Dagur - 20.03.1992, Qupperneq 3
Föstudagur 20. mars 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Kjör forseta íslands skal
fara fram 27. júní í sumar
Hitaveitumál á Hvammstanga:
„Reiknað með óbreyttum
tekjiim milli ára“
- segir Bjarni Þór Einarsson, sveitarstjóri
„Þegar hreppsnefnd ákvað í
október árið 1990, að breyta
um sölufyrirkomulag hjá Hita-
veitu Hvammstangahrepps, úr
hemlum yfir í rennslismæla,
var það gert til að auka vatns-
nýtingu, en hvorki til að
hækka né lækka heildartekjur
veitunnar,“ segir Bjarni Þór
Einarsson, sveitarstjóri á
Hvammstanga.
Blaðið greindi frá því í gær að
almenn óánægja ríkti hjá íbúum
Hvammstangahrepps vegna gjald-
töku fyrir heitt vatn og að Verka-
lýðsfélagið Hvöt væri búið að
boða til almenns borgarafundar
um málið. Ástæðan er sú, að
menn vilja meina að þeir þurfi að
greiða meira fyrir vatnið núna en
í hemlakerfinu þó vatnsnotkun
hafi minnkað.
„Hér hefur verið mjög mikil
notkun á heitu vatni til upphitun-
ar. Hinu nýja sölufyrirkomulagi
er ætlað að koma í veg fyrir þá
sóun og reynslan hjá öðrum
sveitarfélögum hefur sýnt að það
gengur eftir. Sóun á heitu vatni,
einkum að sumarlagi, hefur í för
Blönduós:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að óska eftir því við starfs-
mann Framtaks að hann hefji
nú þegar vinnu að stofnun
hlutafélags til að reka sumar-
hús og ferðamannaþjónustu
hverskonar á Sýslumannstúni.
■ Framkvæmdanefnd kirkju-
byggingar hefur gert bæjarráði
grein fyrir að samkvæmt áætl-
un sé gert ráð fyrir að nýja
kirkjan á Blönduósi verði tek-
in í notkun á hausti komandi.
■ Æskulýðs- og íþróttanefnd
hefur lagt til að allir nefndar-
menn á vegum bæjarins gefi
nefndarlaun sín til byggingar
íþróttahúss.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt umsókn flugklúbbsins á
Blönduósi um að fá að endur-
reisa flugskýli á grunni flug-
skýlisins sem fauk í febrúar-
veðrinu 1991.
■ Einnig hefur nefndin sam-
þykkt fyrir sitt leyti, umsókn
Jónasar Skaftasonar um starf-
rækslu á gistiheimili á 1. hæð
Blöndubyggðar 10 og vísað
málinu til bæjarstjórnar.
■ Bygginganefnd beinir því
til lögregluyfirvalda að taka á
bílum sem lagt er ólöglega á
götum bæjarins.
■ Bygginganefnd harmar að
bæjaryfirvöld skuli hafa heim-
ilað efnistöku úr Skúlahorni til
vegagerðar í Klaufinni og
skorar á viðkomandi að ganga
frá efnistökustaðnum nú
þegar.
■ Ennfremur átelur nefndin
bæjarstjórn fyrir að sniðganga
nýsamþykktar reglur um með-
ferð umsókna um atvinnu-
starfsemi í íbúðarhúsum og fer
fram á að hún geri nefndinni
grein fyrir ákvörðun sinni
varðandi Húnabraut 27.
■ Veitunefnd hefur sam-
þykkt samning við Orkustofn-
un um rannsóknir á Reykj-
um.
með sér óþarfa rekstrarkostnað
við hitaveituna, gengið er á
vatnsforða að óþörfu, auk þess
sem hún leiðir til kostnaðarsamra
virkjunarframkvæmda fyrr en
ella. Með breytingu yfir í rennslis-
mæla vildum við m.a. koma í veg
fyrir þetta. Heildartekjur hita-
veitunnar aukast ekki við breyt-
inguna. í fjárhagsáætlun hrepps-
ins er reiknað með óbreyttum
tekjum hjá Hitaveitunni miðað
við síðasta ár, sem eru 19,1 millj-
Dagblaðið Tíminn slær því upp
á forsíðu í gær að nú „hrikti í
listalífi Akureyrar“ í kjölfar
fíkniefnamálsins sem rann-
sóknarlögreglan hefur haft til
meðferðar að undanförnu. Þar
er fullyrt í inngangi að „margir
þeirra“ sem yfirheyrðir hafa
verið vegna þess máls tengist
„svqkölluðu Listagili og munu
koma til með að hafa aðstöðu
þar“. Síðan segir: „Rannsókn-
arlögreglan á Akureyri stað-
festi þetta í samtali við
Tímann...“
Varla þarf að tíunda það fyrir
Akureyringum hversu miklar
sögusagnir hafa verið á kreiki um
hassmálið. Nú er Tíminn búinn
að leggja fram sinn skerf því að
sögn rannsóknarlögreglumanns-
ins sem ræddi við blaðamann
Tímans þá er enginn fótur fyrir
því að hann hafi staðfest eitt eða
neitt í því samtali.
Hreiðar Eiríksson rannsóknar-
lögreglumaður á Akureyri sagð-
ist hafa átt samtal við blaðamann
Tímans og hafi hann borið undir
hann sögur sem hann hafði heyrt
og viljað fá staðfestingu á þeim.
„Eg sagðist hvorki vilja staðfesta
eða hafna einu né neinu því mál-
„Sala á færavindum frá DNG
hefur gengið vel á innanlands-
markaði. Nægur fiskur er allt
frá Hornafírði vestur um til
Bolungarvíkur. Krókaveiði-
menn á Breiðafírði eru að fá
þann gula og nýjustu fréttir
herma af góðum aflabrögðum
BoIvíkinga,“ sagði Ásgrímur
Benjamínsson sölu- og við-
gerðarmaður hjá DNG á
Akureyri.
DNG færavindan hefur farið
sigurgöngu ekki aðeins á íslandi
heldur er vindan seld um allar
álfur. Sjómenn jafnt í Alaska
sem við Persaflóann nota vind-
una með góðurn árangri. „Öflug
kynningarstarfsemi undangeng-
inna ára sem góð reynsla hefur
skilað sér ríkulega í sölu á vind-
unni,“ segir Ásgrímur, en hvern-
ón króna þegar búið er að taka
tillit til gjaldskrárhækkunar þann
1. apríl 1991,“ segir Bjarni.
Bjarni segir lítið við því að
gera þó fólk vantreysti hreppnum
í þessu máli, en í haust muni
þetta væntanlega allt vera komið
á hreint. Hann segir að ef þá sýni
sig að stefni í veruleg frávik frá
fjárhagsáætlun hitaveitunnar, til
hækkunar eða lækkunar, þá muni
hreppsnefnd taka gjaldskrána til
endurskoðunar. SBG
ið væri enn í rannsókn og meðan
svo væri teldust allir saklausir þar
til sekt þeirra væri sönnuð fyrir
dómi. Ég tók líka fram að mér
þætti vafasamt að tengja eina
stofnun eða fyrirtæki málinu og
brennimerkja sérstaklega. Pessi
blaðamaður hefur greinilega
rangtúlkað ummæli mín og slitið
þau úr samhengi. Ég skil ekki
þessa fréttamennsku,“ sagði
Hreiðar.
í frétt Tímans er greint frá
endurnýjun Listagilsins og af
þeirri lýsingu má skilja að margir
þeirra sem keypt hafa húsin
sunnanvert í gilinu séu viðriðnir
hassmálið. Fleiri „listahópar" í
bænum eru nefndir til sögu og
vitnað í ónafngreindan viðmæl-
anda sem „sagði að það virtist
ekki vera mikið vandað til þeirra
sem eiga að fá aðstöðu í gilinu og
eitthvað virtist vera ábótavant
við forstöðuna...“
Þetta hlýtur að beinast að ann-
ars vegar bæjaryfirvöldum sem
áttu frumkvæðið að yfirstandandi
þróun Listagilsins og hins vegar
að Gilfélaginu sem nýlega var
stofnað utan um starfsemina í gil-
inu. Formaður þess er Guð-
mundur Ármann Sigurjónsson
ig er hljóðið í krókaveiðimönn-
um af Norðurlandi?
Halldór Reimarsson, sjómaður
frá Dalvík, gerir út Sóma 860 er ber
nafnið Inga Dóra EA: „Báturinn
er nýr frá því í október, búinn
þremur DNG vindum sem hafa
reynst vel. Engan færafisk er nú
að fá frá höfnum á Norðurlandi
og því er ég á leið til Breiðafjarð-
ar. Ég er vestur af Siglunesi í
samfloti við Stefán Ragnar EA.
Hraðskreiður og öruggur bátur,
sem Sómi, gerir okkur kleift að
skjótast milli landshluta á þau
mið er gefa. Við ætlum að leggja
upp á Rifi. Nokkrir bátar af
Eyjafjarðarsvæðinu eru komnir
nú þegar vestur og Helgi jakobs-
son og Valur Hauksson frá Dal-
vík eru að sjósetja nýjan Sóma í
dag sem fer á Breiðafjarðarmið
um helgina." ój
Forsætisráöuneytið hefur
sent Lögbirtingablaðinu til
birtingar auglýsingu um fram-
hoð og kjör forseta íslands.
Kjör forscta íslands skal fara
fram laugardaginn 27. júní
1992.
Framboðum til forsetakjörs
skal skila f hendur dómsmála-
ráðuneytinu ásamt samþykki
forsetaefnis, nægilegri tölu
meðmælenda og vottorðum
yfirkjörstjórna um að þeir séu á
kjörskrá, eigi síðar en fimm vik-
myndlistarmaður. Hann sagðist
ekki Skilja hvað Tímanum lægi til
með þessum skrifum. „Hver er
þessi viðmælandi blaðsins? Hvað
er verið að gefa í skyn? Af hverju
er verið að bendla Listagilið við
þetta mál? Okkur er kunnugt um
að einhverjir einstaklingar sem
tengjast gilinu hafi verið yfir-
heyrðir, en í fyrsta lagi veit ég
ekki hvort sekt þeirra er sönnuð
og í ööru lagi fordæmi ég ekki
Þjóðkirkjuna þótt einhver þegna
hennar hagi sér illa. Mér finnst
þessi skrif bera keim af annarleg-
um sjónarmiðum. Á þeim má
skilja að allir listamenn bæjarins
séu eiturlyfjaneytendur. Ég mót-
mæli því kröftuglega því ég hef
ekki kynnst slíku. Eg veit að vísu
ekki meira um þetta mál en allur
almenningur en þó get ég fullyrt
að enginn þeirra sem keyptu sér
um l'yrir kjördag.
Forsetaefni skal hafa með-
mæli minnst 1500 kosninga-
bærra manna en mest 3000 og
skiptist þannig eftir landsfjórð-
ungum: Úr Sunnlcndingafjórð-
ungi séu minnst 1.120 meðmæl-
endur en mest 2.235, úr Vest-
firðingafjórðungi séu minnst 95
meömælendur en mest 195, úr
Norölendingafjórðungi séu
minnst 200 meðmælendur en
mest 405 og úr Austfirðinga-
fjórðungi séu minnst 85 með-
mælendur en mest 165. -KK
pláss í sunnanverðu gilinu tengist
því,“ sagði Guðmundur
Ármann.
Það hafa fleiri hópar og stofn-
anir í bænum orðið fyrir barðinu
á slúðri. í Degi í dag birtist grein
eftir Signýju Pálsdóttur leikhús-
stjóra þar sem hún finnur sig
knúna til að „bera hönd fyrir höf-
uð starfsmanna minna hjá Leik-
félagi Akureyrar, sem hafa nú að
ósekju lent á milli illkvittinna
slúðurtanna í svo ríkum mæli að
starfsheiður þeirra er í veði.“
Signý segir að henni hafi verið
nóg boðið þegar „slúðurhrinurn-
ar voru farnar að trufla vinnufrið-
inn við sjálfa íslandsklukkuna".
Segist hún hafa hringt í Daníel
Snorrason hjá rannsóknarlög-
reglunni sem staðfesti að enginn
starfsmaður LA hefði verið yfir-
heyrður né lægi undir grun. -ÞH
Aðalfundur
Aöalfundur Eignarhaldsfélags Verslunarbankans
hf., Reykjavík, áriö 1992, veröur haldinn í Höföa,
Hótel Loftleiöum, Reykjavík, miövikudaginn
1. apríl nk. og hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Aöalfundarstörf skv. ákvæöum greinar 3.03.
í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins til
útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1992.
Aögöngumiöar aö fundinum veröa afhentir hlut-
höfum eöa umboösmönnum þeirra í íslands-
banka, Kringlunni 7, 1. hæð (útibúi), Reykja-
vík, dagana 27., 30. og 31. mars nk. svo og á
fundardegi. Ársreikningur félagsins fyrir árið
1991, ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum
liggja, verðahluthöfum til sýnis á sama staö frá
25. mars.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir fund-
inn, þurfa aö hafa borist stjórn félagsins
skriflega í síðasta lagi 24. mars nk.
Reykjavík, 16. mars 1992.
Stjóm Eigtiarhaldsfélags
Verslunarbankans hf.
Hassmálið á Akureyri á forsíðu Tímans:
Lögreglan staðfesti ekki sögusagnir blaðsins
- blaðið segir hassmálið tengjast listalífmu í bænum og sérstaklega Listagilinu
„Engan færafisk að fá
f\TÍr Norðurlandi“
- segir Halldór Reimarsson frá Dalvík