Dagur - 18.08.1992, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 18. ágúst 1992
ENSKA KNATTSPYRNAN_________________________________________________Þorleifur Ananíasson
Enska knattspyrnan:
Jólaballið dugði Sheff. Utd. til sigurs
- úrvalsdeildin fór vel af stað - óvænt úrslit - mikið af mörkum
Deildakeppnin hófst á Englandi
um helgina og ekki verður
annað sagt en hin nýja úrvals-
deild hafi farið af stað með
miklum látum. Níu leikir voru
leiknir á laugardag og í mörg-
um þeirra urðu úrslit á annan
veg en búist var við og ekki
vantaði mörkin, sem mörg
voru skoruð af leikmönnum
sem voru að leika sinn fyrsta
leik fyrir nýtt félag. En þá er
best að vinda sér beint í leikina
í úrvalsdeildinni.
■ Lið Sheff. Utd. hefur jafnan
byrjað illa á haustin og vermt
botnsætin, en bjargað sér með
góðum spretti eftir áramótin.
Hinn litríki framkvæmdastjóri
liðsins Dave Bassett ákvað að sjá
við sínum mönnum að þessu
sinni og datt það snjallræði í hug
að bjóða þeim til jólafagnaðar í
síðustu viku, með jólatré, kalkúna-
áti og tilheyrandi. Og viti menn,
það virkaði er liðið fékk Man.
Utd. í heimsókn á laugardag.
Fyrirfram var búist við sigri
Manchester liðsins sem var veru-
lega óheppið að ná ekki meist-
aratitlinum í fyrra, en annað kom
á daginn. Brian Deane náði for-
ystu fyrir Sheff. Utd. strax á 4.
mín. með einföldu skallamarki
eftir langt innkast Carl Bradshaw
og þar með hafði fyrsta mark
úrvalsdeildarinnar litið dagsins
ljós. Þegar 5 mín. voru liðnar af
síðari hálfleik bætti Deane öðru
marki sínu við úr vítaspyrnu eftir
að Gary Pallister hafði brotið á
Alan „gamla“ Cork sem hafði
sloppið óvænt í gegnum vörn
Utd. Skömmu síðar náði Mark
Hughes að laga stöðuna fyrir
Utd. eftir langt útspark Peter
Schmeichel markvarðar og það
sem eftir lifði leiks hafði Man.
Utd. undirtökin. En þrátt fyrir
oft ágætan samleik tókst liðinu
ekki að jafna, en nýi miðherjinn
Dion Dublin sem kom inná undir
lokin hleypti þó miklu lífi í sókn-
arleik liðsins og virðist líklegur til
að styrkja liðið í vetur, en hann
var nýlega keyptur fyrir £ 1 millj-
ón frá Cambridge.
■ Hann var ótrúlegur, leikur
Arsenal á heimavelli gegn
Norwich. Arsenal er spáð meist-
aratitli, en Norwich öruggu falli
og eftir fyrri hálfleikinn virtist
Úrvalsdeildin
Arsenal-Norwich 2:4
Chelsea-Oldham 1:1
Coventry-Middlesbrough 2:1
Crystal Palace-BIackburn 3:3
Everton-Sheffield Wed. 1:1
Ipswich-Aston Villa 1:1
Leeds Utd.-Wimbledon 2:1
Sheffield Utd.-Manchester Utd. 2:1
Southampton-Tottenham 0:0
Nottingham For.-Livcrpool 1:0
Manchester City-Q.P.R. mánud.
1. deild
Barnsley-West Ham 0:1
Birmingham-Notts County 1:0
Brentford-Wolves 0:2
Bristol City-Portsmouth 3:3
Charlton-Grimsby 3:1
Leicester-Luton 2:1
Newcastle-Southend 3:2
Oxford-Bristol Rovers 2:1
Peterborough-Derby 1:0
Swindon-Sunderland 1:0
Tranmere-Cambridge 2:0
Watford-Millwall 3:1
Brian Dean gerði bæði mörk Sheff.
Wed. gegn Man. Utd. og varð fyrst-
ur til að skora í úrvalsdeildinni.
sem spádómarnir væru nærri lagi.
Steve Bould miðvörður Arsenal
skoraði fyrsa markið eftir undir-
búning Kevin Campbell og
Cambell bætti síðan öðru marki
við fyrir hlé, 2:0 yfir í hálfleik og
leikmenn Norwich höfðu ekki
haft roð við hinum frægu leik-
mönnum Arsenal. Síðari hálf-
leikurinn sem virtist aðeins
formsatriði fór rólega af stað, en
þá setti Norwich inná Mark Rob-
ins sem liðið keypti af Man. Utd.
í vikunni og 10 mín. síðar lagaði
hann stöðuna með marki úr auka-
spyrnu og leikur Arsenal liðsins
hrundi. David Phillips jafnaði og
Ruel Fox kom Norwich yfir í 3:2.
Robins skoraði síðan fjórða
mark Norwich eftir mistök Tony
Adams í vörn Arsenal og óvænt-
ur sigur Norwich var í höfn. Öll
fjögur mörk liðsins komu á 15
mfn. kafla og hefðu fáir búist við
slíku af Norwich sem seldi sinn
helsta markaskorara Robert
Fleck til Chelsea í fyrri viku.
■ Meistarar Leeds Utd. sigruðu
Wimbledon á Elland Road og
getur liðið þakkað það hinum
trausta miðherja sínum Lee
Chapman sem skoraði þrennu
gegn Wimbledon í fyrra og hefði
hæglega getað leikið það eftir nú.
Hann átti skot naumlega framhjá
áður en hann náði forystu fyrir
Leeds Utd. í fyrri hálfleik eftir
undirbúning Gary McAllister og
Rodney Wallace. Hann átti einnig
skot í stöng í fyrri hálfleik, auk
þess sem Hans Segers markvörð-
ur Wimbledon varði frá honum
úr góðu færi. Þrátt fyrir mikla
yfirburði Leeds Utd. í leiknum
náði Warren Barton að jafna fyr-
ir Wimbledon í síðari hálfleik
með skoti af löngu færi sem fór
yfir John Lukic í marki Leeds
Utd. og svo virtist sem sigurinn
væri genginn meisturunum úr
greipum. En 4 mín. fyrir leikslok
kom Champman liðinu til bjargar
og skoraði sigurmarkið eftir góð-
an undirbúning Eric Cantona.
Cantona stal senunni í góðgerða-
leiknum á Wembley gegn Liver-
pool um síðustu helgi með mörk-
in sín þrjú, en nú var það
Chapman sem sýndi hvers hann
er megnugur.
■ Sheffield Wed. með Chris
Waddle nýkeyptan frá Marseille í
broddi fylkingar náði forystu á
útivelli gegn Everton með marki
Nigel Pearson. Pað var síðan
Barry Horne mikið hörkutól sem
Everton keypti af Southampton í
sumar sem jafnaði fyrir Everton
rétt fyrir hlé og þannig lauk
leiknum með jafntefli 1:1. Tals-
verðar vonir eru bundnar við
Sheff. Wed. í vetur, en Everton
liðið er stórt spurningarmerki
þrátt fyrir að Neville Southall
hinn snjalli markvörður hafi
ákveðið að vera um kyrrt hjá
félaginu.
■ Coventry og Middlesbrough
eru lið sem spáð er erfiðum vetri
og Middlesbrough sem er nýliði í
deildinni varð að þola tap er liðið
sótti Coventry heim. John Willi-
ams sem keyptur var frá Swansea
í sumar kom Coventry yfir í fyrri
hálfleik og í þeim síðari bætti
David Smith við öðru marki
Coventry. Paul Wilkinson lagaði
aðeins stöðuna fyrir Middles-
brough með marki undir lokin,
en það dugði skammt.
■ Það var magnaður leikur hjá
Crystal Palace á heimavelli gegn
nýliðum Blackburn og þegar yfir
lauk höfðu Iiðin skipt með sér sex
mörkum og jöfnunarmark Palace
skoraði varamaðurinn Simon
Osborn á síðustu sek. leiksins.
Blackburn hefur keypt nýja leik-
menn að undanförnu fyrir gífur-
legar fjárhæðir, þar á meðal dýr-
asta leikmann Englands, Alan
Nottingham For. fékk Liver- I
pool í heimsókn á sunnudaginn
og Liverpool sem spáð er góðu
gengi í vetur fór að dæmi stór- [
Alan Shearer, dýrasti leikmaður
Englands, skorðaði tvö mörk í sín-
um fyrsta leik með Blackburn.
Shearer frá Southampton fyrir
£ 3,6 milljónir. Aðaleigandi
liðsins, Jack Walker, hefur stóra
og djúpa vasa, fulla af peningum
og Kenny Dalglish stjóri félagsins
er óhræddur við að nota þá. Stu-
art Ripley sem kostaði £1,3 mill-
jónir frá Middlesbrough jafnaði
1:1 eftir að Mark Bright hafði
komið Palace í 1:0. Gareth South-
gate kom Palace yfir að nýju, en
þá var komið að Shearer sem
jafnaði fyrir Blackburn og bætti
síðan öðru við sem virtist ætla að
duga til sigurs þar til Osborn náði
að jafna í lokin.
liðanna Arsenal og Man. Utd.
og tapaði sínum fyrsta úrvals-
deildarleik. En þessi lið trúa
því kannske að fall sé farar-
■ Chelsea gerði aðeins jafntefli
á heimavelli gegn Oldham og það
var raunar Nick Henry sem náði
forystunni fyrir Oldham í leikn-
um. Gamla kempan Mick Harford
sem Chelsea keypti nýlega af
Luton jafnaði fyrir Chelsea, en
bæði mörkin komu undir lok
leiksins.
■ Gavin Johnson náði forystu
fyrir nýliða Ipswich í fyrri hálf-
leik á heimavelli gegn Aston
Villa. Það var síðan Dalian
Atkinson sem tryggði Villa jafn-
teflið með marki í síðari hálfleik
gegn sínum gömlu félögum í
Ipswich.
■ Eini markalausi leikurinn var
leikur Southampton gegn Totten-
ham. Liði Southampton er spáð í
fallbaráttu, en Tottenham liðið
er mjög breytt frá í fyrra og
óútreiknanlegt. Þó hefur liðið séð
á bak þriggja bestu leikmanna
sinna, þeirra Gary Lineker, Paul
Stewart og Paul Gascoigne.
Keyptir hafa verið margir snjallir
leikmenn, en skörð þeirra þriggja
verða vandfyllt.
1. deild
■ Robbie Dennison og Steve
Bull tryggðu Wolves góðan úti-
sigur gegn Brentford.
■ Guy Whittingham skoraði
þrennu fyrir Portsmouth í jafn-
teflinu gegn Bristol City.
■ Derby er spáð sigri í deildinni,
en liðið varð að játa sig sigrað
gegn Peterborough þar sem Ken
Charlery gerði eina markið.
■ Glenn Hoddle stjóri Swindon
gerði sigurmark liðsins gegn
Sunderland.
■ Bæði Leicester og Newcastle
eru talin eiga góða möguleika á
úrvalsdeildarsæti að ári og þau
sigruðu á heimavelli í leikjum
gegn Luton og Southend.
heill.
Teddy Sheringham skoraði
eina mark leiksins fyrir Forest
með góðu skoti úr þröngu færi á
29. mín. Leikurinn var ekki mik-
ið fyrir augað og Sheringham sem
Tottenham hefur hug á að kaupa
misnotaði tvö betri færi í leikn-
um, en það sem hann skoraði úr.
Liverpool átti góðan sprett í upp-
hafi síðari hálfleiks, en átti að
öðru leyti undir högg að sækja í
leiknum. Undir lokin urðu
áhangendur Forest liðsins æfir er
dómarinn sleppti vítaspyrnu á
David James markvörð Liverpool
er hann felldi Roy Keane í víta-
teignum. Þorvaldur Örlygsson
var ekki í leikmannahópi Forest,
enda nýkominn til liðsins eftir
sumarfrí.
■ Tveir 1. deilarleikir fóru fram
á sunnudag þar sem tvö af þeim
liðum sem féllu í fyrra léku á úti-
velli. West Ham sigraði Barnsley,
en Notts County varð að þola tap
gegn Birmingham.
■ Bruce Grobbelaar markvörð-
ur Liverpool lék landsleik fyrir
Zimbabwe á sama tíma og félag-
ar hans mættu Forest og honum
gekk betur þar sem landar hans
sigruðu Suður-Afríku 4:1.
■ Tveir af leikmönnum S-Afríku
fljúga til Englands í vikunni þar
sem þeir verða til reynslu hjá
Everton. Þar er um að ræða
sóknarmann og varnarleikmann.
Þ.L.A.
Teddy Sheringham gerði sigurmark Forest gegn Liverpool.
Þ.L.A.
Nott. Forest lagði Liverpool