Dagur - 27.02.1992, Blaðsíða 4

Dagur - 27.02.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 27. febrúar 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþrótiir), ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Þjónustan skert til frambúðar Seint á síðasta ári boðaði heilbrigðisráðherra verulegan niðurskurð á fjárveitingum til sjúkrastofnana um land allt. I framhaldi af því skipaði ráðherrann stjórnendum allra stofnananna að gera tillögur um sparnað frá þeirri fjárveitingu sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu, mismikinn eftir stofnunum. í 6. grein fjárlaga er síðan að finna ákvæði sem gefur fjármálaráðherra heimild til að ráðstafa „ákveðinni upphæð í tengslum við rekstrar- sparnað til hækkunar á fjárheimild einstakra rekstrarvið- fangsefna, í samráði við einstaka ráðherra og fjárlaga- nefnd," eins og það er orðað í fjárlagafrumvarpinu. Á venjulegu mannamáli þýðir þetta að sérhver ráðherra hefur ákveðna fjárhæð til ráðstöfunar sem honum er heimilt að skipta á milh stofnana til að mæta niður- skurðinum að einhverju leyti. Heilbrigðisráðherra fékk 499 milljónir króna til slíkrar eftirá úthlutunar og hefur nú tilkynnt hve mikið sjúkra- stofnanir á landsbyggðinni fá af þeirri upphæð. í bréfi heilbrigðisráðuneytisins, þar sem tilkynnt er um fyrr- nefnda skiptingu, kemur fram að ákveðið hefur verið að byggja á endanlegum fjárveitingum til sjúkrastofnana á þessu ári við fjárlagagerð að ári. Með öðrum orðum hefur ríkisstjórnin ákveðið að ekki sé um tímabundinn sparnað í heilbrigðisþjónustunni að ræða. Þeirri stofnun sem í ár er gert að spara 40 milljónir króna, er gert að gera slíkt hið sama að ári. Þær stofnanir sem ekki ná fram tilætluð- um sparnaði á annan hátt en að skerða þjónustu sína, verða að skerða hana til frambúðar. Þær fá ekki aukna fjárveitingu að ári. Þessi niðurstaða heilbrigðisráðuneytisins og ríkis- stjórnarinnar í heild veldur miklum vonbrigðum. Von- brigðin eru fyrst og fremst sprottin af því hve handa- hófskenndum aðferðum er beitt til að ná fram sparnaði, sem síðan verður hafður til viðmiðunar um ókomna tíð. Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri var t.d. gert að spara um 56 milljónir króna frá fjárveitingu í fjárlagafrumvarp- inu en fékk síðan 12 milljónir króna úr „pottinum" aftur. FSA er því gert að spara 44 milljónir króna á þessu ári - og sem fyrr segir hefur ríkisstjórnin tekið ákvörðun um að hér eftir verði árlega skorin niður þjónusta á FSA sem nemur 44 milljónum króna, miðað við rekstur spítalans árið 1991. Svipaða sögu er að segja af mörgum öðrum sjúkrastofnunum á landsbyggðinni. Ljóst er að með þessari aðferð eru heilbrigðisyfirvöld að taka peninga af einu svæði og færa þá yfir á annað. Niðurskurðurinn er nefnilega alls ekki sá sami alls staðar. Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri, benti á það í Degi í gær að rætt hefði verið um að 40% af þeim sparnaði, sem ríkið krafðist af stofn- unum, rynnu aftur til þeirra. „Hefðu allir fengið þessi 40%," sagði Ingi, „hefði skerðingin komið jafnt niður á öllum. Þessar 12 milljónir til FSA eru hins vegar aðeins um 21% af því sem okkur var gert að spara. Það þýðir að þær 10 milljónir, sem á vantar, eru teknar út úr þjónust- unni hér og færðar eitthvað annað. “ Þessi ábending framkvæmdastjóra Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri er fullkomlega réttmæt. Ríkisstjórnin hefur tekið pólitíska ákvörðun um að færa fjármuni til inn- an heilbrigðiskerfisins, nánast af handahófi, og byggja á þeirri tilfærslu til frambúðar. Sú ákvörðun verður að telj- ast mjög hæpin. BB. Samtök atvinmilífsins á Akureyri - skila þau okkur áleiðis? Á morgun, föstudag, gengst atvinnumálanefnd Akureyrar fyrir kynningarfundi að Hótel KEA og hefst hann kl. 13.30. Þessi fundur er ætlaður stjórn- endum fyrirtækja á öilum sviðum atvinnulífsins, jafnt forsvars- mönnum fyrirtækja, einstakling- um með eigin atvinnurekstur sem og forsvarsmönnum sjálfstæðra stofnana. Tilgangurinn með fundinum er að kanna hug forsvarsmanna atvinnulífsins á stofnun félags- skapar um hin fjölmörgu hags- munamál atvinnulífsins hér á Akureyri. Samtök af þessum toga eru starfandi mjög víða erlendis í bæjum og sveitarfélögum og eru yfirleitt tengd enska orðinu; „commerce" (verslun, viðskipti). Hér á Iandi hafa Hvergerðingar nú riðið á vaðið og stofnað sitt Verslunarráð auk þess sem versl- unarráð íslands hefur starfað á landsvísu með hagsmuni alls atvinnulífs landsmanna á stefnu- skrá sinni. Sjálfsagt spyrja ýmsir af þessu tilefni hvort einhver nauðsyn sé á félagsskap sem þessum. Hvort ekki sé nóg af félögum eða félaga- samtökum um málefni atvinnu- lífsins, auk þess höfum við hér starfandi bæði atvinnumálanefnd og Iðnþróunarfélag. Vissulega eru félög tengd atvinnulífinu starfandi á fjöl- mörgum sviðum, en þau hafa yfirleitt afmarkað sig við ákveðn- ar atvinnugreinar og starfa oft á landsvísu. Þau eru því vart í stakk búin til að ná fram breiðri samstöðu í hagsmunamálum alls atvinnulífsins, ekki síst ef þeir hagsmunir eru bundnir við ákveðið svæði. Jón Gauti Jónsson. En hvert er þá markmiðið með slíkum félagsskap? í sem stystu máli má segja að það sé að vinna sameiginlega að framfaramálum atvinnulífsins í bænum á öllum sviðum. Vissulega er og verður alltaf til staðar samkeppni milli einstakra fyrirtækja í sömu atvinnugrein og eins milli einstakra atvinnu- greina. Vegna smæðar fyrirtækj- anna hefur sú samkeppni fyrst og fremst verið bundin við heima- markaðinn, sem flestir eru sam- mála um að sé nú meira og minna mettaður. Vaxtarmöguleikana er því fyrst og fremst að finna á stærri mörkuðum, mörkuðum sem ná langt út fyrir landsteinana. Slíkt er þó vart raunhæfur möguleiki nema til komi aukið samstarf og samvinna fyrirtækja, ekki ein- ungis innan sömu framleiðslu- greina heldur einnig milli atvinnu- greina. Þar leynast víða sam- starfsmöguleikar ef að er gáð. í því sambandi má nefna ferða- þjónustu og matvælaframleiðslu. En hvernig næst þetta mark- mið í fyrstu lotu? í því sambandi má benda á nokkrar leiðir. Ein- stök fyrirtæki og atvinnugreinar þurfa að kynnast starfsemi hvers annars betur en nú er raunin og gætu stuttir morgunverðarfundir svo og útgáfa kynningarefnis ver- ið spor í þá átt. í öðru lagi ætti að taka sem fyrst upp samstarf við erlend verslunarráð, en félags- skapur sem þessi gefur góða möguleika á að ná slíkum tengslum. Þá mætti í þriðja lagi nefna að mjög brýnt er orðið að kynna eyfirskar framleiðsluvörur mun markvissara en nú er gert hér á Akureyri fyrir þeim fjöl- mörgu erlendu ferðalöngum er okkur sækja heim árlega. í fram- haldi af því vaknar sú spurning hvort félagsskapur þessi ætti ekki að athuga þann möguleika að koma á fót sérstakri söluskrif- stofu fyrir eyfirska framleiðslu, þjónustu og hugvit. Þannig mætti halda áfram að telja upp verkefni sem Samtök atvinnulífsins gætu haft á stefnu- skrá sinni, verkefni sem án efa koma til með að styðja við atvinnulífið hér í bæ og á það jafnt við um starfsemi rótgróinna fyrirtækja sem og þeirra sem nú eru að leggja upp með nýja starf- semi. Jón Gauti Jónsson. Höfundur er atvinnumálafulltrúi Akur- eyrarbæjar. Örn Orri Einarsson: Er líf eftir dauðaim? Spurningin um líf eftir dauð- ann hefur löngum verið manninum hugleikin. Svarið er einfalt. Það er ekkert sem tek- ur við þegar dauðann ber að. Er líf eftir dauðann? Af hverju skyldu menn sífellt vera að velta þessari spurningu fyrir sér, hvaða máli skiptir það hvort líf er eftir dauðann eða ekki? Jú, það er eins og mönnum sé fróun í að trúa því að eitthvað taki við eftir dauðann. Af hverju er mönnum fróun í því? Sennilega vegna þess að menn eru hræddir við endan- leikann sem fylgir dauðahugsun- inni. Það virðist vera mönnum sammerkt að vilja ekki viður- kenna þær staðreyndir sem þeim finnast óþægilegar. Þetta er stundum kallað afneitun og er eins konar varnarkerfi fyrir hugann. Við afneitum hlutunum vegna þess að við sættum okkur ekki við þau sálrænu ónot sem slíkum hugsunum fylgir. Ég minntist á endanleikann og þá er stutt yfir í einmanaleikann. Já, menn eru hræddir við að vera einir þegar þeir deyja. Við komum alltaf aft- ur og aftur að þessari hræðslu við einsemdina. Við verðum að hafa einhverja til að deila lífi okkar með, annars þrífumst við ekki. Þess vegna vilja menn einnig deila dauðanum með öðrum. Sem dæmi um afneitun má taka konu sem býr með alkahól- ista sem misþyrmir henni á alla lund bæði andlega og líkamlega. Menn spyrja sig af hverju yfirgef- ur konan ekki þennan ólánsama mann? Já, af hverju ekki? Jú, það er af því að þessi ágæta kona afneitar þeirri staðreynd að líf hennar er orðið óbærilegt með þessum ólánsama manni. Af hverju afneitar hún því? Henni er jú alltaf opnir þeir kostir að fara frá þessum manni eða vera hjá honum ella. Hvaða vonir hafði þessi kona ekki um ham- ingjusamt líf? Er ekki svolítið erfitt að viðurkenna að sú glæsta framtíð sem blasti við þessari ágætu konu sé nú hrunin til grunna? Jú, þess vegna afneitar konan þessum bitra sannleika. Er betra að lifa í vondu hjónabandi en öngu? Eins er með líf eftir dauðann, hugsunin um að allt sé búið við dauðann virðist mörgum mannin- um óbærileg, þess vegna er ein- faldast að afneita þeirri stað- reynd að lífinu sé lokið á dauða- stundinni. Af hverju í ósköpun- um ætti að vera líf eftir dauðann? Ef við lítum á þróunarferil lífvera kemur í ljós að líf kviknaði fyrst í frumhafi fyrir tugþúsundum ára. Síðan þróuðust lífverurnar hver af annarri eins og alkunna er. Hvar í ósköpunum kom líf eftir dauð- ann inn í þessa þróun? Hjá ein- frumungnum, amöbunni, risaeðl- unni, apanum eða manninum? Nei, líf eftir dauðann hefur verið sett inn í mörg trúarbrögð manninum til fróunar, einnig til þess að sveipa trúarbrögðin dul- úð hins óskiljanlega. Það hlýtur að vera markmið útaf fyrir sig að leita sannleikans. Ég er þess fullviss að dauðinn er endanlegur og mér líður ekkert illa með þá hugsun. Er ekki þess meiri ástæða til þess að nýta vel þann stutta tíma sem við höfum hér á jarðarkringlunni og sækja fast að efla þau verðmæti sem mestu skipta þ.e. að leitast við að verða betri og heiðarlegri siðferðisver- ur en við áður vorum? Til þess þarf mikinn aga. Orn Orri Einarsson. Höfundur er læknir viö Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.