Dagur - 18.08.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 18. ágúst 1992
Þriðjudagur 18. ágúst 1992 - DAGUR - 9
ÍÞRÓTTIR
Samskipadeildin
14. umferð:
Víkingur-Þór 1:4
ÍBV-KR 0:2
KA-ÍA 1:0
UBK-Fram Valur-FH
Staðan:
ÍA 14 9-3- 2 25:14 30
Þór 14 8-4- 2 21: 9 28
KR 14 8-3- 3 24:13 27
Valur 13 6-4- 3 23:14 22
Fram 13 6-1- 6 20:18 19
FH 13 4-5- 4 19:21 17
Víkingur 14 4-4- 6 20:24 16
KA 14 3-4- 7 15:25 13
UBK 13 2-3- 8 8:19 9
ÍBV 14 2-1-11 13:32 7
Markahæstir:
Valdimar Kristófersson, Fram 9
Arnar Gunnlaugsson, IA 9
Atli Einarsson, Víkingi 7
Andri Marteinsson, FH 7
Bjarni Sveinbjörnsson , Þór 7
Gunnar Már Másson, KA 7
1. deild kvenna
Úrsllt:
Þór-Þróttur N. 2:0
KR-Höttur 3:0
Valur-Höttur 2:0
Staðan:
UBK 10 9-1-0 41: 5 28
Valur 11 8-0-3 23: 7 24
ÍA 9 7-1-1 29: 6 22
Stjarnan 8 4-1-3 21: 8 13
KR 11 4-1-6 16:26 13
Þróttur N. 11 4-0-7 19:38 12
Þór 11 2-0-9 7:35 6
Höttur 9 1-0-8 6:35 3
3. deild karla
13. umferð:
Tindastóll-Völsungur 2:1
Þróttur N.-Dalvflc 3:2
Magni-Haukar 2:1
Grótta-Ægir mánudag
KS-Skallagrímur 1:2
Staðan:
Tindastóll 14 13-1-0 45:17 40
Þróttur N. 14 6-4-3 31:25 22
Haukar 14 6-4-4 28:23 22
Grótta 13 6-4-3 18:16 22
Skallagrímur 14 5-3-6 31:27 18
Magni 14 5-3-6 21:17 18
Völsungur 14 4-4-6 18:25 16
Dalvík 14 4-1-9 24:28 13
Ægir 13 3-4-5 14:26 13
KS 14 3-0-14 16:40 9
Markahæstir:
Bjarki Pétursson, Tindastóli 16
Sverrir Sverrisson, Tindastóli 12
Kristján Brooks, Gróttu 10
Goran Micic, Þrótti N 9
Kristján Svavarsson, Þrótti N. 9
Guðmundur V. Sigurðsson, Haukum 7
4. deild karla C
10. umferð:
Kormákur-Hvöt 1:2
HSÞb-Þrymur 3:1
Neisti-SM 3:1
Lokastaða:
Hvöt 10 10-0-0 33: 8 30
Kormákur 10 6-1-3 23: 9 19
Neisti 10 5-0-5 22:17 15
HSÞb 10 6-0-4 24:22 15
SM 10 1-2-7 13:23 5
Þrymur 10 1-1-8 5:40 4
Markahæstir:
Sigurður Ágústsson, Hvöt 8
Rúnar Guðmundsson, Kormáki 8
Ásgeir Valgarðsson, Hvöt 8
Albert Jónsson, Kormáki 6
Samskipadeildin, Víkingur-Þór 1:4:
Stórsigur Þórs á Víkingum
- allt galopið á toppi deildarinnar eftir tap Skagamanna í umferðinni
Þórsara drógu á Skagamenn í
toppbaráttu Samskipadeildar-
innar í knattspyrnu þegar þeir
unnu stórsigur á slöppu Yík-
ingsliði, 1:4 á sunnudagskvöld.
Mörk norðanmann hefðu hæg-
lega getað orðið mun fleiri og
eru Þórsarar til alls líklegir. Nú
munar aðeins tveimur stigum á
efstu liðunum þegar fjórar
umferðir eru eftir og 12 stig í
pottinum.
„Ég var mjög ánægður með
okkar leik og stigin þrjú. Þeir
byrjuðu heldur betur og sóttu
svolítið í byrjun. Um leið og við
fórum að mæta þeim þá var þetta
aldrei spurning,“ sagði Sveinn
Pálsson, leikmaður Þórs, eftir
leikinn.
Þrátt fyrir það að Þórsarar
væru mun betra liðið í leiknum í
fyrrakvöld þá voru það Víkingar
sem byrjuðu betur og fengu
fyrsta færi leiksins strax á 3. mín-
útu. Atli Einarsson sendi þá fyrir
markið og Helgi Sigurðsson
skallaði framhjá af markteig.
Aftur voru Þórsarar heppnir þeg-
ar u.þ.b. 16 mínútur voru liðnar
af leiknum en þá ætlaði Júlíus
Tryggvason að senda á Lárus Sig-
urðsson, markvörð, en sendingin
fór yfir hann og framhjá mark-
inu. Þar sluppu Þórsarar með
skrekkinn.
Eftir miðjan fyrri hálfleikinn
náðu Þórsarar undirtökunum í
leiknum og skoruðu mark á 26.
mínútu. Hlynur Birgisson prjón-
aði sig þá upp kantinn hægra
megin, framhjá þremur varnar-
mönnum Víkings, sendi góðan
bolta fyrir og Bjarni Sveinbjörns-
son þrumaði í netið af stuttu færi.
Hvort lið fékk tækifæri til þess að
koma tuðrunni í netið en það
tókst ekki fyrir leikhlé. Staðan
því 0:1 þegar menn gengu til bún-
ingsherbergja.
Síðari hálfleikurinn var nokk-
uð fjörugur og byrjaði með því
að Arni Þór Árnason átti hörku-
skot að marki Víkings en það fór
yfir. Síðan bættu Þórsarar við
sínu öðru marki á 59. mínútu.
Sveinbjörn Hákonarson átti þá
þrumuskot að marki sem Guð-
mundur Hreiðarsson í markinum
réð ekki við. Glæsilegt mark hjá
Sveinbirni. Eftir markið fóru
gestirnir að bakka talsvert og
hleyptu Víkingum fullmikið inn í
leikinn og var talsverð pressa á
Þór um tíma. Þeir síðarnefndu
voru þó ekki lengi að hrista af sér
slenið og virtust ekki sjá neina
ástæðu til þess að láta þar við
sitja sem komið var heldur bættu
við þriðja markinu á 82. mínútu
og síðan því fjórða rétt í lok
leiksins eftir að heimamenn höfðu
minnkað muninn úr vítaspyrnu.
Fyrra markið gerði Halldór
Sveinbjörn Hákonarson hefur leikiö mjög vel fyrir Þór í
Hér lætur hann ríða af gegn ÍBV á dögunum.
sumar og heldur betur veriö á skotskónum að undanförnu.
Mynd: Golli
Knattspyrna, 4. deild:
Hvöt tapaði ekki stigi í sumar
- síðasta umferðin var leikin um helgina
HSÞb sigraði Þrym
„Sigur þeirra var sanngjarn en
með smá heppni hefðum við
Síðasta umferð riðlakeppni 4.
deildarinnar í knattspyrnu fór
fram um helgina og fara Hvat-
armenn nú að snúa sér að úr-
slitunum eftir að hafa komist
taplausir í gegnum mótið. Þeir
unnu Kormák um helgina, 1:2
á Hvammstanga, Neisti vann
SM 3:1 á Hofsósi og HSÞb
sigraði Þrym 3:1.
„Það var jafnræði með liðun-
um í fyrri hálfleik en eftir 15
mínútur í þeim seinni náðum við
undirtökunum og vorum sterkari
það sem eftir lifði,“ sagði Páll
Brynjarsson, leikmaður Neista.
„Við fengum fullt af færum til
þess að gera út um þetta en nýtt-
um þau ekki. Við vorum alls ekki
sáttir við dómgæsluna og ég tel
hana hafa haft of mikil áhrif á
úrslitin,“ sagði Sigurbjöm Viðars-
son, þjálfari SM.
SM náði forystunni eftir um 15
mínútna leik með marki Sævars
Þorsteinssonar en Sören Larsen
jafnaði fljótlega fyrir heima-
menn. Eftir miðjan síðari hálf-
leikinn komust Neistamenn yfir
með marki Odds Jónssonar og
svo
Magnús Jóhannesson bætti
þriðja markinu við fyrir leikslok.
Hvöt tapaði ekki stigi
Hvöt hélt tímabilið út án þess svo
mikið að tapa einu stigi og það
voru Kormáksmenn sem lentu í
þeim um helgina. Að sögn Ragn-
ars Guðjónssonar, leikmanns
Hvatar, var leikið við mjög erfið-
ar aðstæður, rok og rigningu og
malarvöllurinn á Hvammstanga
eitt forarsvað. Hvöt var sterkari
og hélt jöfnu á móti vindinum í
fyrri hálfleik en skoraði strax í
byrjun þess síðari. Þar var að
verki Hallsteinn Traustason.
Skömmu síðar jafnaði Axel Rún-
ar Guðmundsson en Ásgeir Val-
garðsson tryggði Hvatarmönnum
stigin þrjú með marki undir
lokin.
Ragnar Guðjónsson sagði að
það væri kominn tími á að þeir
Hvatarmenn færu alla leið. „Við
erum alltaf í úrslitum en höfum
ekki komist upp ennþá. Menn
eru ákveðnir í að standa sig í
þetta skipti," sagði Ragnar.
alveg getað tekið annað stigið úr
leiknum," sagði Þórhallur
Jónsson, leikmaður Þryms.
„Þetta var daufur leikur, menn
áhugalausir en sigurinn hlýtur að
teljast sanngjarn," sagði Hörður
Benonýsson, þjálfari HSÞb.
Fyrsta mark leiksins skoraði
Guðmundur Sigmarsson fyrir
HSÞb á 10. mínútu og var staðan
1:0 í leikhléi. Skúli Hallgrímsson
bætti öðru við um miðjan síðari
hálfleik og Ögmundur Arnarson
minnkaði muninn fyrir Þrym.
Þórir Þórisson innsiglaði sigurinn
fyrir HSÞb.
Birgir Valgarðsson, markvörð-
ur Þryms varði vítaspyrnu í leikn-
um og HSÞb fékk aðra spyrnu
síðar í leiknum og fór hún
framhjá.
Keppni í fjórðu deild er nú
lokið og einungis úrslitin hjá
Hvöt eftir. Að sögn leikmanna
og þjálfara flestra liðanna eru
einhver héraðsmót eftir en eftir
það fara menn í frí. SV
Áskelsson eftir að Árni Þór
Árnason hafði unnið boltann á
miðjunni, leikið upp völlinnn,
inn í teig og skotið á markið.
Guðmundur Hreiðarsson varði
en hélt ekki boltanum. Halldór
var þá réttur maður á réttumistað
og sendi boltann í netið, !3:0.
Helgi Sigurðsson fiskaði víta-
spyrnu á 85. mínútu og skoraði
örugglega úr henni sjálfur en það
var svo Birgir Þór Karlsson, sem
kom inná sem varamaður, fór
beint í sóknina og skoraði með
skalla úr sinni fyrstu snertingu
eftir hornspyrnu frá Sveinbirni
Hákonarsyni.
Þórsliðið er á fljúgandi ferð
þessa dagana og áttu Víkingar
aldrei séns í leiknum. Með sigri
KA á í A hefur allt opnast upp á
gátt á toppnum og enginn skyldi
afskrifa Þórsliðið í baráttunni um
deildarbikarinn. HB/SV
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Atli Helga-
son, Þorsteinn Þorsteinsson, Janez
Zilnik, Helgi Björgvinsson, Guðmundur
I. Magnússon, Atli Einarsson (Ólafur
Árnason á 72. mín.), Guðmundur Steins-
son Marteinn Guðgeirsson á 77. mín.),
Helgi Sigurðsson, Helgi Bjarnason.
Lið Þórs: Lárus Sigurðsson, Júlíus
Tryggvason, Hlynur Birgisson, Þórir
Áskelsson, Sveinbjörn Hákonarson, Lár-
us Orri Sigurðsson (Birgir Þór Karlsson),
Sveinn Pálsson, Árni Þór Árnason,
Ásmundur Arnarson, Halldór Áskels-
son, Bjarni Sveinbjörnsson.
Norðurlandsmótið í golfi um sl. helgi:
Öm og Jónína sigmðu
í meistaraflokkunum
Jónína Pálsdóttir varð Norðurlandsmeistari þriðja árið í röð.
Mynd: SV
Norðurlandsmót í golfi fór
fram að Jaðri um helgina og
það var Golfklúbbur Ólafs-
Sigurvegarar á Norðurlandsmótinu í golfi 1992. Á myndina vantar Örn Arnarson, sigurvegara í mfl. karla. Mynd: sv
Knattspyrna, 3. deild:
Tindastóll kominn í 2. deild
Heil umferð var leikin í þriðju
deild knattspyrnunnar um helg-
ina. Tindastóll tryggði sér Is-
landsmeistaratitil þriðju deild-
ar og um leið sæti í 2. deild að
ári. Liðið vann Völsung á
Króknum, 2:1. Magnamenn
unnu Hauka 2:1 á Grenivík í
miklum baráttuleik. KS tapaði
fyrir Skallagrími, 1:3 á Siglu-
firði og Dalvík beið lægri hlut
gegn Þrótti N. í Neskaupstað.
Leikur Gróttu og Ægis átti að
fara fram í gærkvöld, en hon-
um var frestað vegna veðurs
um helgina.
„Við erum eðlilega mjög
ánægðir með að vera komnir upp
í 2. deild. Þetta er búið að vera
nokkuð sérstakt sumar því geng-
ið hefur verið gott og við höfum
liðið nokkuð auðveldlega í gegn-
um þetta,“ sagði Guðbjörn
Tryggvason, þjálfari Tindastóls,
eftir að liðið tryggði sér sæti í 2.
deild með sigri á Völsungi. Að
sögn Guðbjörns var leikurinn
nokkuð slakur af þeirra hálfu.
„Við fórum ekki í gangifyrr en
eftir að þeir náðu að skora og þá
gerðum við út um þetta á
skömmum tíma.
„Við lékum nokkuð vel.í leikn-
um en náðum ekki að klára dæm-
ið í upplögðum marktækifærum
og því fór sem fór,“ sagði Sigmar
Hreiðarsson, liðsstjóri Völsungs.
„Við erum í vondum málum
þarna í botnbaráttunni en ætlum
að klára okkur út úr því.“
Ekkert var skorað í fyrri hálf-
leik en Jónas Baldursson byrjaði
á því að skora fyrir Völsung.
Stuttu síðar fengu Völsungar
upplagt færi, maður á móti mark-
manni en markmaðurinn varði,
Stólarnir brunuðu upp og skor-
uðu. Markið gerði Sverrir Sverr-
isson. Eftir þetta voru heima-
menn mun sterkari og Bjarki Pét-
ursson skoraði annað mark Stól-
anna þegar um 10 mínútur voru
til leiksloka og tryggði heima-
mönnum sigurinn.
KS í erfiðleikum
KS-ingar færðust nær 4. deildinni
með tapinu gegn Skallagrími,
1:2, um helgina.
„Þetta var ósanngjarnt því
leikurinn var mjög jafn og sigur-
inn gat lent hvorum megin sem
var,“ sagði Hafþór Kolbeinsson,
leikmaður KS.
Valdimar Sigurðsson kom gest-
unum yfir á 35. mínútu og
Sigurður Benonýsson jafnaði og
var staðan 1:1 í leikhléi. Finnur
Blóðtaka hjá Þór
Knattspyrnulið Þórs hefur orð-
ið fyrir blóðtöku þar sem Árni
Þór Árnason leikur ekki meira
með liðinu í sumar. Einnig get-
ur Sveinn Pálsson ekki klárað
tímabilið með Þór.
Sveinn Pálsson hefur stundað
nám í Bandaríkjunum undan-
farin ár og þarf að fara út núna
áður en tímabilinu lýkur hér
heima. Hann missir af tveimur
leikjum Þórs.
Árni Þór Árnason er einnig að
fara til Kanada í nám og
mun hann ekki leika meira með
liðinu í sumar.
Báðir hafa þeir félagar verið í
byrjunarliði Þórs í sumar og þarf
ekki að fjölyrða hversu slæmt er
að missa þá nú á lokasprettinum.
SV
Thorlacíus skoraði sigurmark
Skallagríms þegar um 15 mínútur
voru til leiksloka.
Dalvík á hættusvæði
Dalvíkingar urðu að sætta sig við
tap gegn Þrótti í Neskaupstað um
helgina. Að sögn Valdimars Páls-
sonar, leikmanns Dalvíkur, var
leikurinn illa leikinn af báðum
liðum. „Þeir höfðu allt með sér í
dag, gerðu tvö ódýr mörk og það
var eini munurinn á liðunum að
þessu sinni. Við erum á slæmum
stað í deildinni en ætlum okkur
að hanga uppi,“ sagði Valdimar.
Mörk Dalvíkur skoruðu Garðar
Níelsson og Jón Örvarr Eiríks-
son. Kristján Svavarsson gerði
tvö fyrir Þrótt og Guðbjartur
Magnason, 1.
Magnamenn hólpnir?
Magni vann góðan sigur á Hauk-
um þegar liðin mættust á Greni-
vík. Það var mikið líf og fjör í
leiknum, Valdimar Freysson,
dómari, hafði í nógu að snúast og
sýndi fimm leikmönnum gult
spjald og tveimur rautt.
Aðstæður voru mjög slæmar,
rok og rigning og stóð vindurinn
á annað markið. Heimamenn,
sem léku undan veðrinu í fyrri
hálfleik, náðu fljótlega forystu
með marki Hreins Hringssonar
og þrátt fyrir að Haukamenn hafi
virst eiga í fullu tréi við Magna-
menn náðu þeir ekki að skora og
var staðan í leikhléi 1:0.
Haukar sóttu mun meira í
seinn hálfleiknum og Sævar Pét-
ursson jafnaði fljótlega. Magni
fékk nokkrar ágætar skyndisókn-
ir og skoraði úr einni slíkri undir
lok leiksins. Maðurinn á bak við
það var Reimar Helgason, en
hann vann boltann í vörninni, gaf
út á kantinn og var svo sjálfur
mættur fyrir framan markið til
þess að skora þegar boltinn kom
fyrir.
Með sigrinum hafa vonir
Magnamanna, á því að halda sæti
sínu í deildinni, glæðst verulega
og má segja að þeir séu sloppnir
fyrir horn.
fjarðar sem sá um mótið. Það
fór mjög vel fram, þrátt fyrir
að talsverður vindur setti mark
sitt á það á laugardeginum.
Örn Arnarson varð hlutskarp-
astur í meistaraflokki karla og
Jónína Pálsdóttir vann meist-
araflokk kvenna, þriðja árið í
röð. Keppendur voru 136 og
léku 36 holur.
„Ég átti ekki von á því að
vinna þetta árið. Ég er búin að
vinna bikarinn tvisvar áður og
hef ekki verið að spila neitt sér-
lega vel undanfarið," sagði Jónína
Pálsdóttir og bætti því við að þær
stelpurnar hefðu ekki spilað vel á
laugardeginum en ágætlega á
sunnudaginn. Úrslit í meistara-
flokki kvenna eru eftirfarandi:
Án forgjafar: Heildarskor
1. Jónína Pálsdóttir, GA 180
2. Erla Adólfsdóttir, GA 188
3. Bergljót Borg, GA 188
4. Anný B. Pálmadóttir, GH 195
5. Árný L. Árnadóttir, GA 197
Ekki náðist í sigurvegara
meistaraflokks karla, Örn Arnar-
son, þar eð hann þurfti að fara af
verðlaunaafhendingu vegn þess
að hann er á förum til Skotlands
til að keppa fyrir íslands hönd í
golfi á Doug Sanders mótinu.
Keppnin var mun jafnari en í
kvennaflokki og var lengi tvísynt
um hver myndi standa uppi sem
sigurvegari. Úrslit í meistara-
flokki karla eru eftirfarandi:
1. Örn Arnarson, GA 149
2. Sigurður H. Ringsted, GA 153
3. Þórhallur Pálsson, GA 154
4. Ólafur A. Gylfason, GA 154
5. Viðar Þorsteinsson, GA 161
1. flokkur kvcnna:
1. Fjóla Þ. Stefánsdóttir, GA 197
2. Karóltna Guðmundsdóttir, GA 200
3. Guðný Óskarsdóttir, GA 202
4. Sigríður B. Ólafsdóttir, GA 202
5. Rósa Gunnarsdóttir, GA 203
1. flokkur karla:
1. Haraldur Júlíusson, GA 161
2. Jóhann P. Andersen, GA 163
3. Guðmundur Finnsson, GA 164
4. Kjartan H. Bragason, GA 164
5. Guðjón B. Gunnarsson, GA 165
2. flokkur karla:
1. Gunnar A. Gunnarsson, GSS 176
2. Fylkir Guðmundsson, GÓ 177
3. Sigurður St. Haraldsson, GA 179
4. Gunnar Jakobsson, GA 182
5. Bjarni Ásmundsson, GH 183
3. flokkur karla:
1. Sigvaldi Torfason, GA 193
2. Adólf Berndsen, GSK 196
3. Sigurður Sigfússon, GA 198
4. Guðmundur Pétursson, GA 200
5. Kristbjörn Arngrímsson, GHD 204
Unglingaflokkur:
1. Gunnlaugur B. Ólafsson, GA 166
2. Ingvar R. Guðmundsson, GA 171
3. Axel Árnason, GA 175
4. Bjarni G. Bjarnason, GA 177
5. Ásgeir Blöndal, GÓS 189
Oldungar - með forgjöf:
1. Ragnar Steinbergsson, GA 139
2. Karl Berndsen, GSK 150
3. Friðrik J. Friðriksson, GSS 157
4. Árni Ingimundarson, GA 157
5. Árni B. Árnason, GA 157
Öldungar - án forgjafar:
1. Ragnar Steinbergsson, GA 171
2. Hilmar Gíslason, GA 188
3. Stefán B. Pedersen, GSS 192
4. Árni B. Árnason, GA 197
5. Karl Berndsen, GSK 198
SV
Kvennaknattspyrna:
Þór nældi í þrjú góð stig
er að sjá hvort stúlkurnar ná ekki
að tryggja sér þau stig sem uppá
- vann Þrótt N. 2:0 á Þórsvelli um helgina
Þórsstúlkur unnu mikilvægan
sigur um helgina þegar þær
skelltu Þrótturum, 2:0. Þór er
nú í næstneðsta sæti 1. deildar
en á enn raunhæfa möguleika
á að forða sér frá falli.
„Þetta var nokkuð jafnt en við
vorum heldur sterkari og sigurinn
því sanngjarn," sagði Valgerður
Jóhannsdóttir, fyrirliói Þórs og
bætti við að þær þyrftu nauðsyn-
lega á sex stigum að halda til þess
að forða sér frá falli í 2. deild og
að þær myndu gera allt til þess að
láta það takast.
Þór sótti talsvert meira framan
af og hefði hæglega getað verið
búið að skora eitt til tvö mörk
fyrir leikhlé. Það gekk þó ekki og
komust Þróttarstúlkur meira inn
í leikinn þegar fór að líða á en
engu að síður var staðan 0:0 í
leikhléi.
í síðari hálfleik voru heima-
stúlkur mun sterkari og Ellen
Óskarsdóttir tryggði þeim sigur-
inn með tveimur góðum mörkum
áður en flautað ver til leiksloka.
Sanngjarn sigur Þórs í höfn og nú
vantar til þess að halda sæti sínu í
1. deild. SV
Þórunn Sigurðardóttir og stöllur hennar hjá Þór unnu góðan sigur á Þrótti
um helgina. MynU JHB