Dagur - 18.08.1992, Qupperneq 1
75. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 18. ágúst 1992
154. tölublað
Útscilca
Útsala
Útsala
Útsala
tJtscalca
V_______
HERRADEILD
Ciránutéiagsgötu 4
Akuroyri • Sími 23599^
Akureyri:
Hass fannst í bflaleigubíl
- stöðvaður vegna hraðaksturs
Lögreglumenn á Akureyri
þurftu að stöðva átta ökumenn
um helgina vegna hraðaksturs.
í einu tilvikanna fannst hass í
bifreið.
í bókum lögreglunnar kemur
fram að af þeim átta ökumönnum
sem teknir voru vegna hrað-
aksturs þá hafi tveir misst öku-
leyfið. Annar mældist á hundrað
þrjátíu og þriggja kílómetra
hraða og hinn á 137.
„Á Ólafsfjarðarvegi var bifreið
stöðvuð vegna hraðaksturs. Um
bílaleigubifreið var að ræða og í
ljós kom að ökumaður hafði tek-
ið hraðamæli úr sambandi til að
svfkja eiganda um kílómetra-
gjaldið. Við frekari athugun
fundust fíkniefni í bílnum þ.e. 2
til 3 grömm af hassi. Leigutakar
voru tveir sunnanmenn og stúlka
héðan að norðan. Fólkið var flutt
á lögreglustöðina á Akureyri til
yfirheyrslu. Málið er upplýst að
fullu og fer til meðferðar hjá
ákæruvaldinu", sagði talsmaður
rannsóknarlögreglunnar á Akur-
eyri. ój
Jökull hf. á Raufarhöfn:
Tilfæringar á Rauðanúpi
- skipstjórinn sagði upp vegna ágreinings
Skipstjórinn á Rauðanúpi ÞH,
togara Jökuls hf. á Raufar-
höfn, hefur sagt upp störfum
og gengið í land og fímm skip-
verjar að auki eru hættir. Nýir
menn voru ráðnir í stað þeirra
sem hættu áður en togarinn fór
út á ný. í það hefur verið látið
skína að þarna sé samhengi á
milli sem tengist ágreiningi
skipstjórans fyrrverandi við
útgerðarstjóra Jökuls.
stjóra. Síðan var einfaldlega nýr
skipstjóri ráðinn. Pað er rétt að
fimm skipverjar hættu en hluti af
þessum mannskap var að fara í
skóla og því var vitað að þessir
menn yrðu ekki lengur á togaran-
um. Það má vera að hinir hafi
fylgt skipstjóranum fyrrverandi
að málum en hvað sem því líður
þá er ekkert vandræðaástand hér
enda næg ásókn í laus togara-
pláss,“ sagði Guðmundur. SS
Annar sportbíllinn er ónýtur en hinn mikið skemmdur. Mynd: Goiii
Akureyri:
Harður árekstur ofau Torfunefsbryggju
Rólegt var hjá lögreglunni á
Akureyri yfír helgina. Bækur
lögreglunnar greina frá hörð-
um árekstri ofan Torfunefs-
bryggju.
Að sögn rannsóknarlögreglu-
manns barst lögreglu tilkynning
um harðan árekstur á mótum
Kaupvangsstrætis og Glerárgötu
kl. 1.48 aðfaranótt sunnudags. Á
gatnamótunum eru umferðarljós
og bílarnir sem skullu saman
voru báðir veglegir sportbílar.
Annar bíllinn er nú ónýtur en
hinn mikið skemmdur. í bílunum
voru fjórir menn er allir voru
fluttir til sjúkrahúss. Mennirnir
voru nokkuð skornir og gera
þurfti að axlarbroti og handar-
broti. Málið er til meðferðar hjá
rannsóknarlögreglu. ój
Samningur ríkis og bænda um mjólkurframleiðslu:
Neytendur ættu að verða varir
við verðlækkun eftir áramót
- segir Guðmundur Lárusson, formaður Landssambands kúabænda
Ekki náðist í Þorstein Sigurðs-
son, framkvæmdastjóra Jökuls
og Fiskiðju Raufarhafnar, í gær
þar sem hann var í fríi. Uppsagn-
irnar voru bornar undir Guð-
mund Guðmundsson, sveitar-
stjóra, og hann sagði að það væri
alrangt sem fram hefði komið í
útvarpsfréttum að skipstjórinn og
skipverjarnir hefðu allir sagt upp
störfum vegna ágreinings og að
„skálmöld" ríkti á Raufarhöfn af
þessum sökum.
„Skipstjórinn sagði upp fyrir
einhverjum vikum og bar við
ósamkomulagi við útgerðar-
„Svæðið er víðfemt og loðnu-
torfurnar smáar og dreifðar
um allan sjó. Við erum á leið
frá Raufarhöfn eftir löndun á
790 tonnum,“ sagði Kristinn
Snæbjörnsson, fyrsti stýrimað-
ur á Súlunni EA 300 frá Akur-
eyri, um miðjan dag í gær.
Að sögn Kristins hóf Súlan EA
loðnuveiðar fyrir tíu dögum. Síð-
an hafur verið landað tvisvar á
Raufarhöfn.
„Veiðar hófust í síðasta túr 200
mílur út af Sléttu og við fylltum
skipið í 130 mílunum. Þetta er
barningur hinn mesti. Skipin eru
nú öll að leita og útlitið er ekki
nægilega gott. Lítið fæst fyrir
loðnuna. Fjögur þúsund og tvö
hundruð krónur á tonnið er sama
verð og 1988. í fyrra fengum við
4600 krónur fyrir tonnið fram í
janúar, þannig að verðið nú er
vart viðunandi. Nei, ekki hef ég
heyrt minnst á Krossanes sem
„Við erum nokkurn veginn
ánægðir og ég tel að við hefð-
um ekki getað náð lengra mið-
að við þær aðstæður sem við
búum við. Auðvitað vilja
löndunarstað. Þeir verða að
hækka verðið til að fá skipin til
sín,“ sagði Kristinn Snæbjörns-
son. ój
Kennararáðningum á Norður-
landi vestra fyrir komandi
skólaár er að mestu lokið að
sögn Guðmundar I. Leifssonar
fræðslustjóra umdæmisins.
Eftir er að fínna út hlutfall
réttindakennara af heildar-
ráðningum og því ekki hægt að
segja til um hvort það hafí auk-
ist milli ára. Kennarastöðum
hefur fækkað og það breytir
myndinni.
Að sögn Guðmundar vantar
menn ná lengra en aðalatriðið
fyrir bændur í þessum samn-
ingi er að binda stuðningshlut-
fallið við 47,1% af framleiðslu-
kostnaði mjólkur. Það stendur
upp úr í þessum samningi,“
segir Guðmundur Lárusson,
formaður Landssambands
kúabænda, um samning ríkis-
valds og bænda um fyrirkomu-
lag mjólkurframleiðslu, en
samningurinn var undirritaður
um helgina. Af hálfu ríkisins
skrifuðu landbúnaðarráðherra
og fjármálaráðherra undir
enn kennara í eina eða tvær stöð-
ur og einnig sérkennara þar sem
það á við og eftir er að ganga frá
ráðningum stundakennara. Guð-
mundur sagði að venjulega hefði
vantað í 8-10 stöður á þessum
tíma sumars og í þær hefðu verið
ráðnir kennarar án réttinda. Nú
hefði hins vegar verið skorið nið-
ur um álíka margar stöður sem
fækkaði að öllum líkindum
ráðningum réttindalausra.
Guðmundur telur líklegt að
samninginn með fyrirvara um
nauðsynlegar lagaheimildir
Alþingis en formaður Stéttar-
sambands bænda skrifaði und-
ir með fyrirvara um samþykki
aðalfundar Stéttarsambands-
ins.
Guðmundur Lárusson segir að
niðurstaðan hafi orðið að fram-
leiðnikrafan á mjólkurfram-
leiðendur sé mildari en gert hafi
verið ráð fyrir í áliti sjömanna-
nefndar frá í vor, en það var not-
að sem grundvöllur fyrir samn-
ingnum.
„í þriðja lagi ætti verð til neyt-
hlutfall réttindakennara sé hærra
en í fyrra, en vildi annars ekki tjá
sig um málið, eftir væri að telja
saman og það ætti að verða ljóst
um næstu mánaðamót. Taldi
Guðmundur að eftirspurn eftir
kennarastöðum hefði byrjað fyrr
og mikið hefði borist af umsókn-
um réttindakennara, en ljóst væri
að þeir hefðu almennt sótt um á
mörgum stöðum og oft í fleiru en
einu umdæmi og því segði það
ekki alla söguna. sþ
enda að lækka mun meira en sjö-
mannanefndarálitið gerði ráð
fyrir vegna þess að um áramót
verður hætt að taka verðmiðlun-
argjald. Með lækkun á verði til
framleiðenda, lækkun á vinnslu-
og dreifingarkostnaði og lækkun
verðmiðlunargjalda ætti það að
þýða mun hagstæðari innkaup
fyrir neytendur. Lækkun ætti að
skila sér strax eftir næstu áramót
vegna verðmiðlunargjaldanna en
síðan kemur verðlækkunin á
næstu tveimur árum. Síðan feng-
um við þarna inn nokkra trygg-
ingu fyrir því að við eigum ekki
að tapa á því þótt ríkið vildi
halda því til streitu að hætta
niðurgreiðslum á virðisauka-
skatti," sagði Guðmundur.
„Það lakasta við þennan samn-
ing er að hann sýnir aðstæðurnar
sem við búum við og við hvað við
verðum að berjast í framtíð-
inni. Það er ekki skemmtilegt að
samþykkja samning sem felur í
sér minnkun framleiðsluheimilda
og tekjuskerðingu fyrir fram-
leiðendur."
Aðspurður sagðist hann spá
því að á næstu árum muni margir
mjólkurframleiðendur hætta
framleiðslu vegna þess að þeir
treysti sér ekki til að takast á við
hana í breyttu umhverfi. Búast
megi við að þessir bændur verði
úr eldri kantinum í stéttinni.
JÓH
Súlan EA á loðnumiðumim:
„Er bammgur hinn mesti“
Norðurland vestra:
Kennararáðningum að mestu lokið
- kennarastöðum hefur fækkað