Dagur - 27.02.1992, Side 13
Fimmtudagur 27. febrúar 1992 - DAGUR - 13
Laufásprcstakall.
Barnastarf nk. laugardag 29. febr.
kl. 11.00 í Svalbarðskirkju og kl.
13.30 í Grenivíkurkirkju.
Fjölskyldumessa í Grenivíkurkirkju
sunnud. 1. mars kl. 14.00 á æsku-
lýðsdegi þjóðkirkjunnar.
Börn og unglingar aðstoða.
Sóknarprcstur.
Kristniboðsfélag kvenna, hefur fund
29. febrúar kl. 15.00 að Víðilundi 20
(hjá Ingileif). Skúli Svavarsson
kristniboði mætir á fundinn, segir
okkur frá störfum kristniboðannna í
Kenya og Eþíópíu.
Stjórnin.
Samtök um sorg og sorg-
arviðbrögð verða með
fyrirlestur í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Séra Þórhallur Höskuldsson talar
um líknarhjálp og stuðning við deyj-
andi fólk og aðstandendur þeirra.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
80 ára er í dag Gunnar S. Sigurjóns-
son, húsasmiður, Víðilundi 24,
Akureyri.
Stígamót, samtök kvenna gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi. Símatími á Ak-
ureyri á fimmtudagskvöldum frá kl.
21.00-23.00. Síminn er 27611.
Minningarkort Landssamtaka
hjartasjúklinga fást í öllum bóka-
búðum á Akureyri.
Náttúrugripasafnið á Akureyri,
Hafnarstræti 81, sími 22983.
Opið á sunnudögum kl. 13-16.
ER AFENGI VANDAMAL
í ÞINNI FJÖLSKYLDU?
AL - ANON
Fyrir ættingja og vini
alkóhólista.
FBA - Fullorðin börn
alkóhólista.
I þessum samtökum getur þú:
★ Hitt aðra sem glíma við sams
konar vandamál.
★ Öðlast von í stað örvæntingar.
★ Bætt ástandið innan fjölskyldunnar.
★ Byggt upp sjálfstraust þitt.
Fundarstaður:
AA húsið, Strandgata 21, Akureyri,
síml 22373.
Fundir i Al-Anon deildum eru
alla miðvikudaga kl. 21 og
fyrsta laugardag hvers mánaðar kl.14.
FBA, Fullorðin börn alkóhólista,
halda fundi á þriðjudagskvöldum kl. 21.
Nýtt tólk boðið velkomið.
Leikklúbburinn Saga
Tíu litlir
negrastrákar
eftir Agöthu Christie.
Þriðja sýning
fímmtud. 27. febr. kl. 20.30.
4. sýning
fimmtud. 27. febr. kl. 20.30.
5. sýning
laugard. 29. febr. kl. 16.00.
Miðasala í Dynheimum,
sí,mi 22710, milli kl. 17 og 19.
Stjórn Samstöðu um óháð Island:
Heitir á íslendinga að fylkja
liði gegn þessum óheillagjömingi
- sem hún telur EES-samninginn vera
Leikfélag Húsavíkur
Gaukshreiðrið
eftir Dale Wasserman
í leikstjórn
Maríu Sigurðardóttur.
Sýningar:
Fim. 27. febr. kl. 20.30.
Laug. 29. febr. kl. 16.00.
Ath. breyttan sýningartíma.
Þrið. 3. mars kl. 20.30.
Takmarkaður
sýningarf jöldi.
Miðapantanir allan sólar-
hringinn í síma 41129.
Miðasalan er opin virka
daga kl. 17.00-19.00.
Leikfélag Húsavíkur
sími 96-41129.
Stjórn Samstöðu hefur fjallað um
nýútkomna þriðju útgáfu samn-
ingsins um Evrópskt efnahags-
svæði. Sú „bragarbót" sem
íslenskir ráðamenn voru að lof-
syngja felur það m.a. í sér, að
gengið hefur verið langt til móts
við kröfur EB-dómstólsins frá 14.
desember sl.
í sérstakri bókun með samn-
ingnum hafa EFTA-ríkin fallist á
að setja í lög sín ákvæði, sem fela
í sér að reglur EES-samningsins
séu æðri landslögum viðkomandi
ríkis, ef til árekstra kemur. Sé
leitað eftir úrskurði EB-dómstóls-
ins vegna deiluntála verður niður-
staða hans bindandi og endanleg.
Ef samningar takast ekki innan
EES-nefndarinnar og ekki er fall-
ist á að leita eftir úrskurði EB-
dómstólsins getur samingsaðili
gripið til gagnaðgerða og fellt
hluta af samningnum úr gildi. í
stað EES-dómstóls er þannig
komið flókið kerfi til lausnar
ágreiningsmála, þar sem Evrópu-
bandalagið hefur undirtökin á
flestum sviðum.
í öllum EFTA-ríkjunum nema
hér á landi draga ráðamenn enga
dul á, að samingsniðurstaðan nú
sé mun lakari fyrir EFTA en síð-
astliðið haust.
Evrópubandalagið setur það
skilyrði fyrir staðfestingu EES-
samnings af sinni hálfu, að því
verði tryggður veiðiréttur á 3000
tonnum af karfa innan íslenskrar
lögsögu. Jafnframt hefur nú verið
fallist á að endurskoða áður
afmörkuð veiðisvæði, ef ekki
tekst að ná þessum afla þar með
hagkvæmum hætti.
Sanmingnum hefur nú á ný
verið vísað til EB-dómstólsins til
umsagnar. Líklegt verður að
telja að dómstóllinn muni leggja
blessun sína yfir samninginn, þar
sem að í flestum atriðum hefur
verið orðið við kröfurn hans. Því
má búast við, að Alþingi fái
samninginn tii meðferðar og
ríkisstjórnin heimti að þingið
staðfesti hann með hraði.
Öll EFTA-ríkin nema ísland
líta nú á samninginn um Evrópskt
efnahagssvæði sem stundarfyrir-
bæri, áður en þau fái inngöngu í
Evrópubandalagið. Verði samn-
ingurinn samþykktur stóreykst
hættan á að ísland verði dregið
inn í Evrópubandalagið innan
fárra ára og glati þar með endan-
lega efnahagslegu og pólitísku
sjálfstæði. Stjórn Samstöðu heitir
á íslendinga að halda vöku sinni
og fylkja liði gegn þessum óheilla-
gjörningi.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja:
Fimmtíu ár frá stofimn bandalagsins
- afmælissamkoma í Borgarleikhúsinu á laugardag
BORGARBÍÓ
Salur A
Fimmtudagur
Kl. 9.00 Ingaló
íslensk kr. 700
Kl. 11.00 Góða löggan
Föstudagur
Kl. 9.00 Ingaló
íslensk kr. 700
Kl. 11.00 Góða löggan
Salur B
Fimmtudagur
Kl. 9.05 Bellibrögð
Kl. 11.05 Hvað með Bob
Föstudagur
Kl. 9.05 Bellibrögð
Kl. 11.05 Hvað með Bob
BORGARBÍÓ
© 23500
Um þessar mundir eru liðin
fimmtíu ár frá stofnun BSRB -
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. Að stofnun bandalagsins
stóðu 14 félög með um 1.500
félagsmenn innan sinna vébanda.
í dag eru aðildarfélögin 38 og
fjöldi félagsmanna um 16.000.
BSRB gegnir því hlutverki að
styðja og efla aðildarfélög sín í
því að skapa gagnkvæman skiln-
ing og samstöðu þeirra í barátt-
unni fyrir stéttarlegum, félagsleg-
um og menningarlegum hags-
munum; styrkja réttarstöðu opin-
berra starfsmanna og vera í
forsvari fyrir þeim í sameiginleg-
um hagsmunamálum. Hálfrar
aldar saga BSRB er vörðuð
áföngum í baráttunni fyrir nýjum
og auknum réttindum félags-
manna, og má nefna samnings-
og verkfallsrétt, lífeyrisréttindi
og greiðslur launa í veikinda- og
fæðingarorlofi.
BSRB hefur jafnan lagt
áherslu á að vinna að auknum
skilningi á þýðingu opinberrar
þjónustu. Af þessu leiðir að sam-
tökin hafa lagt áherslu á að láta
til sín taka í þjóðmálaumræðunni
og hafa áhrif á framvindu mála á
hverjum tíma. Mikilvægasta hlut-
verk BSRB er nú sem áður að
standa vörð um heildarhagsmuni
félagsmanna og vinna að stöðug-
leika og velferð í íslensku þjóð-
félagi.
í tilefni afmælisins efnir BSRB
til samkomu í Borgarleikhúsinu
laugardaginn 29. febrúar, kl.
15.00 til 17.30. Að lokinni
dagskrá verður móttaka í anddyri
leikhússins. Sérstök afmælis-
nefnd hefur haft veg og vanda af
undirbúningi samkomunnar, og
Sl. fimmtudagskvöld var þriðja
undanúrslitakvöldið í fyrirtækja-
keppninni í karaokesöng. Sjö
keppendur mættu til leiks og
sungu fyrir fyrirtæki sín. Það
voru tveir keppendur sem kom-
ust áfram og syngja á úrslita-
kvöldinu sem verður föstudaginn
13. mars nk.
Bankastarfsmenn voru áber-
andi í keppninni en sigurvegar-
arnir komu frá íslandsbanka og
Sparisjóði Svarfdæla. Fulltrúi
íslandsbanka, Birna Sigfúsdóttir
söng lagið Bluebayou sem Linda
Ronstandt söng á sínum tíma og
er það von hennar að BSRB-
félagar og aðrir velunnarar sam-
takanna líti inn í tilefni þessara
tímamóta.
fulltrúi Sparisjóðs Svarfdæla söng
Greatest Love of All. Þá voru
veitt aukaverðlaun fyrir sérstak-
lega líflega sviðsframkomu og
samhæfingu og voru það fulltrúar
Landsbankans sem hlutu þau.
Fyrir Landsbankann kepptu þeir
Guðmundur Lárusson og Sveinn
Brynjar Sveinsson.
Fimmta og næstsíðasta keppn-
in fer fram í Kjallaranum í kvöld
og er skráning í keppnina í Sjall-
anum í dag og Kjallaranum í
kvöld. Lög allra sigurvegarana
eru leikin á Aðalstöðinni á mánu-
dögum og fimmtudögum.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík
og sýsiumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu
Tilboð óskast
Næstsíðasta undanúrslita-
kvöldið í karaoke keppnmni
Jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JAKOBÍNU JÓNSDÓTTUR,
Laugarbrekku 14, Húsavík,
fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 29. febrúar kl. 14.
Synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn.
( endurinnréttingu á 307 m2 skrifstofuhúsnæði á
1. hæð í Hafnarstræti 107 á Akureyri.
Verktími er til 15. júní 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgar-
túni 7 Reykjavík til og með fimmtudegi 5. mars gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Gögnin verða einnig afhent hjá Kristjáni Baldurssyni,
tæknifræðingi, Hafnarstræti 95, Akureyri, sími
24451.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R. Borgartúni 7,
þriðjudaginn 10. mars 1992 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 SIMI 26844