tækjageymslu árið
1995 og 7,1 milljón einnig það ár
til kaupa á slökkvibúnaði.
Um fjárveitingar til Siglufjarð-
arflugvallar er ekki að ræða ef
undan er skilin 3,3 milljóna fjár-
veiting vegna endurbóta árið
1994.
Svipaða sögu er að segja af
Raufarhafnarflugvelli. Ráðgert
er að veita 3,7 milljónum til hans
vegna framkvæmda við öryggis-
svæði árið 1993.
Þórshafnarflugvöllur fær hins
vegar 16,5 milljónir í ár. Þar af
Fyrsti aöalfundur Endurhæf-
ingarstöðvar hjarta- og lungna-
sjúklinga var haldinn þann 18.
þessa mánaðar að Hótel KEA
á Akureyri, en hún er til húsa
að Bjargi Bugðusíðu 1. Mikil
aðsókn var að stöðinni og hef-
ur svo verið frá byrjun þann
19. janúar 1991.
Fimmtíu manns sækja æfingar
reglulega tvisvar í viku, á mánu-
Akureyrarflugvöllur fær 22 milljón-
ir í ár, þar af 14 milljónir til kaupa á
snjóblásara.
eru 8 milljónir vegna öryggis-
svæða, 5 milljónir vegna flug-
stöðvar og 3,5 milljónir vegna
tækjageymslu. Á næsta ári verð-
ur veitt 11,2 milljónum vegna
dögum og fimmtudögum. Flestir
fara svo í heilsubótargöngu í
gönguhópi á laugardögum.
Endurhæfingarstöðin er vel
tækjum búin og hefur á árinu
fengið fé til tækjakaupa frá
Félagi járniðnaðarmanna og
Félagi verslunar- og skrifstofu-
fólks. Stéttarfélögin hafa tekið
þátt í að greiða æfingagjöld fyrir
hjartasjúklinga, en lungnasjúkl-
inga greiðir ríkið fyrir.
flugstöðvar en 7,1 milljón vegna
kaupa á slökkvibúnaði árið 1995.
Framkvæmdir á Blönduósflug-
velli eru ekki á áætluninni ef und-
an er skilin 3,5 milljóna fjárveit-
ing árið 1995 vegna tækja-
geymslu.
Loks er Kópaskersflugvöllur
en vegna svokallaðs markvita er
veitt 1 milljón á yfirstandandi ári.
Fjárveitingar verða ekki fyrr en
1995 þegar á dagskrá er 7 millj-
óna fjárveiting vegna hlaðs og 9,3
milljóna fjárveiting vegna tækja-
geymslu.
Eins og áður kom fram var
fyrri umræða um flugmálaáætlun-
ina á Alþingi í gær. Hún er lögð
fram í samræmi við samþykkt
flugráðs en endurskoðun á áætl-
uninni fer fram á tveggja ára
fresti. JÓH
Yfirlæknir stöðvarinnar er Jón
Þór Sverrisson og yfirsjúkraþjálf-
ari Ósk Jórunn Árnadóttir. For-
maður framkvæmdastjórnar er
Kristín Sigfúsdóttir. óþh
Atvinnurekendur
á landsbyggðinni:
Vilja
fækka
starfsfólki
Atvinnurekendur telja að
fækka þurfi starfsfólki á lands-
byggðinni um sem svarar 0,3%
af heildarvinnuaflinu. Þetta
kemur fram í nýrri könnun
Þjóðhagsstofnunar sem náði til
fyrirtækja í nær öllum atvinnu-
greinum, nema landbúnaði,
fískveiðum og opinberri þjón-
ustu. Af þeim greinum sem
könnunin náði til virðist fækk-
unin þurfa að verða mest í bygg-
ingariðnaði.
Könnunin fór fram í janúar. Þá
töldu atvinnurekendur á lands-
byggðinni æskilegt að fækka
starfsmönnum um 100.
í fiskiðnaði var talið æskilegt
að fækka um 70 manns, um 50
manns í iðnaði, um 120 manns í
byggingariðnaði og um 10 manns
í samgöngum. í þjónustu var hins
vegar talið æskilegt að fjölga um
140 manns og um 10 manns í
sjúkrahúsarekstri.
í sambærilegri könnun í fyrra
vildu atvinnurekendur fækka
starfsmönnum í heild um 320 á
landsbyggðinni, eða um 1,3% af
vinnuaflinu. Mest var fækkunin í
fiskiðnaði um 220 manns og
byggingarstarfsemi um 210
manns. Á móti var talið æskilegt
að fjölga í þjónustu um 50
manns, sjúkrahúsarekstri um 40
manns og í samgöngum og iðnaði
um 10 manns.
Sé höfuðborgarsvæðið tekið
með í þessa mynd nú telja
atvinnurekendur æskilegt að
fækka um 430 manns, eða sem
svarar 0,5% af heildarvinnuafli í
greinunum sem könnunin náði
til. JÓH
■ Forsvarsmenn Leifturs og
bæjarráð eru sammála um að
nota dúk sem gólfefni í nýja
íþróttahúsið. Jafnframt eru
aðilar sammála um að halda
gluggunum.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Atvinnutryggingardeild
Byggðastofnunar, þar sem
deildin býður lántakendum
kost á skuldbreytingu. Lánin
verða afborgunarlaus 1992 og
1993 og lánstími þeirra lengist
um 4 ár. Bæjarráð heimilar
bæjarstjóra að skuldbreyta
þrem lánum bæjarsjóðs hjá
deildinni.
■ Á fundi bæjarráðs nýlega,
gerði Guðbjörn Arngn'msson
athugasemd við að bærinn
þyrfti að greiöa atvinnuleysis-
bætur og taldi hann að þar
væri um tvísköttun að ræða,
þar sem bærinn greiði í
At vinnutryggingasj óð.
■ Félagsmálaráð hefur lagt til
5% hækkun á leikskólagjöld-
um frá og með 1. mars nk. og
hefur hækkunin vérið sam-
þykkt í bæjarstjórn. Jafnframt
leggur ráðið til að ekki verði
frékari breytingar á gjöldun-
um á árinu.
■ Atvinnumálanefnd kynnti
tölur um greiddar atvinnu-
leysisbætur á fundi sínum
nýlega. Árið 1991 vorugreidd-
ar bætur kr. 7.844.793.- en
fyrstu 6 vikur ársins 1992 kr.
6.224.286.-.
■ Atvinnumálanefnd hefur
áhyggjur af ótryggu atvinnu-
ástandi unglinga í sumar og
hvetur bæjarstjórn til að setja
aukið fjármagn til unglinga-
vinnu.
■ Bæjarráð er sammála um
að nota sundlaugarhúsið sem
þreksal en ráðið fékk Sigurð
Gestsson til þess að kanna
hvort nota mætti húsið undir
slíka starfsemi. í framhaldi af
því skilaði Sigurður inn teikn-
ingum til bæjarráðs, varðandi
uppröðun á tækjum bæði í
sundlaugarhúsi og í þreksal
sem teiknaður hefur verið við
nýja íþróttahúsið.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá Skotfélagi Ólafsfjarðar,
þar sem félagið sækir um að fá
að færa fyrirhugaðan skot-
íþróttavöll um ca. 50 metra
sunnar. Bæjarráð telur að svo
stöddu geti bæjaryfirvöld ekki
veitt Skotfélaginu varanlegt
svæði en eingöngu bráða-
birgðaleyfi.
■ Vegna athugasemda
Launanefndar sveitarfélaga
um hæfi formanns starfs-
mannafélagsins S.T.Ó.L., til
setu í bæjarstjórn, samþykkti
bæjarráð að fela bæjarstjóra
að svara bréfinu fyrir hönd
ráðsins. Svarið er svohljóð-
andi: „Bæjarráð Ólafsfjarðar
telur það ekki í verkahring
launanefndar sveitarfélaga að
álykta um hvaða aðilar sitji í
bæjarstjórn Ólafsfjarðar.
Bæjarráð bendir launanefnd á
að í 20. gr. sveitarstjórnarlaga
er kveðið á um hverjir séu
kjörgengir í sveitarstjórnir. í
45. gr. er hins vegar fjallað um
hæfi sveitarstjórnarmanna til
umfjöllunar um einstök mál.
Bæjarráð lýsir því vfir að það
telur bæjarstjórn Ólafsfjarðar
fyllilega einfæra um að skera
úr um hvaða einstaklingar séu
hæfir til að taka þátt í af-
greiðslu mála hér í Ólafsfirði.“
Í 1 V
S
ars
w
Afmælisstemmning
Föstudagur: Beint frá London
Happy half an hour úr krana frá kl. 23.30-00.00 - Miðaverð kr. 1200
Laugarda
dm
Kynning á sýningunni Miðnæturhiti
Happy half an hour úr krana frá kl. 23.30-00.00 - Miðaverð kr. 1200
Sýningin Miðnæturhiti 6. og 7. mars
Erum byrjaðir að taka niður pantanir
Endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga á Akureyri:
Öflug starfsemi fyrsta árið
- fimmtíu manns sækja æfingar reglulega