Dagur - 18.08.1992, Page 3
Þriðjudagur 18. ágúst 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Samningur um mjólkurframleiðslu undirritaður:
Beinar greiðslnr taka við af
niðurgreiðslum um áramót
Fulltrúar ríkisstjórnar íslands
og Stéttarsambands bænda
undirrituðu um helgina samn-
ing um stjórnun mjólkurfram-
leiðslu. Þessi samningur er
byggður á búvörusamningnum
sem undirritaður var 11. mars
1991 og er nánari útfærsla á 7
gr. hans. Með samningnum er
ætlunin að laga mjólkurfram-
leiðsluna að markaðinum, eins
og glögglega kemur fram í
upphafi samningsins sjálfs þar
sem segir að heildargreiðslu-
mark mjólkur skuli ákveðið
þremur mánuðum fyrir upphaf
verðlagsárs og þá byggt á
neyslu innlendra mjólkurvara
sem farið hafi um afurðastöð
undanfarandi tólf mánaða
tímabil. Verði sala mjólkur-
afurða undir heildargreiðslu-
marki ársins, iækkar heildar-
greiðslumark næsta árs en
verði það yfir vegna aukinnar
sölu, hækkar greiðslumarks
ársins á eftir. Heildargreiðslu-
mark næsta verðlagsárs hefur
verið ákveðið 100 milljónir
lítra.
Teknar verða upp beinar
greiðslur til mjólkurframleiðenda
í stað niðurgreiðslna sem verið
hafa. Þær skulu svara til 47,1% af
framleiðslukostnaði mjólkur
samkvæmt verðlagsgrundvelli á
innleggsdegi. Beinu greiðslurnar
hefjast 1. janúar næstkomandi og
þá falla niðurgreiðslur niður,
nema ekki hafi tekist að ná niður
birgðum og halda niðurgreiðslur
á heildsölustigi þá áfram þar til
birgðir hafa verið seldar upp.
Ríkissjóður ábyrgist með
samningnum að birgðir mjólkur-
vara þann 1. september næst-
komandi verði ekki umfram
ígildi 16 milljóna lítra nrjólkur.
Niðurgreiðslur koma þá á mjólk-
urvörur fram til áramóta og eftir
það, verði birgðirnar ekki upp-
urnar. Þá segir í samningnum að
landbúnaðarráðherra geti, verði
urn óæskilega birgðasöfnun að
ræða eða ef markaðsaðstæður
krefjast, ákveðið að taka verð-
jöfnunargjald af afurðaverði til
bænda til að standa straum af
sölustarfsemi eða afsetningu
birgða.
Sá kafli samningsins sem fjallar
um afurðaverð er veigamikill.
Þar segir að taka skuli verðlagn-
ingarkerfi mjólkurafurða til
endurskoðunar og því verði lokið
fyrir árslok 1994. A árunum 1992
til 1994 skuli færa niður fram-
reiknaðan verðlagsgrundvöll
mjólkur þannig að á árinu 1992
verði gerð 1% framleiðnikrafa
sem skuli þó ekki leiða til lækk-
unar á sama ári. Það sem eftir
kunni að standa af framleiðni-
kröfunni skuli flytjast til 1993 en
árin 1993 og 1994 skuli fram-
reiknaður verðlagsgrundvöllur
eins og hann var 1. mars 1992,
einnig færður niður um 2% hvort
ár. Á árununi 1993 og 1994 skuli
þetta framkvæmt þannig að ekki
komi til verðlækkunar vegna
framleiðnikrafna fyrr en við síð-
ustu verðlagningu ársins 1993 og
þá því aðeins að tilefni sé til að
minnsta kosti 0,6% verðlækkun-
ar, ella bætist mismunurinn við
framleiðnikröfu ársins 1994. Þá
segir: „Ekki skal koma til verð-
hækkana árið 1993 nema tilefnið
sé að minnsta kosti 0,6%.“ JÓH
Bókanir með samningi um mjólkurframleiðslu:
Samhliða hagræðingarkröfti á bændur verði
samið nm hagræðingu hjá vinnslnnni
Vinningstölur
laugardaginn
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ A HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 6.661.447,-
2. 4af5>? f 5 145.976.-
3. 4af5 216 5.828,-
4. 3af5 5.892 498.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 11.584.391.-
UPPLÝSINGAH: SlMSVARl91-681511 LUKKULiN*991002
GLANS-SJAMPO FYRIR
ÞINN HÁRALIT!
Gefur (yllingu
Fjöldi bókana fylgdi samningi
um stjómun mjólkurframleiðsl-
unnar sem undirritaður var í
Reykjavík um helgina. Þar
lýsa samningsaðilar, þ.e. ríki
og Stéttarsamband bænda,
m.a. yfir að forsenda hagræð-
ingarkröfu sem mjólkurfram-
leiðendur taki á sig með samn-
ingnum sé að jafnhliða verði
gerður samningur við Samtök
afurðastöðva í mjólkuriðnaði
um hagræðingarmarkmið fyrir
mjólkuriðnaðinn. í þeim
samningi skuli jafnframt kveð-
ið á um ráðstöfun fjármagns úr
verðmiðlunarsjóði til úrelding-
ar mjólkurbúa, til styrkja
vegna hagræðingar og önnur
þau atriði sem varði starfsum-
hverfi mjólkuriðnaðarins.
Fylgibókanirnar varða ýmis
önnur mál, s.s. lagabreytingar
sem nauðsynlegar eru vegna
samningsins, afleysingar í sveit-
um, tryggingargjald, Bjargráða-
sjóð og úreldingu á framleiðslu-
aðstöðu mjólkurbúa.
Um afleysingamál segir í bók-
un III að aðilar séu sammála um
að á næsta ári greiði ríkissjóður
10 milljónir króna til að koma á
fót og styrkja afleysingar hjá kúa-
bændum vegna töku orlofs og
frídaga. í sama tilgangi verði
greiddar 12,5 milljónir árið 1994
og 15 milljónir árið 1995. Greiðsl-
urnar taki mið af almennum
verðbreytingum í landinu.
Lögum um Bjargráðasjóð
verður væntanlega breytt í fram-
haldi af samningnum en í bókun
segir 'að aðilar séu sammmála um
endurskoðun með það að mark-
miðið að kostnaður við trygging-
ar í landbúnaði geti lækkað.
Samkvæmt sjöundu bókun
með samhingnum hafa mjólkur-
framleiðendur á jörðum sem
liggja fjarri afurðastöð eða eru
úrleiðis, möguleika á framlagi úr
verðmiðlunarsjóði vegna úreld-
ingar framleiðsluaðstöðú. Þá
verður heimilt að véita bændum
styrk til úreldingar framleiðni-
aðstöðu sé það talin forsenda
þess að ná fram hagræðingu í
rekstri mjólkurbúa. JÓH
Fáanlegt fyrir:
Ljóst, brúnt, rautt, skollitt, svart
og grátt hár.
Litanæring í stíl
Beinar greiðslur til mjólkurframleiðenda teknar upp um áramót:
Forsenda hagræðingarkröfu sem mjólkurframleiðendur taki á sig með samn-
ingnum sé að jafnhliða verði gerður samningur við Samtök afurðastöðva um
hagræðingarmarkmið fyrir mjólkuriðnaðinn.
Vopnafjörður
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði
fyrir lögreglustöð og umboðsskrifstofu sýslumanns á
Vopnafirði, um 150-160 m2 að stærð.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og
-efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og
áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild
fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík,
fyrir 24. ágúst 1992.
Fjármálaráðuneytið, 14. ágúst 1992.
Skulu svara til 47,1% af
framleiðslukostnaði mjólkur
Frá 1. janúar næstkomandi
munu mjólkurframleiðendur
fá úr ríkissjóði beingreiðslur
sem svara til 47,1% af fram-
leiðsiukostnaði mjólkur sam-
kvæmt verðlagsgrundvelli.
Með samningi um mjólkur-
framleiðslu, sem undirritaður
var um helgina, var ákveðið
hvernig dreifing beinu
greiðslnanna skuli verða frá 1.
janúar til 31. ágúst næstkom-
andi en síðan verði endurskoð-
að fyrir upphaf hvers verðlags-
árs hvernig greiðslutilhögun og
fráviksmörk skuli vera.
í fylgiskjali sem Halldór
Blöndal, landbúnaðarráðherra,
og Haukur Halldórsson, formað-
ur Stéttarsambands bænda,
undirrituðu með mjólkurfram-
leiðslusamningnum er tilgreint
hvernig beingreiðslum skuli
háttað. Eins og áður segir nema
þær 47,1% af framleiðslukostn-
aði og skiptast þannig:
„20% skal greiða óháð fram-
leiðslu að því tilskildu að fram-
leiðsla lögbýlis sé a.m.k. 70%
greiðslumarks. Greiðslan sé innt
af hendi þannig að hinn 1. hvers
mánaðar sé greiddur '/12 hluti,
fyrsta greiðsla 1. janúar 1993.
Að minnsta kosti 23,1% skal
greiða eftir framleiðslu. Greiðsl-
an sé innt af hendi þannig að hinn
1. hvers mánaðar sé greitt fyrr
innlegg næstsíðasta mánaðar, í
fyrsta sinn greitt 1. mars 1993.
Allt að 4% skal greiða þannig
að þau stuðli að æskilegri dreif-
ingu innleggs hjá hverju mjólk-
ursamlagi. Landbúnaðarráðherra
setur reglugerð ár hvert um fram-
kvæmdina að fengnu áliti fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins.
Greiðslan skal innt af hendi
þannig að hinn 1. hvers mánaðar
skal greitt vegna innleggs næst-
síðasta mánaðar. Þessar greiðslur
eru ótengdar framleiðslustjórn-
un, greiðslumarki og fráviks-
heimildum,“ segir í fylgiskjalinu.
JÓH
Torfœrufundur
Fundur verður haldinn hjá Bílaklúbbi Akureyr-
ar, þriðjudagskvöldið 18. ágúst kl. 20.00.
Rœtt verður um torfœrukeppni sem haldin verður laug-
ardaginn 22. ágúst í landi Glerár.
Kaffiveitingar.
BÍLAKLÚBBUR AKUREYRAR.