Dagur - 10.04.1992, Page 5

Dagur - 10.04.1992, Page 5
Fréttir Föstudagur 10. apríl 1992 - DAGUR - 5 V Frumvarp til laga um vernd, friðun og veiðar villtra dýra: Tekjur rfldssjóðs vegna eyðingu refa og minka geta orðið hærri en kostnaður - nefnd lagði til 7 5% kostnaðarhlutdeild ríkisins - ríkisstjórnin breytti því í 25% í frumvarpi til laga um vernd, friðun og veiðar á viiltum fugl- um og villtum spendýrum, öðr- um en hvölum, sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir því að kostnaður við eyðingu refa og minka skiptist þannig á milli ríkis og sveitarfélaga að ríkinu beri að endurgreiða sveitarfélögum 25% útlagðs kostnaðar en sveitarfélögin standi undir 75% kostnaðar- ins. Þarna er um mikla breyt- ingu að ræða frá núgildandi reglum um skiptingu kostnað- ar þar sem ríkið hefur endur- greitt 75% útlagðs kostnaðar. Með lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum - bandormin- um - var kostnaðarhlutdeild ríkisins lækkuð í helming út- lagðs kostnaðar. Virðisauka- skattur leggst einnig í mörgum tiifellum við kostnað við refa- og minkaveiðar ef þeir sem veiðarnar stunda eru virðis- aukaskattsskyldir. Virðisauka- skatturinn veldur sveitarfélög- unum kostnaðarauka en óvíst er hvort viðkomandi veiðimenn eiga þess kost að fá skattinn endurgreiddan og skilar hann sér þá sem tekjur í ríkissjóð. I vissum tilfellum getur hann ásamt tekjuskatti af vinnulaun- um manna við refa- og minka- veiðar skapað ríkinu hærri tekjustofn en nemur endur- greiðsluupphæðum vegna veið- anna. Fram til ársins 1988 greiddi ríkissjóður tvo þriðju hluta af kostnaði við eyðingu villtra refa og minka samkvæmt lögum frá árinu 1957. Þriðjunguri.nn skipt- ist síðan að jöfnu á milli sveitar- félaga og sýslna. Eftir að sýslu- sjóðir voru lagðir niður tóku sveitarfélögin 75% kostnaðar- hlutdeildarinnar á sínar herðar á móti ríkissjóði þar til á þessu ári. Páll Hersteinsson, veiðistjóri, sem sæti átti í nefnd þeirri er vann að samningu frumvarpsins sagði að nefndin hefði lagt til að ríkið endurgreiddi framvegis 75% af kostnaði við eyðingu villtra refa og minka en í frum- varpsgerðinni eins og hún var lögð fyrir alþingi sé einungis gert ráð fyrir 25% endurgreiðslu af hálfu ríkisins. Algengt er að bændur annist grenjaleit og önnur störf varð- andi eyðingu refa og minka og þar sem þeir eru virðisaukaskatts- skyldir leggst 24,5% virðisauka- skattur ofan á reikninga þeirra fyrir framlagða vinnu. Aðalsteinn Jónsson, bóndi á Víðivöllum í Fnjóskadal, hefur talsvert starfað við eyðingu refa og niinka og fylgst vel með framvindu þessara mála. Hann sagði að ef sú kostn- aðarskipting, sem gert ' æri ráð fyrir í frumvarpinu, yrði að veru- leika væri raunhæft að gera ráð fyrir að ríkið hagnaðist á þessari starfsemi þrátt fyrir að því væri ætlað að greiða 25% af heildar- kostnaði. Aðalsteinn benti á að af 100 þúsund króna reikningi greiddi sveitarfélagið 93.375 krónur eftir að virðisaukaskattur- inn hefði verið lagður á þrátt fyrir endurgreiðsluna. Þar frá dragist 7.298 krónur vegna útsvarsgreiðslu ef viðkomandi veiðimaður er búsettur í sveitarfélaginu en hlut- deild sveitarfélags verði aldrei minni en 86 þúsund af 100 þúsnd króna reikningi með virðisauka- skatti. Aðalsteinn benti ennfremur á að 25% endurgreiðsluhluti ríkis- sjóðs væri 35.185 krónur af hverj- um 100 þúsund króna reikningi fyrir utan virðisaukaskatt. Sami reikningur myndi síðan 97.300 króna tekjuskattsstofn fyrir verktakann og tekjuskattur af þeirri greiðslu sé 31.476 krónur. Nettó tekjur ríkisins af hverjum 100 þsúnd krónum verði því 27.552 eða 2.557 krónum hærri en kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs ef ekki er gert ráð fyrir frádrátt- arleiðum frá tekjuskatti. Aðalsteinn sagði að ekki væri að fullu ljóst hversu stór hluti þeirra sem starfi við eyðingu villtra refa og minka séu virðis- aukastattsskyldir en ekki væri ósennilegt að sveitarstjórnir leggi í framtíðinni áherslu á að fá aðila sem ekki séu virðisaukaskatts- skyldir til þessara verka í ljósi aukins kostnaðar vegna virðis- aukaskattsins. Þá kæmu til greina aðilar sem ekki hefðu mikla reynslu til að bera í þessum efn- um en bændur leggi víða mikið upp úr því að vel sé staðið að þessum málum. ÞI Samtök 1. deildar félaga í knattspyrnu semja um , sýningarrétt við íslenska útvarpsfélagið: „Oviðunandi að einungis sé sýnt frá 1. deildinni á Stöð „Ég hef ekki séö samninginn í heild. Ef rétt er aö samningur- inn sé á þann veg að Stöð 2 sýni aðeins í stundarfjórðung eftir hvern leikdag í Samskipa- deildinni og Sýn í 30-45 mínút- ur á laugardögum þá er samn- ingurinn óviðunandi með öllu fyrir utanbæjarfélögin og styrktarfólk þeirra. Já, samn- ingurinn er þvert ofan í hags- muni okkar norðanmanna og er aðeins gerður með hags- muni Reykjavíkurfélaganna í huga og þeirra er ná útsend- ingu Sýnar á Reykjavíkur- svæðinu. Við norðanmenn munum leggja ríka áherslu á að samningar takist við Ríkis- útvarp og -sjónvarp og málið verður tekið upp á næstu dögum,“ sagði Rúnar Antons- son, formaður knattspyrnu- deildar Þórs á Akureyri. Samtök 1. deildar félaga í knattspyrnu og íslenska útvarps- félagið hafa gert með sér samning sem heimilar Stöð 2 og Sýn að sýna frá leikjum í Samskipadeild- inni næsta sumar, en Samskipa- deildin er deild 1. deildar félag- anna í knattspyrnu. Af þeim upp- lýsingum er Dagur hefur aflað þá felst í samningsgerðinni að Stöð 2 verði með stundarfjórðungs langa þætti eftir hvern leikdag í knattspyrnunni auk þess sem 30- 45 mínútna þættir verða á rás Sýnar á laugardögum. Þar sem útsendingar Sýnar nást ekki um Norðurland er aug- ljóst að kattspyrnuáhugamenn á Norðurlandi jafnt sem leikmenn norðanliðanna tveggja KA og Þórs eru mjög óánægðir. Samn- inga við Ríkísútvarp og -sjónvarp er krafist, en samtök fyrstu deild- arliðanna vilja ekki semja við RÚV nema á sömu nótum og við Stöð 2. Þar stendur hnífurinn í kúnni. „Samtökin segjast vilja semja við okkur á sömu nótum og Stöð 2. Væntanlega fáum við þá að sjá hvernig sá samningur er. Hins vegar höfum við gert tilboð sem er á sömu nótum og í fyrra. Þá ruddum við veginn og knatt spyrnu hefur aldrei verið gerð betri skil í sjónvarpi á íslandi. Vissulega munum við reyna að ná samningum en tvo þarf til. Við höfum ekki úr meiru að moða en í fyrra og þar við situr. Þetta ár er þungt hjá íþróttadeildinni þar sem tvennir Olympíuleikar eru á dagskrá, B-keppni í handknatt- leik, Evrópukeppni í knattspyrnu þar sem 15 leikir verða sýndir í heild sinni og þar af 13 beint. Ég vona að samningar takist þannig að landsbyggðarfólkið verði ekki 2 Gg Sýn“ afskif. Ef þeir gera það hins vegar ekki þá getum við aðeins fjailað um knr tspynuna í sjón- varpsfréttum og megum sýna þrjár mínútur frá hverjum leik,“ sagði Samúel Örn Erlingsson, varaíþróttafréttastjóri Ríkissjón- varpsins. Sveinn Brynjólfsson, formaður knattsp^rnudeildar KA, sagði að KA-menn hefðu þær væntingar að RÚV gengi til samninga við samtök 1. deildar félaga í knatt- spyrnu á þeim grundvelli sem opin væri og íslenska útvarps- félagið hefði samið á. „í samn- ingnum felast ekki háar fjárhæðir heldur það meginþema að menn geri samninga og standi við þá. í fyrra var gerður samningur við RÚV um upptöku á öllum 1. deildar leikjum í knattspyrnu. Ekki var staðið við samninga og leikir er KA átti var sleppt. Samningur sem þessi við íslenska útvarpsfélagið leggur skyldur á herðar samningsaðila og er af hinu góða. Ekki er búið að loka á samninga við RÚV og KA mun leggja fram ákveðnar og sérstak- ar óskir þess efnis að af samn- ingagerð verði, þannig að áhuga- fólk um knattspyrnu á lands- byggðinni geti notið útsendinga frá Samskipadeildinni á sama hátt og Reykvíkingar," sagði Sveinn Brynjólfsson. ój Fyrir ferminguna Theresa járnrúm, krómuð, hvít og svört Breiddir: 90 cm, 105 cm, 120 cm, 140 cm og 160 cm Vandaðar dýnur Hagstœtt verð Opið til hádegis á laugardögum. vprubœr'i1 HUSGAGNAVERSLUN TRYGGVABRAUT 24 PÖSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SfMI (96)21410 Tilvalið til fermingargjafa Rakvélar Verð frá kr. 2.680,- Rafmagnstannb. Verð frá kr. 4.980,- Hárblásarar Verð frá kr. 1.780,- Klukkur Verð frá kr. 1.280,- Krullujárn Verð frá kr. 1.480,- Tilboð á alvöru saumavél Saumavélar. Verð frá kr. 30.875 stgr. Fermingartilboð. Pfaff 935. Verð áður kr. 53.500. Verð nú 42.370 stgr. KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.