Dagur - 18.08.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 18. ágúst 1992
Fréttir
Landsvísitala hluta-
bréfa að hækka aftur
Miðað við vísitölu hlutabréfa
1. júlí í sumar hafa hlutabréf í
sjávarútvegi lækkað mest og
þessi lækkun veldur því að
landsvísitalan á markaðnum er
lægri en hún var 1. júlí. Miðað
við að grunnvísitala hlutabréfa
hafi verið 100 stig þ. 1. júlí var
vísitala í hlutabréfum í sjávar-
útvegi fyrir helgi 81,42 en
landsvísitala 97,32.
Þróun hlutabréfavísitölunnar
sem Landsbréf hf. reiknar út hef-
ur verið nokkuð kaflaskipt að
undanförnu. Um mánaðamótin
var landsvísitalan komin niður
fyrir 96,00 en hækkaði svo um
tíma. Þá kom aftur lækkun og
svo hækkun í tæp 97 stig og þann-
ig hélst vísitalan þar til á föstudag
en þá hækkaði hún upp í 97,32.
Astæða hækkunarinnar fyrir
helgi var fyrst og fremst viðskipti
með hlutabréf í Samskipum hf.
að nafnverði 22,3 milljónir króna.
Bréfin voru seld á genginu 1,12
eða tæpar 25 milljónir króna að
söluverði.
Viðskipti á Verðbréfaþingi og
Opna tilboðsmarkaðnum námu
einungis tæpum 4 milljónum
króna í mánuðinum fyrir söluna í
Samskipum hf. JÓH
Landslag Stöðvar 2 sent út
frá Akureyri í nóvember:
Föstudagurimi þrettándi
- skilafrestur til 20. ágúst
Ólafur Árnason framkvæmdastjóri mótsins, Sigursteinn Baldursson og
Hannes Garðarsson formaður Ferðamálanefndar. Á innfelldu myndinni
leikur Sigursteinn Baldursson listir sínar á fjallahjóli.
Landslagið - söngvakeppni
Stöðvar tvö verður send beint
út frá Sjallanum á Akureyri
föstudaginn 13. nóvember.
„Við látum það ekki á okkur
fá þótt margir hafi sagt að
dagsetningin sé algert glap-
ræði,“ sagði Sigurður Jakobs-
son, útsendingarstjóri Lands-
lagsins hjá Stöð tvö, í samtali
LottÓ:
6,7 milljóiiir
á eina hendi
Á laugardaginn var Lottóið á
dagskrá sem fyrr. Potturinn
var vænn og því eftir nokkru
að slægjast.
Einn reyndist með allar tölur
réttar. í hlut þess heppna, sem er
frá Reykjavík, komu tæpar 6,7
milljónir sem telst góð búbót. ój
við Dag en frestur til að skila
inn lögum rennur út fimmtu-
daginn 20. ágúst.
„Dómnefnd tekur til starfa í
lok vikunnar og mun velja tíu lög
fyrir mánaðamótin. f>á verða þau
tíu lög útsett af mjög hæfum
útsetjurum á okkar vegum og
síðan tekin upp í fullkomnu
hljóðveri hér fyrir sunnan,“ sagði
Sigurður Jakobsson.
Þegar útsendingu og upptöku
er lokið verða tekin upp mynd-
bönd við lögin. „Við ætlum okk-
ur u.þ.b. tíu daga í myndatökur
fyrir norðan í byrjun október,"
sagði Sigurður Jakobsson en
myndræn tæknivinna norðan-
lands er unnin í samvinnu við
Samver á Akureyri.
Lögin tíu verða síðan sýnd, eitt
á kvöldi, á Stöð tvö frá 1.-10.
nóvember til kynningar áður en
föstudagurinn þrettándi rennur
upp; „þetta verður mjög stór
dagur,“ sagði Sigurður Jakobs-
son að lokum. GT
Tröllahátíð ‘92 á Dalvík:
Stærsta hjólahátíd sem haldin
hefur veriö á íslandi
Dagana 28.-30. ágúst nk. verð-
ur haldið á Dalvík fyrsta hjól-
reiðamót utan Reykjavíkur.
Hér er bæði um að ræða
Landsmót hjólreiðamanna
sem allir geta tekið þátt í sem
stigið geta á pedala og hins
yegar síðasta keppnin í
íslandsmóti fjallahjólreiða-
manna en hver keppni er stiga-
keppni og ræður heildarstiga-
gjöf úrslitum. Keppendum er
skipt í þrjá aldurshópa, 13-15
ára, 16-19 ára og 20-39 ára.
Þeir hjóla um 40 km leið frá
Dalvík sem leið liggur um
Ólafsfjarðarmúla til Ólafs-
Nýtt leikár að hefjast hjá Leikfélagi Akureyrar:
Fyrsta verkefhið söngleikur um
prakkarastelpuna Iinu langsokk
í gær komu leikhúslistamenn
hjá Leikfélagi Akureyrar sam-
an að loknu sumarleyfum og
hófu samlestur á fyrsta verk-
efni leikársins, barnaleikritinu
Línu Iangsokk eftir Astrid
Lindgren í þýðingu Þórarins
Eldjárn. Leikstjóri er Þráinn
Karlsson.
Með nýju leikári bætast þrír
leikarar í hóp fastráðinna
starfsmanna Leikfélags Akureyr-
ar, þau Bryndís Petrea Braga-
dóttir, Aðalsteinn Bergdal og
Sigþór Albert Heimisson. Leik-
ararnir taka allir þátt í uppfærslu
fyrsta verkefnisins. Bryndís
Petrea leikur Línu langsokk,
Aðalsteinn Bergdal Klæng löggu
og Sigþór Albert Hæng löggu.
Fjórtán leikarar taka þátt í upp-
færslunni auk nokkurra barna og
unglinga og áætlað er að frum-
sýna söngleikinn um prakkara-
stelpuna Línu 9. október.
Annað verkefni leikársins
verður gamanleikurinn „The
Foreigner“ eftir Larry Shue í
þýðingu Böðvars Guðmundsson-
ar. Leikstjóri verður Sunna
Borg. „Utlendingurinn" sem er
um mann er þjáist af feimni var
leikinn 700 sinnum í New York
og hefur verið sýndur vfða á
undanförnum árum við fádæma
aðsókn.
Eftir áramótin verður tekist á
við óperettuna „Leðurblaðkan"
eftir Johan Strauss yngra. Leik-
stjóri verður Kolbrún Halldórs-
dóttir og hljómsveitarstjóri Roar
Kvam. Um 30 manns munu taka
þátt í uppfærslunni bæði norðan-
menn og sunnlenskir einsöngvar-
ar. Leikhússtjóri L.A. er Signý
Pálsdóttir.
í gær hófst samlestur og kynning á fyrsta verkefni leikársins hjá Leikfélagi Akureyrar.
Mynd: Golli
fjarðar og þaðan til baka um
göngin til Dalvíkur. Vegleg
peningaverðlaun verða veitt
sem Sparisjóður Svarfdæla
gefur.
Þessi hjólreiðahátíð hefur hlot-
ið nafnið Tröllahátíð ’92 og er
þar verið að nýta tröllahugmynd-
ina „Dalla“ sem er fjölnota
náungi og einnig til að minna á
slagorðið: Dalvík, dalurinn, fjöll-
in og tröllin sem hins vegar minn-
ir á návist Tröllaskaga.
Það er Sigursteinn Baldursson,
sérfræðingur í fjöllum, göngu,
klifri og hjólreiðum sem hefur
verið forráðamönnum Dalvíkur-
bæjar til halds og traust við
undirbúning og framkvæmd
þessa hjólreiðamóts en Sigur-
steinn var leiðangursstjóri í ferð
sem farin var í sumar á hjólum
yfir Vatnajökul. Á þessari hjóla-
hátíð verður rekinn hjólaskóli í
samstarfi við Fjallahjólaklúbb
íslands þar sem kenndar verða
viðgerðir, hjólatækni og hvernig
útbúa á fólk og hjól til ferðalaga.
Haldin verður þrautakeppni og
fjallahjólaumboðin verða með
sýningu sem kalla mætti: „Hjól
fyrir alla, konur og karla“.
Framkvæmdaaðilar gera sér
vonir um að þetta verði árviss
viðburður og leitað verður viður-
kenningar erlendis á því að stig
unnin á mótinu telji með á
alþjóðlegum hjólreiðamótum. Á
hátíðinni verður einnig dagskrá
fyrir alla fjölskylduna. Farið
verður í ratleik, hjólreiðakeppni
barna fer fram, þrautakeppni,
hjólreiðaferðir og útiveisla en
fyrir keppendur verður brun,
„bunny -hop“, þrautakeppni og
brekkuspyrna. í fjölskylduratleik
verða verðlaunin ferð í Land-
mannalaugar á hjólum í fylgd
æfðra hjólreiðarmanna.
Dalvíkurbær styrkir þetta mót
með allt að 400 þúsund króna
framlagi og Flugleiðir bjóða 50%
afslátt á innanlandsfargjöldum en
skráning á mótið er í öllum fjalla-
hjólaverslunum og hjá Ólafi
Árnasyni á Dalvík. GG
Fiskmiölun NoröuHands á Dalvík - Fiskverð á markaði vikuna 09.08-15.081992
Tegund Hámarks- Lágmarks- Meöalverö Magn Verðmæti
verð verð (kr/kg) (kg)
Grálúða 65 60 60,96 271 16.520
Hlýri 33 20 31,50 708 22.305
Karfi 35 20 24,40 771 18.811
Lúða 230 230 230,00 20 4.600
Steinbítur 37 20 27,70 116 3.213
Ufsi 42 20 34,72 1,476 51.242
Undirmál, þ. 53 40 50,65 1,657 83.927
Ýsa 128 95 100,75 3,635 366.214
Þorskur 89 61 75,28 13,867 1,043.958
Samtals 71,52 22.521 1.610.790
Fiskmarkaðurinn á Skagaströnd hf. - Sala vikuna 10.08-14.08 1992
Tegund Hámarks- Lágmarks- Meðalverö Magn Verðmæti
verð verð (kr/kg) (kg)
Þorskur (sl.) 81 81 81,00 2.568 208.008
Þorskur (und.) 67 67 67,00 3.354 224.718
Ýsa (sl.) 123 113 115,95 12.109 1.404.038
Ufsi (sl.) 35 35 35,00 6.123 214.305
Karfi (ósl.) 30 30 30,00 5.763 172.890
Steinbítur 48 48 48,00 2.268 108.864
Skarkoli 57 57 57,00 267 15.219
Samtals 72,36 32.452 2.348.093
Dagur blrtlr vlkulega töflu yflr flskvcrö hjá Fiskmlölun NorBurlands á Dalvík og nU olnnlg hjá Rsk-
markaðlnum á Skagaströmi og grolnlr frá vorölnu sem fékkst I vlkunnl á undan. Þetta er gert í Ijösl jross
að hlutverk fiskmarkaBa I vorBmyndun Islonskra sJávarafurBa hefur vaxlb hröBum skrefum og þvl sjálfsagt
aB geta losendum blaðslns klelft aB fylgjast moB þróun markaBsvorBs á fiskl hér á NorBurlandl.