Dagur - 10.04.1992, Síða 15
Föstudagur 10. apríl 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Visa-Cup mótaröðin í alpagreinum hefst á morgun:
Heims- og Ólympíumeistari kvenna í HlíðarQalli
Hin alþjóðlega mótaröð Skíða-
sambands Islands í alpagrein-
um, Visa Cup, hefst í Hlíðar-
fjalli í fyrramáíið með keppni í
stórsvigi karla og kvenna. Auk
allra bestu skíðamanna íslend-
inga verða yfir 60 erlendir þátt-
takendur á mótinu og fer þar
fremst í flokki Pernilla Viberg
frá Svíþjóð en hún er heims-
meistari og nýbakaður ólympíu-
meistari í stórsvigi kvenna.
Kvennaflokkurinn verður
skipaður geysisterkum keppend-
um því auk Viberg kemur landa
hennar Kristina Anderson í mót-
ið en hún er nú í 13. sæti á afreka-
Handknattleikur:
ÚrslitakepDni
yngriflo
íka
Um helgina verður keppt til
úrslita á íslandsmóti yngri
flokka í handknattleik. KA
á lið í úrslitum í þremur
flokkum.
Keppt veröur í 3., 4. og 5.
flokki karla og kvenna og 2.
flokki karla. Fjögur iið keppa
til úrslita í hverjum flokki og
fara allir leikirnir fram í Hafn-
arfirði. KA á lið í 3., 4. og 5.
flokki karla sem verður að
teljast frábær árangur. Þórsar-
ar áttu lið í undanúrslitum í 3.
flokki karla um síðustu helgi
og var liðið aðeins hársbreidd
frá að tryggja sér sæti í úrslita-
keppninni.
JMJ-mót
í knattspyrau
Knattspyrnudómarafélag
Akureyrar gengst fyrir
knattspyrnumóti á Akureyri
seinni hlutann í apríl. Til-
gangurinn er að afla fjár til
kaupa á dómarabúningum
fyrir komandi knattspyrnu-
vertíð.
Mótið fer fram á knatt-
spyrnuvöllum KA og Þórs og
er ætlað félögum í Eyjafirði og
nágrenni. Verslunin JMJ mun
gefa veglegan farandgrip sem
sigurliðið hlýtur að launum.
Nánar verður sagt frá til-
högun mótsins síðar.
íþróttir
SKÍÐI
Visa Cup mótaröðin hefst í Hlíðar-
fjalli á morgun. Sjá dagskrána f frétt
hér að ofan.
Coca-Cola mót í skíðagöngu fyrir
12 ára og yngri á laugardag. Keppni
hefst kl. 14.
HANDKNATrLEIKUR
Mánudagur:
1. deild karla:
KA-ÍBV kl. 20
Úrslitakeppni t' yngri flokkunum í
Hafnarfirði föstudag, laugardag og
sunnudag.
GLÍMA
Sveitakeppni Glímusambandsins aö
Laugarvatni á laugardag.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni 2. deildar íslandsmóts-
ins í íþróttahúsi Seljaskóla föstudag,
laugardag og sunnudag.
Urslitakeppni íslandsmótsins í 10.
flokki í Laugardalshöll.
SNÓKER
Coca-Cola mót í tvímenningi í Gilinu
á laugardag kl. 10.
lista FIS í svigi með 5,67 stig og
20. sæti í stórsvigi, með 15,83
stig. Viberg er í 3. sæti í stórsvigi
með 2,97 stig og 4. sæti í svigi
með 2,22 stig. Til samanburðar
má geta þess að sterkasta alpa-
greinakona landsins, Ásta S.
Halldórsdóttir frá ísafirði, er
með 54,76 stig í svigi og 84,33 stig
í stórsvigi. Af fleiri sterkum
keppendum í kvennaflokki má
nefna Svíann Inger Koehler
(35,95 og 36,81 stig), og frá
Noregi þær Marianne Kjeerstad
(25,72 og 46,39), Annie E. Mans-
haus (27,22 og 31,23) og Kari
Anne Saude (34,3 og 30,45).
Mjög sterkir keppendur verða
Kristinn Björnsson fær tækifæri til
að bæta árangur sinn enn frekar.
einnig í karlaflokknum þótt þar
verði enginn heims- eða ólympíu-
meistari. Má þar nefna Svíana
Peter Selin (25,99 og 37,6) og
Christopher Granberg (29,67 og
30,45) og Norðmanninn Per
Fredrik Spieler (38,21 og 20,12).
Ólafsfirðingurinn Kristinn
Björnsson verður meðal kepp-
enda á mótinu en hann hefur náð
frábærum árangri í vetur og er í
hópi stigalægstu keppenda. Hann
er í dag með rúmlega 37 stig bæði
í svigi og stórsvigi en þar sem
ekki hefur verið gefinn út nýr listi
gildir síðasti skráði árangur hans
sem er 44 og 46 stig.
Fyrsta mótið hefst í fyrramálið
kl. 10 með stórsvigi karla. Stór-
svig kvenna hefst kl. 12.30 og
verðlaunaafhending verður kl. 16
við Strýtu. Á sunnudaginn hefst
stórsvig kvenna kl. 10 og svig
karla kl. 13.30 og verðlauna-
afhending fyrir konur verður kl.
14 og fyrir karla kl. 17.30. Á
mánudaginn fer svo fram þriðja
og síðasta mótið á Akureyri og
verður þá keppt í stórsvigi karla
kl. 10 og svigi kvenna kl. 12.30.
Verðlaunaafhending verður kl.
16. Þess má geta að skíðafæri er
nú mjög gott í Hlíðarfjalli og hef-
ur batnað töluvert síðan á Lands-
mótinu um síðustu helgi.
Fyrsti leikur KA og ÍBV á mánudagskvöld:
„Treystum á stuðning áhorfenda“
- segir Alfreð - Sigurður Gunnarsson spáir ÍBV sigri
Á mánudagskvöldiö hefst úr-
slitakeppni 1. deildar íslands-
mótsins í handknattleik. KA-
menn taka á móti ÍBV í KA-
húsinu en á sama tíma mætast
FH og Stjarnan í Kaplakrika,
Víkingur og Fram í Víkinni og
Selfoss og Haukar á Selfossi.
Önnur umferð fer fram á mið-
vikudaginn og þriðja umferð á
laugardaginn eftir rúma viku
en þau lið komast áfram í
undanúrslit sem verða fyrri til
að vinna tvo leiki.
„Þetta verður spurningin um
það í hvernig formi menn verða
þegar þeir koma úr löngu hléi
eins og þessu. Við vorum búnir
að spila lengi og komnir í mjög
góða æfingu og þurftum síðan að
byrja á undirbúningnum nánast
frá grunni aftur. Þetta er svona
dæmigert happdrætti fyrir þjálf-
ara; hvort hann hittir á að vera
með liðið á toppnum á réttum
tíma,“ sagði Álfreð Gíslason,
þjálfari og leikmaður KA.
KA-menn hafa ekki átt góðu
gengi að fagna gegn Eyjamönn-
um í vetur, töpuðu í Eyjum og
máttu þakka fyrir jafntefli á
heimavelli. „Þeir eru með sterkt
lið, góða vörn og sókn og styrkur
þeirra liggur kannski helst í því
hvað þeir eru jafnir. Það er ekki
hægt að brjóta liðið niður með
því að taka einn úr umferð því
það eru jafngóðir menn í öðrum
stöðum. Þessi lið eru mjög áþekk
eins og sést hefur í vetur en hins
vegar höfum við heimavallarrétt-
inn fram yfir þá og ég hef trú á að
það eigi eftir að reynast mikil-
vægt. Eg býst við að liðin þurfi að
spila þrjá leiki og við treystum á
stuðning áhorfenda í þessari
mikilvægu baráttu. Þeir hafa
staðið sig frábærlega í vetur, eiga
mikinn þátt í hvað liðinu hefur
gengið vel heima og ég hef trú á
að þeir hjálpi okkur að klára
þetta. Það er geysilega mikilvægt
að byrja á sigri á mánudaginn og
ég spái því að okkur takist að
vinna þótt það verði ekki nema
með einu eða tveimur mörkum,“
sagði Alfreð Gíslason.
Eyjamenn betri á útivelli?
Sigurður Gunnarsson, þjálfari og
leikmaður ÍBV, sagði Eyjamenn
mátulega bjartsýna fyrir leikina.
„KA-menn eru á mikilli uppleið
og verða erfiðir. Þeir eru með
góðan mannskap og hafa að
mínu mati spilað undir getu í
vetur. Hins vegar höfurn við líka
spilað undir getu þannig að þar er
jafnt á komið með liðunum. Ég
held að úrslitin ráðist einfaldlega
á því hvort liðið langar meira til
að komast áfram og spái því að
við vinnum þetta 2:1.“
Sigurður sagðist ekki kvíða því
að spila í KA-húsinu sem þegar
er orðið frægt fyrir stemmningu.
„Við eigum sjálfir mjög sterkan
heimavöll og það er okkar styrk-
ur að við spilum yfirleitt betur í
hávaða og Íátum. Og ef eitthvað
er þá höfum við frekar mætt
afslappaðir og lausir við spennu á
útivellina og spilum ekki verr á
þeim nema síður sé. Ég kvíði því
ekkert að mæta í KA-húsið og
spái okkur 23:21 sigri á mánudag-
inn.“
Forsala aðgöngumiða fer fram
í versluninni Toppsporti í dag og
Knattspyrna:
Völsungar
til Glasgow
3. deildarlið Völsungs í knatt-
spyrnu leggur af stað í viku
æflnga- og keppnisferð til
Glasgow í Skotlandi um helg-
ina. Liðið leikur þrjá leiki í
ferðinni, m.a. gegn liði frá
Glasgow Rangers á Ibrox.
Eins og komið hefur fram í
Degi hafa Völsungar misst nokk-
urn mannskap frá í fyrra en hafa
nú fengið aðra menn í staðinn.
Þeir hafa endurheimt Jónas Hall-
grímsson frá HSÞ-b, Jóhann R.
Pálsson er kominn heim frá Sví-
þjóð og Skarphéðinn ívarsson er
kominn á fulla ferð en hann hefur
ekkert verið með tvö síðustu ár
vegna meiðsla. Þá hefur Svein-
björn Ásgrímsson, miðjumaður
frá Ægi í Þorlákshöfn, ákveðið
að leika með Völsungi í sumar.
Að sögn Björns Olgeirssonar,
þjálfara Völsungs, eru fleiri
menn inni í myndinni hjá liðinu
en hann vildi ekki nefna nein
nöfn.
„Ég ætla ekki að segja að það
sé bara formsatriði að fara upp
en við reynum að bæta okkur frá
í fyrra. Ég"tel að við séum ekki
með lakari hóp en þá og er bjart-
sýnn á að við verðum betri, ann-
ars væri maður ekki að standa í
þessu,“ sagði Björn.
á mánudag. Verslunin gefur
einnig boltann sem leikið verður
með.
Eins og áður hefur komið fram
gengst KA fyrir hópferð til Eyja
á miðvikudaginn. Flugfarið kost-
ar 6.000 kr. fram og til baka og er
tekið við pöntunum í KA-heimil-
inu.
Alfreð Gíslason býst við þremur
leikjum.
Knattspyrnufélag
Akureyrar
ESSO-mót1992
1.-5. júlí
Þau félög sem óska eftir aö taka þátt í
knattspyrnumóti KA fyrir A, B, C og D lið
í 5. flokki karla, tilkynni þátttöku á símrita
KA: (96) 11839 eða í pósthólf 16 á Akur-
eyri fyrir 14. apríl nk.
Staöfestingargjald er kr. 15.000 á hvert lið við-
komandi félags, greiðist í síðasta lagi 21. apríl
nk.
Knattspyrnufélag
Akureyrar
Opna norðlenska
Adidas mótið
í innanhússknattspyrnu verður fyrir alla
yngri flokka í KA-húsinu 14.-20. apríl.
Þátttaka tilkynnist í KA-heimilið í síma 23482 eða
símrita 11839 fyrir 12. apríl.
Þátttaka er heimil öllum félögum og er þátttöku-
gjald kr. 4.000 á hvert liö viökomandi félags.