Dagur - 20.03.1992, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 20. mars 1992
Fréttir
íþróttafélög semja við Kreditkort hf.
um útgáfu Sportkorta:
Mun sldla félögumim
einhverjum aurum“
- segir formaður KA
Brauðver heitir nýja bakaríið í Ólafsfirði en þar ráða ríkjum þau Soffía Húnfjörð og Arnbjörn Arason. Blaðamaður
átti leið um hjá þeim á dögunum þegar bakaríið hafði verið opið á hálfa aðra viku og var gott í þeim hljóðið. Arn-
björn sagðist hafa búist við góðri aðsókn meðan nýjabrumið væri á þessu en hún virtist ætla að haldast lengur en
hann þorði að vona. Auk þess gengi vel að afla fastra viðskiptavina, til dæmis hefði hann verið að selja brauð um
borð í tvo togara. Mynd: -ph
Húsavík:
Mikilvægt að stjóraun uppgræðsl-
unnar fari fram heima í héraði
- segja Húsgullsmenn
- reikna með aukinni atvinnu við landgræðslustörf
Knattspyrnufélag Akureyrar
er meðal sex íþróttafélaga sem
undirritað hafa samning við
Kreditkort hf. um útgáfu á
nýju alþjóðlegu tengikorti við
Eurocard sem bera mun nafnið
Ólafsfjörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Félagsmálaráð hefur sam-
þykkt umsókn frá Ólöfu Ýr
Lárusdóttur um dagmömmu-
leyfi.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
tillögu Sigurðar Björnssonar
um að gert verði skipurit fyrir
bæjarkerfið.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að kaupa tölvu af gerðinni
Laser 386 fyrir Bókasafn
Ólafsfjarðar. Aætlaður kostn-
aður er 140 þúsund krónur.
■ Sigurður Björnsson hefur
lagt fram tillögu í bæjarráði
um að gerð verði athugun á
því að hvort mögulegt væri að
ráðast í byggingu þjónustu-
fbúða fyrir aldraða. Gerð
verði lausleg athugun á þörf
fyrir slíkt húsnæði, hvernig
eignarhaldi gæti verið háttað
og möguleikum á fjármögnun.
Sérstaklega verði aflað upplýs-
inga um þessi mál frá öðrum
sveitarfélögum. Skýrsla um
málið verði tekin til umræðu á
aprílfundi bæjarstjórnar.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að Bjarni Kr. Grímsson, Ósk-
ar Þór Sigurbjörnsson og
Sigurður Björnsson ásamt
mökum verði fulltrúar Ólafs-
fjarðar á vinabæjamóti í
Lovisa í Finnlandi næsta
sumar.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að veita Golfklúbbi Ölafs-
fjarðar 30 þúsund króna styrk
vegna Norðurlandsmóts í golfi
í Olafsfirði á komandi sumri.
■ Bæjarráð hefur heimilað
bæjarstjóra að samþykkja af
hálfu bæjarins kaupsamning
Laxóss hf. við skiptaráðanda
vegna yfirtöku á hluta af eig-
um Óslax hf. og réttindum
þeim tengdum.
■ Almannavarnanefnd hefur
falið bæjarfógeta og bæjar-
stjóra að láta útbúa límmiða
sem á væru prentuð símanúm-
er læknis, lögreglu og slökkvi-
liðs.
■ Á síðasta bæjarstjórnar-
fundi lagði Björn Valur Gísla-
son fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Ólafsfjarðar
samþykkir á fundi sínum 10/3
1992 að allar meiri fram-
kvæmdir á vegum bæjarins
skuli boðnar út. Hvað varðar
smærri framkvæmdir verði
leitað samanburðar hjá verk-
tökum.
■ Bæjarráði verði falið að
gera vinnureglur vegna þessa
þar sem fram skal koma m.a.
við hvaða fjárhæðir skal mið-
að til að skilja að stærri fram-
kvæmdir og smærri.
Markmið þessarar sam-
þykktar er að lækka kostnað
og leita hagkvæmustu og ódýr-
ustu leiða fyrir bæjarfélagið,
jafnframt því að tryggja
heimaaðilum vinnu við fram-
kvæmdir á vegum bæjarins."
Bæjarstjórn samþykkti sam-
hljóða að vísa þessari tillögu
til bæjarráðs.
Sportkort. Um þetta kort
munu gilda sömu skilmálar og
um almenn Eurocard kort.
Félögin munu fá ákveðinn
hluta af árgjaldi sem korthafar
greiða fyrir kortið en þetta
gjald verður hærra en árgjald
almenns Eurocard korts. Til
viðbótar munu félögin fá styrk
frá fyrirtækjum sem íþróttafé-
lögin gera samning við um að
ákveðinn hundraðshluti við-
skipta með kortinu renni til
íþróttafélaganna.
Sigmundur Pórisson, formaður
KA, segir að öðrum íþróttafélög-
um sé heimilt að gera samskonar
samning um Sportkort og áður-
nefnd sex félög hafa nú þegar
gert. Aðeins þurfi að uppfylla
skilyrði um að útvega minnst 300
korthafa og 25 fyrirtæki sem til-
búin eru til að veita afslátt sem
renni til íþróttafélaganna. Sig-
mundur segist því reikna með að
íþróttafélaginu Þór verði kynnt
þetta mál á næstu dögum.
Sportkortin munu hafa á fram-
hlið liti og merki viðkomandi
íþróttafélags en næstu mánuði
verður kortið hannað. Ef tekið er
dæmi um notanda sem hefur
Sportkort með félagsmerki KA
og hefur viðskipti við verslun eða
fyrirtæki sem gert hefur samning
um ákveðinn afslátt gegn greiðslu
með slíku korti, þá rennur sá
afsláttur beint til félagsins, þ.e.
KA í þessu tilfelli.
Sigmundur segir að á þessari
stundu sé erfitt að meta tekju-
möguleika af þessari nýbreytni.
„En ég held að þetta geti skilað
félögum einhverjum aurum og
það er allt betra en ekkert í
þessu,“ sagði Sigmundur og bætti
við að framundan sé mikið starf
við að kynna fyrirtækjum þetta
fyrirkomulag og ná samningum
við þau um afslætti. JÓH
Bústjóra þrotabús rækjuverk-
stniðjunnar Árvers hf. á
Árskógsströnd hefur borist til-
boð í bæði kaup og leigu á
eignum þrotabúsins, þ.m.t.
verksmiðjuhúsinu og vélum til
rækjuvinnslu. Frestur til að
Þrír þingmenn hafa lagt fram á
Alþingi tillögur um að mennta-
málaráðherra skipi nefnd til
„að kanna reynslu erlendis frá
af mati á skólastarfi og móta
tillögur um hvernig best verði
staöið að þessum málum hér á
landi. í nefndinni eigi sæti
m.a. fulltrúar Kennarasam-
bands íslands, Hins íslenska
kennarafélags, Félags háskóla-
kennara, fræðslustjóra og
Rannsóknarstofnunar uppeld-
ismála, auk menntamálaráðu-
neytisins. Úttekt þessi nái yfir
öll skólastig.“
í greinargerð með tillögunni
segir að það færist mjög í vöxt
erlendis að skólar geri úttekt eða
láti meta starf sitt og þá þjónustu
sem þeir bjóða upp á. Petta sé
„Nú er að koma í Ijós að þetta
skilar atvinnu heim í héraðið
og út um Iand, en menn hafa
haldið að uppgræðsla kostaði
bara peninga og það væri tóm
vitleysa að standa í þessu. Það
er eytt fullt af peningum í land-
græðslu og með þeim aðferðum
sem við erum að tala um, er
verið að að flytja peningana,
vinnuna og afraksturinn til
okkar. Við höfum mannskap-
inn,“ sagði Sigurjón Benedikts-
son, forsvarsmaður Húsgulls,
sem á morgun stendur fyrir
ráðstefnu um verndun og
endurheimt landkosta á Hótel
Húsavík.
„Það þyrfti að stofna útstöð,
helst sameiginlega frá Skógrækt-
skila inn tilboðum rann út sl.
miðvikudag.
Arnar Sigfússon, bústjóri
þrotabús Árvers, segir að borist
hafi eitt tilboð í kaup á öllum
eignum þrotabúsins og annað
leigutilboð. Þá hafi borist nokkur
auk þess þekkt greiningartæki í
stjórnunarfræði og beitt á fyrir-
tæki, stofnanir og samtök. Hér á
landi sé svona mat skammt á veg
komið.
Nefnd eru dæmi frá Norður-
löndunum þar sem unnið er að
því að koma á samræmdu mati á
skólastarfi og frá Bandaríkjunum
þar sem lengi hafi tíðkast að gera
úttektir á háskólum og háskóla-
deildum, einstökum starfsþátt-
um, sem og rannsóknum og
kennslu og jafnvel starfsmennt-
un, kennurum og starfsmönnum í
st j órnunarstörfum.
Markmið úttektar er að vera
hvatning og leiðbeining fyrir
þann sem hún beinist að. Önnur
ástæða til þess að gera slíka
úttekt er að yfirstjórn skóla geti
inni og Landgræðslunni, hér
heima í héraði. Landgræðslan er
undirmönnuð, þó við höfum
fengið ómetanlega hjálp frá
þeim. Uppgræðsluverkefnin eru
gríðarleg á okkar svæði og það er
mikilvægt að stjórnun þeirra fari
fram héðan,“ segja forsvarsmenn
Húsgulls. Með tilkomu raðsán-
ingarvélanna breytast starfshættir
við uppgræðsluna mjög. Væntan-
lega verður mun meiri áhersla
lögð á sáningu og áburðardreif-
ingu með tækjabúnaði á jörðu
niðri í framtíðinni, heldur en
með dreifingu úr flugvélum. Hús-
gullsmönnum líst vel á þá hug-
mynd að stofna útstöð til stjórn-
unar framkvæmdanna í Pingeyj-
arsýslu, „eða á vígvellinum
sjálfum,“ eins og þeir segja.
tilboð í einstakar eignir þrotabús-
ins.
Arnar segir að næstu daga
verði tilboðin skoðuð og afstaða
tekin til þeirra í samráði við
helstu kröfuhafa í þrotabúið.
fylgst sem best með gangi mála í
einstökum deildum og námsbraut-
um, ma. til þess að geta ráðstafað
betur fé, mannafla og húsnæði. í
þriðja lagi getur slíkt mat verið
einskonar gæðastimpill á starf
háskóla og fagskóla.
í greinargerðinni segir að auk
þessa megi tína til ýmis rök fyrir
mikilvægi úttekta á skólastarfi.
„T.d. hefur fjöldi athugana sýnt
að skólastarf, sem sýnir alhliða
góðan árangur, einkennist mjög
af samkennd og samvinnu milli
kennara, sameiginlegri stefnu-
mótun innan skólans um mark-
mið og leiðir, skýrum kennslu-
markmiðum, forustu í kennslu-
málum, stöðugleika og samfellu í
skólastarfinu, góðum tengslum
við nemendur og virku sjálfs-
matskerfi.“
„Menn þurfa að breyta hugs-
unarhættinum þannig að þeir
horfi á landið út frá sjónarhorni
bóndans. Við getum verið á mjög
gróðurfarslega viðkvæmum
svæðum þar sem er mikil eyðing,
en þó getur verið allt í lagi að
stunda þar landbúnað, með
skynsamlegri nýtingu. Þess vegna
er svo mikilvægt að hætta þessari
miðstýringu og fara að vinna út
frá hverri jörð. Ef á að fara að
vinna svona verður því ekki
stjórnað sunnan úr Reykjavík,
það verður að gera hér á svæð-
inu,“ sagði Árni Sigurbjarnar-
son, forsvarsmaður Húsgulls.
Húsgullsmenn hafa mikinn
áhuga á að drifið verði í að græða
upp Hólasand, svona rétt til að
sýna og sanna að slík framkvæmd
sé möguleg.
„Við erum ekki með neitt
svartnættishjal. Það er geysilega
slæmt ástand í sambandi við
gróðurmál og uppblástur en á
ráðstefnunni verða kynntar leiðir
sem eru færar til úrbóta. Land-
búnaðurinn á svæðinu er ekki
vandamálið, heldur lykillinn að
lausn vandans. Það er nauðsyn
að landið haldist í byggð,“ sagði
Árni. IM
í lok greinargerðarinnar segir:
„Talið er að skólakerfið hér á
landi sé orðið mjög umfangsmik-
ið og yfirgripsmikið og erfitt sé
fyrir menntamálaráðuneytið að
fylgjast með gæðum kennslu og
náms í hverjum skóla fyrir sig,
hvort sem er á grunnskóla-, fram-
haldsskóla- eða háskólastigi.
Skýrsla OECD um menntastefnu
á Islandi frá 1987 gefur í skyn að
þörf sé á aðhaldi og samræmingu
í skólamálum og tengslum milli
skólastiga. Með því að beita
matsaðferðum á skólakerfið væri
betur hægt að tryggja gæði
skólans."
Flutningsmenn þessarar tillögu
eru Valgerður Sverrisdóttir,.
Guðný Guðbjörnsdóttir og Össur
Skarphéðinsson. -ÞH
Þrotabú Árvers á Árskógsströnd:
Kauptilboð í eignir til skoðunar
óþh
Alþingi:
Tekið verði upp gæðamat í skólastarfi