Dagur - 27.02.1992, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 27. febrúar 1992 - DAGUR - 15
1992
Framtíðaráform og áhuga-
mál stúlknanna
Þá er komið að því að kynna
stúlkurnar tólf sem taka þátt í
fegurðarsamkeppninni. Þær
verða kynntar hér í stafrófsröð:
Anna Sigríður Jóhannes-
dóttir er 18 ára og kemur frá
Dalvík. Hún er 173 cm á hæð og
stundar nám í VMA á hand-
menntabraut og vinnur í Sælu-
húsinu á Dalvík. Framtíðar-
áform: Halda áfram á hand-
menntabraut, bæði hérlendis og
erlendis. Áhugamál: Handa-
vinna, íþróttir, ferðalög og elda-
mennska.
Berglind Skarphéðinsdóttir
er 18 ára Akureyrarmær, 169 cm
á hæð. Hún vinnur á Hótel KEA,
Súlnabergi. Framtíðaráform: Að
eignast fallegt heimili og lifa líf-
inu. Áhugamál: Góður matur,
bíómyndir, unnustinn.
Bergþóra Rós Lárusdóttir er
19 ára og kemur frá Hauganesi.
Hún stundar nám í VMA á
heilsugæslubraut. Framtíðar-
áform: Áframhaldandi nám í
heilsugæslu eða snyrtifræðum.
Áhugamál: Útivist, bíómyndir,
hundar og fjallaferðir.
Heiðný Helga Stefánsdóttir
er 20 ára Dalvíkurmær og er 170
cm á hæð. Hún vinnur í fiskverk-
un hjá Jóhannesi og Helga.
Framtíðaráform: Að fara í skóla.
Áhugamál: íþróttir og útivist.
Hólmdís Ragna Benedikts-
dóttir er 18 ára og kemur frá
Akureyri. Hún er 168 cm á hæð
og sundar nám í VMA. Framtíð-
aráform: Ljúka stúdentsprófi og
læra snyrtifærði. Áhugamál:
Bíómyndir og fjallaferðir.
Lovísa Sveinsdóttir er 19 ára
Akureyrarmær, 176 cm á hæð.
Hún stundar nám í VMA. Fram-
tíðaráform: Áframhaldandi nám.
Áhugamál: Ferðalög, góð tónlist,
góður matur og góður félags-
skapur.
Pálína Sigrún Halldórsdóttir
er 19 ára og kemur frá Tjörnesi.
Hún er 168 cm á hæð og stundar
nám í MA. Framtíðaráform:
Fara í Bændaskólann á Hólum og
svo í Háskólann. Áhugamál:
Hestamennska, blak, ferðalög og
bíómyndir.
Ragnheiður Vala Arnardótt-
ir er 17 ára Akureyrarmær, 168
cm á hæð. Hún bíður eftir starfi á
barnaheimili. Framtíðaráform:
Verða fóstra. Áhugamál: Börn,
golf, sólarlönd, dýr, kærastinn.
Rut Tryggvadóttir er 19 ára
Akureyrarmær, 173 cm á hæð.
Hún stundar nám í VMA. Fram-
tíðaráform: Ljúka stúdentsprófi
og fara í hjúkrun. Áhugamál:
Útivist, ferðalög, líkamsrækt,
góðar kvikmyndir.
Sunna Sigurðardóttir er 19
ára og frá Akureyri. Hún er 174
cm á hæð og stundar nám í MA.
Framtíðaráform: Lögfræðinám í
Háskólanum. Áhugamál:
Tónlist. Hún hefur lært á píanó í
12 ár.
Svanhildur Margrét Ingvars-
dóttir er 19 ára Akureyrarmær,
173 cm á hæð. Hún vinnur hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa.
Framtíðaráform: Komast í skóla
og læra hárgreiðslu. Áhugamál:
Elda mat, sund, börn, ferðalög,
tónlist.
Unnur Anna Valdimarsdótt-
ir er 19 ára Ólafsfjarðarmær, 172
cm á hæð. Hún stundar nám í
MA. Framtíðaráform: Verða
læknir, eiga stóra fjölskyldu og
verða besta mamma í heimi.
Áhugamál: Útivist og íþróttir,
tónlist og ferðalög, borða góðan
mat og borða mikið. SS
I
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Tíndastóll upp að hliö KR
- hafði betur í viðureign liðanna á þriðjudagskvöld, 71:67
Níundi sigur Tindastóls í röð
varð að veruleika í íþróttahús-
inu á Sauðárkróki sl. þriðju-
dagskvöld þegar liðið fékk
KR-inga í heimsókn. Heima-
mönnum tókst að sigra, 71:67
og ná með því KR að stigum.
Möguleikar Stólanna til að
komast í úrslitakeppnina hafa
því stóraukist.
Tindastóll byrjaði af krafti og
gerði fyrstu fjórar körfurnar í
leiknum. Staðan á 4. mín. var
17:6 fyrir heimamenn, en þá fóru
gestirnir að finna smugur á vörn
Tindastóls og söxuðu á forskotið.
Þriggja stiga munur var á liðun-
um bæði á 11. og 16. mín., 29:26
og 36:33. Með góðum varnarleik
tókst Stólunum að halda foryst-
unni fram í hálfleik en þá var
staðan 44:40.
f seinni hálfleik fóru taugarnar
að titra hjá liðsmönnum beggja
liða og á köflum voru mistök tíð
á báða bóga. Stólarnir juku for-
ystuna fyrstu mínúturnar og
komust í 57:44, en þá endur-
skipulögðu KR-ingar lið sitt og
minnkuðu muninn niður í 59:56.
Þannig var staðan um miðjan
hálfleikinn, en eftir þetta gekk
báðum liðum illa að koma bolt-
anum niður um körfuhringinn. Á
18. mín. var staðan 69:63, en þá
kom John Bear með góðan enda-
sprett og gerði tvær laglegar
körfur. Þegar um 20 sek. voru til
leiksloka var staðan 69:67 og
KR-ingar í sókn. Páll Kolbeins-
son reyndi að jafna leikinn, en
hitti ekki og sóknarvilla var
dæmd á KR. Pétur Guðmunds-
son tók síðan vítaskotin fyrir
Tindastól og skoraði úr báðum.
Staðan í leikslok 71:67.
„Þetta var jafn leikur og sigur-
inn hefði getað fallið hvorumegin
sem var. Við vissum að þetta yrði
mjög erfitt þar sem Stólarnir eru
sterkir á heimavelli og þess vegna
ákváðum við að spila yfirvegað
og sjá hvernig gengi. Okkar lið er
vægast sagt vængbrotið, án Axels
og Sigurðar Jónssonar, auk þess
sem veikindi hafa háð okkur svo
ég er svo sem ekkert óánægður
með úrslitin. Við fáum góða
hvíld núna og ég vona að okkur
takist að vinna restina,“ sagði
Birgir Guðbjörnsson þjálfari KR
að leik loknum.
Valur Ingimundarsson, þjálfari
og leikmaður Tindastóls, sagði
eftir leikinn að í liðinu hefði
komið fram ákveðin þreyta og
mátt rekja mistökin til hennar.
Hann sagðist samt vera bjartsýnn
á framhaldið.
„Það er búin að vera mikil
keyrsla hjá okkur síðasta mánuð-
inn og komin þreyta í mannskap-
inn. Ég er því ánægður með
þennan sigur og nú verðum við
bara að leggja allt í leikinn í
Njarðvík. Við höfum hingað til
treyst á okkur sjálfa, en ekki KR-
inga og munum halda því
áfram,“ sagði Valur.
Bestu menn leiksins á Sauðár-
króki voru Ivan Jonas og Pétur
Guðntundsson hjá Stólunum, en
Guðni Guðnason og John Bear
héldu uppi liði KR. SBG
Stig Tindastóls: Ivan Jonas 22, Pétur
Guðmundsson 20, Valur Ingimundarson
19, Haraldur Leifsson 8, Einar Einarsson
2.
Stig KR: John Bear 24, Guðni Guðnason
20, Hermann Halldórsson 9, Páll Kol-
beinsson 7, Óskar Kristjánsson 5, Lárus
Árnason 2.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar
Skarphéðinsson. Stóðu sig vel.
Pétur Guðniunds.son átti góðan leik með liði sínu Tindastól. Mynd: sbg
Handknattleikur:
KA-menn steinlágu á Selfossi
- höfnuðu í 4. sæti í deildarkeppninni
B-keppnin:
Þorbergur
velur hóp
Þorbergur Aðaisteinsson,
landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, hefur valið 19
manna hóp til að taka þátt í
lokaundirbúningi fyrir B-
keppnina í Austurríki í
næsta mánuði.
Það kemur fátt á óvart í vali
Þorbergs. Alfreð Gíslason
stóð við fyrri yfirlýsingar um
að gefa ekki kost á sér en bæði
Héðinn Gilsson og Júlíus Jón-
asson eru í hópnum. Júlíus á
þó við meiðsli að stríða og
sömuleiðis Kristján Arason.
Fækkað verður í hópnum nið-
ur t 16 2-3 dögum fyrir keppni
en liðið fer út 17. mars. B-
keppnin hefst 19. mars.
Landsliðshópurinn er þann-
ig skipaður:
Guðmundur Hrafnkelsson Val
Bergsveinn Bergsveinsson FH
Sigmar Þröstur Óskarsson ÍBV
Gunnar Beinteinsson FH
Valdimar Grímsson Val
Bjarki Sigurðsson Víkingi
Birgir Sigurðsson Víkingi
Geir Sveinsson Avidesa
Einar Sigurðsson Seifossi
Patrekur Jóhannesson Stjörnunni
Gunnar Andrésson Fram
Konráð Olavsson Dortmund
Jakob Sigurðsson Val
Héðinn Gilsson Dússeldorf
Júíus Jónasson Bidasoa
Sigurður Bjarnas. Grosswallstad
Gunnar Gunnarsson Víkingi
Jón Kristjánsson Val
Kristján Arason FH
KA-menn misstu endanlega af
þriðja sætinu í 1. deildar-
keppninni í handknattleik þeg-
ar liðið steinlá fyrir Selfyssing-
um á Selfossi í fyrrakvöld.
Heimamenn unnu auðveldan
sigur, 32:21, og hafa tryggt sér
þriðja sætið þótt þeir eigi einn
leik eftir. KA-menn höfnuðu í
fjórða sæti og leika að öllum
líkindum við ÍBV í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar.
KA-menn náðu sér aldrei á
strik gegn frískum Selfyssingum
og það varð fljótlega ljóst hvert
stefndi. Heimamenn skoruðu
þrjú fyrstu mörkin og KA-menn
náðu ekki að svara fyrir sig fyrr
en eftir 8 mínútur þegar Alfreð
fann loksins smugu framhjá Ein-
ari Þorvarðarsyni. Einar reyndist
KA-mönnum erfiður í fyrri hálf-
leiknum og varði oft mjög vel.
Selfyssingar náðu á tímabili 5
marka forystu en KA-menn
minnkuðu muninn í 12:14 fyrir
hlé.
KA-menn virtust vera að ná
sér á strik í lok fyrri hálfleiks en
það skilaði sér ekki í þeim seinni.
KA-mönnum gekk illa að ráða
við Sigurð Sveinsson þótt þeir
tækju hann úr umferð og Einar
Gunnar Sigurðsson hafði góð
áhrif á Selfossliðið þegar hann
kom inná en hann spilaði ekkert í
fyrri hálfleik vegna meiðsla. KA-
menn reyndu að taka bæði Sigurð
og Einar Gunnar úr umferð en
aðrir leikmenn Selfyssinga sáu
um að klára dæmið með Sigurð
Bjarnason í broddi fyikingar.
Alger deyfð ríkti yfir KA-lið-
inu í leiknum og enginn leik-
manna þess sýndi sitt rétta andlit.
Vonbrigði þeirra leyndu sér ekki
og fékk tíðindamaður Dags að
kenna á því þegar honum var vís-
að kurteislega úr búningsklefa að
leik loknum.
í herbúðum Selfyssinga ríkti
hins vegar mikil gleði og Sigurður
Sveinsson var ánægður með úrslit-
in. „Við náðuni upp góðri
stemmningu og áhorfendur voru
virkilega með á nótunum. Ég
bjóst við erfiðari leik en eins og
við spiluðum í kvöld erum við ill-
sigranlegir á heimavelli. Það er
alltaf góð tilfinning að vinna leik
og sérstáklega að vinna Alfreð og
félaga,“ sagði Sigurður Sveins-
son.
KA-menn leika við liðið í 5.
sæti í úrslitakeppninni og í dag
eru það Haukar. Líklegast verð-
ur þó að telja að Eyjamenn verði
mótherjar KA því þeir spila við
Breiðablik í Eyjum annað kvöld
°g tryggja sér fimmta sætið með
sigri. -bjb
Mörk Selfoss: Sigurður Sveinsson 9/5,
Sigurður Bjarnason 8, Einar Gunnar Sig-
urðsson 4, Gústaf Bjarnason 3, Kjartan
Gunnarsson 3, Jón Þórir Jónsson 2, Ein-
ar Guðmundsson 2, Sverrir Einarsson 1.
Einar Þorvarðarson varði 13 skot og
Gísli Felix Bjarnason 1.
Mörk KA: Alfreð Gíslason 6, Erlingur
Kristjánsson 3, Árni Stefánsson 3, Stefán
Kristjánsson 3/1, Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson 2/2, Árni Páll Jóhannsson 2,
Pétur Bjarnason 2. Axel Stefánsson varði
7 skot og Bjöm Björnsson 2.
Dómarar: Jón Hermannsson og Guð-
mundur Sigurbjörnsson.
Úrvalsdeildin
A-riðill
Tindastóll-KR 71:67
UMFN 22 19- 3 2091:1779 38
KR 23 15- 8 2059:1881 30
Tindastóll 23 15- 8 2111:2019 30
Snæfell 22 5-17 1764:2058 10
Skallagrímur 22 4-18 1779:2158 8
Handknatdeikur
1. deild
Selfoss-KA 32:21
FH 22 18-2- 2 614:503 38
Víkingur 22 17-2- 3 566:498 36
Selfoss 21 13-1- 7 572:538 27
KA 22 10-4- 8 549:539 24
Haukar 22 94- 9 554:539 22
Fram 22 94- 9 515:533 22
ÍBV 21 9-3- 9 557:529 21
Stjarnan 22 10-1-11 537:516 21
Valur 20 6-5- 9 480:486 17
Grótta 22 54-13 443:528 14
HK 22 4-2-16 493:551 10
UBK 20 2-2-16 363:481 6