Dagur - 04.07.1992, Blaðsíða 2

Dagur - 04.07.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 4. júlí 1992 Fréttir Könnun á vinnumarkaði: Landbúnaður og iðnaður uppistaða í atvinnu- lífi í dreiíbýli Alls starfa 31,7% eða tæpur þriðjungur íbúa í dreifbýli við landbúnað en aðeins 1,3% íbúa í kaupstöðum á landsbyggðinni og 0,6% fólks á höfuðborgar- svæðinu. Af bændafólki eru 6,7% karlar en rúm 4% konur. Iðnaður og þá er fiskiðnaður talinn með kemur næst á eftir landbúnaðinum hvað atvinnu- þátttöku fólks í dreifbýli varð- ar en um 17% þess starfa við þá atvinnugrein. Um 10% fólks sem telst til dreifbýlis- byggða hefur framfæri af físk- veiðum og verslun og ýmis við- gerðarþjónusta skapar einnig nokkra atvinnu í sveitum og kauptúnum eða fyrir um 9,5% íbúa þeirra. Þátttaka dreifbýl- isfólks í öðrum atvinnugrein- um er minni og einskorðast að mestu við samgöngur, skóla- mál, heilbrigðismál og aðra opinbera þjónustu. Þessar upplýsingar koma fram í niðurstöðum þriðju vinnumark- aðskönnunar Hagstofunnar, sem kom út um síðastliðin mánaða- mót. Vinnumarkaðskönnunin var gerð í apríl síðastliðnum og var úrtak í könnuninni 4,042 ein- staklingar er valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Alls svör- uðu 3,699 einstaklingar, sem er um 94% endaleg svörun. í könnuninni kom meðal annars fram að atvinnuþátttaka karla er 87,1% og athygli vekur að atvinnuþátttaka kvenna er orðin 74,5%. Atvinnuleysi reyndist vera mest í yngri aldurshópum og mældist mest 5,3% atvinnuleysi hjá fólki á aldrinum 20 til 29 ára. Atvinnuleysi fólks á aldrinum 16 til 19 ára var heldur minna eða 4,5%. Hjá aldurshópnum frá 30 til 39 ára kom fram 3,2% atvinnuleysi en innan við 2% hjá þeim sem orðnir eru 40 ára og eldri. Fólk á aldrinum 16 til 29 ára er nær fjórðungur af öllu vinnuafli á landinu en tæpur helmingur atvinnulausra er á þessum aldri. I könnuninni kemur einnig fram að rúm 21% karla voru í stjórnunarstörfum en aðeins 7,7% kvenna. Konurnar koma þó betur út þegar um sérfræði- störf var að ræða því 11,2% þeirra unnu sem sérfræðingar á móti 10,6% karla. Konur höfðu einnig vinninginn þegar um tækni- og aðstoðarfólk var að ræða og Akureyri: Stoftiaður miirn- ingarsjóður um Ama Bjamarson Stofnaður hefur verið sjóður til minningar um Árna Bjarnarson, bókaútgefanda á Akureyri, en hann lést mánudaginn 29. júní sl. Ákveðið hefur verið að verja sjóðnum til fjármögnunar verk- efna fyrir Náttúrulækningafélag- ið á Akureyri, en Árni starfaði alla tíð af krafti að málefnum félagsins og var ötull liðsmaður þess. Reikningur fyrir minningar- sjóðinn hefur verið opnaður í aðalútibúi Landsbanka íslands á Akureyri og er númer hans 266702. einnig í öllum afgreiðslu- og1 skrifstofustörfum. Iðnaður og vélgæsla reyndust hins vegar vera dæmigerð karlastörf þar sem inn- an við 2% kvenna sinntu slíkum störfum. Konur höfðu aftur vinn- |inginn þegar um ófaglært starfsfólk var að ræða en 20,8% þeirra reyndust ófaglærðar en aðeins 13,5% karla. Atvinnuskipting reyndist svipuð á milli karla og kvenna eftir því hvort um þétt- býli eða dreifbýli var að ræða en athygli vekur þó að hlutfall ófag- lærðs fólks er hæst í kaupstöðum á landsbyggðinni eða 23,3% á móti 12,9% fólks á höfuðborgar- svæðinu. ÞI Halldór Kristinsson, sýslumaður tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri álmu við Dvalarheimili aldraðra, Hvamm, á HÚSaVÍk. Mynd: IM Dvalarheimilið Hvammur á Húsavík: Framkvæmdir haftiar við stóran áfanga - sýslumaður tók fyrstu skóflustunguna Halldór Kristinsson, sýslumað- ur og framkvæmdastjóri hér- aðsnefnda í báðum Þingeyjar- sýslum, tók fyrstu skóflustungu fyrir viðbyggingu við Hvamm, dvalarheimili aldraðra, síðdeg- is á fímmtudaginn. Samið var við lægst bjóðanda, Jónas Gestsson byggingameistara á Húsavík um byggingaráfang- ann við að gera húsið fokhelt og frágengið utan. Átta tilboö bárust í verkið og nam tilboð Jónasar 55,6 milljónum, sem er 80% af kostnaðaráætlun. Viðstaddir athöfnina voru íbúar á Hvammi, starfsfólk, tæknimenn, byggingamenn og fleiri. Egill Olgeirsson, formaður Dvalarheimilis aldraðra sf. í Þing- eyjarsýslum ávarpaði viðstadda og sagði m.a.: „Undirbúningur og aðdragandi að þessu máli hef- ur verið all nokkur, en endanleg ákvörðun um að þessi viðbygging yrði næsta verkefni félagsins var tekin á aðalfundi félagsins, sem haldinn var á Raufarhöfn í ágúst á síðasta ári, þegar félagið vígði 4 íbúða þjónustuhús þar, og hélt upp á 15 ára afmæli sitt og að 10 ár voru liðin frá því að rekstur hófst á vegum félagsins, þ.e. frá því að starfsemi hófst í Hvammi.“ Vinnustofa arkitekta hf. í Reykjavík teiknaði húsið, en Tækniþjónustan hf. á Húsavík annast verkfræðiteikningu. Þessi fyrirtæki hafa unnið fyrir félagið frá upphafi við fyrri framkvæmd- ír. Þær framkvæmdir sem nú eru að hefjast eru við hina fyrstu af þremur íbúðarálmum, hver þeirra er þriggja hæða og verða þær tengdar saman með tveggja hæða tengibyggingu. Heildar- rúmmál nýju bygginganna er 15000 rm og heildarflatarmál um 4800 fm. Áætlað er að skipta viðbygg- ingunni upp í þrjá byggingar- áfanga. Framkvæmdir við fyrsta áfangann voru að hefjast og er hann um 6000 rm og 1900 fm. í þessum fyrsta áfanga verða 16 íbúðir, það er 7 hjónaíbúðir og 9 einstaklingsíbúðir, vistrými fyrir samtals 23 íbúa. Auk þess eru í þessum áfanga sameiginlegt þjónusturými, samkomusalur fyrir 120 manns, skrifstofa og fundaraðstaða og nýr aðalinn- gangur í Hvamm. Áætlað er að framkvæmdir taki um tvö ár og áfanginn verði tekinn í notkun vorið 1994. Á fjárhagsáætlun félagsins á þessu ári er gert ráð fyrir 50 milljónum til fram- kvæmdanna. Alls er gert ráð fyrir 27 ein- staklingsíbúðum og 25 hjóna- íbúðum, eða vistrými fyrir 77 íbúa í hinum þremur nýju íbúð- arálmum. Hluti íbúðanna verður dvalarheimili til viðbótar við Hvamm, en að minnsta kosti íbúðirnar á efstu hæð verða svo nefndar „búseturéttaríbúðir", verndaðar þjónustuíbúðir fyrir aldraða, þar sem íbúarnir leggja fram fé, til kaupa á búseturétti. . hálfleik á leik Þórs og KR í 1. dcildinni í knattspyrnu á Akureyrarvelli sl. fímmtudagskvöld, komu á völlinn 28 þjóðdansarar frá Færeyjum og döns- uðu fyrir vallargesti í leikhléi. Vakti þessi uppákoma verðskuldaða athygli. Mynd: GT Egill sagði m.a. í ávarpi sínu: „Að Dvalarheimili aldraðra sf. í Þingeyjarsýslu standa 12 sveitar- félög, og hefur sú samvinna geng- ið í alla staði mjög vel, en félagið var stofnað 1976, og þá hófst uppbygging við Hvamm - heimili aldraðra á Húsavík. í dag njóta milli 100-110 aldr- aðir þjónustu á vegum félagsins, það er íbúar í Hvammi um 50, í dagvist þar milli 10 og 20, við Hvamm eru 15 búseturéttaríbúð- ir fyrir 25 íbúa. í Mörk á Kópa- skeri er allt að 10 aldraðir i dagvist, og sama er í Vík á Rauf- arhöfn, sem er 4 íbúða þjónustu- hús fyrir aldraða, og þar eru allt að 10 einstaklingar í dagvist. Við þetta tækifæri vil ég skýra frá því að nýlega barst félaginu stórgjöf, sem var arfur frá heið- urshjónunum Haraldi Stefáns- syni og Arnheiði Jónsdóttur, Breiðumýri í Reykjadal. Þau arf- leiddu félagið að eigum sínum, sem eru innstæður á bankabók- um að upphæð um fjórar milljón- ir króna. Gjöf þessi sýnir mikinn og góð- an hug þeirra til stofnunarinnar Nýtt dagheimili á Akureyri: Tvö tilboð í raflagnir Ekkert tilboð barst í alla verk- þætti breytinga við Brekku- götu 34, sem Akureyrarbær hefur fest kaup á fyrir dagvist- arheimili. Til þess að gera húsið þannig úr garði að það henti fyrir dag- vistarheimili, þarf að leggja í kostnað vegna raflagna, dúka- lagna, málningarvinnu og pípu- lagna auk lítils háttar trévinnu. Heildarkostnaður við breyting- arnar var áætlaður tæpar 2,4 milljónir króna. Aðeins bárust tvö tilboð og voru þau bæði í raflagnirnar. Raflagnaverkstæði Tómasar bauð 487 þúsund og Valur Bald- vinsson, rafvirkjameistari, 482 þúsund krónur. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúm 506 þúsund krónur. Stefnt er að því að taka þetta nýja barnaheimili í notkun í byrj- un september nk. óþh og uppbyggingu öldrunarmála í héraðinu. Trúnaðarráðið þakkar þessa höfðinglegu gjöf, og vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra fjölmörgu sem styrkt hafa félagið með framlögum í gegnum árin.“ Er Halldór Kristinsson, sýslu- maður, hafði byrjað að grafa fyr- ir húsinu óskaði hann starfsemi Hvamms, íbúum hússins og starfs- fólki velfarnaðar í framtíðinni. IM Dýrarfld íslands - nýr þáttur í helgarblaði Dags Nýr þáttur hefur göngu sína í helgarblaðinu í dag. Hann ber yfírskriftina Dýraríki íslands. í þættinum mun umsjónarmað- urinn, séra Sigurður Ægisson í Bolungarvík, kynna ýmsar dýrategundir hér á landi. Fyrsta þáttaröðin fjallar um fugla í náttúru íslands en síðar verða kynntar hinu ýmsu tegund- ir sjávarspendýra hér við land o.fl. Þættir sr. Sigurðar Ægissonar verða aðra hverja viku í helgar- blaðinu. Við bjóðum hann vel- kominn til starfa og vonum að lesendur hafi bæði gagn og gam- an af. Ágætt verð hjá í Þýskalandi Síðastliðinn miðvikudag og fímmtudag voru seld 109 tonn úr Skagfírðingi SK í Þýska- landi og fékkst ágætt verð fyrir aflann. Uppistaða í afla Skagfirðings var karfi og var heildarsöluverðið 14,4 milljónir króna, meðalverð 108 krónur lVrir kílóið. Sigurfari OF seldi í Hull í gær, en Landssamband íslenskra út- vegsmanna hafði ekki fengið upplýsingar um þá sölu í gær. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.