Dagur - 04.07.1992, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 4. júlí 1992
Rauðaskriða I er í Aðaldal.
Bærinn stendur uppi í Skriðu-
hverfinu, vestan Fljótsheiðar
og rétt austan við neðstu brúna
á Skjálfandafljóti. Útsýnið frá
bænum er yfir fljótið, víðlend-
ar og grónar eyrar, hraunið,
hafið og í vestri skarta Kinnar-
ljöllin sínu fegursta. Að Rauðu-
skriðu búa hjónin Kolbrún
Ulfsdóttir og Jóhannes Har-
aldsson og síðustu mánuðina
hafa þau byggt upp gistihús af
mikilli smekkvísi og myndar-
skap. Þau byggðu hæð ofan á
íbúðarhúsið sitt með sjö
tveggja manna herbergjum,
tilheyrandi snyrtiaðstöðu og
setustofu. Sunnan við húsið
kemur síðan myndalegur sól-
skáli, sem þjónar í senn sem
borðstofa fyrir 20 manns, mót-
taka fyrir hótelið, setustofa, og
rými fyrir prýði hússins, glæsi-
lega smíð, stigann upp á efri
hæðina.
„Ég veit ekki hvort þetta er
bjartsýni eða vitfirring. Það var
ekkert annað fyrir okkur að gera
þess boðið gistingu í tveimur her-
bergjum í íbúð sinni.
„Þetta hefur gengið það vel að
við þorðum að fara út í að byggja
hér upp,“ sagði Jóhannes. „Þetta
er mjög fjölbreytt og lifandi starf.
Það eru að meirihluta til erlendir
ferðamenn sem hingað hafa
komið,“ sagði Kolbrún, aðspurð
hvernig henni líkaði starfið og
hvaðan gestirnir væru sem sæktu
þau heim.
Það var í fyrravor sem ráðist
var í byggingarframkvæmdirnar
og efri hæðin gerð fokheld í maí.
í haust var hafist handa við bygg-
ingu skálans og í mars var byrjað
að innrétta hæðina. Hermann
Sigurðsson á Hraunkoti var bygg-
ingameistari. Nýja gistihúsið var
síðan tilbúið til notkunar á þjóð-
hátíðardaginn, 17. júní.
Einstakt úrval góðra
reiðleiða
Aðkoman að gistihúsinu er sér-
lega björt og skemmtileg. Mat-
salur er í skálanum og þar býður
Kolbrún upp á morgunverð og
kvöldverð. Tvær setustofur eru í
Rauðaskriða I. Byggt hefur verið herbergjahæð ofan á húsið og sólstofa nieð afgreiðslu, borðstofu og stiga.
Myndir: IM
Ferðaþjónusta bænda:
Nýtt og glæsílegt gistíheimili að Rauðuskriðu í Aðaldal
- „íslendingar héldu jafnvel fyrst að þeir lentu í einhverri kompu með hundi,“segir Jóhannes Haraldsson
ef við vildum vera hér áfram,“
sagði Jóhannes. „Það er kannski
mest þrjóskan, að vilja vera
áfram í þessari sveit,“ sagði
Kolbrún, aðspurð hvaða bjart-
sýni það væri að reisa slíka
sumarhöll upp úr volæðisvælinu
sem svo víða setur sitt mark á
umræðu um landsbyggðamálin.
Erlendir ferðamenn
í meirihluta
Kolbrún og Jóhannes keyptu
Rauðuskriðu 1987 og hafa búið
þar með hesta. Jóhannes hefur
sótt vinnu til Húsavíkur og
Kolbrún verið í hlutastarfi á
hreppsskrifstofunni í Aðaldal.
Þau hafa verið með ferðaþjón-
ustu í tvö ár, hestaleigu og auk
gistihúsinu, önnur reyklaus.
„Við gerum okkur vonir um
það að fólk vilji koma hér utan
háannatímans, t.d. hópar frá
Akureyri. Hér er hægt að halda
minni fundi í góðu næði.
Útlendingar hafa sýnt því
áhuga að koma hér á veturna. Þó
við séum með hestaleigu getur
fólk einnig komið hér með sín
eigin hross og riðið út en þarf
ekki að leigja hesta af okkur.
Við bjóðum ferðir á hestum
með leiðsögn, frá klukkutíma
ferðum og upp í dagsferðir. Hér
er einstakt úrval góðra reiðleiða,
út í Aðaldalshraun, fram í Foss-
sels- og Ystafellsskóg, suður að
Goðafossi, út og suður með fljót-
inu eða að Byggðasafninu á
Grenjaðarstað," sagði Kolbrún.
íslendingar nota ferða-
þjónustuna í vaxandi mæli
- Eruð þið bjartsýn á að rekstur-
inn gangi, Jóhannes?
„Já, ég held það hljóti að verða
mjög vaxandi straumur erlendra
ferðamanna til landsins. Einnig
er mjög vaxandi að íslendingar
noti ferðaþjónustu bænda. Ég
held að menn hafi verið eitthvað
hálffeimnir við þetta framanaf,
jafnvel haldið að þeir lentu í ein-
hverri kompu með hundi. Þetta
þarf allt sinn tíma til kynningar,
það getur tekið 5-6 ár.
Ellilífeyrisþegar fá afslátt af
gistingu og morgunverði hjá okk-
ur og einnig erum við með sér-
Hundaáhugafólk athugið
Gullfiskabúðin verður með kynningu á
Bento hundafóðrinu og öllu sem hundurinn
þarfnast, á hundasýningu HRFÍ í
íþróttahöllinni á Akureyri sunnudaginn 5. júlí
HUNDAMATUR
PAKKNINGAR
í HENTUGUM
STÆRÐUM
Póstsendum um allt land, sími 91-11757 og símfax 91-26111.
Hvolpar til sölu
Einnig verða til sölu ættbókarfærðir enskir
Springer Spaniel hvolpar undan Champion
tíkinni Contessu og verðlaunahundinum
Feorlig Shooting Star,
sem verður á sýningunni.
stök vikutilboð í gangi.
Byggingarefni sem ég notaði í
nýbygginguna, s.s. eldvarnar-
hurðir, er gert til að standast mun
meiri kröfur en nú eru gerðar til
húsnæðis með slíka þjónustu. Þó
kröfurnar verði hertar verulega
ætti þessi bygging að standast
þær.“
Vinir, kunningjar og
starfsfélagar pöntuðu
50-60 gistinætur
- Er gaman að vinna við ferða-
þjónustu, Kolbrún?
„Já, enda ætti enginn að fara út
í þetta nema hafa verulega gam-
an af að þjóna öðrum, því það
þarf virkilega þjónustulund til.
Gestirnir koma heldur ekki
aftur nema þeim líki að dveljast á
staðnum. Það eru að koma hing-
að Þjóðverjar um mánaðamótin
sem voru hjá okkur fyrir tveimur
árum, og vinir, kunningjar og
starfsfélagar þeirra hafa pantað
50-60 gistinætur á næsta sumri.
Það komu hérna þýsk hjón og
ætluðu að hafa skamma viðdvöl
en það endaði með því að þau
voru hér í fimm daga og keyptu
eitt hross. Þau eru að koma aftur
í sumar til að vera hér í tvær
vikur. Þannig getur þetta smám
saman undið upp á sig og rniklu
skiptir að gestirnir séu ánægðir
með þjónustuna. Það hafa fleiri
gestir komið hér oftar en einu
sinni og einnig sent okkur bréf,
eða pakka og kveðjur. Það er
ákaflega ánægjulegt að fá kveðj-
ur frá ánægðum gestum."
Auglýsingabæklingar og rit þar
sem Ferðaþjónusta bænda kynnir
starfsemi sína voru í prentun í
vetur þegar nýja gistiheimilið á
Rauðuskriðu var í byggingu. Því
þótti ekki hættandi á að auglýsa
það, ef byggingaframkvæmdirnar
stæðust ekki áætlun. Það er því
engan veginn fullbókað sumar hjá
Kolbrúnu og Jóhannesi, en þau
eru bjartsýn og horfa til framtíð-
ar sem vonandi reynist þeim
björt. IM
Jóhannes Haraldsson og Kolbrún Ulfsdóttir, Rauðuskriðu I, í einu herbergj-
anna og...
...í setustofunni á efri hæð.