Dagur - 27.02.1992, Síða 7
Fimmtudagur 27. febrúar 1992 - DAGUR - 7
Mynd: SBG
m er rætt“
Húsnæði er eitt af því sem
vantar sumstaðar og ég held að
áður en hægt er að vænta nýrra
fyrirtækja verði að tryggja að
hægt sé að vísa þeim á hentugt og
aðgengiiegt húsnæði fyrir sína
starfsemi.
Einn af vaxtarbroddunum í
atvinnumálum kjördæmisins er
náttúrlega ferðamálin, sem eru
mikið í umræðunni. Verið er að
lífga við ferðamálafélög og við
skulum ekki gleyma því að
Norðurland vestra hefur hingað
til ekki fengið mikla athygli af
hálfu ferðamanna svo þarna er
um lítt plægðan akur að ræða.
Nokkuð hefur verið rætt hvernig
INVEST eigi að tengjast þessari
atvinnugrein, því auðvitað er
sjálfsagt að félagið láti ferðamál
til sín taka eins og hvað annað.
Ég vil t.d. skoða þann möguleika
að vera hinum nýstofnuðu Ferða-
málasamtökum Norðurlands
vestra innan handar og eyða þá
minni tíma í hvert ferðamálafé-
lag fyrir sig.“
Aukin tengsl
við almenning
Meðal þess sem Iðnþróunarfélag
Norðurlands vestra hefur tekið
þátt í að koma á legg eru atvinnu-
þróunar- og átaksverkefni í
Húnaþingi, Skagafirði og á Siglu-
firði. Einnig hefur félagið átt þátt
í að koma á samstarfi á milli
ýmissa aðila í kjördæminu og
fundið erlenda samstarfsaðila
fyrir fyrirtæki á svæðinu. En
hvert telur Kristján að sé álit
almennings á INVEST?
„Eflaust hefur fólk margvísleg-
ar skoðanir á starfsemi INVEST
og ég er ekkert undrandi á þó
einhverjir spyrji að því hvað
félagið hafi verið að gera í gegn-
um tíðina. Það er félaginu sjálfu
að kenna, enda hefur upplýsinga-
flæði frá því ekki verið sem best.
Við ætlum okkur aftur á móti að
ráða bót á því núna og á síðasta
framkvæmdastjórnarfundi var
ákveðið að hefja útgáfu frétta-
bréfs sem kemur til með að koma
út ársfjórðungslega. Auk þess er
ætlunin að reyna að komast
meira inn í fjölmiðlana, en hins
vegar ber að hafa í huga að við
getum ekki hlaupið í blöðin og
útlistað hvað félagið er að gera
frá degi til dags, því margt af
okkar verkefnum þarfnast ákveð-
ins trúnaðar. Tengsl okkar við
almenning munu því væntanlega
koma til með að aukast í framtíð-
inni og það held ég sé af hinu
góða.“
Ein af baráttuleiðunum
- Er INVEST félag sem komið
er til að vera?
„Við erum að horfast í augu
við það núna að atvinnumálin
brenna mjög á fólki. Ég vil ekki
segja að iðnþróunarfélagið eitt
sér muni leysa alla hluti í sam-
bandi við það, en það er þó
ákveðið innlegg. Félagið getur
hugsanlega stuðlað að uppbygg-
ingu nýrra fyrirtækja, en ekki
síður hlúð að því sem fyrir er svo
það megi viðhaldast, eins og t.d.
frumvinnslugreinarnar.
Ákveðin varnarbarátta er háð í
ýmsum atvinnugreinum og fyrir
landsbyggðina sjálfa. Iðnþróun-
arfélög eru ein af leiðunum sem
hægt er að fara til að berjast í
þessum málum. Engu að síður eru
ýmsir aðilar að fást við atvinnu-
þróunarmál. Atvinnumálanefnd-
ir sveitarfélaga eru með þessi mál
á sinni könnu og staðbundin
átaksverkefni hafa verið sett á
legg auk iðnþróunarfélaga. Víða
er því verið að reyna að gera
eitthvað og mér fannst á sínum
tíma stór spurning hvernig þetta
gæti allt haldist í hendur. Það er
kannski óeðlilegt að menn séu
sífellt að bauka hver í sínu horni
og alltaf sé verið að hleypa af
stokkunum fleiri og fleiri eins-
manns „batteríum". Engu að síð-
ur heyrir maður stundum að fólk
sé tortryggið út í samstarf vegna
ótta við að tapa tækifærunum til
annarra. Þetta getur kostað það,
að menn séu að finna upp hjólið
á nýjan leik. Auðvitað er þetta
að sumu leyti skiljanlegt, en að
mínu mati verða menn að vinna
saman innan ákveðins ramma.
Þessi einsmanns „batterí" eru
heldur ekki góð og t.d. held ég,
að ef tveir menn störfuðu við iðn-
ráðgjöf hjá INVEST myndi það
þýða miklu meira enn tvíeflingu
starfseminnar.“
Aðaláherslan á
frumvinnslugreinarnar
- Hver er framtíðin í atvinnu-
málum á Norðurlandi vestra í
dag?
„Ég er ekki viss um að ástand-
ið sé jafn slæmt þegar á heildina
er litið og um er rætt. Fólk vill
gjarnan velta sér upp úr því að
ekki sé allt í lagi og slík umræða
nær jafnvel til staða þar sem
ástandið er hvað best. Án þess að
ég neiti að horfast í augu við
staðreyndir held ég að menn ættu
að eyða minni tíma í að velta sér
upp úr slíkum bölmóð. Allavega
tel ég mínum störfum og störfum
atvinnumálanefnda betur varið í
leit að einhverju jákvæðu, en við
úttektir á hversu slæmt ástandið
sé.
Ég held að fólk eigi frekar að
leita að því sem er jákvætt þegar
illa árar og hlúa vel að því sem til
staðar er, í stað þess að vera að
barma sér endalaust. Þegar
ástandið er síðan orðið betra get-
ur fólk snúið sér að leit enn betri
tækifæra. Mér finnst hjákátlegt
að eyða miklu púðri í einhverja
nýsköpun, sem kannski getur af
sér eitt til tvö störf, þegar hægt er
að hjálpa til við leit að lausnum á
vandamálum stórra fyrirtækja
þar sem líf heilu byggðalaganna
er í veði. Þess vegna ætlum við
hjá INVEST einmitt að leggja
aðaláhersluna á frumvinnslugrein-
arnar á næstunni og þá aðallega
sjávarútveginn." SBG
Skrifstofumaður með
bókhaldsþekkingu óskast
til að annast bókhald, erlend viðskipti og alla
almenna skrifstofuvinnu.
★ Framtíöarstarf.
Umsóknir með öllum helstu upplýsingum leggist inn
á afgreiðslu Dags fyrir 4. mars nk. merk: Framtíð.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram fyrsti
útdráttur húsbréfa í fyrsta flokki
1991. Komaþessi bréf til
innlausnar 15. apríl 1992.
Öll númerin verða birt í næsta
Lögbirtingablaði og upplýsingar
liggja frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni
á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og
verðbréfafyrirtækjum.
c£h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
IE(32TT(32®[k(S
Fyrirtæ keppni karaoki í Kjalla fimmtu 27. febr Stórglœsileg verðlaun \IU“ 1. verblaun f Utanlondsferð fyrir 2 1 og kvöldverður fyrir 20 manns * 2. verblaun Geislaspilari fró Hljómbæ ^ 3. verblaun Plötuverðlaun frá Hljómdeild KEA L UIi 11.111 Upplýsingar og skráning . , í keppnina eru í síma 22770 daginn . úar SIALLNN
t)
h
i
hefct
föstuda^nn
28. febtúai
nitsíéi
. febrúar
29. febrúar kl. 10-14
Nku.eV" ' S“ j£